Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Kæri Ilves forseti

Uffe Ellemann Jensen in Estonia

Kallis President Ilves 

Kui eemaldate mälestised Eestis, mis mälestuseks Waffen SS, et ma külastan oma riigi Islandi külalisena.Kui te süüdistuse Eesti natsi sõjakurjategijad, ma hea meelega saada oma sõbra ka.

On onu
Ellemann-Jensen Taanist, kes näitab meile SS-mälestusmärgid Eestis.

Handa ykkur, sem ekki skiljið Google-eistnesku, mæli ég með þessari grein: http://www.holocaustinthebaltics.com/AntonWeissWendt2008.pdf um vanda Eista, sem ég vona að þeir leysi fyrir 20 ára afmælið á næsta ári

estonia-monument
Sinimae_Statua_pro_nazi

 

Furðulegar, en ófalsaðar myndir frá Eistlandi.

"Ég er friðarsinni. Ég myndi ekki skaða flugu ..."

image 3
 

Á Íslandi telja friðelskir vinstrimenn og nasistar, að samlíkingar milli Ísraels og djöfulsins þjóni heimsfriðinum, sem þeir þrá svo heitt. Allur orðaforðinn úr gyðingahatri miðalda og nasismans er nú notaður óspart af gyðingahöturum og vinstrimönnum á Íslandi í stuðningi þeirra við Hamas á Gaza. Kannski ekki að furða, Hamas á Gaza gerir það sama.  Vinstrimenn, vopnabræður Hamas, sem ímynda sér að þeir elski friðinn betur en aðrir, hafa látið út úr sér svo mikinn sora um Ísrael og gyðinga upp á síðkastið, að Ísland verður að teljast meðal þeirra ríkja í Vestur Evrópu sem eru verst haldin af gyðingahatri. Samlíkingar á Ísrael við krabbamein hafa sést og ófáir menn hafa lýst þeirri skoðun sinni, að Hitler hafi því miður ekki lokið ætlunarverki sínu. Engin yfirvöld á Íslandi reyna að stöðva þetta hatur og þau lögbrot sem felast í mörgum af þessum skrifum. Á Eyjunni skrifaði um daginn maður sem kallar sig Arnar og líkti gyðingum/Ísrael við krabbamein: "Ég er friðarsinni .... en ég myndi ekki hika við að skera burt krabbamein. Heimurinn þarf á aðgerð að halda . Áður hafði hann skrifað: Ég er friðarsinni , myndi ekki skaða flugu . En ég myndi skera burtu krabbamein án þess að blikka auga. Það er kominn tími á aðgerð".

Svona subbuskrif á Eyjunni, sem eru þó ekki þau verstu sem sjást þar eða á Moggablogginu, eru krabbamein frjálsrar fjölmiðlunar á Íslandi.

Lítið fer fyr sannleiksást í málflutningi flest þess fólk sem telur sig styðja íbúa Gaza með því að sigla „friðarskipum" þangað og aðstoða þau öfgasamtök sem halda íbúunum nauðugum í hers höndum. Hamas hersetur Gaza og pínir Palestínumenn.

Hamas er fyrir löngu búið að sjá, að auðvelt er að telja „frelsishetjum" á Vesturlöndum trú um hvað sem er, og þeir færa sig æ meira upp á skaftið í lygum og áróðursleiksýningum. Greinilega vilja stuðningsmenn Hamas og hatursmenn Ísrael ekki heyra neinn sannleika um Gaza.

Ég set hér tengsl í við afar góða og alveg nýja greinargerð um Gaza, sem ég hvet alla heilvita menn til að lesa. Hér getið þið lesið um efnahagsástandið á Hamas skv. Palestínskum heimildum. Þær upplýsa ekki um neina vöntun og það hungur eða þá neyð sem á að vera á Gaza. Þvert á móti. En vitleysingar á vesturlöndum vilja ekki heyra neitt annað, því þeir geta ekki tekið aftur samlíkingar sínar á Gaza við örlög gyðinga í síðari Heimsstyrjöld, örlög sem Hamas samtökin segja reyndar vera lygi.  

image 1
Mynd sem fölsuð hefur verið af Reuters. Það sem Reuters skar burt sést efst.
image 2
Sama mynd, en óskorinn. Þarna sést hnífur og blóð
Takið eftir því að þessi greinargerð er full af tilvitnunum og rökum. Það sér maður ekki í æsingi og vitfirringu þeirri sem geisað hefur gegn Ísrael á síðustu dögum. Stuðningsmenn Hamas víla ekki fyrir sér að falsa heimildir og ljúga í fjölmiðla. Alþjóðlegar fréttastofur taka þátt í veislunni. Reuters fréttastofan hefur enn einu sinni gert sig seka um að klippa til myndir til að hagræða sannleikanum . Sjáið t.d. dæmið hér. Efst upprunaleg mynd. Neðst myndin eftir að öfgafólk hjá Reuters hefur klippt myndina til . 

Tveir ungir fréttamenn á RúV, hafa einnig farið hamförum og stundað afar einhliða og lítilfjörlegan fréttaflutning. Einn sagði að prik hefðu verið notuð gegn ísraelsku hermönnunum, sem tóku Mavi Marmaris. Hinn laug því að Ísraelsmenn hefðu ekki afhent þau hjálpargögn sem var um borð á skipinu. Það rétta var, að það hafi ekki verið sótt af Hamas við landamærin. Hvernig stendur á því að svona eineygðir kjánar geti fengið starf á fréttastofu RÚV? Ætli þeir geti lesið þessa skýrslu.

Maður getur látið af hatri sínu áður en það verður sjúklegt. Sumum er þó greininga ekki við bjargandi. Sjáið þessa eldgömlu fréttakonu í BNA. Rök eins og þau sem hún gefur  hafa sést í miklum mæli í umræðunni á Íslandi. Gamla konan hætti loks um daginn (vegna of mikils haturs), enda greinilega komin á aldur. En það er ógnvekjandi til þess að vita að þetta er góðvinkona Obamas sem hér sést halda upp á 2000 ára afmæli gyðingahaturs-grýlunnar í Hvíta húsinu.

ht

Lesið svo skýrsluna og fræðist. Það er aldrei um seinan. Þótt hún sé skrifuð af gyðingi og Ísraelsmanni. Látið það ekki eyðileggja ánægjuna. Sagan sýnir, að gyðingar eiga það til að skrifa sannleikan, þannig að hann svíður.


Hatur er hluti af íslenskri friðarbaráttu

Villi í Køben

Fyrir tilviljun sá ég að Torfi nokkur Stefánsson, sem er prestur án kalls, skrifaðu nýlega um mig miður fallega og gerði mér upp skoðanir og gaf í skin að ég væri nasisti.

Torfi gerði þetta inni á tru.is, sem er vefur í tengslum við Þjóðkirkjuna. Enn verra þótti mér, að Torfi lagði við texta, sem hann sagði að ég hefði birt á Eyjunni þann 1. júní. Skrif Torfa voru á þessa leið:  (ég skrifa í þátíð, þar sem umsjónarmaðurinn á tru.is á Biskupsstofu var fljótur að fjarlægja þessa athugasemd Torfa Stefánssonar, sem þótti í alla staði ókristileg og óviðeigandi).

Torfi Stefánsson skrifar:
1. 6. 2010 kl. 14.34

Hér er innlegg frá Vilhjálmi Erni inni á eyjan.is fyrr í dag. Þar kemur hans rétta eðli í ljós og ástæðan fyrir ást hans á ofsatrúarmönnunum í Ísrael, þ.e. sameiginlegt hatur á vinstri mönnum. Munum að þetta sama hatur einkenndi nasista Þýskalands á sínum tíma, hatur sem einnig beindist að gyðingum sem þá voru margir hverjir hallir undir sósíalisma (ég skil reyndar ekki af hverju þessi maður er ekki útilokaður frá þeim spjall-listum sem taka sig alvarlega og vilja halda uppi siðlega umræðu):

"Hinir vinstrisinnuðuöfgamúslímar hamas hafa verið að murka lífið úr þjóð sinni nú í tæpan áratug og verið helvíti duglegir við að framkvæma aftökur á eigin þjóð, án þess að það hafi truflað hinn venjulega sófakomma. Að kenna síonistum um allt sem illa fer á gaza er lík þeirri einföldun að bagalegt ástand á cúbu sé allt bandaríkjamönnum að kenna. En hefur enginn skýring fengist afhverju vinstriskríllinn virðist stöðugt mynda tilfiningaástarsamband við vinstriöfgamúslíma þar sem siðblinda,girnd, og blint hatur á allt og alla sem ekki eru sammála eða voga sér að draga í efa heillindi og drengskap liðsmanna hamas. Daður og sjálfdýrkun verður að linna svo hægt sér að vinna að sjálfbærum friði fyrir botni miðjarðarhafs, Því væri ráð að vinstrimenn byrjuðu á að taka til siðferðislega í eigin ranni, því þá er meiri von um frið."

Þetta hef ég aldrei skrifað. Síðast er ég gerði athugasemd á Eyjunni varð það við mjög gott blogg Stefáns Snævarrs  http://blog.eyjan.is/stefan/2010/05/31/hvar-voru-thid/ . Þá sjaldan að ég tek þátt í umræðu á Eyjunni, er það undir fullu nafni. Ég hef ekkert að fela.

Ég hafði í því samband við Torfa Stefánsson, sem taldi Vilhjálm þann sem gerði athugasemdir við frétt Eyjunnar áðurgreindan dag vera undirritaðan (mig), og það voru fleiri sem ályktuðu svo í æsingi sínum, þó nafn mitt væri ekki skrifað þar að fullu.  Sjá þessa makalausu umræðu:  http://eyjan.is/blog/2010/05/31/allavega-tiu-latnir-eftir-aras-israelshers-a-skipalest-med-neydargogn-fyrir-ibua-a-gaza/ 

Séra Torfi hefur nú beðist afsökunar, en hann bætir við:

Fyrsta innleggið frá "Vilhjálmi" kemur fyrr eða kl. 10.38:

"En hefur enginn fundið ástæðu þessa undarlega ástarsambands milli vinstriöfgasinaðra múslima og hins venjulegs sófakomma. Hvort heldur um sé að ræða bann við umskurn kvenna, bann við notkun burku, aukna menntun barna og eiginkvenna vinstriöfga múslíma og svo framvegis, dauðadóma yfir hommum og friðsamleg sambúð við sionista. Hvað veldur þessari siðblindu og sjálfelsku

ásamt þessu blinda hatur út í allt og alla sem ekki eru sammála.........Verðugt umhugsunarefni til þeirra vinstrisófakomma sem telja talibana,hizbola,hamzas sem frelsishetjur."

Því er svarað á þessa leið: "Nei er ekki Vilhjálmur frá köben mættur með enn eina skítaklessuna? Alltaf er þessi drullusokkur fyrstur upp á dekk þegar þarf að verja fjöldamorð ísraela."

Reyndar kemur ekkert fram að það sé þú sem skrifar þetta, aðeins "Vilhjálmur". Ef svo er, þ.e. ef þú hefur ekki skrifað þetta, þá bið ég þig afsökunar á að hafa talið svo vera.

Ég er hins vegar ekki einn um að halda það - og ekki að ástæðulausu. Þú ættir kannski að athuga þinn gang í gagnrýnislausum stuðningi þínum við "gyðinga", annars er hætt við að annar eins "misskilningur" komu upp aftur ... og aftur.

Ertu ekki hræddur við að vera lögsóttur fyrir briðgsl í garð landstjórnarinnar? Er ekki refsingin fyrir það allt að átta ára fangelsi?"

Þetta er vægast sagt skrítin afsökunarbeiðni, en eins og gyðingurinn Jesús forðum tek ég við afsökunarbeiðni íslenska prestsins og fyrirgef honum yfirsjónina, sem er mikil. Náttúrulega styð ég við gyðinga og það án gæsalappa. Annað kæmi ekki til mæla. Ég á ekki annarra kosta völ.

Kæru lesendur það er ekki neitt nýtt að ég verði fyrir aðkasti frá íslenskum stuðningsmönnum öfgasamtaka og ýmsum gífuryrðaþeyturum. Maður nokkur, vel vaxinn og mikill sem elur manninn í Asker i Noregi, hefur í tvö ár kynnt sig á þennan hátt:

Óskar Þorkelsson

   Óskar Þorkelsson   The DartMaster    

Öfgafólk fer í taugarnar á mér... passið ykkur á Villa í Köben hann er öfgamaður. 

Þegar málstaðurinn er ljótur og lélegur grípa menn til slíkra yfirlýsinga. Lygar og fals eru systur haturs. Við sjáum það t.d. í málatilbúnaði "friðarsinnanna" sem ætluðu til Gaza. 

Ég hef beðið umsjónamenn Morgunblaðs bloggsins að biðja Óskar Þorkelsson Dartmaster á Áskerjum um að hafa hemil á sér og vera aðeins sjálfstæðari í lýsingu á sinni eigin persónu. Því er hér með aftur komið á framfæri.


Shut up, go back to Auschwitz

Ekki eru þetta mín orð heldur ykkar, sem fóruð í andanum og taumlausum öfgum ykkar á skipum "friðar" til Gaza. Þetta var þá allur friðarviljinn.

Til hamingju með friðarbaráttuna!  Þið eruð eftir að fara með hana alla leið til Auschwitz. Þið ætlið að halda helförinni áfram. Þið eigið bágt og hér er svo nýjasta myndbandið um ykkur


Vændiskaupendur Íslands sameinist !

bildeCASOKTZJ
 

Old lady judges watch people in pairs

Limited in sex, they dare

To push fake morals, insult and stare

While money doesn't talk, it swears

Obscenity, who really cares

Propaganda, all is phony.

                                         Bob frændi

Vændismálið er skrítið mál, og því mun seint ljúka. Persónulega er ég á þeirri skoðun, að ekki sé rétt að banna vændi. Það er ekki einu sinni hægt að afnema það. Það hefur ávallt fylgt mannkyninu. Í mannfélaginu, eins og í dýraríkinu, verða alltaf til karldýr sem verða útundan í baráttunni um að finna sér maka. Sumir karlar hafa hins vegar margar í takinu eins og rostungar og fílar. Eigum við að fara ofsækja þá menn, t.d. stjórnmálamenn, sem svo er komið fyrir? Ef einhverjir þurfa að kaupa sér blíðu kvenna vegna þess að þeir geta ekki fundið hana á annan hátt, verður komið í veg fyrir að sumir þeirra grípi til nauðgana eða annarrar kynferðislegrar hegðunar, sem samfélagið telur afbrigðilegt á sérhverjum tíma.

Ef kerlingarhlussur þær sem kalla sig femínista, og karlaumingjar sem hanga í pilsfaldi þeirra ætla að stjórna kynhegðun manna og kvengera alla karla, verða þær að koma með betri rök en þau, að allar konur sem stunda vændi séu hnepptar í þrældóm og allir menn sem kaupa vændi séu ótíndir glæpamenn

Ef skoðaður er dómur gegn Catalinu Ncogo í Héraðsdómi, er greinilegt að starfssemi hennar í vændisgeiranum hefur ekki,svo sannað verði, tengst mansali. Blökkukonan E, sem sakaði hana um að hafa flutt sig nauðuga til Íslands, hefur reynst ótrúverðug.

Mig grunar, að E sé meira ótrúverðug en svo. Breyting í afstöðu réttarins til E er furðuleg og ekki undirbyggður á neinn hátt í dóminum.  E hlýtur að hafa aðhafst eitthvað sem dómarar taka tillit til í svo breyttri afstöðu sinni.

E hefur þó aldrei stundað fjárkúgun gegn einhverjum að þeim mönnum sem nú eru eltir á röndum sem glæpamenn fyrir að borga vændiskonum frá Afríku 20.000 krónur fyrir blíðu og drátt, sem þeir gátu væntanlega ekki fengið heima hjá sér? Hún hefur þó ekki krafið þá um peninga með hótunum um að hún myndi annars segja til nafns þeirra í opinberum miðlum? Hvað segir lögreglan og dómaraliðið um þá tilgátu mína?

Þeir menn, sem hafa verið gerðir að glæpamönnum vegna þessa að þeir höfðu kynlífsþörf, ættu allir að standa fram undir nafni. Íslenska þjóðfélagið hefur ekki efni á því að fordæma þá. Alls kyns vændissala, hórmang og siðleysi hefur tíðkast á Íslandi, og það miklu verra en að borga 20.000 krónur fyrir drátt hjá afríkanskri portkonu við hliðina á lögreglustöðinni.

Þið ákærðu kaupendur kynlífs, þið hafið ekkert að fela, (nema að þið hafið verið að halda framhjá konunni ykkar). Látið ekki stimpla ykkur af fólki með miðaldahugarfar eða útkulnuðum eða freðnum kvenmönnum sem ekki skilja kynþörf karla, vegna þessa að þær eru sjálfar ekki alveg eðlilegar, eða af blaðamönnum DV sem eru auðvitað siðvönduðustu menn Íslandssögunnar, fyrr og síðar.


Og þá er komið að íþróttum ...

Mikið er talað um neyð og vöntun á Gaza þessa dagana.  Ali Musselmani á Gaza tjáði mér, að sterar væru hátt skrifaðir á óskalista Hamas, langt á undan lýðræði og frelsi. Hann vill fá stera á skipin til Gaza. Stera strax!

Íslensk vöðvabúnt munu á næsta ári taka þátt í Gazakroppasýningunni í boði Össurar. Sterkustu menn á Íslandi sýna samstöðu með Palestínumönnum í neyð.

Musselmani sendi mér einnig myndir frá markaði á Gaza, svona rétt til að sýna mér að áróður Ísraels um Gaza væri ekki á rökum reistur. Þetta er eintómur lygaáróður sagði Ali. Það er eitthvað til í því.

Mundu eftir ostinum
Fer Þorleifur á Mr. Gaza kroppakeppnina  2011? Eitthvað er ég nú í vafa um það. Vonandi man hann þó eftir því að minnka við sig ostaátið.

Ísland er nýjasta öfgaríkið

 

Barefli og teygjubyssur og söngur um að drepa gyðinga eins og Múhammeð gerði það er nóg til þess að hefja þjóðarmorð. Íslenskur maður var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að slá mann í höfuðið með skiptilykli. Það voru aðeins stærri bareflin sem friðarsinnarnir á ferjunni Mavi Marmara létu dynja á hermönnum Ísraels í gær, áður en þeir vörðu sig.  Er í lagi að fólk sem er tengt hryðjuverkasamtökunum IHH, Múslímska Bræðralaginu og Hamas og sem fer til Gaza til að verða píslarvættir (að eigin sögn), berji menn til óbóta? Á að láta slíkt fólk valsa laust? Mega Ísraelsmenn ekki sitja fólk sem ber með járnstöngum þrjú ár bak við lás og slá, líkt og gert er við árásarmenn á Íslandi?

RÚV kallaði vopn árásamannanna PRIK í fréttum í gær. Ef einhverjir eru PRIK þá eru það fréttamenn RÚV. Nú er komið í ljós að skipverjar á Mavi Marmaris voru, fyrir utan "prik", með skotvopn:

Hættulegustu vopnin um borð á Mavi Marmara voru þó söngvarnir um að útrýma gyðingum að hætti spámannsins og útlenskir einfeldningar og æsingafólk og aðrar tikkandi bombur.

Íslenskir stjórnmálamenn ganga miklu lengra en kollegar þeirra í nágrannaríkjunum. Einn dýpsti haturstónninn kemur t.d. úr Bolungarvíkurbassanum Einari K. Guðfinnssyni. Líklega er þetta vegna þess að sumir íslenskir stjórnmálamenn er enn í sjokki út af þeirri kreppu sem þeir áttu beint eða óbeint þátt í. Þeir þurfa að dreifa athyglinni. Meira segja Össur utanríkisráðherra dregur í land og segir Einar K. ganga of langt í yfirlýsingum sínum.

Össur vill ekki taka neina áhættu, enda á leiðinni inn í ESB, þar sem fíflalæti eins og tíðkast í íslenskri pólitík eru fátíð. Hann var líka búinn að heyra um að á friðarskipinu Mavi Marmara hefði verið mikið af vopnum, af þeirri tegund sem hægt er að senda menn í þriggja ára fangelsi fyrir að nota á Íslandi.

Flestir íslenskra þingmanna vilja greinilega útiloka eina lýðræðisríkið í Miðausturlöndum frá samskiptum við Ísland. Það segir mér eitt og annað. Ef það gerist, getur Ísrael líklegast lifað það af eins og svo marga aðrar árásir og mótbáru. "Einlægan stuðning" Einars K. við Ísraelríki er víst hægt að vera án. Íslendingar geta sent Hamas fleiri prik.

Yfirvöld í Ísrael, sem bera mikla virðingu fyrir Íslandi og muna þann tíma er Ísland varði stofnun Ísraelsríkis, vita hins vega vel að á Íslandi er gömul hefð fyrir gyðingahatri  jafnvel þótt gyðingar hafi ekki verið til staðar eða hafi verið mjög fáir einstaklingar sem földu uppruna sinn.

En það er vissulega merkilegt, að litla gjaldþrota ríkið á hjara veraldar með fallegustu konurnar, sterkustu mennina og hreinasta málið verði kannski eina landið í Evrópu sem slítur stjórnmálasambandi við Ísraelsríki, vegna þess að Ísraelsmönnum mistókst að koma í veg fyrir að hryðjuverkafriðarsinnar tækist ætlunarverk sitt sem var Jihaad-sjálfsmorðsferð til Gaza, með útlendinga sem gísla.

Ég endursýni þetta myndband ef einhver vill enn syngja með á viðlaginu við gamalt morðljóð múslíma fyrir gyðingadráp: Khaibar, khaibar..... Þið getið slegið prikum ykkar í takt:


Hriplekur friðarfloti

Öfgamenn á friðarflotanum sem stöðvaður var í gær, sungu um óskir sínar að kála gyðingum eins og þeir gerðu á tímum Múhameðs spámanns. Sjá:  http://palwatch.org/main.aspx?fi=157&doc_id=2323 

Þó svo að krimmahöfundurinn Henning Mankell tæki sjálfan Wallander með sér á hriplekan dall frá Tyrklandi og sigldi ólöglega inn í lögsögu Ísraelsríkis, myndi það ekki skapa frið. Meðan Mankell og aðrir velmeinandi gíslar öfgaíslams deila káhettu með öfgamönnum, þá er enginn friður á ferð. Meðan Ulf Carmesund frá Bræðralagi (Broderskapsrörelsen) Krata í Svíþjóð, sem eru samtök kristinna krata (já Amen!), ákveður að sigla til að bjarga Gaza, er kannski áhugavert að vita, að Bræðralagið í Svíþjóð hefur samvinnu við Bræðralag múslíma, Al-Ikhwān al-Muslimūn, sem styður hryðjuverk og hvetur til sjálfsmorðsaðgerða í Ísrael.

Þó svo að allir nóbelsverðlaunahafar heimsins flytu á fleka visku sinnar að ströndum Gaza, yrði þeim einskis ágengt, meðan að nýju "hipparnir" um borð bera vopn. Friðarboðberar gera ekki öfga-múlla, sem boðar Jiihad gegn Ísrael og afneitar því að Ísraelsríki sé til, að stýrimanni sínum. Ef hásetarnir hafa tengsl við hryðjuverkasamtök, er fullljóst að friðurinn er ekki í höfn.  Friðarboðberar sem styðja stjórnvöld á Gaza, hljóta að hafa mjög afbrigðilega skoðun á friði. Friður sá sem boðaður er á Gaza, er útrýming Ísraelsríkis.  Þann boðskap fá börn á Gaza í vöggugjöf.

Imperíalismi núverandi stjórnvalda í Tyrklandi er óþolandi. Ef Tyrkland telur það eðlilegt að tyrknesk skip brjóti hafréttarreglur og sigli í ísraelskri lögsögu, er það besta sem Ísrael getur gert að slíta stjórnmálasambandi við Tyrki. 10% Tyrkja telja að Tyrkland eigi að stækka og að núverandi stærð landsins beri vott um veikleika. Hvað gengur Tyrkjum til með því að senda "friðarflota" inn í lögsögu Ísraels?  Tyrkland þarf á stuðningsmönnum að halda við áform sín. Þess vegna þegja þeir yfir kjarnorkuríkinu Íran og segja ekkert við Sýrlendinga, sem geyma vopn Saddams. Samviska tyrkneskra stjórnvalda er svört.

"Friðarsinnunum" á tyrknesku skipunum var boðið að sigla til Haifa og Ashod og afhenda varning sinn til Gaza þar. Ísrael bauðst til að afhenda hann á Gaza. Reynslunni ríkari verða Ísraelsmenn náttúrulega að hafa eftirlit með því sem sent er til Gaza. Yfirvöldum þar er nefnilega meira annt um að fá vopn en mat handa börnum sínum. Margsinnis hafa Ísraelsmenn og Egyptar stöðvað vopnasendingar til Gaza. Yfirvöld á Gaza, hryðjuverkasamtökin Hamas, eru þau yfirvöld sem eyðilögðu öll gróðurhús Ísraela á Gaza. Gróðurhús, þar sem hægt hefði verið að rækta mat.

En lygaherferð hinna fljótandi friðarsinna er yfirgengileg. Heimurinn vill helst heyra um hamfarir á Gaza, þótt þar líði enginn skort. RÚV, með skrímslafræðinginn Þorvald Friðriksson í broddi fylkingar, miðlar afar takmörkuðum og vægast sagt undarlegum fréttaflutningi af því sem gerðist. Ísrael er versta skrímslið sem Þorvaldur þekkir. Þorvaldur hefur enn ekki sagt okkur frá því hvaða boðskapur var hafður í frammi um borð á tyrknesku skektunum.

Utanríkisráðherra Íslands, sem virðir þjóð sína að vettugi og hendir 7 milljörðum í ESB-ævintýri sitt, hrópar svo á torgum um ástandið á Gaza án þess að vita, eða vilja vita, hvað gerðist. Hann segir hins vegar mest lítið um um ástand sinnar eigin þjóðar, sem hefði getað notað þær 7 milljarða króna sem hann kastar á fórnareldinn. 7 milljarðar sem gætu farið til heilbrigðis-, skóla- og atvinnumála á Íslandi.

Hryðjuverkamenn finnast víða og Bræðralag Krata er og verður dýrt. Össur Skarphéðinsson er samhryðjuverkamaður þeirra "friðarsinna" á tyrknesku skipunum sem sungu um óskir sínar um að útrýma gyðingum. Össur hefur brotið hegningarlög svo um munar.  Ég sé ekki betur en að íslenska ríkisstjórnin hvetji til gyðingamorða í anda Múhameðs.

Farið í friði.

Það er munur að aðferðum "friðarsinna" og flota Ísraelsríkis.


« Fyrri síða

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband