Leita í fréttum mbl.is

Össur reddar heimsfriðinum, enn einu sinni

Össur kjassar Bargouti
 

Óska ber Palestínumönnum til hamingju með að vera orðnir fullgildir áheyrnarfulltrúar hjá SÞ. Óska ber Íslendingum til hamingju með að tilheyra einu minnsta þjóðríki heims með stærsta og öfgafyllsta hjartað, minnsta heilann og stærsta sjálfsálitið, sem berst fyrir réttinum til að brjóta niður viðkvæman frið í fjarlægum heimshluta.

Þessi nýja staða Palestínu þýðir m.a., að hægt verður að ákæra Palestínumenn fyrir stríðsglæpi, hryðjuverkaglæpi, og t.d. óvirðingu fyrir lífi barna sinna sem kennt er hatur og þjóðarmorðsáróður frá blautu barnsbeini. Sömuleiðis verður hægt að lögsækja Palestínumenn sem hafa í frammi afneitun á helför Gyðinga, sem og alla þá sem hvetja til útrýmingar Ísraelsríkis. Einnig verður á alþjóðarvettvangi hægt að skipta sér að gífurlegum brotum á almennum mannréttindum sem og spillingu af völdum Fatah, sömuleiðis á Gaza, þar sem spilling hefur aldrei verið eins rótgróin hjá Hamas eins og hjá Fatahstjórninni. En samvinna þeirra á milli hefur þó aldrei verið sterkari en nú. 

Síðast en ekki síst, nú verður auðveldara að lögsækja öfgafullt stuðningsfólk hryðjuverka Palestínumanna, t.d. á Vesturlöndum, og ekki síst á Íslandi þar sem fjöldi fólks hvatti til þess á bloggum sínum og á síðum fjölmiðla fyrir nokkrum dögum síðan, að Ísraelsríki ætti að útrýma og "flytja ætti Ísraelsmenn til heimalanda foreldra þeirra".  Vanþekking á sögu og mannfyrirlitning stuðningsmanna Palestínugæluverkefnisins kunna sér engin landamæri. En lögsókn á slíku fólki færir okkur kannski frið.

Hvatning til þjóðernishreinsana og þjóðarmorða eins og sést hafa á meðal margra Íslendinga á síðari árum, sem og áróður og yfirlýsingar um að Ísraelsríki fremji þjóðarmorð, meðan sama fólk sem svo talar, segir ekkert við þeim fjölda- og þjóðarmorðum sem eiga sér stað í heimi Öfgaíslams, þ.e. í flestum ríkjum umhverfis Ísraelsríki, er brot á alþjóðlegum reglugerðum og samþykktum sem Íslendingar hafa skuldbundið sig til að fylgja.

Íslenskum yfirvöldum ber að ákæra og lögsækja fólk sem hvetur til þjóðernishreinsana. Það er ljóst af íslenskum lögum, en ekkert er aðhafst. Ef íslensk yfirvöld gera það ekki, er hægt að kæra þau til SÞ og ÞAÐ VERÐUR GERT! Fyrsta verk Össurar Skarphéðinssonar, ef honum og ólýðræðislegri ríkisstjórn hans tekst að svíkja íslensku þjóðina inn í ESB, verður að svara fyrir kærur um gyðingahatur og þjóðernishreinsunaráróður gegn erlendu ríki og borgurum þess á Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Góð greining a þjóðarsalinn um þessar mundir, Vilhjálmur.

Ragnhildur Kolka, 30.11.2012 kl. 14:11

2 identicon

Ísraelsstjórn óvirðir saklaust fólk sem lét lífið í helförinni og aðstandendur þeirra og annað fólk sem lét örlög þeirra sig varða.

Þýska þjóðin lærði af helförinni og óhæfuverkum sem unnin voru í hennar nafni eins og framganga hennar síðan í seinni heimsstyrjöldinni ber vitni um.

Andstaða við óhæfuverk Ísraelsstjórnar gegn varnarlausu fólki á ekkert skylt við gyðingahatur og er hreint siðleysi að halda slíku fram.

Sverrir Hjaltason (IP-tala skráð) 30.11.2012 kl. 23:29

3 identicon

Verður þá ekki hægt að lögsækja þig líka Vilhjálmur, þar sem þú stefnir á að Gyðingaþjóð fái yfirráð yfir því landi sem sumir telja að hafi tilheyrt henni fyrir rúmlega 2000 árum og einnig fyrir það að þú berst fyrir að þjóðflokkur Gyðinga megi reka þá sem henni þóknast og fyrir eru á þessu landsvæði, í burt?

Þar sem þú segist vera Zionisti þá er skv. skilgreininum á því hugtaki http://en.wikipedia.org/wiki/Zionismvarla annað hægt en að telja að þú hafir þessar skoðanir þrátt fyrir ýmsar aðrar mótsagnakendar yfirlýsingar þínar um Ísrael og íbúa þess.

Öfgamenn eru jú þekktir fyrir flest annað en að vera lausir við mótsagnir í sínum málflutningi en þetta geta ekki kallast annað en öfgaskoðanir og kanski þætti einhverjum ástæða til að fá úr því skorið hvort þær brjóti í bága við alþóðalög og mannréttindi!  Kanski Evu Hauks? 

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 1.12.2012 kl. 00:36

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ragnheiður, hér duttu t.d. inn tvö dæmi:

Þýska þjóðin lærði af helförinni og óhæfuverkum sem unnin voru í hennar nafni eins og framganga hennar síðan í seinni heimsstyrjöldinni ber vitni um.

Sverrir Hjaltason, segðu Grikkjum það í dag. Misstir þú einhvern í helförinni Sverrir? Gyðingar lærðu líka mikið af síðari heimsstyrjöld. Helst það að láta ekki þjóðir og öfgastefnur sem lýsa því yfir að útrýma beri Gyðingum komast upp með það. Þjóðverjar hafa lært ýmislegt en tiltölulega fáir Þjóðverjar hafa samt "fyrirgefið" gyðingum það sem þeir "þeir (gyðingar) gerðu" . Þeir líta enn of á sjálfa sig sem fórnarlömbin.

Hvaða sakleysi sérð þú í því að kenna börnum sínum að myrða heilu þjóðirnar? Kalla þá apa og svín? Og veistu, börn treysta foreldrum sínum.

Bjarni Gunnlaugsson, Öfgaíslam er hættulegasta öfgastefnan í heiminum í dag. Hættulegri en öll trúarbrögð sem þú hatar og allar helstefnurnar sem eyðulögðu 20. öldina. Hundruð manna, jafnvel þúsundir þurfa á hverjum degi að missa lífið vegna þessara öfga. Þessar öfgar drífa áfram þann vilja Hamas og margra annarra múslíma, og Íslendinga í hrönnum, að útrýma lýðræðisríki og þjóð sem fólk hefur öfundast út í og hatað síðan á villimannastigi sínu. Þú ert örugglega einn af þeim sem helgislepjan rennur af í stríðum straumi, Félagi Handhafa Réttra og Viðurkenndra Skoðana. Auðvitað eru engar mótsagnir í því sem þú skrifar, jafn háheilagur og þú segist vera. Þú hefur alltaf á réttu að standa, og ert að mínu mati meiri öfgamaður en aumingja Eva Hauks, því þú stígur örlítið í vitið, en þú nýtir í staðinn greind þína til að styðja öfgafólk og illan málstað manna sem notar trú sýna til að lýsa yfir vilja til þjóðarmorða og stundar kvenfyrirlitningu og alls kyns níðingshátt sem ekki telst til eðlilegs framferðis á okkar breiddargráðum á okkar tímum. Endalausar samlíkingar þínar á Ísraelsríki við Hitler-Þýskaland eru sjúkar og sýna að hatur virðist vera þitt leiðarljós. Þú ert enginn stuðningur við Ísrael í belgingi þínum fyrir hönd Hamas og barnanna sem þeir sjá til þess að séu deydd á Gaza.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 1.12.2012 kl. 06:18

5 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Það er ekki oft að ég sé sammála þér nafni, en verð þó að vera það í þetta sinn.

Vilhjálmur Eyþórsson, 2.12.2012 kl. 07:48

6 identicon

Bara af því ég rakst inn á færsluna um Arafat of seint.  Nú veist þú vafalaust allt um geislakolsmælingar og helmingun geislavirkra efna.  Þá veistu það líka að þótt einn ísótópur pólons sé 210 með örstuttan helmingunartíma þá er annar, 209, með meira en 100 ára helmingunartíma.  Og að þegar 210 helmingast breytist það í blýísótópinn 210.  Það þarf því ekki að finna pólon í hræinu af Ara heldur dugir að finna blýið til að sanna tilvist pólonsins.  Og sú röksemd að rannsóknarmennirnir hafi sjálfir komið henni fyrir dugir eingöngu sannfærðum trúmönnum og sæmir ekki gagnmenntuðum vísindamönnum.

En kannski finnst bara ekkert í Ara og þá er abupp.

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 8.12.2012 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband