Leita í fréttum mbl.is

Umskurðarbannsmenn fá svínslegan stuðning

Mynd á Stundinni
Vefmiðillinn Stundin birti þann 27. febrúar sl. frásögn af umskurði Gísla Gissurarsonar, sem hann fékk ungur vegna heilsufarslegra ástæðna sem ekki eru útlistaðir í greininni á Stundinni (myndin efst birtist á Stundinni)

Umskurðurinn á Gísla Gissurarssyni, sem fæddur er 1954, var framkvæmdur af lækni, en fór ekki sem skyldi og lýsir Gísli þjáningum sínum eftir aðgerðina í greininni.

Þegar maður les lýsingar á þjáningum Gísla eftir misheppnaðan umskurð sem íslenskur læknir framkvæmdi, sjá allir heilvita menn að hún á ekkert skylt við trúarlegan umskurð á drengbörnum á barnsaldri, sem stór hópur Íslendinga vill banna. 

Eins og við sjáum í tilfelli Gísla Gissurarsonar, var nauðsynlegt að umskera hann. Það var mat læknis, en læknishendur eða kannski bágborið hreinlæti eftir aðgerðina, leiddi til ígerðar og þjáninga fyrir hinn unga Gísla Gissurarson.

En er Gísli gjaldgengt dæmi í umræðuna um bann á umskurði á Íslandi? Hann gefur vissulega upplýsingar um að illa getur farið við aðgerðir læknis, ef læknirinn kann ekki listina að umskera.

Gísli Gissurarson hefur dæmt sig úr leik

Gísli hefur að mínu mati afskrifað sig úr allri umræðu um bann við umskurð vegna öfgafullra skoðana sinna á gyðingum og Ísraelsmönnum, sem eru hreint kynþáttahatur af allrasvæsnustu gerð..

Á Alternet hefur hann skrifað þetta:

"There is Israel a home of many fine humanitarians, and then there is the likud, a party of right wing religious extremists who can't grasp intuitively "Don't do unto others what you don't want others to do unto you". Likud is what we get when we combine the Nazi party and the Taliban. They murdered Yitzhak Rabin, and every peace maker in Israel has met his demise. Likud typifies right wing extremism, there is no negotiation, no compromise, the only thing they understand is FORCE. When these have power, there is no mercy, no compassion, humanity goes down the drain. The sub-human spearheading the carnage is facing an arrest warrant should he ever come to Spain. The words I would like to send this creep and the likud party where sub-humans shine, are so severe they can't be printed."


Maður eins og Gísli Gissurarson, sem kallar ákveðinn hóp Ísraela/gyðinga sub-humans, dæmir sig algjörlega úr leik í umræðunni um umskurðarbann sem mun koma niður á m.a. gyðingum. Hann er svo heltekinn af hatri gagnvart ákveðnum hópi gyðinga að hann notar um hann sömu orð og nasistar notuðu um gyðinga.

Þess ber at geta að Gísli hefur verið Bahaítrúar, en ekki hefur verið hægt að fá upplýst neins staðar hvort hann er það enn. Ísraelsmenn hafa leyft bahaíum að byggja eitt helsta hof sitt í Haifa í Ísrael og bahaíar hafa engin bönn við umskurði, þó þeir stundi þann skikk ekki sem hluta af trú sinni. Það er skrítinn máti að þakka Ísraelum fyrir aðstoðina sem bahaí-maður, með því að kalla suma þeirra sub-human.  En Gísli hefur örugglega sínar ástæður, sem hann upplýsir okkur ef til vill um síðar.

Þó Gísli Gissurarson noti ekki sömu orðin og ýmsir aðrir Íslendingar um umskurð, svo sem kynferðisbrot, limlestingu, pyntingar, hryðjuverk, níðingsverk og perrahátt svo fáeitt sé nefnt. En þegar maður, sem umskorinn var sem ungur, blandar sér í umræðu um bann á umskurði, þegar hann hefur áður talað um gyðinga sem sub-humans, dæmir hann sig að fullu úr leik, eins og þeir sem tala um kynferðisbrot, limlestingu, pyntingu, hryðjuverk, níðingsverk etc. Í raun væri ástæða til að láta yfirvöld athuga ummæli Gísla Gissurarsonar þegar hann kallar hluta af þjóð sub-humans.

Meðlimir Framsóknarflokksins sem m.a standa að baki bannfrumvarpinu um bann við umskurði á hina góða Íslandi, tilheyra flokki sem á síðustu öld reyndi með öllum ráðum að koma í veg fyrir búsetu gyðinga á Íslandi. Ráðherrar flokksins stóðu að brottvísun þeirra sem til landsins höfðu komið.  Framsóknarflokkurinn hefur aldrei gert upp við þessa ljótu fortíð sína, þar sem flokksmenn tóku með afstöðu sinni og aðgerð þátt í helförinni gegn gyðingum.  Hefur slíkur flokkur, sem einnig hefur talið liðsmenn sem hafa farið hamförum gegn múslímskum flóttamönnum á síðari árum ekki algjörlega dæmt sig úr leik, þegar þeir vilja banna umskurð á drengjum þeirra sem umskornir eru vegna trúar fjölskyldna þeirra?

Framsóknarflokkurinn er enn sekur um gyðingahatur, því nú vill hann banna gyðingum að stunda trú sína á Íslandi. Það er meginafleiðing af umskurðarbanni á Íslandi. Það er bara önnur leið til að stöðva búsetu gyðinga á Íslandi. Sama hatrið og 1940 klætt í annan "húmanistískan" búning en ekki í peysuföt útlendingahaturs og hræðslu.

Vitaskuld er hægt að taka á flokkum eins og Framsóknarflokknum í aljóðasamhengi, því lítið hefur breyst. Flokksmenn spörkuðu í gyðinga á 4. og 5. áratug síðustu aldar og nú vilja þeir banna þeim og öðrum að stunda trú sína og bera við mannréttindi og meðkennd með börnum.

Umskurður Hrafns Gunnlaugssonar í æsku?
Annar maður, Hrafn Gunnlaugsson okkar ástkæri kvikmyndaleikstjóri m.m., hefur einnig haldið því fram að hann hafi þjáðst mikinn eftir umskurð sem foreldrar hans þótti nauðsynlegt að hann fengi barnungur.  Ekki er Hrafn þekktur fyrir hatursumræðu um allan heims eins og þá sem Gísli Gissurarson er og er ekkert að klína ósóma upp á neinn, fyrir það að hann telur umskurðinn hafa verið sér til vansa. En Hrafn nefnir þó að erlendur læknir búsettur á Íslandi hafi framkvæmt aðgerðina.

Gísli, Eiríkur og Helig

Davíð: Af hverju ertu alltaf að klóra þér í klofinu, Krummi? Þórarinn: Hrafninn flýgur um hin helgu vé. Hrafn: Myrkrahöfðinginn er óþægur við mig. 

Þetta vekur vissulega mikla furðu. Hrafn er fæddur 1948 (já, hann heldur sér vel kallinn) en árið 1948 störfuðu engir erlendir læknar á Íslandi. Íslenskir læknar og þ.m.t. landlæknir börðust gegn því að erlendir læknar settust að á Íslandi og að kaþólikkar reistu hér sjúkrahús. Vilmundur landlæknir sendi yfirvöldum í Danmörku langt skjal þar sem hann sá erlendum læknum allt til foráttu - m.a. að þeir "kynnu ekki íslensku." Læknum, sem voru gyðingar, og margir þeirra virtir sérfræðingar, var vísað úr landi á Íslandi, þótt mikill læknaskortur hafi verið á 4. og 5. áratug síðustu aldar. Hrafni misminnir örugglega, því það er enginn möguleiki á að erlendur læknir hafi klúðrað umskurði á honum. Hann talaði reiprennandi íslensku sá sem átti við Hrafnstyppið.

En þetta eru nú dæmin sem verndarar forhúðarinnar á Íslandi notar til að sýna ykkur, kæru landar, að umskurður sé svo hræðilegur. Ég vona að einhver sjái samhengið og að það sé lítil ástæða fyrir einn af þeim sem sett hefur fram tillöguna um bann við umskurði, að fara í mál við einhvern mann úti í bæ sem hefur kallað hana "sveitakonu".  Mikið má konan nú vera hársár þegar hún tilheyrir stjórnmálaflokki sem á síðustu öld beitti sér fyrir því að koma gyðingum aftur til kvalara sinna. Ég held að sá flokkur ætti að gera hreint fyrir sínum dyrum áður en hann byrjar að banna gyðingum og múslímum eitt eða neitt.

Ancient_Medieval_era_circumcision_Italy

Þessi mynd er af síðu forhúðarbaráttumanna (sem halda því fram að hún sýni umskurð). Svo mikið er hatrið og fordómarnir í þessari umræðu að fólk í þessum nýja typpbransa notar mynd af myndhöggvurum á Ítalíu á miðöldum sem eru að höggva út feitlaginn engill ekki ósvipaðan Agli Helgasyni og halda því fram að þarna sé að fara fram umskurður. Þetta er gott dæmi um æsinginn og algjöra fávisku sem einkennir "baráttufólkið" sem nú dýrka forhúðina. (Sjá síðuna sem notar þessa mynd hér, þar sem umskurður er kallaður absurdity)


Bloggfærslur 2. mars 2018

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband