Leita í fréttum mbl.is

Jón Ormur Halldórsson stundar sögufölsun á kostnað íslenskra skattborgara

Menn fóru mikinn gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni í íslenska þjóðfélaginu, vegna þess að hann vitnaði í leyfisleysi í heilagt þjóðskáld okkar Íslendinga, (sem við eigum ekki þrátt fyrir allt), og vegna þess að fyrir var Hannes hataður með öfgum vegna skoðana sinna.

Jón Ormur Halldórsson (f. 1954) dósent við Háskólann í Reykjavík, sem greinilega er ekki sérmenntaður í sögu Miðausturlanda, fór með fleipur um sögu og þróun mála í Miðausturlöndum í þættinum Víðsjá á RÚV þann 6. janúar 2009. Hann gaf m.a. í skyn að gyðingar stjórni Bandaríkjunum.  Ekki býst ég við að Jón Ormur verði lagður í einelti af samstarfsmönnum sínum fyrir þessar skoðanir sínar og aðrar sögufalsanir, sem hann var með í þættinum. Jón höfðar til vanþekkingu fjöldans, sem þessa dagana horfir með hryllingi á börn Hamas sem nú deyja. Börn sem á tyllidögum voru notuð sem þjóðbúningadúkkur, íklædd þjóðbúningum Hamas, fötum hryðjuverkamannsins og píslavættisins með sprengjubeltið og Kóraninn - meðan feður þeirra voru að stunda hernað gegn saklausum ísraelskum börnum.

Jón Ormur heldur því fram, að Ísraelsmenn hafi skapað öfgasamtökin Hamas og Hizbollah vegna "hrottalegs ofbeldis" Ísraels, og að þessi samtök hafi aðeins verið trúarleg samtök; að Ísrael hafi gert þau að öfgasamtökum. Þetta er svo mikil sögufölsun, að ég mun kynna hana í alþjóðlegu tímariti og sömuleiðis álit Jóns Orms á gyðingum í Bandaríkjum, sem inniheldur alla verstu fordóma sem til eru um þá. Jón Ormur gaf enn fremur í skyn, að "aðgerðarleysi" Obamas vegna átakanna á Gaza væru vegna þess að ráðgjafi hans og starfsmannstjóri eru gyðingar.  Enn alvarlega er, að ríkisfjölmiðill á Íslandi gefur Jóni Ormi tíma og tækifæri til að útbreiða þessar rangfærslur hans og dylgjur, og að enginn starfsmaður þar hafi þekkingu eða vit til að andmæla honum.

Hamas var stofnað árið 1987 af meðlimum hins "Múslímska Bræðralags". Frá upphafi var stefna þeirra að útrýma Ísrael, en ekki friðsamleg trúariðkun. Árið 1988 lýsti Hamas því yfir að Palestína væri Múslímsk land og búseta fólks af öðrum trúarbrögðum yrði ekki þoluð. Opinber yfirlýsing samtakanna frá 1988 vitnaði í rússneskt falsrit gyðingahatara frá lokum 19. aldar (The Protocols of the Elders of Zion, gefin út á Íslandi af Jónasi krata Guðmundssyni árið 1951 undir heitinu Samsærisáætlunin mikla; Siðareglur Zíonsöldunga), sem m.a. rússneskir keisarar og rússneska kirkjan notuðu til að ofsækja gyðinga, myrða þá og hrekja þá á braut. Hamas er skammstöfun fyrir Ḥarakat al-Muqāwamat al-Islāmiyyah sem þýða má "Íslamíska Andspyrnuhreyfingin". Ekki þekki ég mörg trúarfélög sem nota slík nöfn, fyrir utan Hjálpræðisherinn. En blessaður Hjálpræðisherinn hefur aldrei stundað hryðjuverk.

Hamas var stofnað í byrjun fyrstu intífödunnar sem hófst í Jabalia flóttamannhverfinu á Gaza árið 1987. Fyrsta intífadan byrjaði þótt á undan hefði gengið tiltölulega rólegt tímabil í samskiptum Ísraels og Palestínumann. Palestínumenn tíndu sjálfir til aðrar ástæður til þess að þeir hófu árásir sínar á Ísrael árið 1987, svo sem breytt afstaða Egypta og Jórdana til Ísrael, sem var afleiðing friðarferlisins.

Mús Hamas lýgur ekki ekki eins og Ormur 

Músin i "Stundinni Okkar" á Gaza lýsir ætlunarverki Hamas.

Hizbollah varð alls ekki til sem trúarleg samtök. Þegar samtökin bræddust saman úr mismunandi hryðjuverka- og skæruliðahreyfingum shía-múslíma frá 1982 til 1985. Leiðtogar samtakanna sóttu hernaðarstyrk sinn frá Teheran og Damaskus. Löngu eftir borgarstríðið í Líbanon urðu samtökin af pólitískum og andlegum samtökum, sem veifa Kóraninum og segjast vera annt um mannslíf.

Jón Ormur lýgur að íslensku þjóðinni, að ófriðarsamtökin Hamas og Hizbollah hafi verið trúarsamkunda friðardúfna, sem ekkert hafi sér til saka unnið nema að svara hernaði Ísraels, og að Ísrael hafi gert þau að öfgasamtökum. Fyrir utan þetta gaf hann í skyn að gyðingar væru fram úr hófi valdamiklir í BNA. Það er kannski ekki alvarlegt að fara með staðlausa stafi á Íslandi, þar sem menn létu örfáa drullupésa gera sig að ölmusukörlum á nokkrum árum. Dómgreind margra Íslendinga er greinilega ekki upp á marga fiska á hinum síðustu og verstu tímum. Dómgreindarleysi og rangfærslur dr. Jóns Orms munu kalla á aðgerðir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorgrímur Gestsson

Hvers konar aðgerðir? Ætlarðu að drepa hann? Það væri svona í takt við vini þína.

Þorgrímur Gestsson, 7.1.2009 kl. 12:55

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Grímsi, ekki sömu aðferðir og þær stefnur og ríki sem þú tilbaðst á yngri árum.

Hvað voru nú aftar margar milljónir saklausra manna sem fóru undir græna torfu vegna öfgatilbeiðslu kommúnismans á dauðanum? Illa er nú komið fyrir Útópíunni þinni, en það sitja þó enn eftir nokkrar KGB-hræður í Kreml og reyna að halda þjóðum í gíslingu og gefu ykkur gömlu mönnunum von. Svoleiðis aðferðir þekkir Jón Ormur af öllu illu, enda gamall Sjálfstæðismaður.

Nú þegar næðir um minningu Sæluríkisins, sem þú ert víst enn að bíða eftir samkvæmt eigin upplýsingum, þá ertu greinilega líka orðin heldur óhrjáleg klappstýra hjá öfgamönnum í Miðausturlöndum, vegna þess að þeir segjast hata sömu "veldin" og þú hefur alltaf hatað.

Jón Ormur og þú verðið bara að sjá hvaða aðgerðir ég hef í huga. Þær verða friðsamlegar og hnitmiðaðar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.1.2009 kl. 13:28

3 identicon

já þú segir það, er þetta semsagt allt aröbunum að kenna ?

Barði Barðason (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 20:10

4 identicon

Bíddu,eru Gyðingar ekki valdamiklir í U,s,a? Mjög fyrirferðarmiklir þar myndi ég segja .Eiga meira og minna allt bankakerfið þar,þar á meðal seðlabankann þeirra. Eitt með Ísrael og Palestínu átökin. Finnst þér virkilega ísrael vera í fullum rétti að ráðast á Palestínu,þeirra eigin fangabúðir ,með öllum sínum hernaðarstyrk?

Gunnar Freyr Hilmarsson (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 20:25

5 identicon

Það er gott að sitja vörð um útsendingar og almannafjár, en aftur á móti skaltu ekki gleyma í alþjóðlega tímaritinu þínu að taka fram að sömu ríkisfjármunir sem kostuðu útvarp Jóns Orms kostuðu einnig viðtal Boga Ágústssonar við Miryam Shomrat, sjónvörpuðu í gær, svo að samhengi náist.

Annars vantar á Ísland almennilega pólitískt félag Ísraela-Íslendinga, og á meðan það vantar er engin furða að guttar eins og Jón Ormur vaði uppi og njóti vinsælda í sínum vanþekkingarpostillum. Tel ég.

Sófisti (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 20:35

6 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Reyndar er sérsvið Jóns Orms mið-austulönd þar sem hann varði mörgum árum við rannsóknir í mörgum löndum.

Helgi Jóhann Hauksson, 8.1.2009 kl. 04:20

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Reyndar er það EKKI sérsvið hans. Hann er sérfræðingur í Suðaustur-Asíu, n.t. Indónesíu og múslímum þar.  Svo hefur hann verið aðstoðarmaður ráðherra á Íslandi.

Menntun

1992 Ph.D University of Kent at Canterbury, Englandi, Political Economy of Southeast Asia
1986 MA Instiute of Social Studies, Hollandi, Development Studies
1979 BA University of Essex, Englandi, Government and Economic History

Starfsferill

2000- Háskólinn í Reykjavík, dósent
1997-1998 Nordic Institute of Asian Studies, Kaupmannahöfn, rannsóknarstaða
1993-1997 Háskóli Íslands, dósent
1991-1993 Háskóli Íslands, lektor
1990-1991 Stöð 2, fréttamaður erlendra frétta
1989-1991 University of Kent og Háskóli Íslands, stundakennari
1988-1989 Institute of Southeast Asian Studies, Singapore, rannsóknir
1983- 1984 Hjálparstofnun kirkjunnar, skipulag hjálparstarfs í Afríku og á Indlandi
1980-1983 Aðstoðarmaður forsætisráðherra
1979-1980 Störf fyrir Sjálfstæðisflokkinn
1977-1979 Democrat Youth Community of Europe, London, framkvæmdastjóri
1974-1975 Samband Ungra Sjálfstæðismanna, framkvæmdastjóri

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.1.2009 kl. 05:51

8 Smámynd: Jónas Rafnar Ingason

Ertu nokkuð íslenskur skattgreiðandi Vilhjálmur?

Jónas Rafnar Ingason, 8.1.2009 kl. 21:50

9 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Vilhjalmur!

Takk fyrir tin godu, hnitmidudu og malefnalegu skrif.

Var ad koma fra Israel og vonast til ad sja tig a Radhusplassinu a morgun 10.Jan. kl 13:00.

Shalom kvedja fra Zion.
olijoe

Ólafur Jóhannsson, 9.1.2009 kl. 10:30

10 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Það er með ólíkindum að bera saman þessa ólíku vísindamenn: Hannes Hólmstein Gissurarson og Jón Orm Halldórsson.

Hannes byrjar yfirleitt á því að gefa sér niðurstöðuna fyrirfram og ef hann finnur engin rök fyrir henni, þá annað hvort sveigir hann sannleikann að henni eða þegir um upplýsingar sem komaekki að gagni. Hann telur kenningar Max Weber um hlutleysi vísindamannsins gegn viðfangsefnum sínum ekki gild. Þessi viðhorf eru almennt mjög virt enda hafa þau komið vel að gagni. Þó verður aðviðurkenna að oft er bilið milli hlutleysis (obectiv) og huglægni (subjectiv) mjög óljóst.

Jón Ormur er trúr kenningum Max Webers og það er ekki vísindamannsins að gefa sér upp fyrirfram niðurstöður sínar. Hann hefur með störfum sínum og ritum sýnt að þar fer fram víðsýnn menntamaður sem leggur áherslu á að það sem verður næst komið skal vera haldið fram. Jón er auðvitað opinn fyrir gagnrýni og þegar um er að ræða að hún sé rétt,tekur hann það til greina. Þar skilur milli Hannesar sem ekkert vill vita af því sem kann að hnika „niðurstöðum“ hans.

Jón Ormur réðst kornungur sem aðstoðarmaður dr.Gunnars Thoroddsens þá hann gegndi starfi frsætisráðherra Íslendinga á mjög viðsjárverðum og erfiðum tímum, 1979-83. Þá voru miklir efnahagserfiðleikar við að etja einkum vegna gríðarlegrar dýrtíðar sem var m.a. vegna gríðarlegra olíuverðhækkana 1979. En það er önnur saga.

Svo óska eg þér alls góðs í þínum praxís hvort sem þú Vilhjálmur hefur umturnast til gyðingatrúar eður ei. En mér hefur þú heldur hafa tekið of djúpt í árina og það er vissulega ástæða til að sýna meiri varkárni enda eru mönnum mjög annt um æru sína. Mæli eindregið með að þú lesir og kynnir þér doktorsritgerð Gunnars Thoroddsens „Fjölmæli“. Það er fornt orð íslenskt og tengist ærunni og heiðri hvers manns. Megi þetta góða rit verða þér að gagni.

Vinsamlegast

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 9.1.2009 kl. 12:51

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Guðjón, Jón Ormur er nú búinn að sýna okkur eitt skipti fyirr öll, að hann er ekki hlutlaus í sinni fræðigrein. Það er enginn!

Hins vegar er árás hans á gyðinga í Bandaríkjunum og blaður um ágæti Hamas og Hizbollah fræðimennsku hans til skammar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.1.2009 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband