Leita í fréttum mbl.is

Hugguleg fjölskylda

 
Á hvínandi kúpunni

"Heitir hún Ilse og er úlfynja?", var það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég las um konukindina í hjólhýsinu, sem notaði höfuðkúpuna margumtöluðu sem öskubakkann sinn. Ekki nema vona að maður spyrji. Maður hefur aðeins heyrt að konur sem nota höfuðkúpur sem öskubakka, hefðu verið starfsmenn í útrýmingarbúðum nasista.

Svo kemur í ljós að tengdasonur hennar, barnabarn einhvers læknis, hafi gefið tengdamömmu sinni kúpuna. Svoleiðis tengdason vilja auðvitað allar mömmur eignast. Ég sé fyrir mér þegar hann færði henni þessa forláta skál. "Hérna tengdó, þessa fallegu hauskúpu gef ég þér, þar sem þú ert besta tengdamamma í heimi". Greinilegt er að drengurinn sá er barnabarn læknis, sem var með lífsýni heima sér. Mikið andskoti geta sumir læknar nú verið virðingalitlir við þá dauðu. Er þetta það sem maður kallar trúleysi?

Svo þegar ég sá kúpuna í Sjónvarpsfréttum í gær, sá ég að það var viðeigandi að hún fyndist á Páskum. Þeir sem hafa fundið hana, hafa líklegast fyrst haldið að þetta væri hálft páskaegg, nr. 8.

Hér geta menn séð hvað gerist við fólk í BNA sem notað hauskúpur sem öskubakka.

Hjólhýsadrottningin saknar öskubakkans síns -  hóst - en það er ekkert á miðað við lyklahringinn með eyranu sem tengdasonurinn gaf henni líka. Það var ættargripur og það var enn svo yndisleg formalínlykt af eyranu. Þetta var eyra vinstri manns sem endað ævina á Kleppi.  Þar er allt nýtt. Hér er mynd af eyranu:

 

eyrnarkippan

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég heyrði í gær að þessi kúpa er af einhverjum sem var krufin var " hvaðan var hún tekin"'? Ég meina fólk sem deyr, tala nú ekki um ef þetta var barn, hefði ekki átt að jarðsetja viðkomandi ? Mér finnst þetta svo óhugnanlegt, að ég veit eiginlega ekki í hvaða átt ég á að hugsa

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 14:17

2 Smámynd: halkatla

mig langar eitthvað svo að vita allt um þetta fólk; tengdamömmuna, tengdasoninn, lækninn, sjúklingana, og vitaskuld eigandi kúpunnar. Einsog er þarf eitthvað mikið að gerast til að ég hætti að vera með ógeð fyrir lífsstíl fólks sem fer svona með jarðneskar leyfar annarra manna, mér finnst þetta virðingarleysi og viðurstyggð en ég er ekki æst þótt ég noti stór orð (ef hauskúpur kæmu ekki af lifandi mönnum sem eiga skilið virðingu eftir dauðann myndi ég pottþétt skreyta hjá mér með þeim því þær eru kúl og að því leitinu til skil ég konuna og skreytingarnar inni hjá henni en annars bara alls ekki)

halkatla, 27.3.2008 kl. 01:51

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Meistari Gunnar Þór, ég hef ekki fundið nein bein í nánasta nágrenni Búrfellsvirkjunar? En skammt þar frá gróf ég og aðstoðarfólk mitt upp leifar af mannabeinum í kirkjugarðinum á Stöng, sem ég hef t.d. ritað um hér http://timarit.is/titlebrowse.jsp?issueID=436142&pageSelected=2&lang=0.

Bein í kirkjugarðinum á Stöng voru flutt í annan kirkjugarð á 12. öld, samkvæmt lagaákvæðum.

Öll þau bein eru vel varðveitt á Þjóðminjasafni Íslands, að minnsta kosti geng ég út frá því.

Leyfi ég mér svo að vitna í ljóð eftir mig um óheppilega meðferð á mannabeinum: http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/105343/ sem sums staðar gæti flokkast undir helgispjöll.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.3.2008 kl. 02:47

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Lísa Margrét og þið hin, okkur er nú sagt að þetta sé kollurinn af umkomulausum manni af Kleppi. Birni Grilli.

Ég hef lært dálitla beinafræði, og þegar ég sá kalottuna í Sjónvarpinu, þá sýndist mér þetta vera úr ungum einstaklingi. Saumar (sútúrur) á kúpunni sem venjulegast lokast á fullorðinsárum voru opnir á þessari kúpu. Svokallaðir "Sharpey's fibres" voru sjáanlegir á sjónvarpsupptökunni. Ég myndi ætla að þarna væri einstaklingur á milli 10 og 20 ára.

Hvað segja læknar og líkamsmannfræðingar?

Ég held að það þurfi nú að rannsaka þetta bein nánar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.3.2008 kl. 03:03

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.3.2008 kl. 03:30

6 Smámynd: Óskar Arnórsson

..flott bók!!

Óskar Arnórsson, 27.3.2008 kl. 06:42

7 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Vanvirða fyrir lífi og limum fólks og dýra, virðist mér fara vaksandi. Hvað veldur auknum sýningum á líkum, auknum sýningum úr sláturhúsum og af krufningum ? Jafnvel smáfugladráp verður sýningaratriði í leikhúsi dauðans, Sjónvarpinu. Er ég einn um, að finnast viðbjóðslegt að fá svona sendingar af dauðastríði sakleysingja heim til mín, inn í stofu ?

Hafa stjórnendur sjónvarpsstöðva enga siðferðiskennd sjálfir, né neina virðingu fyrir þeim sem sitja við skjáinn, börnum og fullorðnum ? Er hugsanlegt að sjónvarpsstöðvar séu bara fyrir forherta morðingja og músalimi ?

Vilhjálmur, þetta siðleysi á ekkert skylt við trúleysi ! Miklu frekar má ætla, að það tengist hugmyndum um Manninn sem drottnara Jarðar, með umboð frá Allah og öðrum slíkum hug-gervingum. Þeir sem hafa öðlast þann skilning á tilverunni, að þeir vita að gvuðir eru ónauðsynleg ímyndun, láta ekki rugla siðferðisvitun sína svo auðveldlega. Það að afneita tilvist gvuða er nefnilega stórt siðferðilegt skref, sem ekki verður stigið án langs þroskaferils.

Loftur Altice Þorsteinsson, 27.3.2008 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband