Leita í fréttum mbl.is

Jesú haldið í gíslingu nærri Kringlunni

Jesuah ben Josaf Kahan

Borgarleikhúsið er enn með látalæti og trúðshátt. Nú í leikriti sem kallast Jesús litli.  Samkvæmt leikskrá fæddist Jesús litli í Palestínu. Ef svo er, er Jesús litli líklega týndur, því hann fæddist ekki í Palestínu.

Það fer ýmsum sögum af því hvar hann fæddist hann Jesús, en ekki var það í Palestínu. Heitið Palæstina var fyrst notað formlega yfir það land sem Jesús fæddist í á 2. öld eftir Krists burð. Þá varð Provincia JudeaSyria Palaestina, og var sú breyting bara einn liður í kúgun Rómverja á Gyðingum.

Hvernig þetta „slys" með Palestínudrenginn Jesús er komið inn í leikrit í Borgarleikhúsinu get ég nú vel gert mér í hugarlund. Menn hamast mikið í þessu nafni.

En það er stórfurðulegt að höfundar leikritsins hafi ekki getað notið aðstoðar íslenskar þjóðkirkjupresta til að fá haldgóðar upplýsingar um hvar Jesús litli fæddist. Samkvæmt leikskrá aðstoðuðu prestar, prelátar og prestslærlingar eins og Auður Eir, Bernharður Guðmundsson og Davíð Þór Jónsson, ásamt fleirum, höfundana og leikara Jesúsar Litla.

Er það opinber stefna Þjóðkirkjunnar á Íslandi, að Jesús hafi fæðst í Palestínu? Ef svo er, þá var Jesús væntanlega ekki til. Og gleðjast nú Vantrúarmenn. Já, ef hann fæddist í "Palestínu", er hann líklega bara hluti af hatursfullum áróðri, öfgum og hryðjum eins og nafnið Palestína er oft á okkar dögum. Nú urðu Vantrúarmenn óglaðir, því þeir eru líka mikið fyrir Palestínu, en auðvitað ekki i nafni Aðalsteins ósýnilega og Múhammaðs PR-meistara hans.

Ég vona að Jesús litli komist aftur heim til sín úr þeirri gíslingu sem Borgarleikhúsið hefur tekið hann í í Palestínu. Síðast þegar ég vissi, var Jesús litli með dekkra hár en á meðfylgjandi mynd, en hann er enn með slöngukrullur (ekki slöngubyssu). Þeir sem gætu gefið upplýsingar um ferðir hans, ættu að hafa samband við Þjóðkirkjuna hið fyrsta. Þar var mér tjáð í dag, að ekki væri hægt að gefa einhlýtt svar við því hvar Jesús hefði fæðst. En hugsanlegt má telja að einhverjir prestar hafi þetta á hreinu og geti hjálpað Jesú (Jesúsi, Jesum) litla heim til sín.

Hafið endilega ekki samband við lögregluna. Hún sendir alla útlendinga frá Miðausturlöndum úr landi með fyrstu flugvél.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jesús fæddist í Landinu helga – ekki í Palestínu.

Jón Valur Jensson, 23.11.2009 kl. 14:03

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það eru jú áhöld um hvar hann fæddist. Sagan segir í Betlehem í Júdeu, þótt það þyki nú ansi hæpið að María hafi hlussast kasólétt á asna, leið sem samsvarar vegalendinni frá miðborg Reykjavíkur á Vík í Mýrdal eða Kirkjubæjarklaustur, til að vera við manntal, sem aldrei var gert, hvað þá meint morð á sveinbörnumá svæðinu að skipan konungs sem dó fjórum árum áður.

Þetta var náttúrlega til þess að samræma söguna meintum spádómsorðum í GT, en einhver ruglingur virðist hafa orðið með staðinn. Mig minnir raunar að þú hafir talað um að Betlehem hafi verið að finna í Galíleu, líka og jafnvel bara þar, sem hljómar jú sennilegra miðað við allt og allt.  Betlehem í Júdeu sé kannski bara tilbúningur Krisinna eins og heilög Helena kokkaði upp Nasaret yfir holu í grafreit skammt frá Sepporis. Staður sem aldrei var til og sennilegast misskilningur frá A-Ö vegna enn annarra spádómsorða í GT.

Reyndar virðast Guðspjallamennirnir hafa verið ansi illa að sér í landafræðinni þarna og jafnvel Gyðinglegum sið og maður gæti jafnvel ályktað að þeir hefðu aldrei komið á staðinn, heldur setið við skáldskap einhverstaðar veestar og norðar við Miðjarðarhafið. Hvað veit ég annars?

Pall Postuli virðist raunar ekki hafa haft hugmynd um þessi smáatriði í lífi hins meinta krists, meyfæðinguna, ræður hans né spakmæli.

Mikið mysterí.  Setti inn vangaveltur um þetta á blogg Sr. Þórhalls, en hann biti þaær ekki, enda ekki ráð að hafa opna umræðu um svo brothætta hluti.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 14:20

3 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Nú urðu Vantrúarmenn óglaðir, því þeir eru líka mikið fyrir Palestínu, en auðvitað ekki i nafni Aðalsteins ósýnilega og Múhammaðs PR-meistara hans.

Vantrú hefur enga stefnu varðandi málefni Palestínu og meðlimir félagsins enga eina skoðun á fyrir utan það kannski að þar sem trúaröfgamenn skipta sér af stjórnmálum er hætt við því að allt fari til andskotans.

Matthías Ásgeirsson, 23.11.2009 kl. 14:29

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Viðurkenndu það bara, Matthías: Ef Vantrú færi að taka einhverja ákveðna pólitíska stefnu, þá færi líka allt í loft upp þar vegna ágreinings, og þið megið nú varla við því að minnka, svona lítið félag.

Jón Valur Jensson, 23.11.2009 kl. 15:10

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Vá, vitringarr þrír komnir til að vitja mín. Jón Valur, Jón Steinar og Matthías:

Rétt Jón Valur, ekki í Palestínu, kannski í Judeu, jafnvel frekar í Galileu (þó við höfum rifist um það). Landið helga er svo tálsýnin. En ég virði rétt helgi allra í Ísrael. Vonandi er helgi allra í Palestínu líka virt. En þegar gyðingar mega ekki búa í Hebron fyrir rugluðum Íslendingum og Palestínuarabar myrða kristna er helgin eyðilögð.

Já Jón Steinar, rétt er að ég skrifaði um Betlehem í Galil og ég er ekki svo vantrúaður á þá tilgátu http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/396082/

Matthías mikið er gott að Vantrúarmenn eru yfir stjórnmál hafnir. Gott væri ef þið gætuð líka látið trú annarra sem vind um eyrun þjóta. En þið eruð í raun trúmenn, í því felst afneitunin. Og auðvitað afneitarðu því til að sanna regluna.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2009 kl. 15:16

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eru ekki allir trúmenn og vantrúarmenn í einhverri skilgreiningu. Þú hafnar 99.9% trúarbragða heimsins og ert jafnvel ekki sammála mönnum í eigin sið um hvað sé rétt. Við þessir fordæmdu förum bara 0.1% lengra og tökum mark á líkunum. Svona líka fjandi vísindalegir og ferkantaðir.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 15:30

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þórhallur Heimisson er hættur við fæðingarsögur af Jesús á bloggi sínu.  Hann býður mönnum í staðin í Hafnarfjörðinn á aðventunni. Má spyrja prestinn í kirkjunni á aðventunni, eða verð ég að þegja eins og Gaflari, ef ég kem? Ég afneita ekki Jesús, en trúi heldur ekki á hann.

Séra Þórhallur hefur lokað á ummæli frá helgari mönnum en mér, t.d. Jóni Vali, Jóni Steinari og Matthíasi guðspellvirkja.  Kannski hefur Þórhallur ekki svar við öllu? 

Ég er farinn að halda að rauðhærðir séu bara hársárari en aðrir, ef svo er hægt að segja?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2009 kl. 15:33

8 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Viðurkenndu það bara, Matthías: Ef Vantrú færi að taka einhverja ákveðna pólitíska stefnu, þá færi líka allt í loft upp þar vegna ágreinings, og þið megið nú varla við því að minnka, svona lítið félag.

Við erum miklu stærri en kristilegi stjórnmálaflokkurinn þinn :)  En já, Vantrú er ekki pólitískt félag enda meðlimir með ólíkar skoðanir á þeim málum.

Matthías mikið er gott að Vantrúarmenn eru yfir stjórnmál hafnir. Gott væri ef þið gætuð líka látið trú annarra sem vind um eyrun þjóta. En þið eruð í raun trúmenn, í því felst afneitunin. Og auðvitað afneitarðu því til að sanna regluna.

Vá hvað þú ert bilaður

Trú annarra látum við sem vind um eyrun þjóta.  Trúboði annarra  svörum vi.

Matthías Ásgeirsson, 23.11.2009 kl. 15:41

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Jón Steinar, þetta fjallar líka stundum um að vilja hafa rétt fyrir sér. Heiður, ofstopa og stolt. En ég vil hafa smá óvissu. Það er svo leiðinlegt að vita allt - eða ekkert. Í trúarbrögðum er ekki mikill munur þar á. En menn eiga ekki að vera að segja trúmönnum að Guð þeirra sé ímyndum. Sérstaklega þegar maður veit ekki rassgat um það í yfirlýstri vantrú sinni.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2009 kl. 15:41

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hvaðan kemur þá fullvissa þín á þetta 0.1%. Óvissunni?

Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 15:44

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Allt í lagi Matti, vera má að ég sé "bilaður", en þú bilast nú illa og ferð í klessu í hvert skipti sem trú ber á góma, ekki bara þegar trúboð fer fyrir brjóstið á ykkur sem hafið höndlað sannleikann.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2009 kl. 15:46

12 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nei, Jón Valur, úr eftirvæntingunni. Lífið er einskis vert ef það er planlagt í prósentum.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2009 kl. 15:50

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svolítið dramadrottningarlegt múv hjá Þórhallli verð ég að segja. Annað hvort til að sveipa sig píslarvætti eða til að kynda undir andúð á vondu vantrúarmönnunum.

Ég myndi vafalaust mæta til hans ef ég hefði lag. Hann gæti þó átt það til að henda mér á dyr fyrir of nærgöngular spurningar eins og presturinn minn forðum í fermingarfræðslunni. Ég er semsagt ekki vantrúaður að vali, heldur var ég bannfærður.

Maður getur jú búist við öllu af rauðhærðum. Þeir munu vera heitari í höfði en gengur og gerist, segir almannarómur og ekki lýgur hann.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 15:50

14 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Og nú ertu arinn að kalla mig Jón Val...Það held ég að Rotweiler Ratzingers fái nú hland fyrir hjartað.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 15:55

15 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Allt í lagi Matti, vera má að ég sé "bilaður", en þú bilast nú illa og ferð í klessu í hvert skipti sem trú ber á góma, ekki bara þegar trúboð fer fyrir brjóstið á ykkur sem hafið höndlað sannleikann.
 Þetta er einfaldlega ekki rétt, ef ég bilaði í hvert skipti sem trú ber á góma væri ég alltaf bilaður   Ég veit svo ekki alveg af hverju þú tönglast á því að við höfum "höndlað sannleikann".  Ég veit ekki hvað þú átt við.

Annað hvort til að sveipa sig píslarvætti eða til að kynda undir andúð á vondu vantrúarmönnunum.
Þórhallur hefur líka ákveðið að hætta við að mæta mér í útvarpinu á morgun vegna þess að einhverjir hafa verið svo vondir við hann á netinu undanfarið.  Eini gallinn er að meðlimir Vantrúar eru alsaklausir í því máli.  Ég sé ekki betur en að Sigurður Þór og Jón Valur Jensson hafi aðallega verið að svara Þórhalli.

Matthías Ásgeirsson, 23.11.2009 kl. 15:55

16 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Pardon Jón Steinar. Þegar Jónar eru eins margir og steinarnir, er erfitt að halda reiður á þeim. En gerðu það fyrir mig að vera ekki með andpápísku hér á mínu bloggi. Við erum enn að semja við Vatíkanana.

Og enn eitt, Matthías, þið vantrúarmenn kennið alltaf öðrum um. Ekki get ég trúað því upp á bloggvini mína númer 1 og 2. Sigurð Þór og Jón Val, að þeir séu að atast í pastor Hafnfirðinga.  

Þórhallur hefur líklegast haft vondan hárdag í dag. Aflýst öllu vegna rauðu lokkanna. Þið skuluð ekki halda að það sé ykkar vegna.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2009 kl. 16:08

17 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég skal vera góður, eins og mér er unnt af vestfirskum púka að vera.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 16:11

18 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Og enn eitt, Matthías, þið vantrúarmenn kennið alltaf öðrum um. 
Gerum við það?  Það hlýtur að vera gaman að lifa í þessari veröld þinni, sem augljóslega er í litlum tengslum við veruleikann
Ekki get ég trúað því upp á bloggvini mína númer 1 og 2. Sigurð Þór og Jón Val, að þeir séu að atast í pastor Hafnfirðinga. 
Skrítið, þú kommentaðir hjá báðum með vísun á þessa færslu.   Æi, alveg rétt.  Þinn heimur og raunveruleikinn!
Þórhallur hefur líklegast haft vondan hárdag í dag. Aflýst öllu vegna rauðu lokkanna. Þið skuluð ekki halda að það sé ykkar vegna.

Hann segir það nú sjálfur, þó hann geri það með óbeinum hætti er vísunin ansi augljós.   En fjandakornið, varstu ekki að enda viða ð segja að við værum alltaf að kenna öðrum um - nú megum við ekki eigna okkur heiðurinn

Matthías Ásgeirsson, 23.11.2009 kl. 16:23

19 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Heiðurinn er Jesús, Matthías, Hér er allir að rífast vegna hans og fyrir hann og jafnvel mest þeir sem ekki á hann trúa.

Bið ég nú menn um að halda sig við efnið. Er rétt hjá Borgarleikhúsinu að halda því fram að Jesús, (sem var vitanlega var til, sjáið bara Jólin), hafi fæðst í Palestínu.

Hvar fæddist Jesús, Matthías? Og ef hann hefur ekki fæðst að þínu mati (vissu), hvernig veist þú það?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2009 kl. 16:39

20 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Ég hef ekki hugmynd um hvort Jesús fæddist eða ekki.  Ef hann fæddist, þá hef ég ekki minnstu hugmynd um hvar hann fæddist - og það veit enginn annar.

Veit það eitt að ef Jesús var til var hann þó ekki vsonur Gvuðs (sjálfs síns) og skiptir þá engu hvort hann er sagður eingetinn, raðgetinn eða ógetinn.

Matthías Ásgeirsson, 23.11.2009 kl. 16:51

21 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef Palestína var ekki til á meintum líftíma hans, þá segir það sig sjálft að hann var ekki fæddur í Palestínu.  Nú ef Betlehem í Júdeu og Nasaret voru ekki til heldur, þá er úr vöndu að ráða með drenginn.

Skiptir þetta annars einhverju máli Villi?  Þessar rangfærslur eða vanþekking poppkristlinganna eru svo sem ekkert betri eða verri en landafræði  guðspjallamannanna.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 17:19

22 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er nú meiri umræðan á ekki lengri tíma.

"En ég virði rétt helgi allra í Ísrael," segir þú, Vilhjálmur. Hvað áttu við?

Matthías, það er ennþá ekki búið að stofna neitt kristinn stjórnmálaflokk, sem ég tengist. Þetta er allt í undirbúningi – Kristin stjórnmálasamtök eru félag sem senn fer að undirbúa stofnun flokks.

Jón Valur Jensson, 23.11.2009 kl. 17:27

23 Smámynd: Jón Valur Jensson

... neinn kristinn ...

Jón Valur Jensson, 23.11.2009 kl. 17:28

24 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Stjórnmálasamtökin Kristín...

Ég verð ekki eldri...

Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 17:56

25 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Jæja, best að viðurkenna að það er víst allt mér að kenna að Þórhallur hætti við bloggseríu sína og hugsanlega líka við að mæta Matthíasi. Ég iðrast mjög synda minna og græt beisklega. Og vel að  merkja: Þið  eruð allir alveg snarbilaðir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.11.2009 kl. 18:08

26 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þakka þér fyrir Sigurður Þór. Eins og Kínverjar segja: Wii shuij paiiguu!!

Jón Steinar, nú legg ég til að þú gerist spindoktor í flokki kristinna, sem hæglega gæti heitið Stína Stuð Party.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2009 kl. 18:39

27 Smámynd: Jón Valur Jensson

Vilhjálmur, fornleifafræðingurinn sjálfur, viltu ekki latínu- (og grísku-) beyginguna á nafni Jesú?

Svo áttu eftir að svara spurningu minni kl. 17.27.

Jón Valur Jensson, 24.11.2009 kl. 01:01

28 identicon

Megi Guð hjálpa ykkur að öðlast innihaldsríkt og gæfulegt líf.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 01:06

29 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Vilhjálmur.

Þakka þér fyrir að vekja athygli á þessu ógeðfellda Jólaleikriti í Borgarleikhúsinu.

Það undrar mig einnig að margir sem kenna sig við kristna kirkju, virðast eiga erfitt með að segja eða skrifa orðið Ísrael.

Yeshua=Jesús var fæddur í Ísrael. (sjá Matt.2.19).

Það er ekkert land sem heitir "Landið helga". Það heitir Ísrael.

Orðið Palestína var ekki til á dögum Jesú og sem ríki hefur það aldrei verið til...

Shalom kveðja frá Zíon.

Ólafur Jóhannsson, 24.11.2009 kl. 01:49

30 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gaman að sjá þig hér, Ólafur. En það væri fróðlegt að sjá, hversu gamalt hugtakið Landið helga er í evrópskum og öðrum málum. Þetta er a.m.k. til á ensku, en hvenær ætli það byrji?

Jón Valur Jensson, 24.11.2009 kl. 02:00

31 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Jón Valur, dags daglega tala ég ekki mikið um eða við Jesús. Mér sýnist nú að flestir beygi Jesús eins í öllum föllum. Ég var búinn að setja þágufalls s á hann í fyrirsögninni en breytti því í gær. Nú, svo tala ég ekki latnesku svona dags daglega (og lærimeistari minn, Teitur heitinn Benediktsson, hefði getað gefið vottorð upp á það að ég var latínuskussi, að minnsta kosti þangað til í síðasta áfanga í Latínu, þegar ég skaut tveimur latínudúxum í latínubekknum í MH ref fyrir rass og fékk A, meðan þeir fengu B). Svo ég reyni að leggja Jesús,  Jesú, Jesú/Jesúsi, Jesú/Jesúsar á minnið - og á hátíðisdögum Jesum í þágufalli.

Hvað varðar spurningu þína frá 17.27, þá biðst ég velvirðingar á því að ég hafi gleymt að svara:

Ég meina að ég virði rétt allra trúarbragða sem gera tilkall til helgihalds í hluta þess lands sem þú kallar Landið Helga og ég kalla, með stolti, Ísrael. En ef menn kasta steinum, bera eld að Guðs húsi, eða hefja skothríð að helgi annarra er illt í efni. Íbúar lands þess sem nú hefur tekið sér nafnið Palestína eiga það til að herja á helgi annarra. Þeir sætta sig ekki við helgi landsins Ísrael og vilja ekki að gyðingar búi á því landssvæði sem þeir (Palestínumenn) gera tilkall til.

Það er auðvitað þaulsetinn bekkurinn af trúarbrögðum sem vill fá aðild að helgi Ísrael og nýstofnaðs Palestínuríkis. Kirkjudeildir munu hins vegar verða að eiga það við sig hvernig þeir taka á virðingarleysi Palestínumanna við Ísrael. Eitt virðingarleysið er, að því er haldið fram að Jesús hafi fæðst í "Palestínu". Ríkið Ísrael hefur gengið mjög langt í að þjónusta kirkjur sem tala tveimur tungum. En það er hluti af virðingu við helgi annarra.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.11.2009 kl. 03:34

32 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Shalom Ólafur! Landið helga, tálsýnin, eins og ég kallaði þetta heiti í gær, er samt veruleiki í dag fyrir Ísrael, "Eretz Ysroel", og þjóðina Ísrael, sem vissulega hafa verið til í yfir 3000 ár. Ég tel þó víst að gyðingar hafi einnig talað um Kanaan og Fyrirheitna landið (ha-Aretz ha-Muvtachat), svo er að minnsta kosti hægt að lesa í Tanakh (GT). 

En þegar Jesús fæddist hét landið ekki Ísrael. Það er best að viðurkenna það, því landið var þá undir hæl Rómverja. Kristnir kölluðu landið síðar "Landið Helga", til að þurfa ekki að taka nafnið Ísrael, þjóðina sem bjó í landinu áður en það var hertekið, sér í munn. Þeir breyttu vísvitandi Fyrirheitna landinu/Israel í  "Landið helga", þótt "Landið helga" hefði þó einnig (en miklu síðar) verið túlkað sem virðing við önnur trúarbrögð. En í fyrstu var "Landið Helga" aðeins heilagt kristnum mönnum, sem fóru í Krossferðir til að frelsa land Jesús undan hæl Músilmanna.

Ísrael hentar mér best, enda ríkið Ísrael til og blómgast. En ef einhverjir vilja kalla það Landið Helga án imperíalisma og ofstopa, þá hef ég ekkert á móti því að menn tali um Landið Helga.

En þegar menn vilja gera atlögu að Ísrael og opinbera Jesú sem frelsara þjóðarinnar eða heimta Jerúsalem undir höfuðborg Palestínu nútímans, brjóta menn brýr að baki sér. Áður fyrr eyddu menn, sem kölluðu Ísrael Palestínu, Jerúsalem. Leiðtogar "Palestínu" rústuðu borg Gyðinga. Skipting Jerúsalem í nafni Palestínu, er og verður eyðilegging. En Palestínumenn, Kristnir og aðrir sem gera tilkall til helgi Jerúsalem eru ávallt velkomnir, meðan þeir hafa ekki önnur áform og  markmið í huga en að tilbiðja Guð sinn. Mér er sama hvað þeir kalla landið, en landið Ísrael er staðreynd.  

Ólafur, það er líka staðreynd, að stofnað hefur verið Palestínuríki, sem nýtur meiri stuðnings á heimsbyggðinni en stuðningur þinn og annars góðs fólks við Ísrael. En því miður byggir stuðningur við þetta nýja ríki og yfirgengilegra krafna þess á misskilningi, vanþekkingu og ekki minnst hatri, gömlu gyðingahatri - mannlegum veikleika sem fylgt hefur bæði kristni, Íslam og ýmsum "ismum", og sem felst í því að rotta sig saman um að ofsækja eina þjóð. Menn tala um einelti gegn börnum. Einelti gegn Ísrael er ekki ósvipað. Menn hamast á einu landi, í fréttum, í stjórnmálum, í allri umræðunni, meðan aðrar þjóðir stunda óáreittar þjóðarmorð í nafni Guðs. Þetta einelti er svo sjúkt, að hér á Íslandi sat utanríkisráðherra með fjórum ráðgjöfum sínum, mitt í verstu kreppu íslenskrar þjóðar, og skrifaði bréf til kollega síns í Ísrael á Gamlársdag til að segja henni fyrir verkum.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.11.2009 kl. 04:19

33 identicon

Ísrael uber alles, er það ekki :)

DoctorE (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 11:53

34 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Jón Valur!  Takk sömuleiðis.

Varðandi spurningu þína, hefur Vilhjálmur svarað henni
 betur en ég hefði getað...

Shalom kveðja .

Ólafur Jóhannsson, 24.11.2009 kl. 14:02

35 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Shalom Vilhjálmur! Þakka þér fyrir greinagóðar ábendingar.

Þó á ég erfitt með að skilja, þegar þú segir að Palestínuríki sé til!

Ég veit að sjálfstjórnarsvæði þeirra eru til. Þekki sjálfstjórn palestínumanna. Daglegar fréttir varðandi fundi um væntalegt ríki palestinu, um ósk þeirra að skipta Eretz Ísrael og gera hálfa Jerúsalem að höfuðborg...

Þetta er allt í hugsanlegri framtíð...

Ef ríkið Palestína er til! Hvenær var það þá stofnað?

Hvað meina þá palestínumenn, þegar þeir segjast berjast fyrir stofnun Palestínuríkis með Austur-Jerúsalem að höfuðborg?

Kanaan og Fyrirheitna landið er oft nefnt i Tanak(GT). Ísrael, Ísraelsmenn, Ísraelsland, þó enn oftar...

..Ég mun sækja yður til þjóðanna og saman safna yður úr öllum löndum og flytja yður inn í yðar land" (Esekiel 36.24)

....flytja yður inn í Ísraelsland. (Esekiel 37.11).

Kveðja frá Zíon.

Ólafur Jóhannsson, 24.11.2009 kl. 14:50

36 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæll Ólafur,

Sjálfstjórnarsvæðið Palestína, í daglegu tali kallað Palestína, og af sumum "Vesturbakkinn", er eining sem stór hlutur heimsins er greinilega tilbúinn að viðurkenna sem ríki svo kallaðra Palestínuaraba.

Palestínumenn lýstu yfir stofnun ríkis sín árið 1988 í Sýrlandi. En þeir voru víst að meina það land sem í dag er Ísrael. Það land sem áfram verður Ísrael.

En þeir (Palestínumenn) hafa, eins og við vitum, en ekki allir, ekki getað gert það upp við sig, hvað þeir vilja með þessu ríki sínu. Í stað uppbyggingar berast þeir á banaspjót og myrða bræður sína og hafa oftast illt í huga gagnvart Ísraelsríki.

Spurningin er bara á hvaða grundvelli slíkt ríki verður viðurkennt. Mikill fjöldi þjóða er búinn að viðurkenna þetta "ríki", oftast vegna landlægs haturs í garð Gyðinga.

Þótt gott sé að eiga góða vini að, Kristna hópa sem vilja Ísrael allt það besta, eru engir englaskarar, lúðrablástur né nokkur þjóð sem mun standa við bakið á Ísrael í nánustu framtíð. Áróðurinn gegn Ísrael er svo sterkur. Bandaríkin hafa fengið nýjan forseta sem á frænku í Hveragerði - og hvað hjálpar það?

Ísrael vantar stuðning, svo að óvinum Ísraelsríkis, sem vilja ríkið  feigt, fái ekki einn fermetra af Jerúsalem. Það vantar stuðning til að "Palestína" verði viðurkennt, þannig að Ísraelsríki stafi ENGIN hætta frá því ríki - og að gyðingar geti óhindrað fengið að búa á svæðum í ríkinu Palestínu, þegar það verður formlega til. Svæði Palestínu er jafnheilagt gyðingum og Jerúsalem er sögð heilög múslímum.

Ég verð að vera raunsær. Ég trúi ekki á endurkomu Jesús og Messías lætur alltaf bíða eftir sér. 

Heimurinn er brjálaður og maður verður að haga seglum eftir vindi - að einhverju leyti. 

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.11.2009 kl. 23:20

37 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

DoktorE, þú ert víst að meina Deutschland, Ísland, USA eða Íran. eða Japan ......? Eða er það ekki bara DoktorE, DoktorE sem er über alles?  Allir telja sig besta, jafnvel þeir sem hafa fulla vissu um að ekkert andlegt sé til (þú ert kannski besta sönnun þess).

En mikið ertu nú annars leiðinlegur og óvitsmunalegur greyið mitt. Bak við kaldhæðnina og sjúklegt trúarhatrið er lítill karl með mikla komplexa. Bið ég þig vænstan að vera ekki að sprauta þeim út á bloggið mitt. Eitthvað vitsmunalegt, þá ertu velkominn.

Trunta, takk fyrir kommentið. Er búinn að rétt stafsetningarvilluna. Farðu í berjamó, ef það er ekki orðið of seint.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.11.2009 kl. 23:38

38 identicon

Mér sýnist bara að sumir séu búnir að gera Ísrael að trúartákni.. sem er skýrt brot á boðorði númer 2.

DoctorE (IP-tala skráð) 25.11.2009 kl. 07:41

39 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þetta held ég að sé alrangt hjá þér DoktorE. Ísrael er ramminn um trúna.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 25.11.2009 kl. 09:44

40 identicon

“You shall not make for yourself a graven image, or any likeness of anything that is in heaven above, or that is in the earth beneath, or that is in the water under the earth; you shall not bow down to them or serve them; for I The Lord your God am a jealous God, visiting the iniquity of the fathers upon the children to the third and the fourth generation of those who hate Me, but showing steadfast love to thousands of those who love Me and keep My Commandments.”

Krossinn er samkvæmt þessu bannaður, sem og öll líkneski eða tákn um eitthvað í trú... þar með talið musteri, landsvæði eða whatever

DoctorE (IP-tala skráð) 25.11.2009 kl. 16:03

41 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Töff þessi Jahve. Ekkert Jesúvæl þar!

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.11.2009 kl. 22:23

42 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Drottin gerir sér far um að vera töff. Annars væru ekki svo margir sem fylgdu boðum hans og bönnum.  En þar sem mennirnir ruglast í ríminu er þegar þeir gera sín boð að lögum Drottins og sjá ekki skyssur sínar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.11.2009 kl. 11:44

43 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Sannarlega sammála...

Shalom kveðja.

Ólafur Jóhannsson, 27.11.2009 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband