Leita í fréttum mbl.is

Samsærisheilar Íslands í fjórða gír

egill_rasisti_alltaf_rasisti_1280395.jpg

Sjúklegir samsærisheilar keppast nú við að sjá samsæriskenningar í milljónum lekinna skjala Mossack Fonseca, sem Morgunblað Suður-Þýskalands, Süddeutsche Zeitung bárust á alveg "svaaaakaleeeega gruuuuunsamlegan hátt"  buuuuhuhuhuhuhu!!!

Bandaríkin, Rússar og gyðingar standa vitaskuld á bakvið fall SDG, ef trúa skal íslenskum samsærishausunum. Hávær krafa innan Framsóknarmanna um formannskjör er örugglega líka runnið undan rifjum útlendinga. Áhuginn á íslenskum forsætisráðherra, sem aldrei hefur gert neitt af gagni, nema að stinga upp á endurgerð Selfoss í miðaldastíl, er vitaskuld óhemjulegur út í heimi, og var það jafnt fyrir sem eftir endanlegt fall hans í íslenskum stjórnmálum. "Það hlýtur að vera einhver á bak við þetta" baula beljurnar í Suðursveit.

Egill Helgason veðjar á Mossad

Stóra-vitleysa, Egill Helgason, velti fyrir sér samsæriskenningum í gær enda hefur hann þegar sjálfur viðrað samsæriskenningu. Hann heldur að Mossad standi á bak við allt.

Þegar Egill skrifaði um daginn um fyrirtækið í Panama, kallaði hann það Mossad Fonsecka. Eftir gagnrýni og orð í eyra frá stjórnarmönnum á fjölmiðli þeim sem hann vinnur hjá, sem eru vitaskuld allir undir hæl CIA (og Mossad), þurfti karlfauskurinn að breyta þessu hið snarasta sama daginn. Ekki tókst þó betur til en svo að hann skrifaði enn nafn lekafyrirtækisins í Panama rangt: Mossach Fonsecka. Sérfræðingar út í löndum sem plana og plotta til að fella glæsilega íslenska stjórnmálasnillinga eins og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, útiloka þó ekki að Egill Helgason sé bara svo vitlaus og lesblindur, að hann geti ekki skrifað tvö orð á útlensku án þess að gera í þeim þrjár villur.

Best að útiloka ekkert. Aldrei er að vita hver stendur á bak við þetta blogg, sem þú lest nú, ef þú ert yfirleitt að gera það af frjálsum vilja. Ég er orðinn ansi hræddur um að það getir verið einhver annar en ég sjálfur. 

egill_fjarlaegir_rasismann_1280396.jpg
.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég hef nú ekki fylgst með þessum samsæriskenningum, en það sem kemur mér spánskt fyrir sjónir er að skattayfirvöld hér þurfi að ganga á eftir þeim sem hafa þessi gögn til að fá þau. Enginn árangur af því enn.

eitt skal yfir alla ganga,hefði maður haldið. Ástæða þessa er væntanlega sú að þeir sem sitja á þessum gögnum ætla að gera sér sem mest mat úr þeim og hleypa skandölum út einum í einu í stað þess að láta þetta gossa. Það þarf jú að selja blöð.

Mér finnst lítið réttlæti í því að handvelja feitustu bitana með tilliti til áhrifastöðu viðkomandi en halda hinu í skugganum og það á forsendum persónuverndar. Svoleiðis lúxus er jú ekki öllum gefinn og það eru blaðamennirnir sem ákveða það.

Ég er spenntur að vita og vil allt upp á borð fyrst verið er að þessu. Reyndar vil ég líka að skattaskjól og aflandsskjól innan lögsögu og blessunar evrópuríkja verði opnuð. Bretar og hollendingar þar fremstir. 

Ef þetta snýst bara um örfáar galdrabrennur til að fullnægja þorsta pöbulsin í blóð og friðþægingu og þegja svo um rest, þá er þetta ekkert annað en pólitískt áróðursapparat í grunninn. 

Sjáum annars hvað setur. 

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2016 kl. 17:58

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svo er það þetta með "follow the money". Hverjir það eru sem fjármagna og reka þessar uppljóstranir. 

Hér er skýring sem mer finnst alveg réttlætanlegt að veki spurningar og megi ræða sem flöt á þessu öllu. Just sayin.

Þeir sem standa á bak við afhjúpanirnar eru hin bandarísku Heimssamtök rannsóknarblaðamanna, ICIJ,  sem eru hluti hluti af OCCRP (Organized Crime and Corruption Reporting Project) sem er stofnað af USAID (United States Agency for International Development) og kostuð auk þess af stofnuninni Open Society (George Soros)ICIJ er líka nátengt bandarísku stofnuninni Center for Public Integrity sem að sínu leyti er kostuð af Ford Foundation, Carnegie Foundation, Rockefeller Family Foundation, Open Society (Soros) og fleiri stjórnstöðvum bandarískra billjónera og heimsvaldastefnu. Ekki nóg með það, ICIJ er staðsett í Washington DC og stjórn samtakanna er í valdakreðsunum kringum ríkisstjórnina.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2016 kl. 18:26

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nú eru þeir greinilega komnir í fimmta gír. Hvað fær, Jón Steinar, menn til að falsa margar milljónir skjala frá fyrirtæki í Panama?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.4.2016 kl. 19:12

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég er ekki að segja að neinnskjöl séu fölsuð, enda nær vitneskja mín ekkert lengra en þín í þessu. Það er varla vafi á að skjölin eru rett, en af öllum þessum hvað 11 milljón skjölum frá þessu eina lögfræðifirma hefur aðeins verið ljóstrað upp um örfáar manneskjur í valdastöðum. Það er fullyrt að nöfn um 600 íslendinga tengist þessu, en þau eru ekki gefin upp og algerlega undir duttlungum þessara uppljóstrara komið hverjir fara á grillið.

engin þessara skjala virðast varða bandaríkjamenn en þö er frumkvæðið að þessari uppljóstrun þaðan komin. Eru allir squeeky clean í ameríku?

Ég er ekki aðmsjóða upp neinar samsæriskenningar og það að reyna að gera spurningar fólks vafasamar með slíkum upphrópunum er í ætt við aðferðir múslimskra öfgamanna sem æpa rasismi um leið og fólk fettir fingur út í trúarbrögðin.

Það er ekkert athugavert við að velta fyrir sér einhverju duldu agenda í heimi fréttaspuna og pólitísks skæruhernaðar.

Eitt er ljóst að hingað til hefur þetta bara verið nýtt til þess að koma örfáum pólitikusum og valdamönnum í bobba og neitað að gefa upp meira þegar þess er krafist, hvað þá að ráðast til atlögu við grunnvandann, sem eru fjöldinn allur af ríkjum og löndum sem leyfa þetta. M.a. Og ekki síst ríki í lögsögu esb landa.

Á meðan er þetta ekkert annað en haganlega hannað smear campaign og pólitískur skæruhernaður.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2016 kl. 20:44

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ekki ert þú á mála við að stimpla men conspiracy nuts sem hvá við þessum málarekstri?

Það væri samsæriskenning sem þú gætir brugðist við með reiði og/eða háði. En ákafi þinn til að gera lítið úr spurningum varðandi málið og hæðast að er mér þó ekki skiljanlegur enn. ;)

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2016 kl. 20:49

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú veðrast allur upp við það að Mossad sé dregið inn í þetta, jafnvel þótt það sé fyrir einfalda prentvillu. Rennur þér blóðið til skyldunnar Villi? Þú leggur væntanlega tvo og tvo saman og færð út skrilljónogfimm um að þetta sé allt saman samsæri þeirra sem hatast við Ísrael.

Svei mér ef ég verð ekki fyrir vonbrigðum með þig hér. Öll þessi rætni og háðung. Hvað er pointið? Veist þú eitthvað meira en við hin til að slá allar vangaveltur út af borðinu?

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2016 kl. 20:58

7 Smámynd: FORNLEIFUR

 Veist þú hver vitneskja mín er? Kannski er ég einn þeirra sem er á bak við þetta cool allt. Nei, annars ég skrifaði ekki "Mossad" í stað Mossach á Eyjunni, það gerði Egill Helgason. Það er svínslegt og lýsir manninum vel. Svína á gyðingana, það þykir alltaf fínn leikur á Íslandi.

Bara rólegur Jón Steinar, Það er ekkert samsæri í gangi. En öllum er leyfilegt að spyrja, en greinilega þó ekki út í gerðir íslenskra svikahrappa, sem nú fer vonandi fækkandi í íslenskum stjórnmálum, þegar almenningur uppgötvar hvaða menn þeir geyma.

FORNLEIFUR, 11.4.2016 kl. 23:43

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það verður opnaður sjónrænn gagnagrunnur í maí, þar sem hægt verður að leita eftir nöfnum, þannig að samsæriskenningin hlýtur að vera úr lausu lofti gripin.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/04/07/opna_sjonraenan_gagnagrunn_i_mai/

Theódór Norðkvist, 12.4.2016 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband