Leita í fréttum mbl.is

68 % óvissa í íslenskri fornleifafrćđi

Kvarnarsteinn í Vogi

Svo flottri prósentu geta hefđbundnir landnámsáhangendur ekki hamlađ gegn. Eđa hvađ?

Hér er kollega minn dr. Bjarni F. Einarsson örugglega ađ vitna í niđurstöđu á kalíbreringu (leiđréttingu/umreikun) á einni (1) niđurstöđu úr kolefnisaldursgreiningu (frá Beta rannsóknarstofunni, rannsóknarstofu sem ég myndi halda mig frá) viđ ein stađalfrávik (68%), og ţá er breidd aldursgreiningarinnar 770-880 e. Kr (skv. Beta). En viđ 2 stađalfrávik er breidd aldursgreiningarinnar auđvitađ nokkuđ meiri. Ţađ fer ađ sjálfsögđu eftir mćlingarniđurstöđunni, C14 aldrinum, sem í ţessu tilviki er 1220 ± 40 ár, hve ónákvćm kolefnisaldursgreining svo verđur, ţví C14 kúrfan er ekki Bell-kúrfa eins og flestir vita.

C-14 var mjög mismikiđ á jörđinni á hinum mismunandi tímum. Viđ tvö stađalfrávik (95%) er niđurstađan á mćlingarniđurstöđunni samkvćmt WinCal25 forritinu frá háskólanum í Groningen 688-890 e.Kr. Cal. Sjá leiđréttinguna á niđurstöđu aldursgreiningunni frá Vogi viđ 2 stađalfrávik (2 sigma) međ ţví ađ klikka hér. Aldursgreiningin frá Vogi styđur ađ mínu mati, ađ landnámiđ hafi átt sér stađ á 9. öld, eđa fyrr, en aldursgreiningin er alls ekki heimild sem gefur ástćđu til ađ lýsa yfir byltingu í íslenskri sögu.

Svo verđum viđ auđvitađ ađ vita hvađa efni Bjarni lét greina, til ađ skilja niđurstöđuna. Hvađ er ţađ "charred material", brennda efni???, sem Beta Laboratories i Bandaríkjunum fékk frá Bjarna F. Einarssyni? 

68%in hans Bjarna eru mér ţví jafn óskiljanleg og 68 kynslóđin.

Vogur-nr_-31-kopia

Ef skáli Bjarna í Vogi í Höfnum, hefur veriđ verstöđ veiđimanna sem komu til Íslands eftir rostungstönn, fugli og eggjum, ţá er mér hulin ráđgáta af hverju ţeir voru ađ hafa fyrir ţví ađ vera međ kvarnarstein úr íslenskum steini, sem ég sá í Vogi ţegar ég kom ţar viđ sumariđ 2009. Tóku veiđimennirnir međ sér korn, og hjuggu kvarnarstein úr íslensku grjóti međan ţeir voru á veiđum? Kvarnarsteinninn er líka mjög eyddur og sýnir ţađ mér ađ búsetan í Vogi gćti hafa veriđ nokkuđ löng - áđur en menn fundu sér minna vindrassgat ađ búa á. Mér finnst tilgáta Bjarna um mikilvćgi Íslands til veiđa á 8. öld langsótt og sýna kannski óskhyggju ESB-sinnans í dag meira en nokkuđ annađ. ESB-sinninn heldur ađ Ísland sé ómissandi fyrir ţjóđir Evrópu.

Bjarni er međal hćstu fornleifafrćđinga á Íslandi og fremstu og miklu skemmtilegri frćđimađur en sagnfrćđingurinn sem fyrir slysni ? var gerđur ađ prófessor í fornleifafrćđi viđ HÍ. Bjarni er alltaf til í ađ rćđa niđurstöđur og er alţýđlegur frćđimađur. En ţessa skýringu Bjarna kaupi ég ekki gangrýnislaust, enda er Bjarni mun varfćrnari á heimasíđu fyrirtćkis síns, Fornleifafrćđistofunni.

Mynd: 

Ţessi mynd var tekin er Bjarni stökk á Stöng, međ heilabúiđ tćpra 6 metra yfir landnámi. Bjarni hjálpađi mér dyggilega ţar á lokasprettinum síđla sumars áriđ 1992, ţegar ég átti eftir mikilvćg verkefni og hjálparfólkiđ mitt var ađ hverfa úr landi í nám eđa í próf viđ HÍ. Á Stöng fundum viđ landnám rétt ofan á landnámslaginu svokallađa, og er ég 100% klár á ţví.

Bjarni stekkur á Stöng

mbl.is Segir kenningum um landnám hrundiđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guđmundur Ásgeirsson

Vilhjálmur, hafa fornleifafrćđingar almennt ekki frétt af ţví ađ kolefnisađferđin viđ aldursgreiningu er ómarktćk? Ţetta uppgötvuđu eđlisfrćđingar fyrir mörgum árum síđan.

Implications for 14C Dating of the Jenkins-Fischbach Effect and Possible Fluctuation of the Solar Fusion Rate

In addition, the precise value at any given time of the "half-life" of any
unstable isotope-including 14C-must now be considered in doubt
, since the Jenkins-Fischbach effect implies that we may no longer view the decay rate of an isotope as intrinsically governed and therefore a constant of Nature.

Guđmundur Ásgeirsson, 4.6.2011 kl. 14:11

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ekki veit ég hvort ţađ eru mörg ár síđan grein Jenkins & Fischbach et al. kom út (reyndar 2008)http://arxiv.org/PS_cache/arxiv/pdf/0808/0808.3283v1.pdf.

Hún er enn mikiđ rćdd, og freistandi vćri ađ ađhyllast skođanir ţeirra, ţannig ađ hefđbundin forleifafrćđi og gamaldags aldursgreiningarađferđir verđi gert hćrra undir höfđi.

En mér sýnist ađ umrćđunni sé ekki lokiđ og ţví tek ég enn mark á C14 greiningum, ef fornleifafrćđingar og stofurnar sem framkvćma greiningarnar sýna fyllstu varkárni viđ túlkun niđurstađna. Ţađ hefur Bjarni ekki gert og Beta Laboratories er lab sem ég myndi aldrei nota.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.6.2011 kl. 14:40

3 Smámynd: Guđmundur Ásgeirsson

Takk fyrir ţetta upplýsandi svar. Ţađ er ágćtt ađ vita til ţess ađ menn setji fyrirvara viđ niđurstöđur sem byggja á ósönnuđum kenningum.

Ég las fyrst um áhrif sólar á helmingunartíma geislavirkra efna áriđ 2006. Síđan ţá hafa liđiđ fimm ár. Hvort ţađ fellur undir skilgreininguna "mörg ár" má svo deila um. Í tungumálum sumra frumstćđra ćttbálka gildir ađ allt stćrra en einn séu "margir". ;)

Guđmundur Ásgeirsson, 4.6.2011 kl. 15:36

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Mér sýnist nú Guđmundur Ásgeirsson, ađ ţú sért mest ađ vitna í grein eftir mann, sem er ađ reyna ađ misskilja Fischbach og Jenkins. Áhrif sólar á geislavirk efni hafa lengi veriđ ţekkt, en ţau áhrif sem Fischbach og Jenkins hafa hugsanlega sýnt fram á, hafa ekki veriđ kunn.

Umrćđa er í gangi og mér virđist hún vera laus viđ kreddur, ţótt ţú sért ekki laus viđ ţćr og á ţađ viđ margt sem ţú trúir á, sem flokkast undir fábjanalegar samsćriskenningar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.6.2011 kl. 16:57

5 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Međ 99% vissu get ég stađhćft ađ ţú verđur ć fornari í skapi.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 4.6.2011 kl. 17:35

6 Smámynd: Hólmgeir Guđmundsson

Ég man ţetta ekki nógu vel en rámar í ađ hafa heyrt ađ ţađ hafi veriđ aldursgreindur viđur sem fannst í kumli hérlendis. Aldursgreiningin sýndi óvéfengjanlega ađ kumliđ var frá 8. öld sem kollvarpađi viđteknum hugmyndum um landnám Íslands. Aldursgreining á hrossbeinum sem voru í kumlinu sýndu ađ hrossiđ var uppi 300 árum seinna sem kollvarpađi einhverju enn öđru.

Kann einhver ţessa sögu réttari eđa dreymdi mig ţetta?

Hólmgeir Guđmundsson, 4.6.2011 kl. 18:15

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hólmgeir, segđu mér söguna, ţegar ţú ert búinn ađ rannsaka máliđ betur. Man ég ţó ekki eftir ţví ađ íslenskir fornleifafrćđingar hafi sent efni úr kumli í C-14 greiningu. En ég gćti ímyndađ mér ađ niđurstađan fćri á ţann veg sem ţú segir, ef mađur notar lélegar greiningarstofu.

Sigurđur Ţór, ég blćs nú á ţessa greiningu ţína á mér međ norđan 8 stinningskalda. Hann Guđmundur er á fullu í 9/11 og öđru samsćrisrugli og CIA er örugglega á eftir honum međ töluna 12. Ţađ er ekki hćgt ađ rökrćđa viđ hann um suma hluti. En hann hefur fattađ ađ ESB er ekki nógu gott fyrir Íslendinga, en mig grunar ađ hann líti á ţađ sem samsćri.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.6.2011 kl. 19:10

8 Smámynd: Svanur Gísli Ţorkelsson

Ćtli Hólmgeir eigi ekki viđ ţessi atvik sem lýst er svona á Vísindavefnum;

Á fyrra ári birtist í Árbók Fornleifafélagsins fyrir áriđ 1998 lítil grein eftir Guđmund Ólafsson ţar sem lýst var niđurstöđum C-14 aldursgreininga á sýnum úr hellinum Víđgelmi í Hallmundarhrauni. Um var ađ rćđa annars vegar kýrbein og hins vegar salla af birkikolum frá ţeim tíma er kýrin var sođin yfir viđareldi. Hallmundarhraun liggur ofan á fyrrnefndu landnámslagi međ ţunnum jarđvegi á milli, ţannig ađ ţađ er sennilegast frá 10. öld — og eldri getur hellirinn ekki veriđ. Samkvćmt geislakolsmćlingu reyndust 95% líkur fyrir ţví ađ beinin vćru frá 890-1020, en birkikolin hins vegar frá 690-890 (!). Samkvćmt ţessu eru ekki öll kurl komin til grafar í ţessu máli

Svanur Gísli Ţorkelsson, 4.6.2011 kl. 20:17

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Jú Svanur, birki verđur eldra en kýr, og birkiđ getur veriđ gamalt sprek ţegar ţađ var brennt. Ţessu lýsti ég í grein í Acta Archaeologica á síđustu öld:

“The Early Settlement of Iceland: Wishful Thinking or an Archaeological

Innovation”. Acta Archaeologica 62 - 1991, 167-181.

“The Application of Dating Methods in Icelandic Archaeology”. Acta

Archaeologica 61, s. 97-107.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.6.2011 kl. 20:26

10 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Er ekki Páll Theodórsson eitthvađ ađ bauka međ aldursgreiningar undir Hvalfjarđargöngunum? Minnir ađ sagt hafi veriđ ađ ţćr ađferđir vćru mun nákvćmari greining en C14 gefur. Hvađa isotopar voru notađir get ég hins vegar ekki rifjađ upp. 

Ragnhildur Kolka, 5.6.2011 kl. 09:22

11 Smámynd: Hólmgeir Guđmundsson

Ćjá, varlega skyldi mađur fćra í letur ţađ sem hann rámar í.

Hólmgeir Guđmundsson, 5.6.2011 kl. 12:45

12 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ţađ sem vantar á Íslandi er 680% meira fé til úrvinnslu fornleifarannsókna.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.6.2011 kl. 08:07

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband