Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Nasistar 0 - Kommúnistar 0

Vilnius Sport

Í lok septembers á síðasta ári var mér boðið á ráðstefnu í Litháen. Ég hafði áður verið í Litháen og kunni vel við mig þar. Áður en ráðstefnan hófst, var þáttakendum boðið í litla kynnisferð um höfuðborgina Vilníus. Frá fornum kastala, sem gnæfir yfir borgina, tók ég ljósmyndir af fallegri borg. Ég tók líka mynd af þessari ljótu byggingu, skammt frá miðbænum, sem Rússar “gáfu” Litháum, þegar þeir síðastnefndu voru enn undir sovéthælnum.  

Það rann síðar upp fyrir mér, að þarna sem ljóta byggingin lá hafði verið framinn menningarglæpur, líkt og þegar nasistar lögðu legsteina gyðinga í götur og stræti og þegar Assad Sýrlandsforseti lagði veg yfir helsta grafreit gyðinga í Damaskus, sem hafi verið í nokun i 2000 ár, á landi sem hafði verið keypt til notkunar til eilífðarnóns. Þeir sem hafa keyrt frá flugvellinum í Damaskus inn í miðborgina, keyra yfir dauða gyðinga. Rússar voru engin undantekning í menningarlegum þjóðarmorðum. Tröppurnar, sem lagðar voru upp að íþróttahöllinni í Vilníus, voru lagðar með grafsteinum úr aðalgrafreit gyðinga í Vilníus. 91% gyðinga Litháens var útrýmt í Annari heimsstyrjöld. Nasistar myrtu þá og kommúnistar trömpuðu svo á minningu þeirra. Þannig er margt líkt með þessum tveimur frændhugmyndafræðum. Eitt ljótasta eðli mannsins, að kenna einstaka persónum eða fámennum hóp um allar sínar ófarir, áttu kommar og nasistar sameiginleg, og eiga enn!   

Nú hefur verið reistur minnisvarði um grafreitinn og nokkrir steinar í tröppunum á íþróttahöllinni í Vilníus hafa verið fjarlægðir, að minnsta kosti þar sem því verður komið við.

 


27. janúar

 

Auschwitz-children_MEGA 

Þessi börn lifðu Helförina af.

Ég leyfi mér að minna á að á laugardag, þ. 27. janúar, er Helfararinnar á gyðingum minnst í mörgum löndum. Þessi minningardagur er ýmist kallaður Auschwitz-dagur eða Holocaust-dagur.

Við höfum ekkert slíkt á Íslandi og fáum líklega ekki í bráð. Allt í lagi virðist að afneita Helförinni á Íslandi og hef ég séð bloggara á blog.is, sem eru að velta samsæriskenningum fyrir sér. Þeir eiga líklegast erfitt með að trúa því, hve grimm mannskepnan getur verið.

 

 01338

Þessir hollensku gyðingar gerðu það ekki.


Ólafur Indíafari

OliandMoussa

Við höfum lengi vitað hvert hugurinn reikaði hjá þeim Bessastaðahjónum.  Var það staðfest á vef Morgunblaðsins í dag.

En ætli Halldór geti líka orðið Guru á Indlandi?

JobforHalldor 

 


mbl.is Ólafur Ragnar tekur sæti í þróunarráði Indlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Felix kom í heimsókn

Ruben og Felix 3

Felix á leik við Rúben, son minn

Hann Felix kom í heimsókn til mín í nóvember. Það væri ekki í frásögur færandi, ef Felix hefði ekki fæðst í Reykjavík árið 1936 og verið fyrsti gyðingurinn sem fæddist á Íslandi. Honum var reyndar vísað úr landi með foreldrum sínum, Hans og Olgu, og systur árið 1938. Fjölskyldan Rottberger fékk að fara í land í Kaupmannahöfn. Það gátu þau þakkað C.A.C. Brun sendiráðsritara í Danska sendiráðinu, en um þann merka mann má einnig lesa hér og hér. Um sögu Rottberger fjölskyldunnar efter 1938 má lesa í bók minni Medaljens Bagside, sem út kom í Danmörku árið 2005. (Saga þeirra á Íslandi hefur m.a. verið sögð af Einari heitnum Heimissyni og Þór Whitehead).   

Næstu árin eftir brottvísunina frá Íslandi voru ekki dans á rósum. Flóttamenn, og sér í lagi gyðingar, máttu ekki vinna, og þeim voru settar alls kyns skorður. Fjögur barna Rottberger fjölskyldunnar urðu viðskila við foreldra sína, sem neyddust til að flýja án barnanna til Svíþjóðar í október 1943. Börnunum var komið fyrir á barnaheimili á Fjóni. Þar sem eitt ríkasta bæjarfélagið í Danmörku, Søllerød, sem sett hafði börnin í fóstur á Fjóni, þótti sárt að sjá af fé til uppihalds barnanna, stakk barnaverndarnefndin upp á því að þau yrðu send til Þýskalands árið 1944. Lögreglusaksóknari nokkur í Kaupmannahöfn, sem var velviljaður gyðingum, kom sem betur fer í veg fyrir það.  

Eftir stríð héldu erfiðleikar fjölskyldunnar í Danmörku áfram. Danir vildu lítið fyrir ríkisfangslausa gyðinga gera. Danska bæjarfélagið, sem ætlaði sér að losa sig við Rottberger börnin til Þýskalands árið 1944, rukkaði skuldir og framfærslufé sem það taldi Hans Rottberger skulda sér. Hans Rottberger neitaði að borga, enda var það eindæmi að slíkt væri tekið til innheimtu. Málið fór alla leið til hæstaréttar Danmörku, þar sem einn dómari sá loks fáránleika málsins. En þótt málinu væri vísað frá, hafði Rottberger fjölskyldan ákveðið að yfirgefa Danmörku og setjast að í Þýskalandi. Hún var búinn að fá nóg.

Hans og Olga gengu út úr Kaupmannahöfn með stóran hóp barna og með tveggja hæða barnavagn, sem Hans Rottberger hafði útbúið fyrir yngstu meðlimi fjölskyldunnar. Fjölskyldan settist að í Konstanz í Þýskalandi. Felix Rottberger býr nú í Freiburg í Þýskalandi, þar sem hann umsjónamaður grafreits gyðinga og samkundhúss borgarinnar. Nú eru flestir þeir gyðingar, sem búa í Freiburg, frá Sovétríkjunum fyrrverandi.

Felix kom í þetta skipti til Danmörku sumpart fyrir minn tilstuðlan. Hann hélt stutta ræðu í samkunduhúsi gyðinga í Kaupmannahöfn á minningardag um Krystalnóttina 1938. Hann talaði einnig við börn í grunnskóla gyðinga í Kaupmannahöfn. Hann hélt sömuleiðis fyrirlestra á eyjunum Møn og Fjóni. Felix talar dönsku eins og menn gerður á 5. áratug síðustu aldar og hefur engu gleymt. Það birtist viðtal við Felix í danska vikublaðinu Hjemmet (Nr. 1, 2007), sem margar íslendingar kaupa enn, en sem ég hef enn ekki séð.  

Al Quaida ofsækir gyðinga í Jemen

Yemeni Jews

Þegar al Quaida er ekki að sprengja í okkar heimshluta, eru þessi illmenni að eltast við örfáa gyðinga í Jemen. Allahu Akbar! Al Quaida telur, eins og kunnugt er, alla gyðinga réttdræpa, hvar sem þá er að finna.

Gyðingar í Jemen eru nú aftur í lífshættu. Saudi Arabíska blaðið Al Watan og ísraelska blaðið Jerusalem Post greina frá því, að gyðingar í þorpi norður af borginni Saana hafi neyðst til að flýja heimili sín. Það er al Quaida og öfgamúslimir sem valda þessum flótta. Danskur dándipiltur, giftur færeyskri konu, var nýlega að sinna erindum fyrir þennan félagsskap í Jemen og lenti í fangelsi, grunaður um smygl.

Gyðingar hafa búið í Jemen síðan á dögum Salómons konungs. Hebreska, sú sem töluð er í Jemen, er talin vera ein upphaflegasta gerð tungumálsins. 45.000 gyðingar voru fluttir til Ísraels 1940-50 í björgunaraðgerð sem kölluð var “Hið fljúgandi Teppi”.  Örfáir gyðingar eru hins vegar enn í Jemen, en flestir eru of fátækir til að geta yfirgefið landið. Heittrúaðir gyðingar í New York hafa á síðari árum misnotað neyð jemenítísku gyðingana og lokkað þá til New York, misnotað vinnukraft þeirra og jafnvel stolið börnum þeirra, sem þeir ættleiða og ala upp og neyða foreldrana til að yfirgefa BNA. Menning gyðinga í Jemen má muna sinn fífil fegri.

Nú er líklega kominn tími til að þeim síðustu verði hjálpa að yfirgefa landið, svo þeir geti haldið til Ísraels. 

 

 

 


Hermannaekla í Danmörku?

danskesoldater1

Ljósmynd Michael Lund

Danski Þjóðarflokkurinn, (Dansk Folkeparti), er búinn að finna sér nýtt málefni. Samvæmt nýjustu hugdettu flokksins verða Færeyingar og Grænlendingar nú að fara í danska herinn, eins og sum dönsk ungmenni. Hingað til hefur ekki verið skylda fyrir frændur okkar að bera vopn fyrir danska ríkið. Þeir mega gera það ef þeir endilaga vilja. Þessu vill Þjóðarflokkurinn breyta. Ef þessi stjórnmálaflokkur fær vilja sínum framgengt, (en hann hefur dönsku ríkistjórnina í heljartaki), verða Kaleraq og Tróndur að fara að venja sig við tilhugsunina um herskyldu og jafnvel að þeir verði sendir til Íraks til að efna til friðar.

Ég spyr: Er nú nauðsynlegt fyrir Dani að höggva skarð í æsku Færeyja og Grænlands með því að taka hana í danska herinn?

Danski Þjóðarflokkurinn virðist stundum vera flokkur brandarakarla, en oft verða “gamanmálin” hjá þeim að óþægilegum veruleika í danska þjóðfélaginu. Flokkurinn notar svona "mál", til að þrýsta á önnur mál sem þeir lifa og hrærast fyrir. En getum við ekki hugsanlega tekið frændur okkar í "íslenskan her", þegar fram líða stundir. Hvernig væri það, Björn Bjarnason? Hver veit nema að frelsisbarátta Færeyinga og Grænlendinga eigi eftir að verða blóðug, og hverjum höldum við með í þeirri baráttu?   

 

Ekki efast ég um að Inuitar og Færeyingar geti orðið góðir hermenn. BBC greindi frá því fyrir nokkrum árum að eskimóastúlka væri orðinn hermaður í Ísrael. Það er ekki heiglum hent.  

Hætta á ferðum - Amerískur risahumar

Risahumar

Smækkuð mynd af amerískum risahumar  

Amerískur humar ræðst nú á Danmörku. Samkvæmt danska blaðinu Politiken, sem er frægt fyrir að vera hrætt við íslenska útrás og allt það sem kemur frá BNA, líkt og 71,6% allra Dana, segir nú frá ferðum hræðilegs risahumars frá Ameríku, sem hefur skriðið inn á danskt hafsvæði, eftir að hafa hertekið Óslófjörð.  Þetta kvikindi mun geta ferðast 800 km af sjálfsdáðum. Það veiddist undan ströndum Rungsted, norðan Kaupmannahafnar.  Grunur leikur á að einhverjir norskir gárungar hafi sett þetta ameríska flykki í sjóinn við Ósló.

  

Samkvæmt lógík Politikens mun humarinn, eins og allt sem kemur frá BNA, valda hörmungum og sjúkdómum og reka danska humra á flótta. Hvað ætli NATO segi við þessu? Hvað gerum við Íslendingar, ef vondi humarinn kemur til okkar? Dorrit á Bessastöðum kvartaði eitt sinn yfir því við dablaðið Ha'aretz í Ísrael, að ekki væri lengur hægt að kaupa humar í Ísrael (Humar er ekki Kosher). Amerískur risahumar yrði því væntanlega vel þeginn í soðið á Bessastöðum.


No Smoking

smoke 

Reykjarmökkur yfir Amalienborg

Nú er það svart maður. Frá og með 1. apríl má Margrét Þórhildur Danadrottning ekki lengur reykja í höllinni í nánd við starfsmenn sína. Að minnsta kosti samkvæmt danska Fréttablaðinu (avisen.dk). Drottningin reykir venjulega 4 pakka af Prince, eða álíka, á dag.  Þótt ég reyki ekki, þykir mér þetta harla harðneskjuleg meðferð á drottningunni.

Eftir nokkuð mörg ár í Danmörku, er ég orðinn skápsroyalisti. Margrét er líka fornleifafræðingur í röngu starfi, alveg eins og ég.  Hvað verður það næsta? Reykingabann í Christíaníu? Og hvernig ætli þessu sé farið heima hjá þeim Bessastaðahjónum?


The show must go on

ELTON 

Allir eru að skrifa um Elton í samkvæmi Ólafs Ólafssonar í Reykjavík í gær og allir það sama. Hér koma nokkrir hlutir, sem þið hafið líklegast aldrei heyrt eða lesið um Sir Elton. Elton John er hommi! Já, og hann heldur útsölu á tónleikum nú. Þetta skýrir ýmislegt, ekki satt?. Svo er hann sköllóttur og örugglega af íslenskum ættum. Það er mér tjáð.

Ég óska Ólafi vini mínum, (maður getur alltaf reynt þetta trikk), til hamingju með sjóðinn en samhryggist jafnframt gestum hans með valið á tónlist fyrir veisluna. Lofsvert framtak þetta með sjóðinn. Nú þurfa fleiri Íslendingar, sem hafa notið velgengni undir ásjónu Drottins, að stofna sjóði að hætti Ólafs og hætta að kaupa litla, ljóta Porsche bíla. Elton býður örugglega Ólafi í sextugsafmælið í mars.Taktu myndir Óli!

Komdu og skoðaðu í kistu Páls

Kistan mín

Á bloggi Helga Seljans í dag má lesa nútíma sagnfræði.

Helgi Seljan er greinilega mikill gáfupiltur. En þetta eru vafasöm fræði hjá honum. Það eru þó líklegast vinir hans, einhverjir fornleifafræðingar, sem hafa verið að stríða honum. 

Eitt sinn sagði mér afkomandi eins grafarans í Skálholti sögu frá uppgreftrinum. Hún var í stuttu máli svona: Kristján Eldjárn, sem var undirmaður Haakons Christies (stjórnanda forleifarannsóknarinnar), var svo ákafur eftir að Páll fannst, að hann fór með bein úr steinkistunni inn í tjald, þar sem grafararnir leituðu skjóls undan roki. Þar fengu grafararnir kaffi og tvíbökur. Þegar Eldjárn var búinn að sötra fyrsta sopann af undirskálinni, vildi svo illa til að hann beit í bein Páls biskups, undirmanns Christi sonar Drottins, í stað tvíbökunnar. Sagan segir, að það hafi ringt í heila viku eftir þennan atburð. Eftirfarandi vísur hafa ekki áður verið birtar, og eru þess vegna ekki sönnunargögn fyrir meintu mannbiti í Skálholti á 6. áratug síðustu aldar:

 

Sat í tjaldi Eldjárn forðum,

kátur yfir beinum.

Bað um kaffi fáum orðum,

bjóst við feitum kleinum.

 

Beit í bisupsbeinið Kristján,

hélt að það væri baka.

Mikil var mannavalsins þján,

mistök var við að saka.

 

Páll á himnum hrópar "Æi !",

ákallaði Herran Christi hæstan.

Þetta var þó allt í lagi,

Eldjárn hafði Haakon Christie næstan

 

Nú ber læri biskups merki,

eftir mistök fræðimanns.

Enginn fékk af þessu verki,

nema tanntaug forsetans.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband