Leita í fréttum mbl.is

Íslenskur berserksgangur

198325_10151329857865309_1991318803_n 

Nú er komið á vopnahlé milli hetjanna í Hamas og Ísraels, en hvort það endist veit þó enginn. Þið sjáið hvers konar lið Ísraelmenn eiga í höggi við á myndinni hér fyrir ofan.

Eitt er þó víst, að hamfarir sumra Íslendinga, tiltölulega lítils hóps fólks, sem gert hefur Palestínu að gæluverkefni sínu og Ísrael af helsta hatursmáli sínu, hafa aldrei náð hærri hæðum en nú. Þetta er fyrst og fremst fólk á vinstri væng samfélagsins, sumt sem studdi blóðugar byltingar og þjóðarmorðsríki fyrr á árum, og sem nú beinir hatri sínu á sömu brautir og Íslamismar og öfgamenn sem telja BNA og Ísrael versta vandamál heimsins. Þeir halda alla aðra vaða í villu og telja sig hafa einkaleyfið á friði, ást og skilningi. Svo sakar ekki að kosningar eru á næsta leyti.

Mér finnst ganga of hægt hjá þeim að eyða Ísraelsríki. Vildi að það yrði leyst upp sem fyrst og Ísraelsmönnum boðið hæli í heimalöndum foreldra sinna og þeir aðstoðaðir við þjóðflutninga. (sjá hér)

Þannig skrifar Eva Hauksdóttir, sem er norn að „atvinnu". Ja, það hlýtur að vera eitthvað af lausum tengingum, til að geta skrifað á þennan hátt. Eva skrifaði reyndar grein þar sem hún fjallar um "Þjóðarmorð Ísraelsmanna" á íbúum Gaza, en gerir sig um leið seka um að hvetja til þjóðarhreinsanna á Ísraelsmönnum. Það er nefnilega almenn ósk þeirra sem styðja baráttu Palestínumanna. Þeim þykir fínt að endurtaka óskir Hamas um útrýmingu á Ísrael og víla ekki fyrir sig að gera Ísraelsríki að systurríki Þýskalands Hitlers í orðræðu. Siðleysið á sér engin takmörk. Svo vill margt af þessu fólki vera tekið alvarlega í ESB.

Illugi Jökulsson, sem á mömmu sem um árabil rak ferðaskrifstofu sem sérhæfði sig í ferðum til sæluríkja Ghadaffis, Amedinejads og Assads, kallaði á Eyjubloggi sínu Ísrael Villimannaríki.

Ég leyfi mér að leiðrétta Illuga. Það er til fólk á Íslandi sem er á góðri leið með að skapa villimannaríki.

Hvernig stendur á því, að sumir Íslendingar ganga af göflunum í hvert skipti sem erjur blossa upp á milli Ísraels og Hamassamtakanna, og af hverju eru menn svona miklu hatrammari í afstöðu sinni til Ísraels á Íslandi en t.d. í ESB? Meira að segja í Noregi braust þessi æsingur út, og sjáið fordæminguna.

598553_10151151290347689_115530153_n

Ég tel að margir Íslendingar séu enn í fyrir-2008- sjálfsblekkingu, og halda að Ísland hafi hlutverki að gegna á meðal þjóðanna. Þeir halda, að ef Ömmi og líkfylgd hans safnast saman fyrir framan Bandaríska sendiráðið og tali með belgingi eins og á Stalín-árunum, að þá hafi það áhrif. Sjálfblekkingin er enn slæm. Það heyrir enginn af þessum belgingi nema á Íslandi. Á Gaza vita menn ekki betur en að Össur sé gervilimur sem ekki er hægt að búa til sprengju úr. Þeir tengja þetta nafn ekki við helsta stuðningsmann sinn og velunnara norður í Íshafinu. Með öðrum orðum. Enginn þekkir Ísland eða Össur á Gaza og Vesturbakkanum.

Jafnvel þótt að lítill hópur illa upplagst fólks í bernskuæsingi ráðist á sendiráð Ísraels í Danmörku, fær umheimurinn engar fréttir af því. Dönsk yfirvöld skammast sín líka fyrir slík skrílslæti.

Hróp og harmgrátur móðursjúkra Íslendinga, sem gerast óðir út af Gaza, en segja ekki múkk þegar verið er að slátra múslímum á Sýrlandi, heyrist hvergi annars staðar en á Íslandi. Kannski er þetta leið til að hita sér í kuldanum?

Meira að segja Össur Skarphéðinsson hefur hægt á hatursblossanum, enda vill hann inn í ESB. Þar líðst svona Hamasgangur ekki, og veit ég að Össur hefur vinsamlegast fengið að vita það frá kollegum sínum í Evrópu. Þar telja menn enn ekki gjörlegt að taka Hamas af hryðjuverkalistanum.  Þess vegna hélt Össur sér til hlés, nú þegar Ömmi var að með one-man-show til að skamma Obama á Laufásveginum. RÚV er meira að segja farið að kalla átökin "hjaðningavíg" (hver ætli sé Héðinn og hver Högni, eða stíga menn ekki í vitið á RÚV frekar en fyrri daginn).

Ég hringdi í Barack í gær, og náði í hann því allir samstarfsmenn hans voru í orgíu við herinn. Ekki hafði hann heyrt um harminn á Íslandi. En hann veit hver heldur líftórunni í Gazabúum meðan Hamas gengur berserksgang og vinir þeirra á Íslandi fara hamförum, það eru ekki vasapeningar frá EFTA eða peningar frá ESB og Quatar, sem fara beint í vasa siðspilltra leiðtoga Hamas - heldur:

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við höfum sem betur fer þróast mikið síðustu áratugi, eða frá því að Hitler var og hét.

Í dag er það næsta víst, að Eva Hauksdóttir, og aðrir ný-nasistar meðal vinstrimanna, geri þá ófrávíkjanlegu kröfu, að næstu útrýmingarbúðir sem settar verða upp til höfuðs gyðingum, verði með umhverfisvænum ofnum, og með góðum hreinsibúnaði, svo íbúum í nágrenni verði ekki heilsufarsleg hætta búin.

Hilmar (IP-tala skráð) 22.11.2012 kl. 15:43

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

VÖV smileyÞað tel ég víst, eins mikla umhyggju og nornin sýnir hælisleitendum frá Ísrael. En kannski ætti hún sjálf að leita sér að hæli.; t.d. hvítu húsi með rimlum fyrir gluggum.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.11.2012 kl. 16:54

3 Smámynd: Hörður Þórðarson

Synd að svona margir skuli vera á mótí Gyðingum en með Zíonisma.

Gyðingar á móti Zíonisma:

http://www.informationclearinghouse.info/article1506.htm

The Zionists claim that they are the saviors of Israel, but this is refuted by twelve things:

FIRST -- If one contemplates the two thousand years of our exile, take any hundred years even the hardest, one will not find as much suffering, bloodshed, and catastrophes for the People of Israel s in the period of the Zionists. And it is known that most of the suffering of this century was caused by the Zionists, as our Rabbis warned us would be the case.
SECOND -- It is openly stated in books written by the founders of Zionism that the means by which they panned to establish a state was by instigating anti-Semitism, and undermining the security of the Jews in all the lands of the world, until they would be forced to flee to their state. And thus they did - They intentionally infuriated the German people and fanned the flames of Nazi hatred, and they helped the Nazis, with trickery and deceit, to take whole Jewish communities off to the concentration camps, and the Zionists themselves admit this. (See the books Perfidy, Min Ha Meitsor, etc.). The Zionists continue to practice this strategy today ,they incite anti-Semitism and then they present themselves as the "saviors". Here are two replies given y Leaders of the Zionists during World War II, when they were asked for money to help ransom Jews from the Nazis. Greenbaum said "One cow in Palestine is worth more than all the Jews in Poland." (G-d forbid).
Weitzman said, The most important part of the Jewish people is already in the land (of Israel) and those who are left, are unimportant (May we be spared).
THIRD -- We see that most of world Jewry, Lives in security and under good physical conditions, and have no desire to go live in the Zionist state. Whereas many people have left the Zionist state to live under better conditions in other lands.
FOURTH -- The Zionists make a great deal of propaganda to induce people to immigrate to their state. If their state is so beneficial why do they have to make so much propaganda.
FIFTH -- Because nobody wants the Zionists to "save" them. The only way they can get immigrants is by promising poor people material benefits. And even then very few people respond.
SIXTH -- The Zionists State is always threatened by the dangers of war. Whereas the rest of world Jewry lives in peace and security, (Except in a few places where the Zionists have undermined their security and fanned the flames of hatred)
SEVENTH -- The Zionists state could not continue to exist without economic support from Jews living outside of the Zionist state.
EIGHTH -- The Zionist state is on the verge of economic collapse, and their money is nearly worthless.
NINTH -- The Zionists state persecute all Jews who are loyal to their faith.
TENTH -- They start wars that endanger the Jewish People, for the sake of their own political interests.
ELEVENTH - According to the Torah the path of safety is following ways of peace not starting fights with other nations, as the Zionists do.
TWELFTH -- Even if the Zionists could and would provide physical security it would be at the expense of our Faith and Our Torah. And the true People of Israel prefer death rather than life at such a cost.
It is therefore clear that Zionism is not the savior of the people of Israel. Rather it is their greatest misfortune.

Hörður Þórðarson, 22.11.2012 kl. 21:56

4 identicon

Ef maður skoðar sögu Ísraelsríkis og aðdraganda að stofnun þess http://guardian.150m.com/palestine/jewish-terrorism.htmþá virðist manni að gyðingar í Palestínu hafi verið í svipaðri stöðu og Palestar í dag.  Til að ná fram meintum rétti sínum til landsins þá komu fram hryðjuverkasamtök gyðinga, ósköð svipuð og t.d. Hamaz í dag. http://guardian.150m.com/palestine/jewish-terrorism.htm

Upp úr þessum hryðjuverkasamtökum spruttu síðan stjórnmálamenn sem seinna urðu áberandi og kanski "virtir" á alþjóðlega vísu. Fengu meira að segja friðarverðlaun Nobels. (Menachem Begin)

Merkilegt hvað þetta speglar hvað annað.  Þú Vilhjálmur segist VERA Zionisti og ert þar með að kenna þig við hryðjuverkamenn.  Segjum sem svo að gæfuhjól Ísraela snúist á þann veg að Palestínumenn nái öllum völdum og einhverjir af mótorhjólagæjunum hér að ofan verði siðar meir leiðtogi landsins og "virtur" friðarverðlaunahafi og Þá verður kanski einhver Íslendingurinn með ættlegg til Palestínu, til að segja með stolti í röddinni "Ég er Hamaz maður!"   og skrifar svo lærðar greinar um zionisku hryðjuverkamennina sem eru alltaf að senda eldflaugar og annan andskota úr gettóunum sínum. 

Skrítið!

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 23.11.2012 kl. 00:46

5 identicon

Fyrri krækjan átti að vera þessi http://en.wikipedia.org/wiki/Haganah  en skiftir svosem ekki öllu máli.

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 23.11.2012 kl. 00:59

6 identicon

Bjarni Gunnlaugur,

 Ertu að grínast??

Heldur þú að arabar og Palestínumenn hafi ekki haft "hryðjuverkahópa", eða "stríðsmenn" á þessum árum fyrir 1948??
  Ég meina, það eru svon sjálfskipaðir jólasveinar eins og þú, sem eruð mesta fyrirstaða fyrir því að friður skapist á þessu svæði....

  Var að hlusta á Rás 2 reyndar núna áðan, og ýki ég ekki þegar ég segi að talsmátinn var algjörlega í takti við orð Bobbys nokkurs Fischers.
 Virkilega skuggalegt hvað fólk getur verið skemmt ef maður leitar nógu vel. 

G. Ragnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 23.11.2012 kl. 10:45

7 identicon

G.Ragnar @10:45

Ég get því miður ekki að því gert þó þú sjáir ekki punktinn í röksemdarfærslunni. Hugsaðu aðeins betur og þá kemur þetta, kanski!

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 23.11.2012 kl. 14:08

8 Smámynd: Irina Trusevica

http://www.youtube.com/watch?v=jauVARIz8ZM&feature=player_embedded

Irina Trusevica, 23.11.2012 kl. 17:05

9 identicon

Bjarni,

  Ég tel mig skilja þig mjög vel. Aftur á móti er það sem þú segir ekki bara della, heldur einnig ákaflega heimskulegt..
  Skilur þú það?

G. Ragnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 24.11.2012 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband