Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: hómófóbía

Er nokkrum vært á Íslandi fyrir heimsku?

gustav_adolf_1253190.jpg

Sem fyrsta Íslendingnum, sem í rituðu máli stakk upp á byggingu mosku á Íslandi, þykir mér sárt þegar sígaunahatari, sem haldið hefur því fram, að Rómafólk ræni ljóshærðum börnum frá Svíþjóð og Finnlandi, banni mig í fjölmiðlaumræðu á íslenskum fjölmiðli. Kannist þið við Egil Helgason? Þið þekkið hann ekki, heilagleikann, ef þið vissuð ekki að ég er hér einmitt að nefna hann, þann gamla baráttumann fyrir frelsi og jafnrétti, sem hann kann meistaralega að beygja að sínum hentugleika,líkt og aðrir lýðskrumarar.

En ég er orðinn þreyttur á Agli og þetta fjallar um annan öfgamann: Gústaf Níelsson inn óferjandi. Gústaf, sem að öllum líkindum er sígaunabarn sem rænt var í Napólí af íslenskum kapteini (ef trúa má uppeldisbróður hans), hefur svo sem einnig látið mig heyra það, t.d. á smettisskruddu Gísla Gunnarssonar prófessors. Oft hefur Gustavo ásakað mig fyrir að vera drykkjumann eða á lyfjum. En þrátt fyrir æsinginn í þessum blóðheita innflytjenda tel ég óeðli og ólýðræðislegt, þegar maður með skoðanir Gústafs Adolfs er útilokaður frá nefnd um jafnréttismál, ef hann hefur verið kosinn í hana á löglegan hátt. Slíkt getur aðeins gert á Íslandi, líkt og þegar læknar fá 20-30 % launahækkun, þegar þjóðarskútan er að sökkva.

Gústaf hatar múslíma. Það tel ég næsta öruggt, jafnvel þá sem ekki eru morðóðir í nafni trúar sinnar, líkt og margir þeirra eru - því miður. Gústi er líka afar hræddur við homma. Þess vegna keppast allir við að hreinsa hendur sínar og afneita þessum orðhvata manni sem hleypir engu karlkyns nær rassi sínum en 4-5 metra fyrir framan sig.

En eins og ég er nú opin fyrir moskum og hommum og jafnvel hommum í moskum (þar sem ekki er boðað hatur), öllum litum og trúarbrögðum, þá er ég einnig opinn fyrir opinskárri og hreinskilinni umræðu. Ég hélt að margir væru það, en kannski missýndist eða -heyrðist mér hér um daginn, er menn voru farnir að tala frönsku og sögðust heita Charlie.

Ef menn banna Gústaf Adolf, þá eru þeir ekki samkvæmir sjálfum sér. Gústaf hatar homma á sama hátt og stór meirihluti múslíma í heiminum gerir (þó hefur Gústaf aldrei sagt að þá beri að grýta eða hálshöggva), og það hefur ekki farið leynt að einn af prestum múslíma á Íslandi er skoðanabróðir Gústafs hvað varðar homma og lesbíur.

Múslímar á Ísland eins og annars staðar hata líka gyðinga og styðja hryðjuverk. Það er staðreynd. Ef þið afneitið því, eruð þið gyðingahatarar (sjá hér). Íslenskir múslímar hrópa jafnvel á eftir fólki sem þeim líkar ekki, að þeir séu "helvítis gyðingar". Ekkert heyrist þó í æðstaráði einherra æviráðinna dularfullra kvenna í HÍ þegar slíkt gerist, en þær ærast þegar Gústaf Adolf er kominn í einhverja nefnd.

Sumir múslímar eru jafnvel svo ósvífnir að líkja sér við fólk sem múslímar hata mest. Um daginn lét talsmaður íslenskra múslíma, Sverrir Hebdo, þá skoðun sína í ljós að "múslímar væru gyðingar samtímans" og væru ofsóttir eins og gyðingar forðum. Þvílík smekkleysa. Ætti ekki að reka manninn úr vinnu sinni? Nei, Sverrir er svo vænn við homma, að það tekur ekki að æsa sig upp yfir slíkum tittlingaskít.

Ég hef séð, að fólk með ættarnafnið Tamimi, haldi því ranglega fram og jafnvel stolt á góðri stundu, að það sé skylt konu einni sem framið hefur hryðjuverk gegn saklausu fólki í Ísrael. Þetta gera sumir íslenskir Tamimiar, þó svo að enginn skyldleiki sé við hryðjuverkakonuna samkvæmt "ættarhöfðingjanum" Salman Tamimi. En í hita leiksins, þar sem tilgangurinn helgar meðalið, telja margir Íslendingar og jafvel fólk með þetta eftirnafn á Íslandi, að allir Tamimi heimsins, sem líklega telja nokkur hundruð þúsund manna, ef ekki milljónir, séu komnir af sama forföðurnum. Sumir ættingjar Salmanns eru greinilega viljugir til að spyrða sig með upplognum skyldleika við hryðjuverkafólk sem drepur saklaust fólk í Jerúsalem.

Þessir ættingjar Salmanns Tamimis á Íslandi eru bornir á gullstóli þegar þeir segjast ofsóttir af múslímahöturum í kjölfarið á hryðjuverkaárás á gyðinga og skopteiknara í París, meðan hinn stóryrti Gústaf er jarðaður sem kynþáttahatari og hómófób. Eins og það sé ekki nóg. Hann er líka útilokaður af afdalaflokki þeim sem hann tilheyrir, sem sannarlega hefur reynst gyðingum sem komu til Íslands sem flóttamenn verr en nokkur múslími á Íslandi. Nú er afdalaflokkurinn sem sagt kominn með stefnu í mannréttindamálum, á síðustu dögum heilögum. Fljótt skipast veður í Moskuborg.

Það liggur við að maður lýsi yfir stuðningi við Gústaf eins og aðra minnihlutahópa. En ég er hvorki á lyfjum eða á flöskunni, eins og Gústaf hefur skrifað um mig, svo meiri stuðning fær hinn ofsafengni og blóðheiti sígauni (afsakið orðbragðið) ekki hér en þessi lokaorð:

Gústaf Adolf Níelsson virðist mér ekki vera meiri öfgamaður en margur annar Íslendingurinn. Þegar fólk flykkist á Lækjartorg til þess að styðja Hamas og er orðið að Fransmanninum Charlie Hebdo nokkrum mánuðum síðar, er ekki laust við að þjóðin sé geðklofa. Ekki útiloka ég þó, að meinið sé bara slæmt tilfelli af hræsni og heimsku.

(Myndina efst fékk ég lánaða hjá Charlie Hebdo)


Typpasleikjó

of=50,590,442
 

Íslendingar eru alltof uppteknir af kynlífi og kynhneigð. Það finnst mér, og það á örugglega við um mig líka. 

Þótt réttindi samkynhneigðra séu vart meiri á byggðu bóli en á Íslandi, fer heil vika þjóðarinnar í frekar dauflega göngu fyrir samkynhneigða í rigningu og sudda, og svo í rugl og raus í siðapostulum í kjölfarið. Það sem mest höfðar til kynhneigðar þjóðarinnar í göngunni er uppátæki borgastjórans í Reykjavík, sem var í gervi prestsmadömmu í ár.

Réttur fólks af öllum tegundum til að elskast og ganga í hjónaband, án þess að verða fyrir aðkasti fyrir það, er lögleiddur á Íslandi. Ég sé ekkert af því að karlmenn sleiki hvern annan á almannafæri ef það er fyrir ofan beltisstað og neðan lendarklæðis. En stundum finnst mér að sumir samkynhneigðir vilji eitthvað meira en grundvallarréttindin og að kynlíf þeirra og ást fjalli mest um sýndarmennsku. Mér skjátlast örugglega, því til er fólk sem borðar hreinlega smiðsson, gyðing, á táknrænan hátt í stórum húsum með turnum, sem geta minnt menn og konur með frjósamt ímyndunarafl á rausnarlegt reður. Hallgrímskirkja, uuhhm.

Þegar maður les í athugasemdum við fréttir af hommaóþoli Gylfa Ægissonar skemmtikrafts, að 5 ára börn hafi gengið um götur borgarinnar og sleikt sleikipinna sem lagaðir voru eins og typpi, er ekki laust viða maður sé hættur að skilja baráttu samkynhneigðra.

Allir hafa vitaskuld rétt á því að sleikja typpi maka sinna og hvað sem þeir vilja -  en 5 ára börn, jafnvel 3ja ára eins og maður sér ef maður googlar, eiga fjandakornið fyrir enga muni að vera að sleikja sykurtyppi. Þau eiga að eiga það til góða. Það er að minnsta kosti mín skoðun. En nú til dags geta þau vitanlega séð morð og nauðganir í sjónvarpinu á hverju kvöldi, svo þau eru líklegast með meira hár á brjóstinu en ég var á þeirra aldri og kalla ekki alt ömmu sína í kynlífsmálunum. Líklega vita íslensk börn hvað hommi er þegar þau eru 3-5 ára. Ég vissi fyrst hvað það var svona um 12 ára aldur.

Ef rétt er, að hommar og lesbíur séu að dreifa typpasleikjó til barna í gleðigöngunni, er blygðunarkennd minni misboðið, þótt ég sé ýmsu vanur. Fólk sem telur mannréttindabrot að tala með óvirðingu um öfgafulla spámenn sem ekki má nefna, en gefur svo smábörnum typpi úr sykri til að sjúga, er ekki sjálfur sér samkvæmt.

Eru Hinsegin Dagar að fara framúr sér? Eru þeir einvörðungu til að ögra þeim sem ekki hugsa sífellt um að sleikja reður? Ég bara spyr.

Myndina efst fann ég á myndsíðu íslensk ungmennis sem er að sýna heiminum hvernig ungmenni i sletta úr klaufunum á erlendri grundu þegar pabbi og mamma sjá ekki til. Foreldrar barna sem þiggja typpasleikjó ráða hins vegar hvað börn þeirra sleikja, og ef fólk á Íslandi telur það gott mál að litlu börnin þeirra séu að bryðja sleikibrjóstsykur, sem er eins og reður í laginu, skipti ég mér ekkert frekar að því. 

Ég hefði líklega ekki átt að skrifa þetta, því það er víst afar gamaldags að sleikja ekki typpasleikjó. Ég er greinilega að verða gamall. Typpasleikjó er það sem koma skal. 

Hvaða bragðtegundir eru til?

181513252
Ekki veit ég hvort þessar stúlkur eru íslenskar.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband