Leita í fréttum mbl.is

The Big Professor

fat-man-at-computer
 

Um daginn greindi Morgunblađiđ frá samstarfi Fornleifastofnunar Íslands (FSÍ) viđ frćgan og stóran prófessor og háskóla í New York borg.

Ungur fornleifafrćđingur, Albína Hulda Pálsdóttir, hafiđ greinilega trođiđ ţeim öllum um tćr međ ţví ađ sýna sjálfstćđi og dug til ađ leggjast í stórt verkefni.  Haldiđ er fram ađ FSÍ hafi fengiđ Stóra Prófessorinn í New York til ađ bola fornleifafrćđinemanum (doktorsnemanum) úr námi  viđ Hunter College á CUNY og hrćđa hana frá ţví ađ kasta sér sér út í verkefniđ vestan viđ Alţingishúsiđ.

Í fyrradag barst hins vegar yfirlýsing frá stóra prófessornum í New York, ţar sem hann sór og sárt viđ lagđi, ađ hann hann hefđi ekki rekiđ Albínu vegna óska frá samstarfsađilum sínum á Íslandi sem međ honum vildu stjórna rannsóknum svokölluđum Alţingisreit. Hann rak hana vegna ţess ađ verkefni hennar stangađist á viđ reglur City University of New York.

Eins og sakleysiđ uppmálađ lýsir stóri prófessorinn, McGovern, ţví einnig yfir, ađ Albína hafi veriđ lélegur nemi og ţess vegna hafi hann líka rekiđ hana. Ţađ er vćntanleg ekki ţađ sem gerđist, ef ég hef lesiđ gögn sem birtust í Morgunblađinu ţann  (sjá hér) rétt.

Lélegur nemandi getur Albína ekki hafa veriđ fyrst henni hefur veriđ leyft ađ fara í doktorsnám. Og Albína sýnist mér hafa fengiđ styrki frá ýmsum Bandarískum sjóđum. Ţađ bendir nú frekar til ţess ađ hún sé afburđarnemandi.

Ţađ er lágkúrulegt ađ sjá stóra menn eins og Thomas H. McGovern leggjast svo lágt ađ svína fyrrum nemanda sinn til, eftir ađ hann hefur reynt ađ eyđileggja frćđilegan heiđur hennar og framtíđ hennar međ ţví ađ reka hana úr námi. Stórir menn leggjast stundum einum oft lágt.

Ég vona ađ Albína Hulda sé ekki búin ađ fá sams konar bréf og ég fékk einu sinni frá McGovern. Ţar sem hann lýsti ţví yfir ađ hann myndi sjá til ţess ađ ég fengi aldrei vinnu í íslenskri fornleifafrćđi framvegis og myndi beina fjármagni sem annars gćti runniđ til Íslands til Rússlands. Ţegar ég var ráđinn ađ Ţjóđminjasafni Íslands áriđ 1993 sendi ţessi stóri prófessor bréf til Ţjóđminjavarđar til ađ sverta mig og rćgja.

Reglur og lög á CUNY eru vitaskuld alls ekki leikreglur og lög á Íslandi. CUNY hefur ekkert ađ segja á Íslandi. Hafa verđur samband viđ forráđamenn á CUNY og láta ţá vita hvernig ađferđir McGovern hefur notađ á Íslandi og hvernig hann hefur komiđ fram viđ nemanda sinn. CUNY er reyndar ekki neitt fínt plagg í BNA, nema ţegar menn eru komnir í doktorsnám. Frćgt er orđiđ mál samprófessors McGoverns, Leonard Jeffries, sem lýsti ţví yfir ađ gyđingar bćru ábyrgđ á ţrćlaflutningum til Bandaríkjanna og vćru skúnkar. Gyđingahatari var međprófessor McGoverns á CUNY, og meirihluti prófessora á CUNY vildi ekki einu sinni láta reka Jeffries fyrir hatur í garđ gyđinga og hvítra manna. Les hér um Dr. Jeffries.

Hér um áriđ útdeildi stóri prófessorinn lítilli ritgerđ til samstarfsmanna sinna á Íslandi, sem ćttuđ var frá herjum Bandaríkjanna. Í riti ţessu voru mönnum settar reglur í samgegni viđ Íslendinga og okkur Íslendingu lýst eins og einhverjum afdalamönnum (sem viđ erum líkast til). Einhvern tíma mun ég birta brot úr ţeim fyrir lesendur mína til skemmtunar. En ţangađ til gćtir stóri Prófessorinn lesiđ ţćr aftur og hagađ sér sómasamlega á heimilum annarra ţjóđa. 

Ađrir Bandaríkjamenn hafa reyndar starfađ hér í fornleifafrćđum líka, jafnvel ţó ţeir séu ekki fornleifafrćđingar. Ekki hafa ţeir sýnt svo ljótan ţokka af sér eins og McGovern. Sem betur fer er misjafn sauđurinn ţar vestra. Ţađ eru nefnilega ekki allir eins og Stóri Prófessorinn á CUNY. Ég held ađ ég hafi aldregi fyrirhitt Bandaríkjamann eins og hann.

Ungir fornleifafrćđingar og fornleifafrćđinemar, ég hef eitt ráđ til ykkar: Haldiđ ykkur frá stóra prófessornum og deild hans á Hunter College, CUNY. Eftir ađ hann hefur haft mest möguleg not af mönnum og mergsogiđ ţá, spýtir hann ţeim út. Ţađ versta er ađ hann heldur ađ hann hafi haft einhverja ţýđingu fyrir íslenska fornleifafrćđi. Ţađ er hinn mesti misskilningur. Nú er hann svo farinn ađ gera tilgátur annarra ađ sínum.

Ţađ ber ađ taka fram, ađ myndin er ekki af Thomas H. McGovern ţar sem hann situr sveittur og ver heiđur sinn og gjörđir gegn ungri og efnilegri íslenskri námskonu. Mađurinn á henni er mjög líkur McGovern, eins og ţeir sem ţekkja stóra prófessorinn sjá. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Og hvađ svo? Lýkur málinu bara svona? Ekkert meira gerist. Hinir sterku og ranglátu verđi ofan á?

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 24.5.2009 kl. 17:44

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Athyglisverđ frásögn, en ţví miđur er akademískur subbuskapur ekki einskorđađur viđ ţennan Thomas H. McGovern. Ţađ virđist sem óţarfi hafi veriđ ađ flytja hann inn, hann viđgengst hér líka.

Ragnhildur Kolka, 24.5.2009 kl. 18:06

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er ţetta ekki enn eitt dćmiđ um samtryggingu međalmennskunnar, ţar sem međal og undirmálsmenni í ţćgilegum stöđum losa sig fljótlega viđ allt, sem gćti skyggt á ţá í greind, sköpun og hugmyndaauđgi, auk ţess ađ eigna sér svo verk ţeirra, sem ţeir hafa drepiđ í dróma? 

Ţekki mýmörg dćmi um ţađ hjá opinberum stofnunum hér og mér virđist sem ţessi stóri mađur hljóti ađ vera smámenni í raun.

Jón Steinar Ragnarsson, 25.5.2009 kl. 11:52

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Kćru lesendur, ég tel mig vita hvernig ţetta vandamál er upp komiđ. Ég vona ađ sannleikurinn hafi veriđ sagđur í Morgunblađinu og yfirvöld hafi öll nauđsynleg gögn undir höndum. En ef sterku karlarnir hafa upp á eitthvađ betra ađ bjóđa en ţetta klór sem komiđ er frá McGovern og í yfirlýsingu frá FSÍ, ber ţeim auđvitađ ađ birta ţađ og leiđrétta ţađ sem fram er komiđ.

Ef ekki, gćti ég ađeins ráđlagt Albínu ađ fara í mál viđ Hunter College. En slíkt er dýrt. Háskóli, sem variđ hefur rétt prófessor (Leonard Jeffries) til ađ uppnefna ţjóđir sem dýr, hlýtur ađ verja nema frá litla Íslandi.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 25.5.2009 kl. 20:27

5 identicon

Ţađ kom svo varnarbréf frá ţeim stóra í pdf formi á Gammabrekku útsendingavef sagnfrćđifélagsins.

Tómas (IP-tala skráđ) 1.6.2009 kl. 10:32

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband