Leita í fréttum mbl.is

Mussolini leiđtogi múslíma

Muslim Hero

 

Er ţetta andlit Múhameđs? Vonandi verđ ég ekki drepinn fyrir ţessa spurningu af múslímum sem ekki vita ađ Kóraninn bannar einvörđungu múslímum ađ sýna ásjónu spámannsins. Ekkert bann er viđ ţví ađ vantrúađir teikni hann. Ég tek ţađ skýrt fram, ađ ég birti ekki ţessa mynd fyrstur. Hún er gömul. En spurningin er réttmćt og allt skýrist viđ áframhaldandi lestur.

Eftir ađ Mussolini, sem myndin á auđvitađ ađ sýna ásamt landakorti hugaheima hans, hafđi framiđ óskunda og fjöldamorđ í Eţíópíu, ofmetnađist hann. Hann setti fram áform um ađ stofna nýtt Rómarveldi, sem átti ađ ná frá Palestínu í austri, vestur til Líbýu og suđur til Kenía.

Fréttaritari Morgunblađsins í Kaupmannahöfn lýsti á skemmtilegan hátt ferđ Mussolinis til Líbýu áriđ 1937 (á blađsíđu 2 ţann 16. mars 1937). Greinin var ađ mestu var sođin upp úr grein í The Times. Hér eru nokkur brot:

"Sigurför" Mussolinis um Libyu. Hann vill vera verndari alls Islams.

Arabar ávarpa hann "hinn mikla Mussolini".

Bíđa eftir tćkifćri til ađ votta ţakklćti sitt.

Athyglisverđasti árangur fararinnar er ţó talinn sá, ađ Arabar, einkum málsmetandi Múhameđstrúarmenn hafa vottađ Mussolini hollustu sína. Ţúsundir innfćddra manna hafa tekist á hendur langferđir úr fjarlćgum hjeruđum og ferđast mörg hundruđ mílur til ţess ađ sjá Mussolini, "verndara Islams". 

Kadi (dómarinn) í Dena ávarpađi Mussolini á ţessa leiđ: "Mikli Mussolini, ţú getur treyst ţví, ađ hinar fjögur hundruđ miljónir Múhameđstrúarmanna í heiminum hafa í miklum metum hollustu ţina viđ Islam, og vjer vonum ađ oss gefist tćkifćri til ađ votta ţjer ţakklćti vort".

Ţessu svarađi Mussolini: "Ítalir vernda Islam hvar sem er í heiminum". 

 

Il Duce átti greinilega upp á pallborđiđ hjá múslímum

Svo gerđist hrćđilegur atburđur sem líka er sagt frá í Morgunblađinu ţennan sama dag. Naut nokkuđ, sem ekki bar eins mikla virđingu fyrir Mussolini og múslímar, gerđi sér lítiđ fyrir og réđst ađ Mussolini: "Balbo marskálkur, landstjóri í Líbyu bjargađi Mussolini undan mannýgu nauti ţegar einrćđisherrann og föruneyti hans var i Bengasi (hafnarborg viđ Miđjarđarhafiđ) í gćr. Nautiđ rjeđist ađ Mussolini sett undir sig ađ [sic] Mussolini, en Balbo brá skjótt viđ og lagđi nautiđ á hornunum. Sjálfur stóđ Mussolini óhreyfanlegur."

 

mussolini i Bengasi
Il Duce, múslímar međ fasces og Balbo í Bengasi

 

Nautabaninn Balbo var enginn annar en Italo Balbo (1896-1940), flughetjan og svartstakkurinn sem kom viđ á Íslandi áriđ 1933 ţegar hann flaug yfir Atlantsála. Hann varđ landstjóri Líbýu áriđ 1934. Gárungar á vesturlöndum kölluđu Líbýu á ţessum tíma "Balboland".  Mussolini hafđi sent Balbo til Líbýu ţví ţeir voru ekki miklir vinir. Endalok hans urđu nú álíka ömurleg og hins stjarfa Mussolinis, ţví hann var skotinn niđur í flugvél sinni af ítölskum loftvarnasveitum í Líbýu og telja sumir ţađ hafa veriđ gert ađ undirlagi Mussolinis. Balbo var eini međlimur fasistaveldisins á Ítalíu sem var mótfallin kynţáttalögum sem sett voru á Ítalíu gegn gyđingum áriđ 1938. Ţó hann hafi fyrirskipađ gyđingum í Líbýu ađ hafa búđir sínar opnar á hvíldardeginum, kom hann í veg fyrir ađ kynţáttalögum Generalissimos Mussolinis yrđi framfylgt međan hann var hundrađshöfđingi í landinu. Eftir dauđa hans var evrópskum gyđingum smalađ frá Lýbíu í útrýmingarbúđir nasista.

Á sömu blađsíđunni í Morgunblađinu áriđ 1937 má sjá litla frétt um 8 Gyđinga sem myrtir voru í Palestínu, sem er auđvitađ ekki í frásögur fćrandi ţá frekar en í dag, ţegar sumar Íslendingar hamast í heitu ástarsambandi viđ hryđjuverkasamtök í Miđausturlöndum og hata gyđinga eins pestina.

Ţađ voru fleiri fréttir á ţessari merku blađsíđu í Morgunblađinu áriđ 1937: Franco vildi borga međ sherry fyrir Fćreyjasaltfisk og upplýst var ađ rauđliđar hefđu fyrr fengiđ greitt međ appelsínum fyrir fiskinn. Var ţetta tilfelliđ međ Íslandsfiskinn. Var hann ekki líka seldur til Mussolinis?

Enn merkilegri er ţó fréttin um Kristján X, sem heimsótti Hitler:

"Kristján konungur X, sem nú er staddur í Berlín, hefur heimsótt fyrrverandi ríkiserfingja Ţýskalands og ennfremur hefir hann heimsótt Hitler". Mér sýnist á öllu ađ danska konungsfjölskyldan ćtli ekki ađ gefa mér leyfi til ađ skođa ţađ mál niđur í kjölinn, ţótt enginn sagnfrćđingur hafi haft rćnu á ţví ađ fjalla um heimsóknina. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband