Leita í fréttum mbl.is

17 gyđingar í brunni

Jewish scull in Norwich
 

Fundist hafa leifar 17 manns í brunni einum í bćnum Norwich í Austur-Anglíu á Englandi. Taliđ er nćr fullvisst ađ um beinagrindur gyđinga sé ađ rćđa og ađ ţeir hafi veriđ myrtir í ofsóknum og kastađ í brunninn. Fullorđnum neđst og 11 börnum á aldrinum tveggja til fimmtán ára ofan á. Ég ţekki dálítiđ til í Norwich. Áriđ 1986 kom ég ţar fyrst á skólaferđalagi međ deild minni viđ háskólann í Árósum, ţegar ég hafđi nýlokiđ kandídatsprófi. Viđ gáfum síđar út í lítilli gulri bók frćđilega fyrirlestra okkar sem viđ héldum viđ ýmsar miđaldaminjar. Ég međhöndlađi m.a. sögu gyđinga og leifar eftir fyrsta skeiđ búsetu ţeirra á Bretlandseyjum.

Gyđingar komu snemma til Bretlandseyja, međ Vilhjálmi bastarđi og Normönnum, og settust ađ í stćrri bćjum landsins, allt norđur til Jórvíkur. Um miđja 12. öld var Norwich nćststćrsta borg Englands og margir gyđingar áttu ţar heima. Gyđingar á Bretlandseyjum, eins og víđa annars stađar, máttu ekki stunda hvađa vinnu sem var, og voru ţess vegna margir í peningaviđskiptum og lánastarfsemi, sem var bćđi syndugt og illa séđ iđja af kirkjunni, sem sló ţó gjarna lán hjá gyđingum. Gyđingar á Bretlandseyjum lánuđu fé til ýmissa mikilvćgra framkvćmda á fyrri hluta miđalda, eđa ţangađ ţeir allir, um ţađ bil 16.000 ađ tölu, voru gerđir brottrćkir frá Bretlandseyjum ţann 18. júlí áriđ 1290. Eins og annars stađar voru ofsóknir gegn gyđingum algengar á Bretlandseyjum og var tiltölulega auđvelt fyrir skuldunauta gyđinga ađ snúa lýđnum gegn ţeim og hrinda ađ stađ ofsóknum gegn ţeim, sem enduđu t.d. međ ţví ađ 150 ţeirra voru brenndir inni í Clifford-Turni í Jórvík áriđ 1190, eđa ţeim var kastađ í brunna eđa ţeir brenndir á báli.

Burning_Jews

Margar heimildir eru til um veru gyđinga í Norwich, bćđi  ritađar og fornleifar. Gyđingar bjuggu viđ og umhverfis Haymarket-torg, sem er enn í dag ađalmarkađstorg Norwichborgar. Fornleifarannsóknir hafa stađfest búsetu ţeirra ţar. Eina gatan á Bretlandseyjum sem ber heitiđ Synagogue Street er ađ finna í Norwich. Frćgur ketill úr bronsi frá Frakklandi međ áletrun á hebresku hefur fundist í Norwich.

Pottur

Einn fremsti fjármálamađur Bretlands á 12 öld var Eliab, einnig ţekktur sem Jurnett, sem lánađi fé til bygginga fjölda kirkna og klaustra. Líklega til ađ komast hjá ţví ađ borga honum, var hann flćmdur úr landi međ ţví ađ krefjast af honum 6000 mörk og fékk ekki ađ snúa aftur fyrr en hann hafđi greitt 2000 ţeirra. Svo ekki hefur öll lánastarfsemi gyđinga veriđ arđbćr, og í sumum tilfellum hefur hún kostađ ţá lífiđ og kannski valdiđ ţví ađ ţeir fengu vota gröf í brunni í Norwich. 

TaxRoll
klikkiđ tvisvar sinnum á myndina til ađ sjá hana stćrri

Til er skopmynd af Isaak fill Jurnett, syni Eliabs í skattalista Norwich frá 1233, ţar sem gyđingar bćjarins eru hćddir og Isaak sýndur sem ţríhöfđa konungur. Í Norwich er enn til hús sem kallađ er Music Hall,sem er taliđ vera afbökun á Moishe Hall og telja sumir, ađ húsiđ sé ađ grunni til ţađ hús sem Isaak Jurnett bjó í á 13. öld.

Gyđingum í Norwich var kennt um barnaníđ og morđ áriđ 1144, ţegar 12 ár drengur, Vilhjálmur, hvarf. Ţótt aldrei hafi sannast ađ hann hefđi veriđ myrtur, og líklegra sé, ađ hann hafi veriđ grafinn lifandi af ćttingjum sínum sem héldu ađ hann vćri látinn, ţá komu upp svipađar ásakanir á hendur gyđingum á nćstu árum víđs vegar um Bretland. Vilhjálmur var tekinn í dýrđlinga tölu. Gćti veriđ, ađ líkin í brunninum séu afleiđing múgćsingar og hýsteríu sem greip um sig á Bretlandseyjum á 12. öld? Ekki ólíkt og í dag á Íslandi, ţar sem rökin eru ađ barnaníđ hljóti ađ hafi veriđ framin undir vćng kaţólsku kirkjunnar vegna ţess ađ ţađ hefur veriđ framiđ í öđrum löndum, var gyđingum kennt um barnahvarf á miđöldum og alveg fram á síđustu öld. Á miđöldum ţurfti ekki sannanna viđ frekar en hjá Guđrúnu Ögmundsdóttur í dag í tengslum viđ barnaníđingsásakanir á hendur kaţólsku kirkjunni á Íslandi. Nóg var bara ađ hafa heyrt eitthvađ, sannanir skiptu ekki máli.

Ţar til nýlega var gyđingum kastađ í brunna víđs vegar um Evrópu. Eftir ađ álfan gerđist siđmenntađri er orđinn heimsfrćgur smellur Borats um ađ kasta gyđingum í brunna í „heimalandi" hans Kasakstan, sem fékk misjafna dóma í Bandaríkjunum. Ef ekki hefđi komiđ svo góđ vatnsveita á Íslandi, hefđu menn líklega veriđ ađ kasta fólki í brunna og ásaka ţađ um ađ hafa stráđ glerbrotum í smjöriđ, sem var t.d. afar vinsćl ásökun í Sovétríkjunum fram undir 1950. Horfiđ á Borat. Myndin efst er af vísindakonum međ hauskúpu gyđings (konu) frá Norwich:


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband