Leita í fréttum mbl.is

Þjóðkirkjan á afvegum

 

Á vefnum tru.is sem haldið er úti af Þjóðkirkjunni, sýna nokkrir íslenskir prestar að þeir taka afgerandi pólitíska afstöðu, og það afar neikvæða gegn Ísraelsríki, og greinilega án haldbærra raka. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir prestur og Samfylkingarmeðlimur skrifaði nýlega grein um litlu börnin á Gaza.  Langar mig að biðja hana og aðra lesendur mína að skoða myndbandi hér fyrir ofan með opnum hug. Það lýsir mjög vel því hvernig komið er fyrir börnum á Gaza.  Steinunn Arnþrúður spyr sig, hvort drengur sem hún birtir mynd af sér með sé enn á lífi. Arnþrúður, hvernig væri að ganga úr skugga um það, í stað þess að misnota hann í færslu sem er ætlað að sverta Ísraelsríki, og ekkert annað?

Steinunn og litli
Séra Steinunn með dreng sem hún leitar ekki að

 

Þorgeir Arason, prestlingur austur á landi, hefur villst í þokunni þar eystra. Hann er að kenna hvaða skilning menn leggja í hugtakið „Guðs útvalda þjóð", án þess að hann geri sér grein fyrir því hvað það hugtak þýðir í trú og guðfræði gyðinga. Þorgeir vill ekki heyra rök og fjarlægir athugasemdir sem honum henta ekki.  Þorgeir ungprestur skrifar: „Ljóst er að farþegar í skipalestinni [til Gaza] hafi ekki brugðist friðsamlega við truflun Ísraelsmanna, en eftir stendur sá ásetningur ísraelsku árásarmannanna, að gera þeim óleik, sem vildu standa með þjáðum Palestínumönnum". 

Þetta er auðvitað ekkert annað en ógeðfelld lygi, sem Þorgeir Arason mun verða að svara fyrir, ef ekki í þessu lífi, þá örugglega frammi fyrir þeim Guði sem hann þjónar. Hann sleppur vart við það, ó nei! Elsku litli presturinn minn, lestu þér til um það sem þú skrifar áður en þú gerir það. Am Nivchar  er ekki það sem fordómar þínir telja að það sé.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róbert Björnsson

Heill og sæll Vilhjálmur,

Nú ætla ég ekki að kommenta á hvað kirkjunnar menn láta út úr sér enda er ég bæði trúlaus með öllu og öfugur í þokkabót svo ég er vanur að heyra presta ausa úr skálum "visku" sinnar án þess að kippa mér mikið upp við það...enda tilheyri ég ekki þessu ríkis-apparati sem þjóðkirkjan er.

Þó finnst mér í þessu samhengi ástæðulaust af þér að segja að þessar skoðanir umræddra presta komi Þjóðkirkjunni nokkuð við, enda ríkir væntanlega enn skoðana og málfrelsi meðal presta jafnt sem annara þegna Klakans.

Það sem veldur mér hins vegar nokkrum heilabrotum er af hverju þú sérð allar gagnrýnisraddir á hið veraldlega ríki Ísraels, sem sumar hverjar eru réttlætanlegar og aðrar ekki eins og gengur, sem árás á Gyðinga og/eða Gyðingahatur!?

Nú er það svo að ég á nokkra góða kunningja sem eru gyðingar (frá USA) og mér hefur sýnst að gyðingar séu upp til hópa hvorki betra né verra fólk en aðrir.  Það sem gerir fólk að fíflum er trúarofstæki, hvort sem það eru Íslamistar, Kristlingar eða harðlínu-"júðar" (afsakaðu orðbragðið - en þú hefur sjálfur notað neikvæð orð um ýmsa minnihlutahópa...so up yours).

Ég er að mörgu leiti jákvæður gagnvart Ísraels-ríki...þetta er jú eina lýðræðisríkið í mið-austurlöndum (og mannréttindi samkynhneigðra eru þar með skásta móti)... en vinsamlegast ekki taka allri gagnrýni á Ísrael sem "gyðinga-hatri".

Ísrael hefur beitt Palestínu-araba miklu harðræði í gegnum tíðina og það þýðir ekkert að bendla gagnrýni á Ísrael við gyðinga-hatur í því samhengi.  Þó svo Hitler hafi verið vondur við ykkur hér í den þá býðst ykkur ekki að nota það sem afsökun við hvers konar stríðsglæpum og búast við því að umheimurinn fyrirgefi ykkur allt í nafni samúðar vegna Helfararinnar.

Ef Ísrael vill vera þjóð meðal þjóða þá verður það að hegða sér samkvæmt alþjóðlegum samþykktum um mannlega hegðun.  

Þú virðist vera voðalega fastur í þeirri hugsun að öll gagnrýni á Ísrael sé gyðinga-hatur... það er bara ekki rétt.  Það skiptir ekki máli hvort það er trúleysingi, gyðingur, nasisti, íslamisti eða kristlingur sem fremur voðaverk... glæpur er glæpur og því miður á Ísrael ýmislegt skuggalegt á samviskunni.

Róbert Björnsson, 11.6.2010 kl. 23:47

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hvar eru rökin þín Róbert? Hvaða neikvæð orð nota ég um minnihlutahópa? Mig langar í dæmi um það. Ertu ekki búinn að búa of lengi í BNA? þar sem má ekki kalla fólk það sama og það kallar sig sjálft, meðan allir kalla gyðinga "kikes" og hlæja. En dæmi takk!

Skoðanir prestanna tveggja, sem ég tók sem dæmi af www.tru.is, eru kynntar á vef Þjóðkirkjunnar. Kirkjan og biskupsstofa leggur því blessun sína yfir þær. Persónulegar árásir á mig sem komu frá ólánssömum presti án kalls á þessum vef um daginn voru fjarlægðar af umsjónamanni vefsins á Biskupsstofu. En árásir á heilt ríki og þjóð eru ekki fjarlægðar, þó svo að þær eigi ekki við rök að styðjast og hafi sýnt sig að vera of stórorð og skrifuð áður en hið sanna kom í ljós. Þetta eru ekki einu prestarnir sem sýna vanþekkingu og þóttafullar skoðanir á Ísraelsríki og ástandinu í kringum landið. Prestar eru í mjög valdamikilli stöðu hvað varðar skoðanamótun. Þeir geta, ef þeir vilja, heilaþvegið heilu kynslóðirnar á fermingaraldri. Prestar eiga heldur skv. eigin vinnureglum ekki að ljúga í málflutningi sínum.

Róbert, þú skilur greinilega ekki, að það eru vinstrimenn, nasistar og öfgamúslímar sem nota allir samlíkingar á Hitler-þýskalandi við Ísrael og það eru sömu hóparnir sem nota sömu sömu orðin og frasana og sömu teiknimyndirnar, sem notaðir voru í Hitler-Þýskalandi. Sumir afneita því meira að segja, að Gyðingar hafi verið ofsóttir í Evrópu. En á Ísraelsríki og Gyðinga, borgara Ísraelsríkis er settur sá stimpill að ríkið sé samsvörun við Þýskaland nasismans og íbúarnir séu að gera það sama við aðra, sem gert var við þá og forfeður þeirra.  Allir þessir hópar, og þú, vaðið í villu. Það er ekki Ísrael sem vill útrýma Palestínumönnum. Það eru flestir Palestínumenn og stór hluti hins múslímska heims sem ætlar vill og ætlar sér jafnvel að útrýma gyðingum. Hlægilegur hópur hatramms fólks á vesturlöndum skrækir svo  hásum rómi með og heimtar að Gyðingar flytji heim - til Þýskalands, Póllands, Úkraínu, osfr.  Vilja men fá féð heim til að slátra því aftur? Því miður, það er bara ekki til í dæminu.

Löndin sem Gyðingar voru á flótta í gegnum aldirnar geta hins vegar leitt það af sér, að gyðingar sem í Ísraelsríki búa geti búið þar í friði án þess að verða fyrir árás fólks með miðaldahugsunarhátt og hatursofsa.

Þær samlýkingar sem þú gerir þig sekan um að setja fram hér og verja, eru í ESB taldar til gyðingahaturs. Það að líkja Ísraelsríki við Þýskaland nasismans. Í ESB liggja fyrir sáttmálar um skilgreiningu á því krabbameini og öfundsýki sem gyðingahatur er. Þeir sáttmálar eru ef til vill það eina sem hollt væri fyrir Ísland að lána frá ESB?  

Ísrael framdi engan glæp á Mavis Marmaris. Ísrael hefur rétt til að verja sig gagnvart hópum sem styðja vilja alþjóðleg glæpasamtök, sem með andgyðinglega stjórnarskrá telja eyðingu Ísraelsríkis og fjöldamorð á gyðingum hvar sem í þá næst mikilvægasta verkefni sitt.

Kæmi einhver að ströndum þínum, sem styddi ríki sem eyða vildi Íslandi, hvað myndir þú gera?

Hatur og gagnrýni á Ísrael, sem í þínu tilfelli er varið með rökleysu, getur því líka verið gyðingahatur. Ef maður styður stjórnvöld eða samtök sem yfirlýst ætla sér að eyða Ísraelsríki og sem veldur dauða fjölda Ísraelsmanna á hverju ári, þrátt fyrir hernaðarlega yfirburði Ísraels, þá er maður að sjálfsögðu gyðingahatari. Í Ísraelsríki ("veraldlegu") búa gyðingar. Ísrael er og verður ríki Gyðinga. Ísraelsþjóðin er ekki á leiðinn heim til "Evrópu".

En kannski hefði besta lausnin verið að deyfa Þjóðverjum um alla Evrópu og Suður-Ameríku, Madagaskar og Úganda eftir stríð og gefa gyðingum Þýskaland og stóran hluta Póllands, svo pólverjar gætu gripið í fast í gyðingahatri sínu. Minna gæti það ekki verið. Og þá gætu Evrópuþjóðir fundir fyrir þýska vandamálinu og talað um helvítis "dojarana", Kraut-svínin, Helmutana. En vandmálið við það er, að það voru ekki bara Þjóðverjar sem áttu sök á örlögum gyðinga í Evrópu. Íslendingar, sem í dag hrópa sömu frasana og menn gerðu í Þýskalandi fyrir 70 árum og sem styðja hryðjuverkasamtök sem útrýma vill gyðingum um leið og þau afneita Helförinni, eru líka meðsekir.

Stundum er einföld þjóðfélagsleg skýring á hatri. Hefur nokkur spurt sig hvað pabbi formanns Palestínuvinafélagsins á Íslandi var í stjórnmálum á stríðsárunum og mikill fjöldi frænda hans úr Kjósinni?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 12.6.2010 kl. 06:43

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þú ert vígfimur maður Vilhjámur og kirkjan, sem gefst upp fyrir hverjum þrýstihópnum á fætur öðrum, á ekki roð í þig.

Ragnhildur Kolka, 12.6.2010 kl. 16:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband