Leita í fréttum mbl.is

Furðudýrafræðingurinn og Eggjahausinn

crop_260x
 

Í morgun var Útvarp Hamas (RÚV) með útsendingu þar sem sjálfsmenntaður furðudýrafræðingur fréttastofunnar, Þorvaldur Friðriksson, og Árni Eggjarauða úr VG helltu úr könnum haturs síns í garð Ísraels og gyðinga. Það var eins og að þeir væru að lesa upp úr Passíusálmunum. "Gyðinga hörð var heiftin beisk, hjartans blindleiki og villan treisk".

Eftir að Þorvaldi Friðrikssyni, sem lært hefur smá fornleifafræði í Svíþjóð, varð ljóst, að "Keltabyggð" frá því fyrir landnám, sem hann þóttist hafa fundið, væri frá 13. öld, gerðist hann fréttamaður á RÚV (með drykklöngum pásum) og sérhæfði sig þar í stuðningi við hryðjuverkasamtök og fiskeldi.

Waldo
Þorvaldur Friðriksson. Efst er Che Che Árni

 

Árni Þór Sigurðsson, er hins vega mest þekktur sem fórnalamb íslensk múgs í fyrra þegar hann fékk egg "í gagnaugað" við setningu Alþingis, og var vart hugað pólitískt líf í langan tíma á eftir. Í kjölfarið vildi hann afnema fundarfrelsi og lýðræðið. Í dag vill Árni helst senda lið til Gaza til að berjast við hina vonda Ísraelsmenn, enda eru þeir með lýðræði. Þetta fár í Árna er ekkert nýtt og heldur ekkert sem Árni tók upp á þegar hann lærði smá slavnesku í Sovétinu sáluga. Nei, þegar Árni var í Róttæka Félaginu í MH árið 1979, lagði hann líka til að að félagið hvetti íslensk stjórnvöld til að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Hann vildi að Ísraelsríki yrði máð út af landakortinu eins og hann orðaði það.

Þessir heiðursmenn voru teknir í viðtal á morgunútvarpi Rásar 2 í Ríkisútvarpinu í morgun, þar sem allir frasarnir um þjóðarmorð, fangelsi, stríðsglæpi osfr. flutu út á öldum ljósvakans. Kryddið á gyðingahaturspítuna var frú Tamimi, sem er leyft að upplýsa þetta um sig á vef Alþingis:  "F. 7. janúar 1960.  Framkvæmdastjóri."  Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, B.A. í Félagsfræði frá Háskóla Íslands.

Ekkert af þessu fólki hefur þó blætt út í opinni umræðu á fjölmiðlum út af fjöldamorðunum á Sýrlandi, en furðudýrfræðingurinn talaði um linnulausar eldflaugaárásir Hamas á Ísrael sem einhverja saklausa flugeldasýningu. Kannski verður Hjálpasveit skáta með 8 metra langar og 90 kg. þungar rakettur frá Íran um áramótin sem Þorvaldur getur krækt sér í. Vonandi er einnig, að Árni eggjahræra fari með Össur-sveit undir vopnum til Gaza. Tamimi, sem ekki þarf að upplýsa um uppruna sinn og ættir á heimasíðu Alþingis eins og aðrir Alþingismenn, getur orðið klappstýra, þó hún kunni greininga ekki að gæta jafnréttis og jafnvægis í skoðunum sínum, sem er auðvitað frábær eiginleiki í stöðu þeirri sem hún hefur fengið af Össuri, fyrir flokksstuðninginn.

hamas-rockets-2012-1 

Fjölbreytt úrval af flugeldum verður fáanlegt hjá VG um næstu áramót. Hjálparsveit Árna skaffar dótið.

Hamasgangur VG og Samfylkingarinnar varðandi Gaza skilar líka alltaf nokkrum plúsprósentum í kosningatölur þessara flokka. Félögunum verði nefnilega ekki eins heitt í hamsi um nokkur önnur mál en ástandið við Botn Miðjarðarhafs. Botninn í íslenskum fjölmiðlum er ekki lengur uppi í Borgarfirði.  

Sjaldan hefur RÚV sýnt sig sem eins ógeðslega áróðursmaskínu eins og morgun

Hlustið ef þið þorið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Hehehe... Þeir eru víst svona rauðliðarnir hjá ruv...

Annað er svo að mér þykir þessar rakettur vera hálf aumar til annars en sem skraut, nema þá helst þessi kínverska sem er sýnu stærst.

Kanski það þurfi að skoða GPS-stýrðar rakettur sem hægt er að skjóta bæði úr lofti og frá landi með ýmsan "skrautbúnað" innanborðs.

Dæmi um slíka rakettu kemur einmitt í góðar þarfir sem varnir gegn þessum palestínsku smárakettum og eins til að rústa heilu húsunum í Palestínu en þessi raketta er nefnilega búin svo mörgum eiginleikum að ég verð að setja tengil á upplýsingarnar um hana hér http://en.wikipedia.org/wiki/Delilah_(missile)

Að sjálfsögðu fá Palestínumenn að kynnast þessari af egin raun þegar þeim er skotið á þá af IDF (Israeli Defence Force) en þessi raketta er smíðuð af IMI sem er vopnaframleiðsla Ísraelska "varnarliðsins"...

Á meðan þessar rakettur sem skylja eftir sig gíg á við fótbolta þá er hin Ísraelska að skilja eftir sig rústahrauka íbúðarhúsa og lík um allt.

Á meðan árásarstefna Ísraela er svona þá er ég ekki hissa á að Palestínskir hryðjuverkamenn sendi litlu raketturnar öðru hverju yfir til Ísraels þó svo að lítil áhrif hafi önnur en að fá þúsundir ísraelskra eldflauga með tilheyrandi eyðingu til baka...

Með kveðju og von um að friðelskandi Ísraelar komi til með að hafa betur í baráttunni við þá sem nú ráða.

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 19.11.2012 kl. 15:09

2 identicon

Það er helst að skilja á aðdáendum hryðjuverkasamtaka Hamaz, já og annarra sem eru í nöp við Ísrael, að málið sé að hryðjuverkamennirnir fái öflugri vopn til þess að drepa fleiri gyðinga.

Hitt er svo athyglisvert, að hefðbundnir stuðningsmenn ESB eru ekkert að flíka því, að ESB hefur viðurkennt rétt Ísraela til að verjast eldflaugaárásum Hamas, og skella skuldinni á þessum átökum alfarið á Hamas.

Skrítið, því venjulega er ESB hin heilaga bíblía vinstrimanna.

Hitt er svo vert að rannsaka af alvöru, hvað það er í vinstra heilahvelinu, sem veldur því að vinstrimönnum finnst allt í laga að drepa gyðinga, hvar sem til þeirra næst, og af hverju þetta heilahvel lýsir skilyrðislausum stuðningi við samtök sem hafa á stefnukrá sinni, að eyða heilli þjóð. Og samtökum sem myrða og pynta andstæðinga sína í hrönnum.

Hilmar (IP-tala skráð) 19.11.2012 kl. 16:16

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Öll stríðsátök eru sorgleg. Ég get samt ekki séð að hástemmdar yfirlýsingar (derringur) utanríkisráðherra litla Íslands breyti nokkru, hvað þá að þær skipti sköpum.  Þessi mál eru flóknari en svo að ég komi auga á lausn en leyfi mér samt að vona að hún finnist áður en varir. Hugmyndin með Ísrael var sú að landið yrði vé fyrir Gyðinnga eða gyðinnga sem hafa verið ofsóttir víða um aldir.

Sigurður Þórðarson, 19.11.2012 kl. 17:29

4 identicon

Utanríkisráðherra er rugludallur.

jóhanna (IP-tala skráð) 19.11.2012 kl. 18:18

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sjá belginginn í honum,engu líkara en hann haldi alla verða hrædda við sig.

Helga Kristjánsdóttir, 19.11.2012 kl. 22:37

6 identicon

Sæll.

Hverjir fóru frá Gaza 2005 og drógu landnema með sér nauðuga svo Palestínumenn gætu haft svæðið fyrir sig? Hverjir sömdu frið við Egypta og Jórdana? Hverjir rændu völdum á Gaza 2007 og drápu meðlimi Fatah?

Af hverju láta fjölmiðlamenn, sérstaklega RÚV, ekki Svein Rúnar, Össur og Ögmund og fleiri af þeirra sauðahúsi svara eftirfarandi spurningum:

1) Hvað eru Palestínumenn að gera til að undirbúa stofnun sjálfstæðs ríkis?

2) Á hverju ætlar þetta ríki að lifa? Ætlar það sér að lifa á ölmusu eins og núna?

3) Af hverju sækja Palestínumenn sér ekki lánsfé til t.d. Alþjóðabankans til að fjárfesta í verksmiðjum, ferðamennsku eða einhverju öðru sem skapað getur störf og tekjur?

4) Gott væri ef Ögmundur, Össur og Sveinn Rúnar útskýrðu fyrir þjóðinni hvað felst í súru 4:89 og súru 9:123 svo tvö dæmi séu tekin.

5) Ögmundur, Össur og Sveinn ættu að segja fólki hvaða eina örugga leið er fyrir Hamas liða til að komast í paradís. Hverjar eru afleiðingar þessa?

6) Ögmundur, Össur og Sveinn Rúnar ættu að útskýra hugtakið "nasikh" fyrir samlöndum sínum hér.

7) Kvenréttindasinnarnir á vinstri arm stjórnmálanna ættu að tala við Hamas um súru 4:34.

8) Hvaðan koma þeir fjármunir sem Hamas notar til að kaupa vopn? Hverjir sjá Hamas fyrir þessum vopnum? Sveinn Rúnar og Össur ættu að prófa að spyrja Hamas liða að þessu. 

9) Af hverju þeir nota þetta fé ekki í eitthvað annað eins og t.d. mennta lækna í massavís í Gaza og fá þangað fólk í meðferð og skapa þannig tekjur og störf. Aðrar þjóðir gera þetta - hví ekki Palestínumenn? Sveinn Rúnar gæti þá unnið þar í sjálfboðavinnu ef honum sýnist svo og hjálpað til.

10) Af hverju hættir Hamas ekki bara að skjóta eldflaugum á Ísrael? Hamas liðar hafa nú Gaza svæðið fyrir sig, hvers vegna að skjóta eldflaugum á Ísrael?

11) Hve oft hefur flugmönnum ísraelsmanna verið sagt að hætta við árásir í Gaza vegna þess að óbreyttir borgarar eru nálægt hernaðarlegu skotmörkum? Össur, Ögmundur og Sveinn Rúnar ættu að útskýra fyrir þjóðinni hvaða augum Hamas liðar líta á mannlega skyldi og hvernig Hama notar óbreytta borgara.

12) Össur, Ögmundur og Sveinn Rúnar ættu að rifja það upp þjóðinni til glöggvunar þegar sjeffarnir í Hamas földu sig í kjallara spítala á Gaza 2008 og brutu þar með alþjóðalög.  

Þau vandamál sem við sjáum í þessum heimshluta er farin að gera vart við sig í Evrópu:

http://www.youtube.com/watch?v=dlG75wb7lLw&feature=related

Gyðingar hafa alltaf verið fjölmennir í Mið-Austurlöndum og raunar meirihluti íbúa Jerúsalem í yfir 100 ár. Tilkall Araba til þessa lands er bara uppspuni, uppspuni byggður á hatri. Vinstri menn kannast heldur ekki við Balfour yfirlýsinguna frá 1917 og skilja ekki mikilvægi hennar.

Vilhjálmur gerir vel með því að benda á þennan ólöglega áróður frá útvarpi allra landsmanna. Hvenær verður þessum undirmálsmönnum á RÚV gert að taka afleiðinga lögbrota sinna? Hver hefur dug í sér til þess? Stjórnmálamenn, sem stjórnendur RÚV, verða að sjá til þess að þessi stofnun sem m.a. ég neyðist til að borga fyrir fari að lögum!!

Helgi (IP-tala skráð) 20.11.2012 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband