Leita í fréttum mbl.is

Alþingi viðurkennir eyðingu Ísraels

AusIsland
 

Alþingi ákvað í dag að viðurkenna ríki sem ekki er til. Þeir sem stofna vilja það ríki leyna því hvergi, að þeir vilja sjá Ísraelsríki feigt.  

Þeir öfgafullu leiðtogar, sem stofna vilja Palestínuríki afneita reyndar flestir rétti gyðinga að landi sínu sem SÞ samþykktu á sínum tíma. Þeir afneita flestir þeirri helför sem gaf mönnum á Vesturlöndum næga ástæðu til að viðurkenna stofnun ríkis Gyðinga á því svæði sem það eitt sinn var á. Þeir vilja ekki að gyðingar búi í fyrirhuguðu landi Palestínu. Þeir viðurkenna flestir ekki tilvist Gyðinga og ríkis þeirra, og heldur ekki Gyðingdóm. Sumir þeirra herja hvenær sem þeir geta á Ísrael og hafa í frammi lygaherferðir sem stefna að því að grafa undan Ísraelsríki.  

Ísland styður nú að mínu mati eyðingu eina lýðræðisríkisins í Miðausturlöndum. Það er sorglegt eins og svo margt annað sem gerst hefur á Íslandi á síðari árum. Ísland gerir sig að athlægi hvar sem er í heiminum. En ég bjóst ekki við öðru, því hvað gerir fólk sem vill gefa sitt eigið land eða selja það hæstbjóðanda? Falleruð hórdómsþjóð í Ballarhafi er ekki mikill stuðningur við eitt eða neitt.

Eini flokkurinn á þingi, sem bjargaði andliti Íslands var Sjálfstæðisflokkurinn. Viðurkenning Alþingis á ríki, sem ekki er einu sinni sátt um meðal Palestínuaraba sjálfra, er Palestínuaröbum aumur stuðningur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Eini flokkurinn á þingi, sem bjargaði andliti Íslands var Sjálfstæðisflokkurinn.
Afhverju greiddu þingmenn hans þá ekki atkvæði gegn tillögunni í stað þess að sitja hjá?

Sveinn Þórhallsson, 29.11.2011 kl. 19:02

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Það er öllum skítsama þó einhverjir blöðruselir frá landi sem er varla á kortinu segja.

 Þessir menn halda að þeirra seu eitthvert númer- en sorry---

Erla Magna Alexandersdóttir, 29.11.2011 kl. 19:22

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Alþingi Íslands samþykkti að styðja sjálfstæðis og fullveldiskröfu Palestínuaraba á sama tíma og Alþingi Íslands vinnur hörðum höndum að því að koma Íslandi inn í ESB og þar með svipta landið bæði sjálfstæði og fullveldi.

Er einhver þversögn í þessu?

Ragnhildur Kolka, 29.11.2011 kl. 19:30

4 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Af því að Svíþjóð, Danmörk, Finnland, Bretland og öll þessi lönd eru ósjálfstæð og ófullvalda?

Sveinn Þórhallsson, 29.11.2011 kl. 20:19

5 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

það var skömm að horfa á fána Palestínumanna inn á svölum Alþingis.Alstaðar smeigir Íslam sér..Burt með þá sem ekkert vita,við megum ekki lengur fara með bænir okkar fyrir þessum Glæpalýð...

Vilhjálmur Stefánsson, 30.11.2011 kl. 00:03

6 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Dimmur dagur á Alþingi. Svartara hefur það varla sést síðan í aðdraganda þess að Alþingi var lagt niður árið 1800, enda reisn þess og virðing engin áður en því var lokað.

Sýnir hvern mann þingmann hafa að geyma - mannleysur og sumir hverjir menn lítilla sæva og sanda - eða nytsamir sakleysingjar áróðursherferðar hryðjuverkamanna.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 30.11.2011 kl. 09:42

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Eins og góður vinur minn skrifaði mér: "Össur engist í Palestpínunni eins og meri með hrossasótt. Þetta er merkileg ónanía á ungdómsgrillum nú þegar allir sjá og vita að þarna verður engu þokað eins og er, meðan „arabíska vorið“ getur hvenær sem er breyst í fimbulvetur."

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.11.2011 kl. 10:05

8 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Ég er kannski ekki fróður um þessi mál og hef ekki mótaða skoðun á málinu en

þess rök sem hér koma fram gegn viðurkenning palestínu finnst mér alveg út á túni.

Ísraels ríki var stofnað í Palestínu og allir vita að stofnun þess voru einhver stærstu mistök sem gerð hafa verið í sögu UN. Þetta klúður er búíð að kosta hörmungar og mörg mannslíf og enn sér ekki fyrir endann á því. Nú er verið að reyna að leysa úr klúðrinu. Ein leið er hugsanlega að stofna ríki palestínu og hvernig getur þetta klúður UN þá verið rök gegn því ?

Af hverju eru það rök gegn ríki palestínu að Ísrael sé eina lýðræðaríkið í Miðausturlöndum. Sé ekki alveg hvað þú ert að far með því, er það einhver útþenslustefna lýðræðis sem þú telur að eigi ráð för í þessu ?

Og svo skil ekki hvernig þetta tengist málinu nema sem rök gegn Ísraelsríki ?

“Þeir afneita flestir þeirri helför sem gaf mönnum á Vesturlöndum næga ástæðu til að viðurkenna stofnun ríkis Gyðinga á því svæði sem það eitt sinn var á.”

Helför eða ekki helfor var það ekki fyrir tíma ísraelsríkis.?

Guðmundur Jónsson, 30.11.2011 kl. 11:48

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Guðmundur Jónsson, kannski er kafaraveikin að angra þig?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.11.2011 kl. 14:44

10 identicon

Ég verð að taka undir með honum Guðmundi. Ég held að menn ættu að kynna sér þær hörmungar og blóðsúthellingar í kjölfar þess að Gyðingar fóru að nema land í Palestínu. Og að fara blanda múslimum inn í það að kristniboð er bannað í skólum er náttúrulega bara fáviska af verstu gerð svo sé nú ekki talað um aðildarumsókn Íslands að ESB. 

Gestur (IP-tala skráð) 30.11.2011 kl. 17:57

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Gestur, stuðningur við Hamas gengur ekki í ESB. Hamas eru hryðjuverkasamtök, sem 80% íslendinga styðja, eða svo er okkur sagt. Kannski hafði Gordon Brown rétt fyrir sér um Íslendinga?

Segðu okkur svo Gestur minn, hvaða þjóð hefur myrt flesta Palestínuaraba eftir 1948?

Stuðningur við eyðileggingu Ísraelsríkis er boðaður á Alþingi og ekki má fara með Faðir vorið í skólum. Þetta minnir á staði sem ég þekki, sem stjórnað er af hryðjuverkasamtökum.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.11.2011 kl. 20:53

12 identicon

Vilhjálmur: Fremur en að sjá eftir hvarfi bæna úr grunnskólum hér, væri ekki nær að vonast eftir því að þeim verði úthýst sem fyrst úr grunnskólum í Palestínu og Ísrael?


Held að það væri auðveldara að leysa þessa deilu ef ekki væri fyrir harðlínutrúarmenn á hvorri hlið.

Kúrdistan (IP-tala skráð) 30.11.2011 kl. 22:08

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Mestu harðlínutrúarmennirnir í Ísrael viðurkenna ekki Síonisma (og líklega heldur ekki rétt sinn til að vera í Ísrael).

Sá sem skrifar undir nafni þjóðar sem haldið er niðri af múslímskum bræðrum í nokkrum ríkjum, veit ekki hvað hann/hún er að tala um.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.11.2011 kl. 23:18

14 identicon

Ég skil ekki alveg þetta skot hjá þér. Nafnið kom einmitt til vegna þess að mér finnst stórfurðulegt hvað fólk einblínir alltaf deilur Ísraela og Palestínumanna.

En þú sem sagt heldur fram að harðlínutrúarmenn í Ísrael séu upp til hópa and-síonistar? Getur þú bent mér á eitthvað þessu til stuðnings?

Kúrdistan (IP-tala skráð) 1.12.2011 kl. 13:40

15 identicon

Er til of mikils ætlast að segja satt?

Voðalega er þetta hallærislegt hjá þér Vilhjálmur.

Þú veist vel að 80% þjóðarinnar styðja sjálfstæði Palestínu (samkvæmt þjóðarpúlsi Capacent) - ég efast um að slík könnun sýndi stuðning við Hamas.

Þó nágrannar Palestínumanna hafi murkað úr þeim lífið og hneppt í ánauð (og að þeir séu múslimar) eins og Jórdanir og Egyptar - er það engin afsökun fyrir því að þeir eigi að njóta frelsis og mannréttinda í heimalandi sínu. Í raun er það hvattning til þess að Palestínumenn fái sjálfstætt ríki.

Fáni Palestínu = Íslam.

Þú veist betur sjálfur. Palestínumenn eru margir trúlausir, en flestir játa íslam eða kristni. Mjög lítill minnihluti eru gyðingar og eiga m.a. sæti á þingi Palestínumanna - og hafa gegnt ráðherrasæti fyrir palestínsk heimastjórnina. Ísraelar eru síðan gyðingar (mikill meirihluti), drúzar, múslimar. Þetta snýst ekki um trúmál heldur mannréttindi fólks.

Það er auðvitað glataður málstaður að neita viðurkenna að þjóð eigi rétt á frelsi, eigin heimalandi og að þurfa ekki að búa við hernám. Slíkar skoðanir eru oft réttlættar í krafti trúarbragða (öfga múslimar, gyðingar, kristnir). En þú getur a.m.k. reynt að vera málefnalegur (en það er kannski erfitt með slíkan málstað).

Randver (IP-tala skráð) 2.12.2011 kl. 23:59

16 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ef ríki Palestínu verður viðurkennt, þá má fastlega búast við því að lagðar verði auknar kröfur á hana að leita friðsamlegra leiða til framtíðar.

Núverandi ástand er hvorki Ísrael né Palestínu til framdráttar nema öðru nær.

Um leið og jafnræði sé með þessum tveim löndum þá mætti huga betur að því hvoert ekki séu betri fjárfestingarkostir en með hernaðaruppbyggingu sem kemur engum að gagni nema fraleiðendum og „sölumönnum dauðans“. Af hverju geta þessar tvær þjóðir ekki fremur unnið saman en móti hvor annarri?

Eigum við ekki að gefa þessari leið von?

Með bestu kveðjum og góðar stundir

Guðjón Sigþór Jensson, 5.12.2011 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband