Leita í fréttum mbl.is

Íslendingar vilja Palestínu

Ég hætti aldrei
 

Gallup á Íslandi telur það greinilega lífsnauðsyn, að ganga úr skugga um hve margir Íslendingar styðji stofnun Palestínuríkis. 80% þeirra 60% sem spurðir voru af Gallup, og nenntu að svara þessari vitleysu, sögðust styðja Palestínuríki. 

Og hvað með það? Stuðningur Íslands hjálpar ekki Palestínumönnum frekar en önnur hryðjuverk.

Þeir sem eru svona ólmir í að stofna ríki í fjarlægum heimsálfum, áður en friður hefur verið tryggður, geta bara flutt þangað, ef þeim er svona mikið mál að drepa gyðinga.

Væri ekki nær fyrir Gallup að athuga, hvað margir Íslendingar vilji hafa Jóhönnu hróið sem forsætisráðherra? Hætt er við að 6 af þeim 8 samfylkingarmönnum sem spurðir verða, og nenna að svara, haldi að hún sé Guð. Allir aðrir vilja losna við hana.

Ussör

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Athyglisvert hvað Össur er ólmur að semja við hryðjuverkasamtök eins og Hamas sem láta sér ekki nægja að drepa Ísraelsmenn heldur eru þeir einnig að drepa eigið fólk. Hér er viðtal við son Hamas eins og hann kallar sig, en hann  heitir  Mosab Hassan Yousef og er sonur stofnanda og leiðtoga Hamas sheikh Hassan Yousef

 http://www.youtube.com/watch?v=WJe0vuW_98A

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.10.2011 kl. 15:38

2 identicon

Hamas er ekki sama og palestína frekar en IRA sama og norður írland.Öfgafullir hryðjuverkahópar þrífast allstaðar þar sem óréttlæti ríkir.IRA drápu líka eigið fólk ef það var ekki sammála stefnu þeirra.En þeir settust nú samt að samningaborðinu um síðir og þar ríkir nú friður eftir því sem ég best veit.Held það sé hægt líka í Palestínu en það þarf að neyða fólk að samningaborði,öfgasamtökum í palestínu og einnig Ísrael.

josef asmundsson (IP-tala skráð) 23.10.2011 kl. 18:34

3 identicon

Þette er nú reyndar sama þjóðin og vildi líka ólm stofa ríki gyðinga á þessu svæði áður en friður var tryggður...

Matthías (IP-tala skráð) 23.10.2011 kl. 19:35

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Matthías, hvaða þjóð Matthías, Thor Thors, Sjálfstæðisflokkurinn? Kynntu þér söguna aðeins betur.

Hvaða öfgasamtök í Ísrael, Jósef, Verkamannaflokkinn kannski, flokkinn sem hefur verið við völd í flestum stríðum sem Ísrael hefur neyðst til að há. Eða hvaða öfga ert þú að eiginlega að tala um? Kannski öfga þjóða á Vesturlöndum, sem olli því að menn neyddust til að gefa Gyðingum ríki sitt aftur eftir að hafa slátrað 6 milljónum þeirra.  Þú veist greinilega ekki hvað öfgar eru, þó svo að hann afi þinni gæti hæglega hafa tekið þátt í þeim.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.10.2011 kl. 19:49

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Rafn, fólk sem hefur samskipti við Hamas er jafn siðlaust og fólk sem sá sér átillu að vingast við Gaddafí. Gaddafi gaf þeim olíu. Hamas gefur vinum sínum möguleika að hatast út í sameiginlegan óvin.

Þakka fyrir viðtalið við Mosab Hassan.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.10.2011 kl. 20:06

6 Smámynd: Guðmundur Pálsson

Merkileg er saga þessa unga manns Mosab Hassan fyrir tvær sakir. Hún er svo merkileg fyrir það að fyrr eða seinna sjá heilbrigðir menn merkingarleysið og gefast upp á hatrinu. Það þarf oft ekki mikið til. Hann áttar sig eftir að hafa heyrt aðeins eina setningu: "Elskið óvini yðar" Eftir það skoðar hann allt kenningakerfi kóransins aftur upp á nýtt og tekur svo smám saman sinnaskiptum. Hér uppi á Íslandi finnst mönnum þetta kannski kjánaskapur og veiklyndi en það er þá af því að menn skilja ekki kjarna málsins. Sagan er mögnuð:

http://www.youtube.com/watch?v=nlvYjFvMpfE&feature=related

Guðmundur Pálsson, 23.10.2011 kl. 23:34

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Það með það. 80 % er öruggur meirihluti. Eins og ég sagði einhverntíma á mínu bloggi (sem þú lest víst stundum) þá hafa Palestínumenn unnið áróðursstríðið. Það er ekki bara á Íslandi sem meirihluti fólks er á bandi Palestínumanna. Og 80% stuðningur við að Palestínumenn stofni sitt eigið ríki er ekki hryðjuverk. Það er alveg sama hvað þú segir það oft. Svo verður ekki.

Sæmundur Bjarnason, 23.10.2011 kl. 23:37

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæmundur: 80% af þeim 66% sem vildu svara. Eru það 80% þjóðarinnar? Já og Palestínuríki er enn ekki til frekar en fyrr. Segjum svo að aðeins 20% heimsins sjái í gegnum áætlanir Abbas. Það er nóg. Abbas vill ekki frið og er alveg sama um stuðning Íslendinga.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.10.2011 kl. 04:27

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þú minnist í engu á áróðursstríðið. Eiga þessi 20% sem þú talar um að fá að ráða því sem þau vilja? Auðvitað er Abbas alveg sama um stuðning Íslendinga og Nethanyahu líka, en kannski er ekki öllum sama. T.d. þér. Þú samþykkir með þögninni að þetta með hryðjuverkin er rétt hjá mér.

Sæmundur Bjarnason, 24.10.2011 kl. 09:02

10 identicon

Ég skil ekki alveg svar þitt, veit bara að sú þjôð sem ég hef tilheyrt síðan 1950 studdi Ísraelsríki því sem næst einróma alveg fram á 8. áratug og stór hluti hennar jafnvel lengur. En auðvitað tala fulltrúar þess meirihluta sem völdum nær í kosningum hverju sinni fyrir hennar hönd á opinberum vettvangi, t.d. hjá SÞ.

Matthías (IP-tala skráð) 24.10.2011 kl. 09:08

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæmundur, meðan Palestínumenn viðurkenna ekki tilvist Ísraelsríkis og mestur hluti þeirra elur á þeirri von, að taka allt land af Gyðingum (sem er ekkert annað en skipulegt hryðjuverk), þá er um trútt mál að tala um frið eða stofnun ríkis. En mikið er nú furðulegur þessi áhugi sumra Íslendinga á Palestínu, landi sem aldrei hefur verið til og þjóð sem fyrst varð til eftir að Ísraelsríki var stofnað á ný. Hvar var annars stuðningurinn frá Samfaraflokknun, Þegar Súdanar slátruðu fólki í Darfúr. Það vantar þráð í þetta, eins og hann og glóruna vantar í núverandi ríkisstjórn á Íslandi.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.10.2011 kl. 11:18

12 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Áróðursstríðið skiptir máli, Villi minn. Ef menn kæra sig ekki um að fara niður á slátrunarstigið er orrustan um sálir mannanna það mikilvægasta. Þegar Ísraelsríki var stofnað var samúð heimsins með íbúum þess. Nú er ekki svo. Hvað fór úrskeiðis?

Sæmundur Bjarnason, 24.10.2011 kl. 12:28

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæmundur, þið "morðingjarnir" á Vesturlöndum, eruð búnir að gleyma og lærisveinar ykkar, Palestínumenn, ætla að endurtaka söguna um leið og þeir afneita sögunni og segja helförina lygi og telja sig stærstu fórnalömbin fyrr og síðar!

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.10.2011 kl. 12:38

14 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Er þetta nú orðinn slagur um það hverjir eru "stærstu fórnarlömbin?" Þetta er að því leyti rétt hjá þér að Helförin hefur alls ekki sama slagkraft núna og fyrst eftir styrjöldina. Það er reyndar einkum Gyðingum sjálfum að kenna.

Sæmundur Bjarnason, 24.10.2011 kl. 14:03

15 Smámynd: FORNLEIFUR

Nei, ekki aldeilis, Sæmundur. Frekar slagur um hvað ríkisstjórnarviðrinið  á Íslandi ætti að vera að gera í stað þess að nota dýrmætan tíma Íslendinga til að vingast við Hamas og lýsa yfir stuðningi við allar þjóðir heims - nema auðvitað sína eigin.

Nei, maður veit ekki hvaða slagkraft Helförin hefur, fyrr en hún slær mann. En lítil hætta er á því að hún slái þig, þar sem þú veðjar á réttan hest, sýnist mér.

Svo er mikill misskilningur í gangi hjá ykkur Samflykkingarmönnum um að % fyrir Palestínuríki sé eins há alls staðar í heiminum og hún er á Íslandi. Þegar Össur kallinn opnar fleiri kafla hér á haustmánuðum verður hafist handa í ESB að rannsaka stuðning hans við Hamas, sem er ekki í samræmi við neina kafla í draumalandi Össurar.

FORNLEIFUR, 24.10.2011 kl. 15:32

16 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Villi, ég er ekki sérfróður um Palestínu og fjarri því að það land sé með mínum helstu áhugamálum. Palestínumenn njóta að ég held meirhlutafylgis víðast í hinum vestræna heimi. Vestræni heimurinn er oftast nær "alþjóðasamfélagið", eins og þú veist. Uppnefni og annar hávaði skilar þér engu. Veit ekki hvað þú átt við þegar þú talar um "réttan hest".

Sæmundur Bjarnason, 24.10.2011 kl. 20:59

17 identicon

David Pollok heter en amerikansk expert på opinionen i Mellanöstern. Han har 20 års erfarenhet av opinionsundersökningar i denna världsdel. Nu har han frågat de ca 300.000 palestinier som bor i Östra Jerusalem om deras inställning till utropandet av en egen stat. Genomgående svar är att de inte tror att ansökan ger någoting alls, inget blir bättre av att gå den vägen.

Intressant är att ca hälften av dessa 300.000 svarar att om de får välja vill de hellre bli medborgare i Israel. Den andra hälften vill heller tillhöra en palestinsk stat men det är främst en önskan om en nationell identifikation och tillhörighet.

S.H. (IP-tala skráð) 30.10.2011 kl. 13:46

18 identicon

Ursäkta dr Vilhjalmur att jag skriver på svenska och fortsätter att vara anomym.

Denna grupp palestinier som här talas om är en priviligerad grupp de kan resa fritt både på Västbanken och i Israel , de kan korsa muren och de har tillgång till sjukvård , äldrevård och skolor.

Det är inte som propagandisten och Sveinn Runar Hauksson orerade om i RUVprogrammet Hringsol påstod att palestinier i Östra Jerusalem inte skulle ha tillgång till sjukvård i Israel. Det är en lögn som han helt oemotsagd fick framföra i radio för något år sedan.

S.H. (IP-tala skráð) 30.10.2011 kl. 13:57

19 identicon

Till Saemundur vill jag säga följande:

Man kan inte förstå det judiska folket om man inte är medveten och beaktar förföljelsen av detta folk i sekler genom pogromer och bortjagandet från Spanien och sedan kulmen med Holocaust.Efter upprättandet av staten Israel har den judiska staten och dess invånare hotats med utplåning av sina grannar, de omkringliggande och fientliga arabstaterna. Och när Arafat avvisade fredsförhandlingarna i Camp David år 2000 deklarerade han att" nu stod en miljon självmordbombare beredda att ge sig till Jerusalem för att spränga judarna i luften".

Det är ganska obehagligt att läsa ditt inlägg om hur "juderna skulle ha tjänat mest på Förintelsen" som du uttrycker det.

S.H. (IP-tala skráð) 30.10.2011 kl. 14:12

20 identicon

Läses:

Det är inte som propagandisten och( ja, här var det ett kraftuttryck) Sveinn Runar Hauksson orerade om i RUVprogrammet Hringsol där han påstod att palestinier i

Östra Jerusalem osv......

S.H. (IP-tala skráð) 30.10.2011 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband