Leita í fréttum mbl.is

Eiturpésar vildu stöðva hefnd fyrir Múhameðsteikningar

 

Black Cobra

Komið er í ljós að glæpagengi innflytjenda og afkomenda þeirra (les múslíma) í Danmörku, Black Cobra, reyndi að stöðva verstu uppþotin nýlega þegar brennuvargar fóru um Danmörku vegna þess að blöð birtu myndir af Múhameð. Það gerðu blöðin þegar í ljós kom að drepa átti blaðateiknarann Kurt Westergaard.

Svo mikill er máttur Black Cobra, sem stundar eiturlyfjasölu og annan óskunda, að þeir gátu hringt í brennuvargana sem voru að hefna í nafni Múhameðs og Allah, og skipuðu þeim að stöðva aðgerðir sínar, því brennualdan var farin að hafa áhrif á eiturlyfjasöluna.

Af þessu má sjá að brennur "vegna teikninga" eru nátengdar eiturlyfjasölu innflytjendamafíunnar í Danmörku.

Þetta kemur fram í dönskum fjölmiðlum í dag, sem greina frá því að lögreglan hafi hlerað þetta allt og tekið upp símtöl meðlima í Black Cobra. "Bisnissinn" var greinilega orðinn verri en þegar brennuvörgunum var sagt að byrja aðgerðir sínar hálfum mánuði áður.

Í gær kom hér við gestur, viðskiptafræðingur af Seltjarnarnesi, sem í heldur einleitum athugasemdum við færslu mína um tvískinnung Árna Þórs Sigurðssonar alþingismanns (sjá neðar), vildi ekki skilja það, (eða trúa því), að flestir glæpamenn af erlendum uppruna í Danmörku eru múslímar. Ég vísaði manninum á fjölda greinargerða um þessi mál á dönsku, en hann vildi bara ekki skilja neitt. Til upplýsingar fyrir "umburðalynda" Seltirninginn, þá eru flestir meðlimir Black Cobra múslímar.  Félagar i Black Cobra, sem "starfa" fyrir utan Kaupmannahöfn, voru árið 2007 teknir með 17 kg. af kókaíni. Þeir hafa m.a. haft í frammi morðhótanir gegn lögreglu og skotið á aðra trúbræður sína, sem voru að selja eiturlyf á "þeirra svæði". Black Cobra er í útrás og virðist sem deild sé að verða til í Svíþjóð.

Það er greinilega nóg til af eitrinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Gleðipáska, Vilhjálmur og hafðu þökk fyrir að vekja máls á vandanum, þ.e. skipulögðum glæpasamtökum, hvort sem er í Danaveldi eða annars staðar á jarðkringlunni.  Samtök einsog Black Cobra eða Hells Angels.dk eru ekki toppurinn á dóptilverunni heldur „low lifes“ strengjabrúður í höndum manna, sem eru nánast ósnertanlegir. Kókaínið kemur frá Suður-Ameríku og dreifingunni þaðan er nánast eingöngu stjórnað af bandarískum aðilum og valmúinn vex sem aldrei fyrr í Afganistan. Gróði þessara alþjóðlegu glæpasamtaka er starnfræðilegur og er helst hægt að jafna við upphæðir, er fara til stríðsreksturs hinna „staðföstu þjóða“.

Skipulögð glæpastarfsemi á Norðurlöndum komst ekki á koppinn í gær, sagan er mun lengri.  Fyrir 30 árum var ég staddur í háskólabænum Lundi og eitt kvöldið bauð Serbneskur kunningi minn, Hilding hét hann og var svona lífskúnstner, á lokaðan bar í eigu manna frá gömlu Jugóslavíu.  Meðan við Hilding telfdum nokkrar skákir voru menn í rólegheitum að fægja skammbyssur og rauluðu dapurleg ætttjarðarlög í skuggsýnum  veitingasalnum.

Hvað með það.  Það hlýtur að vera forgangsverkefni allra yfirvalda að uppræta svona samtök og ég er farinn að hallast að lausn sem þessari... 

Ásgeir Kristinn Lárusson, 23.3.2008 kl. 11:11

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæll Einar, þetta var að minnsta kosti ein af ástæðunum. Menn verða líka þreyttir þegar menn sjá að almenningsálitið fer að breytast.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.3.2008 kl. 12:53

3 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Í ákafa mínum sló ég inn vitlausa „lausn á þessum málum“.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 23.3.2008 kl. 13:36

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Óskar Arnórsson, 23.3.2008 kl. 20:23

5 identicon

Það er merkilegt Vilhjálmur að þú, sem hefur með réttu bent á gyðingahatur í Danmörku og víðar - m.a. hér á landi, fallir flatur fyrir annars konar hatri, þ.e. míslimahatri og er þar með sami rasistinn og þú hefur verið að gagnrýna aðra fyrir - ef ekki verri.

Ég hélt að þú vissir að það eru sömu öfl í Danmörku sem standa fyrir múslimahatrinu nú og stóðu að gyðingaofsóknunum á millistríðs- og stríðsárunum. Hér á ég við þau öfl sem nú mynda Danske Folkepartiet, sem á sitt upphaf í grundtvigskri þjóðernishyggju. 

Hið sama á við hér á Íslandi. Þjóðernisöfgahyggjan kom fyrst upp í grundtvigskum kretsum svo sem hjá Jóni J. Aðils, Guðmundi Finnbogasyni og Guðmundi Hannessyni.

Að lokum vil ég benda þér á að það er ekkert sem hefur sýnt fram á tengsl milli birtinga Múhameðsteikninganna og uppþotanna á Norrebro um daginn. Þau voru byrjuð áður og héldu áfram án nokkurra skítskotunar til þessara teikninga.

Í allri vinsemd þá bið ég þig um að hætta þessari herferð gegn múslimum. Hún er þér og fræðiheiðri þínum til skammar. 

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 10:30

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Torfi Stefánsson, hver ert þú eiginlega? Og hvar er rasisminn í því sem ég skrifa? Ég er bara að segja frá því sem fjölmiðlar í Danmörku skrifa um óferjandi glæpagengi í Danmörku. Er það rasismi? Þú ert greinilega illa skaðaður. 

Veit ég vel Sveinki, að brennufaraldurinn hófst fyrir tilstuðlan eitulyfjagengja. Það hef ég skrifað um á bloggi mínu, fyrr en íslenskir fjölmiðlar greindu frá því, ef þeir þá gerðu það. Þá var því sem ég miðlaði af fréttum frá Danmörku mótmælt af heilögum einfeldningum og íslenskum besserwisserum. Síðustu daga heilagir á vinstrivængnum, sem sannarlega eru verstu gyðingahatararnir á eftir Hitler, Stalín og öfgamúslímum, ályktuðu síðar að þessar brennur væru frekar í tengslum við birtingu Múhameðsmynda.

Múslímar sjálfir í Danmörku hafa líka haldið því fram. En það er, og veit ek vel, allt annað eitur (Sbr. Marx, sem þá líka var rasisti samkvæmt þínum órum) en öfgar Íslams, sem setti brennuvargana í gang.

Ert þú ekki bara sjálfur versti rasistinn Torfi Stefánsson? Hefur þú hugsað út í það. Varaðu þig á því að kalla fólk eitthvað sem þú getur ekki staðið við. Menn eru dæmdir fyrir það á Íslandi.

Biddu afsökunar á þessari þóttafullu yfirlýsingu þinni, annars verð ég að útiloka þig hér.

Ert þú ekki maðurinn sem varst að gera því skóna í athugasemd við færslu mína um skinheilagleika í HÍ, að ég vissi eitthvað um samtök gegn Bobby Fischer sem samkvæmt konu á Filippseyjum eru kölluð "Jews against Bobby Fischer". http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/475138/  Þú ert nú meiri karlinn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.3.2008 kl. 11:56

7 identicon

Ef þú ert jafn lítill fræðimaður hvað gyðingarofsóknir varða og þú ert hér í tvísögli þinni um múslima og þátt þeirra í brennuöldinni á Nörrebro þá spyr ég mig hvernig þú fékst doktorsgráðuna í Danmörku. Með hótunum um að siga vinum gyðinga (þ.e.a.s. Mossat) á dómnefndina?

Þú segir í sjálfri greininni að mikill sé máttur Black Cobra "að þeir gátu hringt í brennuvargana sem voru að hefna í nafni Múhameðs og Allah".

Svo segirðu nú í svari þínu til mín að þú vitir vel "að brennufaraldurinn hófst fyrir tilstuðlan eitulyfjagengja"!

Þú skrifar líka um tvískinnung Árna Þórs Sigurðssonar alþingismanns sem vilji "ekki skilja það, (eða trúa því), að flestir glæpamenn af erlendum uppruna í Danmörku eru múslímar." Og svo spyrðu hvar sé rasisminn í því sem þú skrifar og segist bara að segja frá því sem fjölmiðlar í Danmörku skrifi um óferjandi glæpagengi í Danmörku.

Þó ég sé "greinilega illa skaðaður" (málefnalega umræða það hjá þér) þá hef ég lesið mig þónokkuð til um það sem gerst hefur undanfarið í þessari brennualdarmáli og aldrei, ég endurtek aldrei, séð neitt um að múslimar séu höfuðpaurar í einhverju glæpagengi.

En ég les nú aðallega politiken.dk en ekki rasistanetblöð eins og jp.dk eða þá Extrablaðið, sem ég geri ráð fyrir að þú gleypir í þig.

Sem fræðimaður ættir þú að taka því aðeins rólegar og vera ekki með þessi stóryrði í garð annars fólks. Með því blottar þú bara sjálfan þig og þinn miður geðfelda karakter!

Að lokum vil ég taka það fram að ég syrgi það ekki þótt þú útilokir mig frá frekari skrifum hér. Ég vil nefnilega helst ekki fá óorð á mig fyrir að skrifa á rasistasíðu sem þessari.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 16:36

8 Smámynd: Snorri Bergz

Ja, óorð, Torfa yrði heiður að skrifa á notaðan klósettpappír, enda andstyggilegasti maður sem ég hef nokkurn tíma kynnst, eins og ég hef sagt áður opinberlega, og með eitt lélegasta orðspor sem fyrirfinnst á Íslandi. Málið dautt.

Snorri Bergz, 24.3.2008 kl. 16:52

9 Smámynd: Snorri Bergz

Og Torfinn svarar:

http://hornid.com/cgi-bin/mwf/topic_show.pl?pid=45217;rvl=1#pid45217

By Torfi Stefánsson Date 2008-03-24 18:01 Já, hvert stefnir heimurinn eiginlega?

Nú er Snorri Bergz farinn að skrifa á bloggsíðu einshvers helsta rasistans í bloggheiminum, Vilhjálms Arnar Vilhjálmssonar, til að lýsa yfir stuðningi við hann og óþverraskrifa hans um múslima! Sjá http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/482367/#comments Líkur sækir líkan heim ...

Snorri Bergz, 24.3.2008 kl. 18:08

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þakka þér fyrir Snorri, þú minn elsti bloggvinur minn. Ég var nú alveg búinn að gleyma hver Torfi var, en nú man ég eftir kauða. Þetta er náunginn sem hefur verið hent út af skákrabbsíðum vegna þess að hann er með stólpakjaft og óviðeigandi gífuryrði.

Ekki vissi ég að Politiken væri svona lélegur bleðill, fyrst blaðið hefur einskorðað fréttaflutning sinn af brennuvörgum við Nørrebro. En auðvitað er ekki að sakast við Politiken. Það er Torfi sem ekki hefur lesið lexíuna sína. Brennurnar voru um mikinn hluta Danmerkur. Svo birti Politiken þessa frétt í gær um Black Cobra http://politiken.dk/indland/article486251.ece 

Ég verð víst að senda Mossaddeildina mína til að taka í lurginn á Torfa. Hvernig gat hann vitað þetta um dómnefndina? Ég hélt að Menachem hefði séð til þess að þetta væri alveg þétt.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.3.2008 kl. 18:47

11 identicon

Hótaðir þú því ekki líka að senda Mossad-deildina þína til að taka í lurginn á filippínsk-kanadísku konunni ef hún ætti ekki að hlada áfram að selja fals-skákbókina eftir "Fischer" eða var það bara sjónarspil til að fela að þú og filippeysku vinir þínir stæðu að baki þessari fölsuðu útgáfu?

Ég hélt að þú hafi bara verið trúgjarn leiksoppur þegar silfursjóðafölsnunarmálið kom upp fyrir austan - og þú flúðir land vegna - en nú fer ég að hallast að því að þú hafi sjálfur staðið á bak við það. 

Ætli það sé ekki best að hafa samband við Kaupmannahafnarháskóla varðandi doktorsritgerð þína til að kanna hvort hún sé ekki fölsun frá upphaif til enda. Eða kannski þú hafi aldrei skrifað neina slíka? 

Hér er önnur frétt http://politiken.dk/indland/article486292.ece sem sýnir þrá vina þinna í Danske folkeparti eftir lögregluríki í Danmörku - eflaust eitthvað í líkingu við það sem var í Þýskalandi nasismans.

Þú ert jú samþykkur þeim er það ekki, þar sem hér er um að ræða múslimska glæpaklíku en ekki saklausa gyðinga, kommúnista, þroskahefta, homma og síguna eins og á tímum nasismans? 

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 23:42

12 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Elsku Torfi, eyddu ekki ævi þinni í svona níð og aumingjaskap. Ég er reyndar með Ph.D. gráðu frá Árósaháskóla. Það þykir ekkert fínt. Passaðu þig svo á Mossad. Ef þú segir meira hér ert þú líklega ekki borgunarmaður fyrir kærunni sem þér gæti borist. Svo veit maður aldrei hvað Mossad gerir, að minnsta kosti í huganum á þér.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 25.3.2008 kl. 00:17

13 Smámynd: Snorri Bergz

Þú færð ekkert frá Torfa. Hann á held ég voða lítið ef nokkuð. Og á undan þér í röðinni eru t.d. Ómar Valdimarsson, sem Torfi úthúðaði á spjallhorni skákmanna með rasistatali, íslenskar skáktelpur, sem Torfi er vanur að ráðast á með offorsi, ýmsir skákmenn aðrir, þám ég, sem Torfi hefur ráðist að með dónaskap og svívirðingum, svo ekki sé minnst á ærumeiðingar, osfrv.


En já, ég hélt ég hefði eytt skýrslunni um þig hjá Mossad áður en ég hætti þar störfum 1985. Kannski hef ég sent Stasi afrit, ég man það ekki. En vísast hefur Torfi komist yfir hana þar.

Snorri Bergz, 25.3.2008 kl. 07:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband