Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2007

Getraun: Hvađa fólk er ţetta?

Gáta

Hér kemur smágáta eftir alla kaţólskuna í gćr. Smáverđlaun eru í bođi fyrir ţann sem kemur međ rétta(sta) lausn fyrir miđnćtti 12.7.2007. Réttust lausn er ađ minnsta kosti tvö rétt svör.  Ef fleiri en einn er međ rétt svar mun ég láta draga vinningshafann á seđli úr hattinum mínum. Safnafólki og frćđingum er hins vegar bannađ ađ taka ţátt í ţessari getraun.

Hvađa fólk er ţetta á myndinni og á hvađa tímum var ţađ uppi, og hvađ ćtli ţađ hafi veriđ ađ rćđa um?


Kirkjunnar mađur?

  Taddy Rucksack

Kirkjunnar mađur, ţađ er ađ segja mađur kaţólsku kirkjunnar í Póllandi, Pater Tadeusz Rydzyk, er gyđingahatari af verstu tegund, sem svífst einskis til ađ dreifa óţverra og illu umtali um gyđinga.

Nýlega hélt hann rćđu fyrir háskólastúdenta, ţar sem hann hélt ţví fram ađ gyđingar hefđu Lech Kaczynski, forseta Póllands, í vasanum; ađ pólskir gyđingar vćru ađ hrifsa til sín ţví sem nemur milljörđum Bandaríkjadala frá Pólverjum. Fađir Rydzyk rekur útvarpsstöđina  Radio Maryja, ţar sem gyđingum er kennt um allt sem miđur fer í Póllandi.

Áriđ 1939 voru um 3 milljónir gyđinga í Póllandi. Flestir ţeirra tórđu undir fátćkramörkum. Í dag, eftir útrýmingar nasista og útskúfanir kommúnista, búa ađeins nokkur ţúsund gyđinga í Póllandi. Fađir Tadeusz og fylgifiskar hans vilja greinilega ađ sagan endurtaki sig. 

Og viti menn, mikiđ er líka rćtt um prestskömmina á síđu sem heitir http://www.iceland.pl/  . Sumir af ţeim sem taka ţátt í umrćđunni eru búsettir á Íslandi og ekki trúi ég öđru en ađ Pólverjar á Íslandi séu lítiđ gefnir fyrir presta eins og Rydzyk.

Benedikt páfi í Róm hefur ávítađ ţennan preláta, en ţú lesandi góđur, og helst allir kaţólikkar á Íslandi, og sér í lagi kaţólskir pólverjar búsettir á Íslandi, getiđ gert ykkar til ađ setja Rydzyk út af sakramentinu. Ţađ er einfaldlega skylda ykkar.

Ţađ eru 10.000 Pólverjar á Íslandi og ţeir eru látnir í friđi. Ţađ eru í hćsta lagi 10.000 gyđingar í Póllandi, en ţeir eru ofsóttir af illmennum innan Hinnar Heilögu Rómverskkaţólsku Kirkju. Pólverjar á Íslandi gćtu nú aldeilis látiđ til sín taka til ađ kveđa niđur ţann andskota.

Fariđ inn ađ heimasíđu Stofnunar Símons Wiesenthals og ritiđ undir beiđni til Biskupastefnu Póllands um ađ svipta Tadeusz Rydzyk kjól og kalli hiđ fyrsta. Ţađ yrđi landhreinsun í meira lagi.


Farfúr - In Memoriam

 farfar

Músin Farfur, sem var afar lík Mikka mús, og sem um tíma hefur kennt börnum í Hamastan (áđur Gaza) ađ hatast út í allt og alla, er nú öll. Farfur dó ekki eđlilegum dauđdaga í sóttarsćng. Hann var myrtur, eins og flestir í Gaza.

29. júní sl. var sýnd síđasta "Stundin Okkar" međ Farfur. Í ţćttinum var Farfur myrtur, og auđvitađ af flugumönnum ísraelsku leyniţjónustunnar Mossad , sem allt í einu birtist og vildi kaupa land Farfurs. "Farfur dó píslavćttisdauđa er hann varđi land sitt hetjulega" sagđi önnur persóna í barnatíma Hamas. Mossad-rottan leiddi Farfur í músagildru. Í paradís hitti Farfúr fyrir fjöldann allan af jómfrúarmúsum og hefur ţegar fengiđ trog međ 400 mismunandi ostum frá Evrópubandalaginu.

Talsmađur sjónvarpsstöđvarinnar, sem rćndi músinni frá Disney Corporation, tjáđi fréttamönnum ađ sýning ţáttanna um Farfúr hefđi veriđ hćtt til ţess ađ fá pláss fyrir annađ öflugra dagsskrárefni, ţ.e. ţćtti BBC um Hizbo-Laa-Laa og vini hans.

Hezbo_Laa_Laa_ 


Hin upprétta hönd

Trú og stjórnmál eru mannlegir veikleikar. Ekki er alltaf jafnauđvelt ađ deila viđ trúađa og hćttulegt getur veriđ ađ deila um stjórnmál. Sérstaklega ţegar hin upprétta hönd er hátt á lofti. 

Myndaserían hér á eftir er ekki tengd Páfanum í Róm á neinn hátt, eđa ţeim kaţólikkum, lćrđum sem leikum, sem börđust gegn nasismanum og voru myrtir á hrottalegan hátt fyrir baráttu sína. Heiđursfólk er sem betur fer alltaf til. Myndirnar hér á eftir eru hugsanlega líka teknar í óţökk einhverra prelátanna, en sumum virđist líka nćrvera Hitlers allvel.

Sćll síra minn

 

Göbbels líka

27CardnalBertram

Hitler fyrir framan kirkju

Heims um ból og Hitler

5naziclergy

salute

Hitler gengur úr kirkju í Wilhelmshaven

 

2freidrichcoch

Cesare Orsenigo kardínáll og Hitler

En hin upprétta hönd hefur víđar veriđ vinsćl

Hizullah says Heil

Ţessir karakterar sćkja líka styrk sinn hjá Guđi

Mufti say Heil 2

Arnold líka

Arnold says Geil

Íslenska fánanum var reyndar í mörg ár heilsađ í svona stellingum í kristilegum sumarbúđum á Íslandi . Menn sem gerđu ţađ eru líklega fyrir löngu orđnir smápáfar. Gaman vćri ađ vita hvort enn sé veriđ ađ.

Viđbót: Hitler sem dýrlingur eđa ţjóđhöfđingi í kirkju í Berlín? Eđa var veriđ ađ ţakka honum fyrir Nürnberglögin frá 1935?

Dýrđlingurinn Hitler


Habemus Puerum Germanum?

Annuntio vobis gaudium magnum:

http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/252926/

Joseph Ratzinger í einkennisbúningi ţegar hann ţjónađi örđum Gvöđi og latína var ekki máliđ.

Nánari skođun mín á myndinni, eftir tvćr réttmćtar gagnrýnisraddir, hefur fullvissađ mig ađ Joseph var leiđur yfir ţví ađ vera í ţessum búningi.

Ratzinger 1943


mbl.is Benedikt páfi XVI heimilar flutning eldri gerđrar kaţólskrar messu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Nyhedsavisen í frí

Frííí 

Blađamenn Nyhedsavisens í fríi

Nú er Nyhedsavisen, danskt blađ í eigu Íslendinga, (íslenskt blađ sem er veriđ ađ kafsigla af lélegum, dönskum blađamönnum), fariđ í frí!

Fjögurra vikna frí, ekki meira né minna. Ţetta minnir dálítiđ á fimmtudagsfríin í Ríkissjónvarpinu forđum daga.

Nú ţegar upplagiđ var ađ sögn ađ nálgast hálfa miljón, er fariđ í sumarfrí. Hvers konar búskapur er ţetta?

Ef ţiđ trúiđ mér ekki, er sjón sögu ríkari.

Nyhedsavisen er greinilega "íslenskt" blađ!

 


Leikhús fáránleikans

Vonandi sjá stuđningsmenn Hamas á Íslandi hvađ um er ađ vera. Hvernig ţeir hafa veriđ dregnir á asnaeyrunum í árarađir í ţessu ósmekklega leikhúsi fáránleikans. Stuđningur viđ hryđjuverkamenn frá einfeldningum á Vesturlöndum er bjarnargreiđi viđ Palestínuţjóđina. Ţeir sem styđja villimennina sem stjórna Gaza styđja áframhaldandi ófriđ.


mbl.is Segja lausn Johnston blekkingarleik
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fjölmiđlasaga

Skottulćknirinn eftir Gerrit Dou 1652 

Í Lundúnum var á 17. öld prentađ dagblađ sem kallađist The Athenian Mercury. Ég á eintak af ţessu blađi frá 14. ágúst 1694. Ţetta var uppfrćđandi blađ. Suma daga voru spurningar af ýmsu tagi, trúarlegar og lagalegar, sem lesendur gátu sent ritstjórninni. Ritstjórnin leitađi eftir bestu getu ađ svörum. Blađiđ, sem oftast var einblöđungur, var prentađ af John Dunton "at the Raven in the Poultrey".

AthenianMercury

Auglýsingar báru náttúrulega ţetta framtak Duntons uppi. Hins vegar var ýmislegt vafasamt oft auglýst, eins og t.d. ţjónusta lćknisins Thomas Kirleus, sem var greinilega hinn versti loddari og bölvađur skottulćknir.  Svona lýsti hann sjálfur ţjónustu sinni:

"In Grays-Inn-Lane in Plow-yard, the third Door, lives Dr. Thomas Kirleus, a Collegiate Physician, and a Sworn Physician in Ordinary to King Charles the Second, until his death; who with a Drink and a Pill (hindring no Business) undertakes a cure any Ulcers, Sores, Swellings in the Nose, Face or other parts; Scabs, Itch, Scurfs, Leprocies, and Venerial Disease, expecting nothing until the Cure be finished: Of the last he hath cured many hundreds in this City, many of them after fluxing which carries the evil from the Lower Parts to the Head, and so destroys many. De Drink is 3 s. The Quart, the Pill 1 s. a Box, with Directions; a better Purger than which was never given, for they cleanse the Body of all Impurities, which are the causes of Dropsies, Gouts, Scurviews, Stone or Gravel, Pains in the Head, and other parts. Take heed whom you trust in Physick, for it's become common Cheat to prosess it. He gives his Opinion to all that write or come, for nothing."

Ţetta var 17. öldin. En er ekki veriđ ađ auglýsa vitagagnlausa ristilsskolun í dag á Íslandi?


Hvađ voru SŢ ađ gera í Gaza í nótt?

Johnston in a tartan bomb-belt 

Skođiđ myndskeiđ Reuters frá Gaza, ţar sem Hamas-liđar eru komnir međ Johnston í sína vörslu. Asskoti ef ţađ er ekki bíll frá SŢ (UN) úti á götu, fyrir utan skrifstofur Hamas. Hvađ eru SŢ ađ gera ţarna er mér spurn? Var ekki nýlega send yfirlýsing um ađ SŢ hćttu störfum sínum í Gaza vegna skálmaldarinnar? Jú, en ţađ var ađeins í ţrjá daga. SŢ-menn eru greinilega hraustari í orrahríđinni en Fatah. 

En hvađ voru SŢ ađ gera fyrir utan Hamas-hreiđur í nótt? Eru Hamas liđar farnir ađ keyra bílana ţeirra?


mbl.is Alan Johnston laus
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Allah, Allah, Alan is free!

Alan Gísl Allahns

"Read all about it, read all about it: A clansman from Scotland is freed by clansmen in Gaza".

4.7. 2007

Ég hlakka til ađ heyra Johnston lýsa prísundinni.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband