Færsluflokkur: Kynning
27.2.2007 | 13:09
Leitað að íslenskum listamanni
Ég er enn að leita að listamanninum úr síðustu færslu minni. Sýningin, sem hann tók þátt í, hafði þetta að segja gestunum:
Gyðingar hafa löngum verið duglegir og samviskusamir í að safna auði. Í heimi viðskipta hafa þeir verið áberandi og sagt er að gyðingar stjórni efnahagskerfi Bandaríkjanna og líklega þá heiminum öllum. Ísraelsríki var stofnað nokkrum árum eftir helför nasista eins og við öll þekkjum. Gyðingar áttu samúð heimsins og eiga enn vegna helfararinnar. Nú beita þeir nágranna sína sama óréttinum og þeir hafa sjálfir þurft að þola gegnum aldirnar. Eru gyðingar orðnir gerendur í helför gegn aröbum með efnahagskerfi Bandaríkjanna sem bakhjarl?
Ætli þessi orð hafi hvatt listamannin, sem ég er að leita að, til að hengja gyðing á Kling & Bang?
Er listamanninn að finna meðal eftirfarandi listafólks sem tók þátt í sýningunni:
Birgir Andrésson Björk Viggósdóttir Bryndís Ragnarsdóttir Egill Sæbjörnsson Einar Sebastian Erling Klingenberg Gjörningarklúbburinn Guðjón Bjarnason, Gus Gus Hafsteinn Mikael Helga Óskarsdóttir Hlynur Hallsson Hulda Hákon Ingibjörg Magnadóttir Jón Óskar Jón Sæmundur Auðarson Kristín Eiríksdóttir Kristján Björn Lárus H. List Ósk Vilhjálmsdóttir Pétur Már Gunnarsson Rúrí Sara Björnsdóttir Sigtryggur Berg Sigmarsson Snorri Ásmundsson Spessi Tómas Lemarquis Unnar Örn J. Auðarson Þorbjörg Pálsdóttir.
Kannski veit Steven Spielberg það, en hann varð þess heiðurs aðnjótandi að fá mynd af sér og ET á sýninguna á Kling & Bang
Kynning | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2007 | 10:20
Gyðingur hengdur á Kling & Bang
Þessi mynd var teiknuð á myndlistasýningu í Reykjavík sl. sumar. Sýningin bar heitið Guðs útvalda þjóð og var haldin á Gallerí Kling & Bang. Gestir sýningarinnar voru beðnir um að tjá skoðun sína á Guðs útvöldu þjóð á vegg sem hafði verið þakinn töflusvertu. Þetta var ein af útkomunum. Ég leita enn listamannsins. Hann er beðinn að gefa sig fram. Þarf ekki að setja svona snilling á listamannalaun? Hann gæti orðið borgarlistamaður í Reykjavík, en borgin er styrktaraðili Kling & Bang.
Myndina fékk ég senda frá konu í Bandaríkjunum, sem eftir ánægjulega ferð um Ísland varð fyrir miklum vonbrigðum á Kling & Bang. Hér að neðan er mynd frá Vín árið 1938. Skoðið vel krotið á verslun gyðingsins. Sjáið þið eitthvað sem er líkt og á Kling og Bang?
Kynning | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2007 | 21:43
Frelsi fyrir Abdelkareem Nabil
Enn eru til Egyptar sem reisa pýramída, en það er bannað!
Skrifið undir hér
Lesið blogg Abdelkareems hér
Hjálpið Egyptalandi að byggja Pýramída frelsisins.
Egypskur bloggari dæmdur í fjögurra ára fangelsi vegna móðgunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kynning | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2007 | 16:48
Íslendingur á nasistaveiðum ?
Hvað hefur hann grafið upp nú
Eftirfarandi frétt er hægt að lesa í danska blaðinu Berlingske Tidende. Þar er nefndur til sögunnar íslenskur bréfberi í Kaupmannahöfn, Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, sem vakið hefur máls á fleiri glæpum SS-mannsins Søren Kams, sem Þjóðverjar halda hlífðarhendi yfir. Sjá fyrri færslu.
Sjá: http://www.berlingske.dk/indland/artikel:aid=859958
7. februar 2007 kl. 15:15
Søren Kam var med i jødeforfølgelser
Hvis nye oplysninger fra en dansk historiker og Simon Wiesenthalcentret passer, så stod Søren Kam centralt i forfølgelsen af danske jøder i 1943.
Søren Kam havde en stor finger med i forsøget på at udrydde de danske jøder. Det skriver Politiken.dk på basis af oplysninger fra nazijægeren Efraim Zuroff ved Simon Wiesenthalcentet i Jerusalem såvel som historikeren Vilhjalmur Örn Vilhjalmsson. Efter samarbejdspolitikkens slutning indledte besættelsesmagten i oktober 1943 en klapjagt på danske jøder. Men hidtil har det ikke været kendt, at Søren Kam skulle have deltaget. Nu lyder det, at Kam deltog i et røveri i august samme år, hvor det lykkedes danske nazister at få fat i adresserne på mosaisk trossamfunds medlemmer. En landsret i München afviste forleden både at udlevere Kam såvel som selv at stille ham for retten for drabet i 1943 på journalisten Carl Henrik Clemmensen. /ritzau/
Kynning | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2007 | 19:28
Kalda stríðið í Danmörku
Eru þetta danskir KGB njósnarar? Eða bara heitfengir Kratar?
Nú liggja tveir einstaklingar, blaðamaður á danska dagblaðinu Politiken og prófessor við háskólann í Oðinsvéum (Syddansk Universitet) undir grun um að hafa birt upplýsingar um aðra einstaklinga, sem þeir hafa fengið aðgang að í skjalasafni Dönsku Leynilögreglunnar (Politiets Efterretningstjeneste, sem oftast er kölluð PET). Blaðamaðurinn og sagnfræðingurinn Hans Davidsen Nielsen og prófessorinn Bent Jensen hafa báðir fengið aðgang að gögnum frá Kaldastríðsárunum, sem aflétt hafði verið leynd á. En nú viðra yfirmenn PET möguleikann á því að lögsækja þessa góðu menn, sem ég þekki báða lítillega, vegna þess að haldið er fram að þeir hafi birt nöfn einstaklinga og upplýsingar - sem ekki mátti birta.
Hægan, hægan. Það er eitthvað sem ekki passar alveg hér. Fyrst eru heimildir gerðar aðgengilegar og skjalasöfn opnuð, og svo er bannað að vitna í þær að fullu. Ég hef reyndar lent í sömu hringavitleysunni, þegar ég uppgötvaði ríkisglæpi danskra yfirvalda, sem sendu flóttamenn í klærnar á nasistum 1943-45. Alls kyns hömlur voru settar til að hindra vinnu mína. Mér var í raun bannað að birta nöfn fórnarlambanna, en virti það að vettugi, það sem þær hömlur var ekki hægt að rökstyðja með lögum.
En Kalda Stríðið lætur ekki að sér hæða. Kitlandi spurningar um hverjir af kommunum voru njósnarar fyrir Sovét geta ekki verið leyndarmál endalaust. Sérstaklega þegar búið er að veita aðgang að heimildunum um þessar miklu byltingahetjur. Hvað halda yfirvöld eiginlega; að sagnfræðingar verði rosalega glaðir yfir því að fá heimildaaðgang, en að þeir óski ekki eftir því að miðla þeim upplýsingum sem í heimildunum er að finna? Hvers konar ídjót eru þetta í dönsku leynilöggunni?
Hans Davidsen Nielsen tekur tíðindunum um að PET vilji fara að rannsaka bók hans afar létt. Hann segist m.a. hafa birt sömu mannanöfn (njósnaranna) og prófessor Bent Jensen hefur gert. En Jensen hefur verið húðskammaður fyrir að gera það og nú hefur honum meira að segja verið stefnt afblaðamanninum Jørgen Dragsdal, sem Bent Jensen segir hafa verið njósnara KGB í Danmörku.Hans Davidsen Nielsen hefur í nýrri bók sinni skrifað að samkvæmt gögnum PET, hafi Dragsdal þessi verið talinn vera Maður Nr. 1 í Danmörku af KGB.
Gamlir kommar og aflóga æsingahippar ganga berserksgang þessa dagana út af þessu máli. Bent Jensen tekur æsingi þeirra með stillingu (sjá góða grein í Berlingske Tidende). Hans Davidsen Nieslen segir, að ef hann verði fundinn sekur um að hafa misnotað heimildir, nánar tiltekið sömu heimildir sem Bent Jensen og sérfræðingar á Dansk Institut for Internationale Studier (DIIS) hafa notað og birt, þá hlakki hann til að spila þriggja manna vist við Bent Jensen og stjórnanda DIIS rannsóknarinnar í fangaklefanum. Kannski gætu Lenínistarnir á myndinni hér að ofan fengið að spila með.
Dönsk yfirvöld verða að taka því að margir gamlir Kratar munu verða afhjúpaðir sem Rússanjósnarar í Kalda Stríðinu. En vandamálið í Danmörku er, að völd Kratanna eru óhemjuleg, einnig á stofnun eins og PET.
Kynning | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.2.2007 | 18:42
Dóri í dönsku blöðunum
Gott að hafa græna hjálminn nú
Halldór Ásgrímsson skrifar í Jyllands-Posten í dag og svarar svæsnum ásökunum Dansk Folkepartis. Áhugaverð grein.
En gæti Halldór svarað því hvað var gert við flóttamenn frá Írak, þegar þeir komu til Íslands í tíð hans sem ráðherra? Hvað gerist svo, þegar írakskir flóttamenn í Svíþjóð óska að flytjast til Íslands? Nei, sveiattan, það er enginn svo vitlaus, að vilja það....... Hvers vegna eru Íslendingar í útrás, og tíundi hver Íslendingur undir fátæktarmörkum?
Kynning | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 83
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 52
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007