Leita í fréttum mbl.is

Vitniđ Gijsen var barnaníđingurinn

Bishop Gijsen

Ţessi niđurstađa hollenskra rannsóknarađila sýnir enn betur, ţađ sem ég hef áđur skrifađ, ađ rannsóknarnefnd kaţólsku kirkjunnar á Íslandi var ekki starfi sínu vaxin.

Rannsóknarnefndin klúđrađi rannsókninni á málinu. Fyrir utan ađ rćđa ekki viđ alla sem ţekktu til í Riftúni, leitađi hún til Gijsens fyrrv. biskups, ţrátt fyrir ađ ţađ vćri vitađ í Hollandi ađ hann lćgi undir grun fyrir barnaníđ löngu fyrir biskupstíđ sína á Ísland. Ţeir leyfđu ţessum Gijsen ađ bera vitni gegn undirmönnum sínum sem hann lagđi fćđ á. Gijsen var barnaníđingurinn, en hann lét skýrsluhöfunda krossfesta prest sem slíkan, ţótt engar sannanir lćgju fyrir um sekt hans.

Gijsen biskup var líka gyđingahatari af verstu gerđ. Hann kasti öskubakka í höfuđ trúbróđur síns sem minnti hann á ađ Jesús hefđi veriđ gyđingur og ađ kristni ćtti gyđingdómi mikiđ ađ ţakka.

Skođum svo mismuninn á frásögn Morgunblađsins nú:

Hann hefđi afhent biskupi umslag sem hefđi veriđ geymt í skjalasafni biskupsembćttisins. Séra Jakob sagđist hafa afhent Gijsen umslagiđ eftir ađ hann tók viđ biskupsembćttinu. Ţegar Gijsen var búinn ađ kynna sér efni ţess hefđi hann eyđilagt bréfiđ.

og hjá RÚV áriđ 2012:

Í skriflegu svari Gijsen til rannsóknarnefndarinnar segir hann ađ í ţessu bréfi komi fram ađ mađurinn telji ađ Ágúst Georg hefđi leitast eftir kynferđislegu sambandi viđ sig, en sé ekki viss um ţađ. Gisjen sagđist hafa rćtt viđ manninn sem skrifađi bréfiđ og ţeir hefđu í sameiningu ályktađ ađ ekki vćri vissa fyrir ţessu. Ţví hafi ţeir ákveđiđ ađ eyđa bréfinu og loka málinu.

Nú hefur RÚV betur í heimildavinnunni. Geta sumir blađamenn alls ekki umgengist heimildir heiđvirđislega? Blađamađur Moggans sem hefur framreitt ţessa frétt er heimildaníđingur og mann grunar hver tilgangur hans međ ţví ađ skrifa hálfan sannleikann var. Hann vitnar ekki rétt og fyllilega í skýrslu ţá sem hann notar.

Hvert hlutverk Jakobs Rollands, (sem heitir ekki Roland eins og Mbl. telur), í ţessu máli var, vćri gaman ađ vita. Mér hefur veriđ tjáđ, ađ hann og séra Georg hafi ekki veriđ bestu vinir og er ţá ekki mikiđ sagt. Honum er velkomiđ ađ skrifta hér í athugasemdunum.
bisschop_gijsen.jpg
Barnaníđingurinn sem fékk ađ vera vitni gegn undirmönnum sínum

mbl.is Gijsen lét eyđileggja bréf
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Athyglisverđ fćrsla hjá ţér, glöggi dr. Vilhjálmur, bćđi samanburđurinn á Mbl.is-fréttinni og Rúv-fréttinni 2012 (sem var nákvćmari; og nákvćmnin skiptir höfuđmáli, en ég var alveg búinn ađ gleyma ţessu um ţetta bréf) -- og eins ţađ sem ţú upplýsir um skaplyndi Gijsens gagnvart Gyđingum o.fl.

Jón Valur Jensson, 13.4.2014 kl. 01:40

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sćll Jón, mér finnst stórfurđulegt ađ nefndin sem tók saman skýrsluna hafi ekki gert sér far um ađ rannsaka bakgrunn Gijsens. Gijsen hefđi aldrei átt ađ vera til vitnis um eitt eđa neitt í skýrslunni.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.4.2014 kl. 22:40

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég er sammála ţér, doktor.

En mér hefđi líka fundizt eđlilegt, ađ fréttamiđlar hér hefđu (á ný) skýrt frá ţví, međ hverjum hćtti brot Gijsens um 1950 í Hollandi hafi veriđ. Ţar var, ef ég man ţetta rétt, hvorki um nauđgun drengs né stúlku ađ rćđa og enga penetrationem.

PS. Til hamingju međ fréttina af ţér í Mogganum í dag, vegna uppgötvunar ţinnar á líkneskishúsinu í Flatey.

Jón Valur Jensson, 14.4.2014 kl. 11:10

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband