Leita í fréttum mbl.is

Saumavélasaga

 

Singer 

Gott framtak. Mikiđ er gott ađ sjá ađ íslenskir innflytjendur saumavéla fái samkeppni.

Blađamađurinn veltir fyrir sér af hverju ekki sé opiđ á bás saumavélaseljandanna á laugardag. Á ţví eru örugglega eđlilegar skýringar. Ef til vill langar sölufólkinu ađ Gullfossi og Geysi?

Fyrirtćkiđ Jerry Fried er í eigu gyđings og starfsmenn flestir gyđingatrúar. Fyrirtćkiđ hefur ađsetur í Gateshead, úthverfi Newcastle, ţar sem búa nokkuđ stórir söfnuđir gyđinga,  m.a. söfnuđur eins heittrúađasta safnađar gyđinga í heiminum. Kannski heldur starfsfólk Frieds hvíldardaginn heilagan á laugardag.

Ég varđ fyrir ţeirri miklu ánćgju ađ kynnast nokkrum úr hópi Gateshead-gyđinga voriđ 1989, ţegar ég kynntist rabbínanum og lćriföđurnum Bezalel heitnum Rakov. Okkar kynni bar ađ á afar einkennilegan hátt. Ég var ađ koma frá Newcastle til háskólaborgarinnar Durham, ţar sem ég stundađi rannsóknir. Ég hafđi fariđ til Newcastle međ vini mínum, Wu frá Kína, til ađ kaupa í matinn fyrir kínverska veislu sem viđ ćtluđum ađ undirbúa. Verđ ég ţá vitni ađ ţví er enskir plebbar voru ađ angra gyđingfjölskyldu sem var stödd í Durham. Ég hafđi séđ ţau fyrr um daginn ţegar ég fór á lestastöđina. Ensku fólin flýđu ţegar ţau sáu mig og Wu bera ađ garđi. Fyrir utan hinn mjög hávaxna rabbína, var međ honum kona hans mjög lávaxin, sonur hans međ stćrsta nef sem ég hef séđ, og ţroskaheft dóttir. Ég talađi viđ rabbí Rakov og hann bauđ mér síđar heim til sín til Gateshead. Ţađ var einkennileg heimsókn. Međan á henni stóđ komu margir kápuklćddir gyđingar međ alskegg og slöngukrullur (peyot), til ađ sjá ţennan merkilega mann frá "outer space", sem ađ sögn ţeirra, "hafđi bjargađ rabbína ţeirra frá bráđum bana í Durham".  Mér fannst ţađ sem gerđist ekki eins alvarlegt og ţeim, en skömmu áđur hafđi ítalskur námsmađur reyndar veriđ stunginn niđur og myrtur í Durham og íkveikja var í húsinu, Kepier House, sem ég bjó í ásamt 14 öđrum útlendingum. Hollenskur námsmađur, sem nú er embćttismađur í Evrópubandalaginu, heyrđi einhverja hrópa um nóttina ađ  ţeim langađi ađ "drepa helvítis útlendingana". Viđ sem í húsinu bjuggum, flýđum út um brunastiga um miđja nótt.

Rabbí Rakov fćddist í Frankfurt í Ţýskalandi en flýđi međ foreldrum sínum til Bretlandseyja áriđ 1938. Einhvern veginn ţróađist ţađ ađ hann varđ einn af virtustu rabbínum heittrúađra á 20 öld. Mikil virđing var borin fyrir honum á Bretlandseyjum og víđa annars stađar.

Hvađ kemur Reb Bezalel Rakov saumavélum í Kringlunni viđ? Ekkert. Ég varđ bara ađ segja frá ţessum merka manni sem bjó í Gateshead eins og Jerry Fried sem selur saumavélar á Íslandi um ţessar mundir.


mbl.is Saumavélar streyma út í Kringlunni
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ţegar ađ ég flutti til New York kynntist ég mjög trúuđum gyđingum frá Ísrael. Ţetta var einstklega góđ fjölskylda og elsta dóttirin kenndi mér Ensku á nokkrum vikum

Athyglisverđar greinar sem ţú ert međ á síđunni.

Ástríđur (IP-tala skráđ) 21.6.2007 kl. 18:39

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband