Leita í fréttum mbl.is

Þegar Hamas rændi jólunum

 
santa2

Hér er mynd af liðsmanni Hamas í jólasveinabúningi. Nú eru þeir sem hafa eyðingu Ísraels á stefnuskrá sinni komnir út úr skápnum sem algjörir jólasveinar.

Þegar þolinmæði Ísraels er að þrotum komin, rignir sprengjum Ísraela á "eymdina" í Gaza. Fréttastofur keppast náttúrulega við að kenna Ísraelsríki um að hafa rofið vopnahlé. Vopnahlé, sem reyndar hefur verið brotið á degi hverjum af hryðjuverkamönnum Hamas, meðan að það "stóð yfir". Í gær var 80 eldflaugum skotið frá Gaza á Ísrael. Sumar lentu á saklausum palestínskum börnum og urðu þeim að bana. En sjálfsmorð og barnamorð réttlæta auðvitað líka góðan málstað?

Ég horfi nú á sjónvarpsmyndir fra Gaza. Hetjurnar aka um á nýjum Range Rover, Benzum. Bílarnir og sprengjurnar er greinilega miklu mikilvægari en matur handa börnunum.  Keyrði Hamas þessum Range Rover bíluum gegnum göngin sín við landamæri Egyptalands?

Santa

Júðahrellir var sonur Múhameðs og Grýlu

Og þessu líkja sumir Íslendingar við gettó þau sem gyðingar voru lokaðir inni í um gjörvalla Evrópu, áður en þeir voru leiddir til slátrunar af forverum ESB-ríkisins. Mikið ógeð hef ég á fólki sem ekki getur séð í gegnum þessa fréttagjörninga hryðjuverkahópa og meðsekra aðstoðarmanna þeirra.

Ef fólk er ekki farið að sjá í gegnum fréttaskrum og svikamyllur Palestínumanna, er ekki nema von að útrásavíkingarnir gætu blekkt vinstri menn á Íslandi.

Hér er hægt að lesa meira um áróðurshernað Palestínumanna fyrr á árinu og hér. Hérer hægt að sjá markaðsborð á Gaza full af mat í desember 2008. Þorvaldur Friðriksson hjá útvarpinu fullvissaði okkur um daginn að það væri enginn matur á Gaza. Hvaðan fær Þorvaldur fréttamaður og skrímslafræðingur á RÚV þær upplýsingar. Hann lætur greinilega ljúga að sér fleiru en sögum af drekum og gömlum dínó saur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon



Það er auðvitað bara óskhyggja ef einhver heldur að hægt sé að semja frið við múslíma. Gleymið því strákar, það er ekki til í Kóraninum, nema að múslímar þurfi sjálfir frið til að vopnast og vígbúast og gera klárt í næstu atlögu að kafírunum.

 

 Ísraelar áttu að gera árásir sínar í gær auðvitað, og taka nokkrar moskur með í leiðinni, en því miður tóku þeir bara nokkrar lögreglustöðvar og örfá önnur skotmörk. Það verður auðvitað að taka hendi betur til á svæðinu ef hægt er að búast við vopnahléi hjá þessum oföldu alþjóða sveitaómögum og betlikerlingum á Gaza. 

MBK

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 16:22

2 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Forsetahjónin á næsta flug til Ísrael

Nú þarf Ólafur Ragnar Grímsson annaðhvort að rýma Bessastaði og hleypa friðarsinnum í stól forseta, eða taka upp annarsskonar útrás.

Ef einhver smá samkennd er í forsetanum með því fólki sem nú er að missa sína nánustu og heimili sín í Palestínu, þá auðvitað tekur hann sína frú í hönd á næsta flug til Ísrael. Ræðir þar við ráðamenn um þeirra illráðnu aðgerðir og kynnir aðrar og friðsamlegri leiðir. T.d. hugmynd Friðar 2000 um Alþingi Jerúsalem.

Forsetafrúin hlaðin glingri Ég hef ítrekað, í meira en áratug, reynt að vekja athygli forseta Íslands og nú síðast einnig forsetafrú Íslands á nauðsyn þess að þau nýti aðstöðu sína og áhrifamátt forsetaembættisins til að leggja sitt af mörkum til að leysa ófriðarbálið í Mið-Austurlöndum og kynna þar nýja hugmyndafræði. Hvorugt þeirra svarar erindum mínum. 

Eiginkona forsetans er af gyðingaættum og fjölskyldan býr meira og inna í Ísrael. Hún er því hugsanlega í betri aðstöðu en margur annar að beita sér í þessu máli, ef hún bara gæti litið uppúr glingursteina viðskiptum sínum og látið af trylltum dansi sínum um gullkálfinn. Það er óhugnarlegt hvernig fjölskyldan á Bessastöðum hefur verið virkur þátttakandi í fjárglæfrunum og kennitöluflakkinu sem setti Ísland á hausinn.

Hér er bréf sem ég sendi Frú Dorrit Mousaieff þann 23 júní s.l.:

Frú Dorrit Mousaieff
Bessastöðum. - FAX: 5624802

Lykillinn er í yðar höndum

23. júní 2008

Æruverðuga forsetafrú,

Um árabil hef ég kynnt Íslensku þjóðinni hugmyndir að því hvernig
embætti Forseta Íslands gæti verið lykillinn að breyttum áherslum í
alþjóðamálum og valdið straumhvörfum í friðarmálum með því að kynna
nýjar og breyttar áherslur í alþjóðamálum. Mig langar að kynna yður
þessar hugmyndir þar sem ég tel að þér haldið nú um þennan lykil.

Ég hef í meira en 12 ár séð það fyrir, að ástandið í Mið Austurlöndum
þróaðist í mun víðtækara styrjaldarástand með hruni alþjóðlegra
fjármálamarkaða og yfirvofandi heimskreppu. Jafnvel mögulegri 3ju
heimsstyrjöldinni á næstu árum. Heimurinn er nú þegar að sjá upphafið
af þessu með ört hækkandi olíuverði, hruni peningastofnanna og
fjármálamarkaða, aukinni spennu milli trúarbragða og fleira.

Mið Austurlönd eru í dag eins og púðurtunna sem getur sprungið
hvenær sem er af minnsta tilefni, með þeim gífurlegum afleiðingum,
sundrungu meðal þjóða heims og enn frekari hernaðaruppbyggingu milli
austurs og vesturs. Mögulegt er, að stórþjóðir í austri myndu styðja
islamskar arabaþjóðir gegn vesturlöndum í slíkum átökum.

Ef við leyfum málum að þróast til stríðs verður erfitt að snúa til baka.
Hætta er á notkun kjarnorkuvopna. Stríð gæti kostað tugi milljónir
mannslífa og orðið til að útrýma þjóðlífi okkar og menningu.

Nýlegar yfirlýsingar frá Ísrael og fréttir af hernaðaræfingum valda miklum
áhyggjum. Enginn getur spáð fyrir um afleiðingarnar ef Ísrael gerir
loftárásir á Íran. Raunveruleg hætta er á að slík árás myndi kveikja í
púðrinu og koma allri heimsbyggðinni í uppnám á stuttum tíma. Líkleg
fyrstu viðbrögð eru hrun á fjármálamörkuðum vegna snarhækkunar olíu
og margföldun hryðjuverka. Í framhaldinu sundrung þjóða og
hernaðarleg blokkamyndun sem þróast til heimsstyrjaldar m.a. undir
formerkjum trúarbragðastríðs milli islam og kristinna manna.

Við getum ekki leyft málum að þróast í þessa átt án þess að gera allt
sem í okkar valdi stendur til að beina orkunni í Mið Austurlöndum til
friðar og velsældar í stað styrjaldar og upplausnar. Með höfðun til
uppruna yðar í Ísrael og núverandi þjóðfélagsstöðu á Íslandi, teljum við
hjá Friði 2000 að þér séuð í lykilstöðu til að koma á viðræðum við Ísrael
og bera fram hugmyndafræði Friðar 2000 til lausnar á vandamálunum.

Friður 2000 býður fram aðstoð við verkefnið, m.a. þróun og framsetningu
hugmyndafræðinnar. Við biðjum yður að nota þá sérstöku aðstöðu sem
þér hafið á Bessastöðum til að virkja embættið og Forseta Íslands til að
reyna að afstýra stærsta menningarslysi mannkynssögunnar.

Virðingarfyllst,
Alþjóðastofnunin Friður 2000
Ástþór Magnússon

Ástþór Magnússon Wium, 27.12.2008 kl. 17:07

3 identicon

Ég spyr: Ef þú ert á gangi um sódómuna í miðbænum aðfaranótt sunnudags og sérð tvo menn í slag, gengurðu þá á milli þeirra og spyrð hver byrjaði? Stúdarðu svo þeim sem lýðurinn í kring bendir á og býður hinum í kakó?

Segjum sem svo að þú hafir gengið út frá því sem vísa að á milli þeirra hafi ríkt „vopnahlé“ og það hafi þannig verið rofið af manninum sem byrjaði. Þannig er maðurinn sem byrjaði sekur um að hafa rofið þetta „vopnahlé“ og hinn maðurinn er þannig fórnarlamb þess að sá sem byrjaði rauf „vopnahléið“.

Með þetta „vopnahlé“ til hliðsjónar er þannig hægt að fella alla sök bardagans á annan manninn en sýkna hinn af öllu.

Ég spyr: Er þetta rétt? Er rétt að fella alla sök á Palestínumenn því þeir rufu þar til gert „vopnahlé“?

Vopnahlé er asnalegt hugtak sem mig grunar að sé notað akkúrat til þess að réttlæta það að í stríði (ofbeldismáli) sé allt einum að kenna. Annar rífur vopnahléið, allt er honum að kenna. Þannig spyr ég ennfremur: Ef það er friður, er þá vopnahlé? Með orðinu vopnahlé er gengið út frá því sem vísu að ef það væri ekki hlé, þá væri stríð. Eða ölluheldur að núna sé bara smá pása frá stríðinu, smá hlé og svo sé farið að berjast aftur því ófriðurinn er náttúrulögmálið sem gildir og vopnahléið er tímabundin leið útúr þessu náttúrulögmáli.

Auðvitað er viðvarandi ofbeldi milli tveggja saknæmt milli þeirra sem viðhalda því. Ofbeldi Ísraelsmanna er ekkert réttlætanlegt því „Palestínumenn rufu vopnahléið“ jafn mikið og að ofbeldi Palestínumann er ekkert réttlætanlegt því „Ísraelsmenn kúga þá“

Eða, enn spyr ég: Hvenær er ofbeldi réttætanlegt, hver má beita því og hvenær?

Rúnar Berg Baugsson (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 17:55

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ástþór Magnússon Wium, forsetaefni m.m. Ef þú sendir áfram svona dulbúnar auglýsingar í formi athugasemda, verð ég að rukka þig.

Ástþór, mér sýnist á öllu, að þú eigir eitthvað óafgreitt við forseta Lýðveldisins Íslands og eiginkonu hans. Þú ert líka með greinilega fordóma gegn forsetafrúnni okkar. Bréf þitt er ekki málefnalegt og langt frá því að vera friðsamlegt. Ekki getur það nú verið málstað þínum til framdráttar.

Jólasveinarnir á Gaza hafa þó aldrei verið á þínum vegum? Þeir minna dálítið á karlinn sem þú fórst með til Bagdað um árið.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 18:03

5 identicon

Afhverju er það fjöldamorð ef að Ísraelsmenn verja sig, en Hamas og fleiri hryðjuverkasamtök stunda  "frelsisbaráttu "

Takk fyrir þína mörgu fróðlegu og góðu pistla hér   Kv. Sif

SIf Gylfadóttir (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 20:20

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hvað er að fólki. Það eru nokkrir menn á Gaza að skjóta rörum fylltum með saltpétur á skotmörk sem eru óvart Gyðingar sem búa á svæðum sem þeir eiga ekkert í heldur eru landtökufólk í boði Ísrael. Þessu er svarað með öflugustu spengjum sem völ er á í heiminum og allt í boði USA. Og fólki finnst bara í lagi að fjöldi barna og fólk sem ekkert hefur með þetta að gera verði fyrir þessu. Minni á að í Ísrael dó ein manneskja í dag vegna hryðjuverkamanna í Hamas. Fyrir daginn í dag er langt síðan einhver dó í Ísrael. Og hvenær ætla menn þarna í Ísrael og USA að læra að börnin í Palestínu læra það sem fyrir þeim er haft. Þe. að Ísrael sé andstæðingur sem kemur reglulega þegar að fólk er farið að sjá fram á frið og sprengir allt til andskotans. Þetta er líka leið sem Ísrael notar til að þurfa ekki að skila landi til baka og tryggja ríkinu vopn og peninga frá USA.

Er einhver svo vitlaus að land sem Ísrael er búið að kljúfa í mörg hundruð parta með veggjum og landtökubyggðum verði einhvertíma tilbúið í samninga um núverandi ástand. Það dóu fjöldi barna og saklausra í Palestínu í dag. Og skólafélagar barna sem dóu læra að hata Ísrael en heitar. Þetta land sem hefur einn öflugast her í heimi beitti í dag fádæma hörku.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.12.2008 kl. 20:35

7 identicon

"Ef fólk er ekki farið að sjá í gegnum fréttaskrum og svikamyllur Palestínumanna, er ekki nema von að útrásavíkingarnir gætu blekkt vinstri menn á Íslandi."

Og dettur þér í hug, kæri Vilhjálmur, að þér takist að sannfæra okkur um að þú sért ekki litaður af áróðursmaskínum, fréttaskrumi og svikamyllum Ísraela? Af greinum þínum og bókum hér til hliðar er nú ekki að sjá að þú sért alveg hlutlaus í þessum málum.

Það er enginn saklaus í þessu stríði frekar en öðrum, hvorki Hamas né Ísraelska ríkisstjórnin. Eymd almennings á Gaza er hins vegar staðreynd og þarfnast engra gæsalappa, þó einhver Hamas foringi eigi Range Rover eða Benz, og réttlætir ekki neitt.

Hjörtur Smárason (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 20:39

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Magnús Helgi, sprengjur Hamas í Gaza lenda á lýðveldi sem er viðurkennt af SÞ.  Þú ert greinilega ekki staðkunnugri en meðaljóninn á Íslandi, sem er að tjá sig um eitthvað i Miðausturlöndum þegar þeir eru ekki að barma sér út af vitleysunni sem þeir létu fúsir ganga yfir sig í sínu eigin landi. Negev tilheyrir Ísrael!

Þeir sem kasta sprengjunum eru bæði í samstarfi við eða í samfloti við ógnarstjórnir sem lýst hafa yfir ætlun sinni að útrýma Ísraelsríki. Ætlunarverk sumra þessara hópa er líka útrýming menningu hins vestræna heims. Ætlunarverkið er í mörgum tilfellum íslamistískt alheimsríki.

Landið Ísrael hefur einn öflugasta her sem til vegna þess að vinstri menn á vesturlöndum, og þar með talið samfylkingarpésar á Íslandi, eru stuðningsmenn útrýmingar gyðinga. Þegar nasistar og annað soralið í Evrópu reyndu útrýmingar á gyðingum síðast, var ekki til nógu góður her gyðinga. Nú er hann til og hann vinnur vinnu sína eins og þú og ég.

Ísraelski herinn getur lítið gert af því að Hamas hreiðri um sig innan um saklaust fólk á Gaza. Vill fólk láta taka sig sem gísla, verður það líka stundum að taka afleiðingum þess.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 20:55

9 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Tad er mikil spenna her  Jerusalem. Hrydjuverkamenn a Gaza-svaidunu hafa sent um 5000 eldflaugar yfir til Israels fra arinu 2005.

M¢rg heimili hafa verid l¢gd i rust. Fj¢ldi hefur turft ad leita hjalpar vegna st¢dugan otta vid tesar ognir. Fj¢ldi saklausra hafa slasast og sprengjurnar ordnar kraftmeiri en adur. Israel hefur gert allt sem haigt er til ad fa Hamas til ad st¢dva tessa glaipi, an arangurs.

Islenskir fj¢lmidlar hafa greinilega enn einu sinni afhjupad skodun sina og andud a Israel.

Palestinu/arabar hafa tad hvergi eins gott eins og her i Israel.

Margir spyrja nu, hversvegan hefur Israelska varnarlidid ekki svarad tessum glaipsamlegum arasum a saklausa borgara?

Tad er ekki haigt ad semja frid vid ta sem hafa tad a stefnuskra sinni ad eyda landi og tjod i Israel.

Mer finnst tessi adf¢r i morgun dalitid taknrain, tar sem enn er Hanukkah hatid. Vid rifjum upp, hversvegna hatidin er haldin...

Shalom kvedja fra Zion
olijoe

Ólafur Jóhannsson, 27.12.2008 kl. 20:55

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hjörtur Smárason, í greinum mínum hér á síðunni skrifa ég það sem ég get fært rök fyrir.  Ég er yfirlýstur síonisti og náttúrulega litaður af því, en stuðningur minn við tilvist Ísrael byggir ekki á geðþóttahugaburði, tískuduttlungum og hatri í garð palestínumanna líkt og hjá sumu fólki á Íslandi sem ekkert veit um ástandið í Miðausturlöndum og er drifið áfram af hatri í garð gyðinga frekar en kærleika til Palestínuþjóðarinnar. Stundum gengur þetta í arf. Afkomendur nasista á Íslandi eru oft miklir stuðningsmenn Hamas. Farðu og skoðaðu hvað leiðtogi múslíma á Íslandi, Palestínumaðurinn, skrifaði um mig á bloggi sínu. Þá sérð þú kannski muninn á meðölum manna.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 21:14

11 Smámynd: Hlédís

Mér finnst,  - einhvernveginn, - að Vilhjálmur, Sif og fleiri, skildu betur biturleika Palestínumanna og "tilhneygingu" þeirra til sjálfsvíga - ef þau (sjálf) ættu  langömmur, langafa, ömmur, afa, mæður, feður - o s frv - sem ALDREI hefðu fengið að lifa eðlilegu lífli, frekar en þau sjálf, vegna "gjafmildi" Breta við gyðinga´1947!  Bretar "gáfu" - vel að merkja, - nþað sem þeir áttu ekki, frekar en þorskinn á Íslandsmiðum.

Svo var nú það!

Hlédís, 27.12.2008 kl. 21:17

12 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þakka þér fyrir innlitið Ólafur Jóhannsson. Hanukka Sameach! Íslenskri fjölmiðlamenn sem tekið hafa að sér að miðla fréttum frá Landinu helga, ganga flestir erinda öfgaafla.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 21:17

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

"Hlé-Guðm". þú hefur kannski tölu á ættmennum þínum sem lentu í gasklefum Þjóðverja og aðstoðarmanna þeirra? Ef þú værir í þeim sporum, myndir þú þá skilja betur sjálfsmorðsárásir fólks sem lýst hefur vilja sínum til að halda áfram útrýmingunni sem Evrópuþjóðir byrjuðu á?

Bretar gáfu gyðingum ekki það sem Bretar áttu ekki. Það var ekki til neitt ríki Palestínumanna fyrr en hryðjuverkahópar þröngvuðu þeirri meinloku upp á heiminn löngu eftir stofnun Ísraelsríkis. Ekkert ríki var tekið frá "Palestínumönnum". Palestína er heiti, sem þröngvað var upp á land gyðinga löngu áður en Þjóðverjar og hjálparhellur þeirra myrtu milljónir manna í Evrópu fyrir rúmum 60 árum. Forfeður þeirra Palestínumanna sem nú búa fyrir botni Miðjarðarhafs, og sem ekki eru komnir af gyðingum sem neyddir voru undir Íslam, voru ekki komnir á svæðið þegar Rómverjar kölluðu land gyðinga Palestínu. 

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 21:34

14 Smámynd: Hlédís

Vilhjálmur!  Nota þú gasklefa hóflega til varnar ísraelskum ofbeldismönnum!         Ég efa mjög að fjölskyldu-tengsl þín við gyðinga sem sátu í útrýmingabúðum séu meiri en mín.          Söguþekking þín um stofnun Ísraelsríkis getur og verið fengin frá nokkuð hlutdrægum aðilum..svo ekki sé meira sagt.

Hlédís, 27.12.2008 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband