Leita í fréttum mbl.is

Vondar fréttir um hollustu fisks og Omega 3

Poisson Poison

Snemma í morgun las ég um rannsókn danskra vísindamanna sem hefur veriđ birt í tímaritinu Atherosclerosis og ber hún heitiđ Intake of traditional Inuit diet vary in parallel with inflammation as estimated from YKL-40 and hsCRP in Inuit and non-Inuit in Greenland. Í frétt Jyllands-Postsens er greint frá rannsókninni, sem fór fram á eldri borgum á Grćnlandi, og niđurstađan fćr örugglega marga til ađ gapa og ađra til ađ rífast um réttmćti hennar

"Enkeltfaktor" (monocausal) rannsóknir eru alltaf "öruggar", en niđurstađan er ekki alltaf afgerandi fyrir t.d. lćkningu og skilning á sjúkdómi. Fleiri ţćttir en einn geta valdiđ sjúkdómi og sjúkdómur er samsettur hlutur. Danski lćknirinn Stig Andersen, sem stýrir ţessari rannsókn á Grćnlandi segir: "Ţrátt fyrir ađ í 40 ár hafi veriđ gerđar óteljandi rannsóknir á fyrirbyggjandi áhrifum fiskiolíu á blóđtappa í hjarta, hefur aldrei fundist óyggjandi sönnun fyrir ţví ađ olían hafi áhrif. Ef til vill er allt tal um ađ feitur fiskur varni hjarta- og ćđasjúkdómum lygasaga."  Ein meginniđurstađa rannsóknarinnar er ađ kenningin um ađ feitur fiskur sé hollur sé mýta, mýta sem varđ til er danskur lćknir tengdi saman Omega-3 (n 3) fitusýrur og lága tíđni hjartabilana á Grćnlandi.

Ţessi nýja rannsókn, sem var gerđ á 535 íbúum á Grćnlandi, inúítum og öđrum, sýndi, ađ ţeir sem lifđu mestmegnis af sjávarfangi og sjávarspendýrum höfđu miklu hćrri tíđni af bólgum í líkamanum en hjá ţeim sem ekki lifđu af sjávarfangi í eins miklum mćli.

Ţetta leiddi hugann af doktorsritgerđ sem ég nýlega gluggađi í. Ţađ er merk ritgerđ Elínar Ólafsdóttir lćknis um sykursýki 2, sem ber titilinn  Metabolic and environmental conditions leading to the development of type 2 diabetes and the secular trend in mortality risk between 1993 and 2004 associated with diabetes.  A population-based cohort study using the Icelandic Heart Association´s Reykjavík and AGES-Reykjavik studies. Ţar kemur fram ađ fólk úr, eđa ćttađ úr sveit hafđi lćgri tíđni sykursýki 2 og hćrri lífslíkur en fólk úr ţéttbýli, ţar sem fólk hefur lengstum borđađ meiri fisk en í inn til landsins. Dr. Elín skođađi í rannsókn sinni matarrćđi einstaklinganna og uppruna (sveit eđa ţéttbýli). Sumir fengu of lítiđ kalk og ađrir of lítiđ C-vítamín, en í ţéttbýli viđ sjávarsíđuna borđađi fólk meira fiskmeti en til sveita og tíđni sykursýki 2 hjá ţeim sem ćttađir voru úr sveit var lćgri en ţeirra sem voru úr ţéttbýli.  Nýjar rannsóknir sem ég hef lesiđ sýna ađ sykursýki 2 tengist bólgum (inflammation) á einhvern hátt, ţó menn séu langt frá ţví ađ vera sammála um hvernig. Ţetta fćr mig til ađ hugsa, hvort eitthvađ sé hugsanlega innbyrđis tengt hér.

Getur veriđ ađ hinn holli fiskur, lýsisgrúturinn og trúin á hiđ heilaga Omega-3 eigi sök á bólgum, gigtarsjúkdómum og annarri óáran, sem svo veldur (örugglega ásamt öđrum ţáttum) auknum hjartasjúkdómum og jafnvel einnig hárri tíđni af sykursýki 2 ?

Ég hćtti samt ekki ađ borđa fisk, ţví persónulega er ég á ţeirri skođun ađ flestir hlutir eigi sér fleiri en eina orsök og ađ allt sé gott í hófi, líka fiskur (hef ţó ekki geta beitt ţessari reglu á súkkulađi).

Mér ţćtti áhugavert ađ vita meira um hvernig matarrćđi ţeirra sem rannsakađir voru á Grćnlandi var í ćsku. En mér sýnist ţó, ţegar öllu er á botninn hvolft, ađ ćrin ástćđa sé fyrir Íslendinga ađ íhuga hvort lýsisţamb og Omega-3 pilluát sé yfirleitt gott. Kannski ćtti fólk ađ hćtta í nokkurn tíma á Lýsi og sjá hvort ađ bólgurnar neđst í bakinu og gigtin minnkar ekki. En áhugaverđ er hins vegar rannsókn Dananna á Grćnlandi, og vert fyrir Íslendinga ađ fylgjast međ henni og rćđa gaumgćfilega.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ţađ er víst ekki viđeigandi og lćrdómslegt ađ titil doktorsritgerđa sé stuttur og laggóđur, hvađ ţá bragđgóđur og hollur.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 18.6.2013 kl. 10:52

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Lćknisfrćđilegir titlar verđa ađ vera langir, ţví ritgerđirnar eru venjulega styttri en doktorsritgerđir flestra annarra.

Ţrátt fyrir langan titil á ritgerđ Elínar, er hún mjög áhugaverđ og allflestir geta lesiđ sér hana til gagns.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2013 kl. 11:36

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ertu hćttur ađ taka lýsiđ og gefa Mala grútarsíld úr Whiskas-dós, eđa fćr'ann ţurrkađ spik af Kristjáni Loftssyni, (ţađ er dýrum ţeim sem hann stundar nú frístundaveiđar á), eftir ađ japanska dýrafóđursfyrirtćkiđ rifti samningnum viđ aumingja karlinn?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2013 kl. 11:40

4 Smámynd: Sólbjörg

Tek aldrei inn lýsi er á miđjum aldri - er aldrei illt í bakinu eđa međ neina gigt, en er liđug eins og köttur. Borđa fisk og lambakjöt, grćnmeti, léttvín af og til og smá súkkulađi og mikiđ af lífrćnum bćtiefnum. Omega 3 ALA fćst úr mörgu öđru en bara fiskilifur

Sólbjörg, 18.6.2013 kl. 15:36

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sólbjörg hefur ţú stundađ veiđar í kajak og eignast 6 börn í Kulusuk? Viđ skulum hafa allan vara á ţessari dönsku rannsókn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2013 kl. 15:39

6 Smámynd: Sólbjörg

Munum samt ađ Lýsiđ hélt lífinu í ţjóđinni í aldir, ţađ var reyndar engin mengun í sjónum áđur fyrr en veit ađ Lýsi hf. hreinsar vel sínar afurđir svo öllum ćtti ađ vera óhćtt og hollustan mikill ef rétt er tekiđ inn.

Sólbjörg, 18.6.2013 kl. 15:39

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ţví meira sem ég hugsa um ţessa rannsókn, ţví meira verđ ég í vafa um niđurstöđuna.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2013 kl. 17:56

8 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Mali the malicious étur ekki whiskas. Hann étur bara fugla og mýs sem hann veiđir sjálfur af töff og malicious grimmd.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 19.6.2013 kl. 13:13

9 identicon

Sćlt veri fólkiđ.
Til er lyf sem heitir Berberine og lćknar ţađ sykursýki 2 í 99% tilfella. Googliđ ţađ og skođiđ. Merkilegt ađ engin skuli selja ţađ heima á Fróni.
Mig minnir annars ađ Omega 3 sé unniđ úr fiskiolíu frá Argentínu. Ţađ var mikiđ fár í kringum úldiđ lýsi sem taliđ var ađ notađ vćri  í umrćdda vöru.

Annars er skammtímaminni okkar mjög takmarkađ hvort sem viđ viljum viđuirkenna ţađ eđur ei. Fjölmiđlar og stjórnmálamenn vita ţađ.

Guđmundur Bjarnason (IP-tala skráđ) 20.6.2013 kl. 05:00

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband