Leita í fréttum mbl.is

Eina mosku með öllu nema hatri

wagenstraat_synagogue_1023640
 

Nú er moskuumræðan blossuð upp aftur. Það er beljandi gúrkutíð. Fólk er að verða satt af því að fara hamförum yfir því sem forsetinn gerir eða gerir ekki. Málsmetandi menn hamast þess í stað gegn mosku, eða með. Læknir og fyrrum borgarstjóri er á móti og sonur Jóns Baldvins er með.

Sama er mér um þá karla. Moska er einfaldlega mannréttindi þeirra sem eru múslímar á Íslandi. Ef þeir vilja byggja hana, þá gera þeir það eftir tilskildum reglum. Mér finnst þó alltaf einkennilegt hvernig fjöldi múslíma á Íslandi er ýktur. Ég held að það verði fremur fámennt í moskunni. Svo mun vera til annar tilbeiðslustaður múslíma í Öskjuhlíðinni, sem ku vera í hrópandi andstöðu við hópinn sem vill reisa mosku í Sogamýrinni.

Hvað veldur því að fólki líður svo illa við tilhugsunina um mosku í Reykjavík? Jú, sjáið til, á Íslandi hefur alltaf ríkt útlendingahræðsla og fordómar. Kynþáttahatur ríkir þar jafnt á meðal vinstri og öfgahægrimanna. Íslam er, eins og Kristindómur, lélegt afbrigði af Gyðingdómi, sem einnig er hægt að gagnrýna. En fólk hefur frelsi til að trúa, þó svo að það fari í taugarnar á trúleysingjum og kynþáttahöturum - og sumum kristnum mönnum.

Í landinu er trúfrelsi og enginn getur komið í veg fyrir mosku, ef menn vilja reisa hana. Um að gera að fá sýnagógu í leiðinni. Því stakk ég upp á fyrir all nokkru síðan (1994) og ekki veit ég til þess að aðrir hafi gert það fyrr. Ég skrifaði m.a.: „Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". 

Á næsta árið held ég upp á 20 ára moskuyfirlýsingu mína og vænti að einhver sendi mér grísakótelettur í bréfi.

Hins vegar, ef kirkja, moska eða önnur musteri eru notuð til að boða hatursboðskap í garð annarra trúarbragða og þjóða, þá höfum við Íslendingar lög, sem taka á slíku. Það varðar við lög á Íslandi að boða hatur gegn trúarbrögðum og kynþáttum. Vissulega hefur hatur verið mikið í Íslam, en einnig í Kristni.

Myndin efst er af Mosku i Wagentraat i den Haag í Hollandi. Þegar faðir minn var ungur og bjó í borginni með foreldrum sínum, var þetta hús sýnagóga, samkunduhús gyðinga. Hatur, sem átti rætur í aldagömlu gyðingahatri kristinna fór úr böndunum og olli því að ekki var grundvöllur fyrir að halda uppi söfnuði gyðinga í þessu húsi lengi eftir síðara stríð. Íslendingar hafa líklega heyrt um Helförina, þó þeir séu nú mest upptekin af sjálfum sér.

Sams konar hatur er víða boðað í dag, ma. í moskum. Ég vona að við þurfum aldrei að hlusta á slíkt hatur í moskum á Íslandi. Ég vona að vinstri menn, sem venjulega lýsa frati á trúarbrögð (nema þegar þeir fá ólmir að lesa gyðingahatur í Passíusálmunum í kirkjum landsins), styðji ekki moskubyggingu til þess eins að ala á hatri. Ekki býst ég við því að þeir fari að beygja sig til Mekka eftir að beygingar í átt að Moskvuborg lögðust af, en maður veit nú aldrei. Þeir fara enn hamförum.

Bendi svo á þessar fyrri færslur mínar frá 2008  og 2010:

Mosku hér og nú (2008) Mosk(v)u strax ! (2010), Trú friðar og umburðarlyndis skal vera velkomin (2010)

Wagenstraat 

Samkunduhúsið í Wagenstraat í den Haag um 1950, og moska í sama húsi í dag

Wagenstraat moska


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

''Moska er einfaldlega mannréttindi þeirra sem eru múslímar á Íslandi. Ef þeir vilja byggja hana, þá gera þeir það eftir tilskildum reglum.''

Kjarni málsins. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.7.2013 kl. 14:00

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Já, Sigurður, slut, prut, finale.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.7.2013 kl. 14:37

3 identicon

Ég vil benda á að íslenskir trúleysingjar, Vantrú td, hafa alltaf haldið uppi vörnum fyrir byggingu mosku á Íslandi, sbr. http://www.vantru.is/2010/09/20/10.00/

Eitt skal yfir alla ganga.

Helgi Briem (IP-tala skráð) 10.7.2013 kl. 15:43

4 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Nafni minn heldur fast í þá þráhyggju nasista og gyðinga sjálfra að hvítt fólk, sem aðhyllist gyðingdóm sé „kynþáttur“. Fáar, ef nokkrar grillur hafa valdið meiri hörmungum en þessi. Andúð á gyðingum er félagslegs, trúarbragðalegs eðlis og kemur líffræði og vefjafræði alls ekkert við. Ástralíu- frumbyggjar eða dverg- svertingjar eru líffræðilega, vefjafræðilega, kynþættir. Gyðingar alls ekki.

Meginástæðia gyðingahaturs allt frá því fyrir Krists burð er vafalaust sú, að þeir, (eins og nasistar) ímynda sér að þeir séu einhvers konar „übermensch“, guðs útvalda þjóð og hafa alltaf sýnt trúarbrögðum og skoðunum annarra fullkomna fyrirlitningu.

Vilhjálmur Eyþórsson, 10.7.2013 kl. 22:30

5 identicon

Þetta er ekki bara svona einfalt. Þetta snýst ekkert um hatur eða fordóma á múslimum. Staðsetning á mosku á þessum stað er alveg fráleit. Fyrr væri búddahof eða ásatrúar á þessum tiltekna stað (Sogamýri). Múslimar eiga að fá lóð undir mosku en á að vera á lítt áberandi stað líkt og aðrir sértrúarsöfnuðir. Islam er ekki bara trú heldur pólitískt afl. Í grunnin andstætt vestrænum gildum. Samlagar sig hvergi í hinum vestræna heimi. Svo er annað að hvar fá menn pening fyrir slíku dæmi eins og fyrirhuguð moska á að vera?? Enginn smá kostnaður? Saudi-Arabíu? Spurðu múslima hver sé afstaða þeirra til kvenréttinda og samkynheigðra sem dæmi? 

Valgeir (IP-tala skráð) 10.7.2013 kl. 22:43

6 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Þetta er hárrétt hjá Valgeiri. Islam er pólitískt afl og „heimsvaldasinnað“ eins og kommúnismi og nasismi. Múslmiar fara ekki í felur með þá staðreynd, að þeir hyggjast taka völdin í heiminum og fyrirlitning þeirra á trúarbrögðum og skoðunum annarra er alger. Ég neita því þó ekki að mér finnst gaman að skoðunum þeirra á kvenfólki og hommum, sétstaklega í ljósi þess að það eru pólitískt rétthugsandi vinstri- kjánar sem eru helstu bandamenn þeirra á Vesturlöndum.

Vilhjálmur Eyþórsson, 10.7.2013 kl. 22:54

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Vilhjálmur Eyþórsson, af hverju gerir þú mér upp skoðanir? Lestu alltaf allt á milli línanna, eða ertu með einhverja meinloku á heilanum. Sérðu ekki að ég skrifa orðið gyðingur með litlum bókstaf. Þannig er trúarbrögðum lýst á íslensku.

Reyndar eru gyðingar líka þjóð, nú sem fyrr. Trúin, Gyðingdómur, hélt þjóðinni saman. Enginn heldur því fram að gyðingar séu líffræðileg heild, og þú lýgur því að ég gerið það í vörnum mínum fyrir mosku á Íslandi. En reyndar hafa nýjar rannsóknir, sem ekkert eiga skylt við ruglulífræði hugmundabræðra þinna í öfgunum, fram á að "hvítir" gyðingar sem þú kallar svo, sem reyndar eru til í öllum litum, eiga sér flestir sameiginlegan forföður og formæður. Erfðamengi þeirra eru furðu einsleit miðað við að sumir hafa lent vestast í Evrópu og aðrir austast í Asíu eða í Afríku. Þjóðinni var tvístrað vegna ofsókna, öfundsýki og haturs. Haturs sem nýlega sást í garð Dorrit Moussaief; Sama hatursins sem enn er við lýði meðal öfgahægrimanna og sumra múslíma og einnig margra vinstri manna - Þetta hatur er af svipaðir gerð og hatrið sem veldur því að fólk eins og þú, Vilhjálmur Eyþórsson, hatast út í múslíma vegna þess að lítill hluti þeirra hatar á sama hátt og þú.

Þú ert nefnilega líkari versta andstæðingi þínum en þú gerir þér grein fyrir. Sömu rök um gyðinga og þú notar hér eru notuð af verstu andstæðingum Gyðinga í hinu nýja Ísraelsríki. Líffræðileg rök finnast einnig því til stuðnings, að helstu hatarar Gyðingar í Ísraelsríki og gyðinga um heim allan, Palestínumenn, eru náskyldir gyðingum, enda afkomendur gyðinga sem neyddir voru undir Íslam. Gleymum þá ekki öllum þeim gyðingum sem neyddir voru undir Kristni.

Fyrirbærið "Guðs útvalda þjóð" sem þér er svo kært er þýðingarvilla. Kynntu þér hvað Am Nivchar þýðir. Það fólst engin náð í þeirri vafasömu útnefningu.

Hvað varðar "homma" og konur, eru múslímar ekkert verri en flest trúarbrögð hafa verið í garð samkynhneigðra eða í kvenfyrirlitningunni. Enn eru til kristnir í "siðmenntuðum löndum" sem telja homma og gyðinga vera aðalvandamál heimsins. Nærtækasta dæmið er Litháen.

Litháen er hluti af ESB og þar viðgengst greinilega slíkt hatur í garð gyðinga í raun þótt að heilagar yfirlýsingar hafi verið gefnar út til að koma í veg fyrir það.  Hatur í garð Múslíma er mest á byggðu bóli í löndum ESB, þó svo að þeir múslímar sem búa í ESB löndum séu í flstum tilfellum fólk og afkomendur fólks sem boðið var til Evrópu til að vinna skítavinnur sem herraþjóðir Evrópu" vildu ekki sinna.

Valgeir, öll trúarbrögð hafa verið notuð, misnotuð og nauðgað hrottalega í póltískum tilgangi, til að halda konum og minnihlutum niðri og til að hatast út í aðra. Íslam, sem að hluta til byggir á Gyðingdómi líkt og Kristni, er trú friðar. En það er maðurinn og veikleiki hans, veikleiki manna eins og þín og V. Eyþórssonar að kenna, að trú getur orðið hatursafl og mannfjandlegt fyrirbæri. Sumir hata reyndar án trúar og gera það oft þar sem þeir hata sjálfa sig, og hafa kannski ærna ástæðu til. Veikleiki mannanna er margur.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.7.2013 kl. 23:58

8 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Ég hata engan, en þeir sem sjálfir eru fullir af hatri gera andstæðingum sínum alltaf upp eitthvað ímyndað „hatur“. Annars vissi ég vel að þú mundir ærast og fara að góla þegar ég setti inn þessa athugasemd. Það er eins og allt vitið, sem þú hefur þó nokkkuð af, fari út um gluggann þegar gyðinga ber á góma. Þetta er einmitt einkenni á ofstækismönnum sem sjálfir hata og halda að aðrir séu eins og þeir, fullir af ofstæki og hatri. 

Ég hata hvorki gyðinga né múslima. Þeir eiga sumt sameiginlegt en þó er sá reginmunur á að gyðingar stunda ekki trúboð og geta það ekki, því það er grundvallartrúarsetning hjá þeim að einungis afkomendur sauðfjárbóndans og misheppnaða barnamorðingjans sem heyrði raddir, Abrahams, megi vera gyðingar. Múslimar (og kristnir, einkum fyrr á öldum) ganga hins vegar með þá grillu að þeir búi yfir einhverju sérstöku „fagnaðarerindi“ stóra sannleika sem frelsa muni heiminn. Þeir eru m.ö.orðum útópistar eins og nastar og kommúnistar og því hættulegir. Gyðingar ganga vissulega með ýmsar grillur, en þó ekki þessa.

En ég endurteki að mér hundleiðist þetta tal um eitthvert „hatur“. Svona tala líka forsvarsmenn feminista, homma og fjölmenningarsinna. Þeir sjá „hatur“ í hverju horni hvenær sem einhver dirfist að vera þeim ósammála.

Vilhjálmur Eyþórsson, 11.7.2013 kl. 00:15

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Enginn hefur gólað hér á blogginu mínu á hatursfullan hátt  nema þú, Vilhjálmur Eyþórsson. Minnir þetta mig sumt á hatrið í bróður þínum þegar hann var með svokallaðan fréttaflutning af Miðausturlöndum í Dagblaðinu eða DV. Kannski var það uppeldið sem gerði ykkur svona, eða skólinn, en hér er skemmtilegri saga af föður ykkar sem einnig var viss í sinni sök.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.7.2013 kl. 07:24

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Skýtur það ekki skökku við, Helgi Briem, að Vantrú styðji mosku. Er kristnihatur Vantrúarmanna þá aðeins sjálfshatur, og stuðningur við önnur trúarbrögð meðal til að auka það hatur. Vantrúarmenn eru fullir af hatri. Kannski heillar Öfgaíslam þá?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.7.2013 kl. 07:30

11 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Hvorki ég, bróðir minn og þó allra síst faðir minn hafa yfirleitt hatað nokkurn mann, enda erum við ekki uppaldir í ofstæki og hatri eins og allt of margir. En við fólk, sem sjálft er gegnsýrt af ofstæki og hatri er vonlaust að rökræða. Margur heldur mig sig.

Vilhjálmur Eyþórsson, 11.7.2013 kl. 12:52

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Segðu okkur nú Vilhjálmur Örn hvað Am Nivchar þýðir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.7.2013 kl. 14:28

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður, fólk þitt hefur Google, er það ekki nóg?

Vilhjálmur, gott !, þá kemurðu með mér í heimsókn í mosku múslima þegar hún opnar og geymir svínakjötið og blóðið heima. Auðvitað ertu ekki hatursmaður. Ég held sannast sagna að þú sért hræddur við skugga, líka þinn eginn.

Heimsyfirráð múslíma eru svo sem svo. Mér sýnist nú að aðrir standi þar betur að vígi. Sumir múslímar segja að gyðingar hafi heimsyfirráðin. Þeir sjá líka of marga skugga.

Faður þinn var líka heiðursmaður, þjóðernissinni af gamla skólanum, sem vildi ekki sætta sig við að sirkuslið og loddara suður í Þýskalandi væri að skrumskæla Íslendinga. Bróður þínum man ég eftir í betri anda en í dagblaðsgreinum hans, er hann vann á fréttastofu Útvarps og ég var þar sendill í gamla daga. Teiknari var hann góður og honum þótti ég það líka. Ég man alltaf eftir haus af starfsmanni Útvarps úr "brúnu efni" sem hann hafði formað sem stóð ofan á skáp á karlaklósetti á 4. hæð á Skúlagötu 4. Maður vissi hvaða konur á stofnuninni höfðu farið á karlaklósettið, ef þær töluðu um þetta líkneski, sem vona að sé til í safnið Útvarpsins.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.7.2013 kl. 16:35

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það hefði verið fengur að því að þú útskýrðir það. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.7.2013 kl. 17:47

15 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Vilhjálmur, voru það trúleysingjar eða kristnir menn sem bönnuðu mosku-byggingar á Íslandi í hátt í 900 ár?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 13.7.2013 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband