5.2.2007 | 16:55
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz
Þór Daníel Schlesinger og Margrét Vigdís Árnadóttir
Þór Daníel Schlesinger fæddist í Kaupmannahöfn 12. nóvember árið 1940. Foreldrar hans voru þau Fritz Schlesinger (f. 1896), þýskur gyðingur á flótta, og Margrét Vigdís Árnadóttir (f. 1910). Margrét féll fyrir Fritz, þótt hann væri mun eldri en hún. Fritz var afar geðslegur maður, greindur og fyndinn. Eftir innrás Þjóðverja í Danmörku faldi Margrét Vigdís Fritz sinn í íbúð sinni. Hann fór huldu höfði í Kaupmannahöfn árin 1940-41.
Eftir að Þór Daníel fæddist upplýsti Margrét til að byrja með, að faðir drengsins væri breskur þegn. Fritz Schlesinger var síðar handsamaður í íbúð Margrétar og var ásamt öðrum dæmdur fyrir tilraun til fjárkúgunar, sem reyndar var aldrei hrint í framkvæmd. Margrét fékk 5 ára skilorðsbundinn dóm fyrir að hafa falið flóttamann í íbúð sinni, dóm sem byggði á lagabreytinum, sem danskir kratar höfðu ólmir mælt með vorið 1940.
Dómur Margrétar er einn harðasti dómur sinnar tegundar í Danmörku. Fritz Schlesinger sat í dönsku fangelsi fram til 1943. Þá vísuðu Danir honum úr landi. Skömmu síðar var hann myrtur í Auschwitz. Ég fer ítarlega í saumana á sögu hans, Margrétar og Þórs Daníels í bók minni Medaljens Bagside, sem kom út í Danmörku árið 2005. 12 dögum eftir að bók mín kom út baðst danski forsætisráðherrann afsökunar, fyrir hönd þjóðar sinnar, á meðferð danskra yfirvalda á flóttamönnum er sendir voru í dauðann á árunum 1940-43.
Skömmu eftir Heimsstyrjöldina fluttist Margrét búferlum með son sinn til Íslands. Þór litli var augasteinn móður sinnar, fínlegur drengur sem elskaði tónlist. Austur á Hallormsstað veiktist Þór. Hann dó úr krabbameini aðeins 10 ára gamall. Þór var aldrei skráður í þjóðskrá eða í kirkjubækur á Íslandi. Hann er aðeins að finna í ættartölu og skrám Fossvogskirkjugarðs, þar sem jarðneskar leifar hans hvíla við hlið móður sinnar undir hraunhellu. Áferð hraunhellunnar minnir mig á áferð veggjabrota eins gasklefans í Auschwitz, þar sem faðir hans kann að hafa verið tekinn af lífi. Þegar Þór var borinn til grafar, urðu ættingjar hans að varna móður hans frá því að kasta sér niður í gröf sonar síns í hinni miklu sorg, þess er missir barnið sitt.
Árið 1941 skrifaði Fritz afmæliskort til sonar síns:
"Til Þórs Daníels, 1. árs þann 12. nóvember 1941. Elsku litli drengurinn minn! Þú getur enn ekki lesið þetta, en ég skrifa þér samt á fyrsta afmælisdeginum þínum og sendi þér elskulegustu hamingjuóskir, minn eigin litli Þór Daníel. Mamma þín getur kysst þig fyrir mig. Hann pabbi þinn.”
Pabbi Þórs litla var myrtur í útrýmingarbúðum nasista í Auschwitz. Dönsk yfirvöld sendu hann í dauðann.
Þetta var í fyrsta skipti sem saga þeirra feðga var sögð á íslensku. Var það ekki orðið tímabært?
Vonandi eyðilagði ég ekki fyrir ykkur kvöldmatinn, elskurnar mínar.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Menning og listir | Breytt 24.3.2008 kl. 09:17 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-

RAMBAM
Er ritstjóri þessa rits: RAMBAM Ársrit um sögu gyðinga í Danmörku og gyðinglega menningu og fræði. -

Bein Páls Biskups
Kveðskapur -

: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -

Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -

Mótmælum Durban II
Meira -

Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -

: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -

Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -

Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -

: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -

Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -

Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -

Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -

Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -

Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -

Fyrri Færsla
Nifalt húrra -

Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -

Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -

Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -

Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -

En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -

Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -

Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -

Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -

Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -

: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -

: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Fólk
Ég mæli með:
-
Ég mæli með:

Institute for Global Jewish Affairs -
Ég mæli með:

Jerusalem Center for Public Affairs -
Ég mæli með:

MEMRI: Middle East Media Research Institute -
Ég mæli með:

UN Watch -
Ég mæli með:

Zionism on the Web
Gyðingahatur
-
Gyðingahatur

Skilgreining EUMC á gyðingahatri. Hollar upplýsingar fyrir Íslendinga.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 639
- Sl. sólarhring: 672
- Sl. viku: 1802
- Frá upphafi: 566800
Annað
- Innlit í dag: 391
- Innlit sl. viku: 1109
- Gestir í dag: 369
- IP-tölur í dag: 335
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Bloggvinir
-
Aðalbjörn Leifsson
-
Alexander Kristófer Gústafsson
-
Anna Karlsdóttir
-
Arnar Guðmundsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Böðvarsdóttir
-
Bwahahaha...
-
Carlos Ferrer
-
Einar G Harðarson
-
Eyþór Arnalds
-
Faktor
-
Frk. Laxmýr
-
Gestur Halldórsson
-
Gisli Freyr Valdórsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
gudni.is
-
Guðjón Baldursson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Guðmundur Magnússon
-
Guðmundur Pálsson
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gulli litli
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnlaugur Snær Ólafsson
-
Gunnsteinn Þórisson
-
Halldór Jónsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hans Haraldsson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Sigurðsson
-
Haugurinn bloggar
-
Heimir Eyvindarson
-
Helena Leifsdóttir
-
Helgi Seljan
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Himmalingur
-
Hjörtur J. Guðmundsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Hvítur á leik
-
Hörður Finnbogason
-
Ívar Pálsson
-
Jakob
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Þór Ólafsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Leikhópurinn Lotta
-
Linda
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
Mr. Jón Scout Commander
-
Ólafur fannberg
-
Ólafur Jóhannsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Valgeirsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pétur Björgvin
-
Pétur Guðmundur Ingimarsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Haraldur Sigurðsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Rauða Ljónið
-
Róbert Björnsson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rýnir
-
Sif Gylfadóttir
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Sigurður Rúnar Sæmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Sindri Guðjónsson
-
Snorri Bergz
-
Snorri Óskarsson
-
Sveinn Tryggvason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Toshiki Toma
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Hjaltason
-
Upprétti Apinn
-
Vefritid
-
Þórarinn Sigurðsson
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Þráinn Jökull Elísson
Eldri færslur
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007


Athugasemdir
Nei, svo sannarlega eyðilagðirðu ekki þessa stund fyrir mér, Vilhjálmur. Þetta var átakanleg frásögn, en eins og Býr Íslendingur hér? var þetta til þess eins að finna meiri samlíðan með öðrum, öðlast djúpa samúð og hluttekningu með þeim sem maður áður vissi ekki einu sinni af. Þér er ekki aðeins lagið að vinna sem rannsóknarblaðamaður og beyglaus sagnfræðingur sem kerfisbundið mokar rykið ofan af glæpum fortíðar, heldur ertu stílisti og góður sögumaður í þokkabót. Haltu áfram að fylla upp í danska sögu og afhjúpa hræsni og feluleik með óþægilegar staðreyndir, þar sem hér, -- og þakka þér samstöðuna með hinni gömlu þjóð Guðs. Með góðri kveðju,
Jón Valur Jensson, 17.2.2007 kl. 02:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.