Leita í fréttum mbl.is

Orrahríđ í íslenskri fornleifafrćđi

 

Indiorri

Ţađ vakti mikla athygli hér um áriđ, er dr. Orri Vésteinsson var ráđinn ađ fornleifadeild Háskóla Íslands. Doktorspróf hans í sagnfrćđi var tekiđ fram yfir próf umsćkjenda, sem voru međ doktorstitla í fornleifafrćđi frá Svíţjóđ. Allt ţađ mál dró mikinn dilk á eftir sér, eins og kunnugt er orđiđ, og fór fyrir hćđstu dómstóla. Ţađ var HÍ til lasts og dómnefndarmönnum, sem dćmdu hćfi manna í stöđuna, til vansa. Fullvíst má telja ađ HÍ hafi séđ mikiđ eftir ţeirri stöđuveitingu, ţó svo ađ menn hafi kannski enn ekki lćrt af henni. Nú eru hins vegar ađrir tímar, fjármagn allt af skornum skammti og framtíđ fornleifafrćđinnar ef til vill ekki eins glćsileg og hún virtist vera í góđćri síđasta áratugar.

Nú um daginn reyndi Orri Vésteinsson, mađur sem hefur ţađ fyrir venju ađ vitna mjög takmarkađ í rit fornleifafrćđinga, (eđa ţekkir ţau jafnvel ekki), ađ fullvissa okkur um, ađ hann og stofnunin, (FSÍ), sem hann rekur međ öđrum jafnframt ţví ađ vera starfsmađur HÍ, eigi engan hlut ađ máli í ţeirri ađför sem doktorsnemi í fornleifafrćđi varđ nýlega fyrir í New York. Ađför ţessi átti sér stađ í kjölfar ţess ađ stúdentinn var svo frakkur ađ leyfa sér ađ freista gćfunnar á „frjálsum" markađi íslenskrar fornleifafrćđi. Sjá um ţađ mál hér og hér.

Ţađ má teljast skrítin árátta hjá stórum prófessor í New York ađ reka Íslending úr námi, vegna ţess ađ neminn leyfir sér ađ fara í samkeppni viđ stofnun á Íslandi sem lektor í HÍ tengist - lektor, sem (alveg óvart) hefur veriđ í margra ára fjárhagslegu og akademísku sambandi viđ prófessorinn í New York og stofnun hans. Ef viđ veljum trúa Orra og sakleysi hans, er prófessorinn í New York líklegast ekki međ öllum mjalla. Hvađa heilvita mađur gengur í ţađ ađ bana ferli ungs og efnilegs fornleifafrćđings og kalla hana lélegan nemanda opinberlega, vegna ţess ađ hún leyfir sér ađ stunda ţá tegund af fornleifafrćđi sem Orri  og íslenskir samverkamenn hafa  stundađ manna mest, og sem tröllriđiđ hefur öllu á Íslandi.

Hvađ eiga menn ađ lesa út úr orđum Thomas McGoverns, ţegar hann segist vera ađ velja á milli hennar og FSÍ um leiđ og  hann gengur milli bols og höfuđs á henni? Af hverju ţarf ţessi mađur ađ hafa sér eins og mannýgt naut? Jú ţađ liggur í augum uppi. Hann sinnir sínum eiginhagsmunum. Ţeim er best borgiđ í samvinnu viđ FSÍ, en ekki Albínu Huldu Pálsdóttur, sem leyfđi sér ađ fara inn á svćđi, sem FSÍ telur sig hreinlega eiga einkarétt ađ. Er ţađ frjáls samkeppni? Ţađ hljóma í mínum eyrum, og vćntanlega Skúla Fógeta sem vakir fyrir Alţingisreit, sem einokun.   

Um leiđ og Orri lýsir sakleysi sínu án nokkurra sönnunargagna, lýsir hann ágćti eigin verka í greinargerđ sinni í Morgunblađinu, og er jafnframt ađ fárast yfir ţeirri verđbólgufornleifafrćđi á Íslandi, sem hann, ef einhver, ber einna mesta ábyrgđ á. Hann talar niđur til námsmanna, ţ.e. sinna eigin námsmanna í HÍ, og segir ţeim ađ stunda sitt nám og eyđa ekki tíma í uppgraftarćvintýri.

Ţađ vekur kátínu ađ sjá sagnfrćđing vera međ slíkar yfirlýsingar viđ fornleifafrćđinga, en kannski er ţetta dćmigert. Samkvćmt Orra eiga nemar HÍ ađ stunda sitt nám međan Orri, félagar hans í FSÍ og samstarfsađilar í BNA fá öll verkefnin. Kannski er ţetta rétt hjá Orra. Varla á ţađ ađ vera hlutskipti nema ađ standa í hinum endalausu klögumálum, kćrum og jafnvel réttarhöldum sem tengjast framkvćmd fornleifarannsókna á Íslandi. Ástandi sem ekki hefur frćgt greinina. Ekki dreg ég í efa ađ stúdentar viđ HÍ hafi notiđ góđs af leiđsögn góđra manna hjá FSÍ, en flestir ţeirra stúdenta sem ég hef talađ viđ hafa kvartađ sáran yfir ţví ađ FSÍ borgi verst allra á hinum frjálsa markađi fornleifageirans.

Höfustöđvar FSÍ
Funkísvilla FSÍ á Bárugötunni mun vera í eigu ríkisins og FSÍ mun
búa ţar fyrir lítiđ. Foto Stasi Archives.

 

Ekki er hćgt ađ segja annađ en ađ mokađ hafi veriđ undir FSÍ. Ţeir hafa notiđ ýmissar fyrirgreiđslu frá íslenska ríkinu og ýmsum sveitarfélögum, sem verđur ađ teljast óeđlilegt ferli í frjálsri samkeppni. Reykjavík hefur valiđ FSÍ sem sinn ađalverktaka ţegar fornleifar eru annars vegar. Öll nýlega útbođin fornleifaverkefni í Reykjavík hafa greinilega, af ástćđum sem hljóta ađ vera eđlilegar, fariđ til FSÍ og félaga. Ţess vegna verđur auđvitađ uppi  fótur og fit ţegar FSÍ fćr svo ekki stórt verkefni eins og rannsóknin á Alţingisreit er. Sjóđir FSÍ hljóta ţví ađ vera magrir nú en, árin á undan hafa vissulega veriđ feit.

Ef grćđgi hefur slegist í för međ fornleifavísindunum, eđa viđ ţau eins og Orri gerir ţví skóna, ţá er ţađ líklegast frekast á FSÍ,  ţar sem fundin var upp íslenska útbođsfornleifafrćđi, sem ţrifist hefur í séríslenskri gerđ „frjálsrar  samkeppni", allt ţar til nú.

Ţó ég sé einhvers konar liberalisti, ţá er ég í vafa um ađ fornleifafrćđi sé hentug grein á markađi í litlu landi eins og á Íslandi.

Vandi sá sem viđ eigum viđ ađ etja í fornleifamálunum á Íslandi, sem menn hafa kvartađ undan á mismunandi hátt, er ţó fyrst og fremst fortíđarvandi, sem skapađist í ládeyđu og fjársvelti ţví sem var í ţeim málum á Ţjóđminjasafni Íslands allar götur frá stofnun Lýđveldis og fram til 1995, er sjálfstćđ fornleifafyrirtćki komu fram í sviđsljósiđ. Fornleifafyrirtćkin í dag eiga sannast sagna afar erfitt međ ađ yfirgefa ţá einokunartilhneigingar sem ávallt ríktu í tóminu á Ţjóđminjasafninu. Eitt fornleifafrćđifyrirtćkiđ (og ţađ er ekki svo ađ ţau séu mörg) á greinilega sérstaklega erfitt međ ađ standa á eigin fótum án ţess ađ hafa samstarf viđ fremur óyfirvegađa menn í útlöndum, eins og Thomas McGovern, sem finnur ţörf hjá sér ađ lóga framtíđ íslensks stúdents síns, ţegar hann heldur ađ ţađ gagnist viđskiptavinum sínum á Íslandi. 

Ég vorkenni líka dálítiđ Fornleifavernd Ríkisins (sem mönnum ber ekki ađ rugla saman viđ Fornleifastofnun Íslands. Fornleifaverndin er ríkisapparat en Fornleifastofnun er prívatfyrirtćki), sem samkvćmt lögum er  stofnun sem hlýtur ströngum siđferđilegum reglum. Ţađ hlýtur ađ vera erfitt í landi, ţar sem siđferđi í stjórnmálum og fjármálum er slakt, ađ framkvćma hina göfugu fornleifagćslu án ţess ađ komast í siđferđilegar hremmingar.

Nú, eftir veislu í fornleifafrćđinni eins og í gjörvöllu íslenska ţjóđfélagi, og í miđri kreppu ţjóđarinnar, er fornleifafrćđin líklega aftur orđin spörfuglafag,  ţar sem ránfuglaháttur og grćđgin sem ríkt hefur á tímum guđanna sem átu gull međ hrísgrjónunum, hlýtur ađ minnka og vonandi hverfa. Draga mun mjög úr öllum framkvćmdum og ţar međ úr fornleifarannsóknum tengdum raski og framkvćmdagleđi. Um leiđ og jarđýturnar ţagna, missir fornleifafrćđingurinn vinnunna á Íslandi.

Mćli ég međ ţví ađ menn setjist niđur á nćstu árum og klári verk sín eins og völ er á. Ţessi mögru ár koma ekki einvörđungu niđur á FSÍ. Ţau koma verst niđur á stúdentunum í faginu, sem ekki fá eins góđ tćkifćri í fornleifafrćđinni og sagnfrćđingurinn Orri Vésteinsson og samverkamenn hans, sem vitanlega voru fremstir. Fremstir  í ţví ađ skapa ţađ ástand, sem veldur ţví ađ erfitt er ađ sjá hvort vísindi ráđi ferđinni í fornleifafrćđi á Íslandi, ellegar hin miskunnlausa grćđgi mannsins, sá eiginleiki sem dregur Íslendinga í -dilka, í feitu sauđina og ţá rúnu.

Ef Yahoo er spurt hvađ fornleifafrćđingar geri eiginlega, kemur upp eftirfarandi svar, sem ekki á viđ um Ísland, enda einhver rómantík hjá höfundi, sjá hér: Most archaeologists work with universities or museums, and part of their job is to obtain funding for digs. They also may employ students on digs to have extra man or womanpower on the job. Students usually work without pay, but relish the training they receive in their chosen field.

Sjá Einnig: The Big Professor , Af siđferđi og siđleysi í íslenskri fornleifafrćđi


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ekki hef ég ţekkingu á ţessu máli. Eitt skil ég ţó alveg: Ţekktur professor gagnvart nemanda. Mikill aflsmunur. Ţegar slíkur prófessor lítillćkkar nemanda sinn opinberlega og reynir ađ ganga milli bols og höfuđs á honum er ţađ svívirđilegt athćfi sem allir ţeir sem tengjast prófessornum ćttu ađ skamma hann fyrir. Ekkert veit ég fyrirlitlegra en neyta aflsmunar af ţessu tagi.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 3.6.2009 kl. 10:25

2 identicon

Sćll frćndi!

 Ţađ er alltaf hressilegt ađ lesa fćrslurnar hjá ţér, hef reynt ađ fylgjast međ ţeim og hef haft gaman af.

Kveđja

Eyjólfur

Eyjólfur Rúnar Sigurđsson (IP-tala skráđ) 3.6.2009 kl. 10:55

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Greinargott yfirlit. Almenningur veit ekki hvađ er ađ gerast í ţessum lokađa heimi fornleifamafíunnar nema ţegar eldfjall gýs og ágreiningur endar fyrir dómstólunum.

Láttu okkur fá  meira ađ heyra.

Ragnhildur Kolka, 3.6.2009 kl. 23:06

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband