Leita í fréttum mbl.is

Kjósum Æra Tobba

Pq1191hi
Vambara þambara þeysingssprettir
því eru svona margir sjálfstæðiskettir,
agara gagara vinstrigrænum,
illt er að hafa þá marga á bænum.
Rabbabara affþíbara Kratalið
nú vantar aftur rekavið,
rólegan hóflegan laugardag
allt gengur Ólafi ó í hag.
Finn ekki sé ekki Framsóknarsokk
helvítis djöfulsins fukking fokk,
er borginni borgið frá því í dag
eða ber hún aldrei sitt Gnarr eftir það.

 

Samþykkjum aldrei fátækt segja fulltrúar VG fyrir bæjarstjórnakosningarnar. Allir geta verið sammála  um það, og þetta hljómar vissulega líka eins og útrásavíkingar í afneitun.

En eitt er greinilegt, og það er að andleg fátækt er orðin verulega útbreidd á Íslandi. Þar býr þjóð sem lætur viðgangast að stolið sé af henni aleigunni í þrígang og að ráðherra hendi 7 milljörðum á glæ vegna þess að hann vill verða attaníossi í ESB.

Andleg fátækt sýnir sig í stjórnmálum, enda ekki um auðugan garð að gresja, hvað varðar dugmikla menn. Þetta er innantómt femínistalið og sjálfofmetnir smáguttar með froðu í hárinu, fyrir utan þá sem eru með skalla og sem er illt, einstaka menn sem hafa fengið uppreist og einn og einn með Borderline heilkenni.

Því er engin furða að Reykvíkingar ætli sér að kjósa gleðifífl í stað eintómra aumingja. Það getur ekki orðið miklu verra. Fólk heimtar greinilega enn sína skemmtun. Þetta er líka drepfyndið. Íslenskt þjóðfélag í hnotskurn. Einn langur veruleikaflótti fyrir framan sápu í sjónvarpinu eða í jeppa uppi á fjalli.

Myndirnar eru af Jóni Gnarr og hundinum hans, honum Æra Tobba, sem hlakkar til að verða borgastjórafrú. Hann er af tegundinni Borderline og getur sagt Gnarr. Tobbi gerir sér von um sæti í Borgarstjórn. Kjósum Æra Tobba!

Gnarr

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Við eigum langan og litríkan feril í vitleysisgangi en líklega toppar þessi allt. Júróvisjón, forseti vor og Svavarssamningurinn eru skýr dæmi um það.

En að vanda hittir þú naglann á hnéð, sem bregst alltaf við á fyrirsjáanlegan hátt. Hagmælska þín og skörp sýn á tilveruna gæti jafnvel fært þér stöðu hirðskálds hjá Gnarranum og fengir þú þá sæti við fótskör Æra Tobba.

Ef það bregst sé ég ekki betur en geðgeirinn geti notað krafta þína á greiningardeildinni.

Ragnhildur Kolka, 29.5.2010 kl. 10:00

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hressilegur að vanda! Reyndar bæði gróteskur og hálf-súrrealískur og þess vegna í ágætum stíl við þetta ólíkindaástand sem hér ríkir. Boðar þetta endalok lýðræðis á Íslandi, hefur engum dottið það í hug? Mörgum þjóðum þætti ekki púkkandi upp á það, ef trúðaflokkur getur unnið án nokkurra skuldbindinga við kjósendur.

Jón Valur Jensson, 29.5.2010 kl. 22:01

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Elsku Jón Valur og Ragnhildur. Þetta var hræðilegur dagur í sögu lýðræðis á Íslandi og sýnir að Íslendingar voru ekki einu sinni komnir á gelgjuskeið lýðveldisins. Þetta var dagurinn sem fólk gafst upp og kaus innantóma vitleysu yfir sig. Ragnhildur, ég held ég láti þá verulega trufluðu um að verða skáld hirðfíflsins, hins nýja furðufugls við tjörnina.

Nú er reyndar ekki alveg víst að Gnarrpútan komist á geðdeildina við Tjörnina nema til þess að reita af sér brandara eða gefa frá sér bestu búkhljóðin. En segjum svo, að Samflykkingin vængstýfð og matrónan sem eignaðist son fyrir slysni leggist í eina sæng með brandarakarlinum, þá verða nú sæludagar hjá embættismönnum. Það verður algjörlega óstarfhæfur meirihluti.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.5.2010 kl. 06:50

4 identicon

Kveða má að verði úr von

hið versta narr

þegar elur kona af óláni son

sem árum síðar verður Gnarr.

Góða nótt í Evrópusambandið.

K.S. (IP-tala skráð) 31.5.2010 kl. 01:00

5 Smámynd: drilli

ætli þetta verði nokkuð verra en kattafárið í ríkisstjórninni, nú eða þá kverúlantarnir sem allir eru á opinberu framfæri (þessir með hvíta ananasinn um hálsinn ) ?

;-)

drilli, 31.5.2010 kl. 11:45

6 identicon

"Hagmælska þín og skörp sýn á tilveruna......"...já það er gott að eiga vini, sem hrósa manni af og til..... þó viðkomandi hrós eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.....þið eruð dugleg við að sleikja hvort annað upp vinirnir, það verður ekki af ykkur skafið enda nauðsynlegt þegar þið eigið ykkur fáa jábræður og systur.....en þið getið auðvitað alltaf sagt að allir hinir séu fábjánar.....og það gerið þið einmitt óspart!!!

 Það er nokkuð augljóst af þínum skrifum að þú nýtur þín við þau og finnst þú fjandi flottur, þegar þú talar um andlega fátækt, attaníossa, sjálfsofmetna smágutta með froðu í hárinu, gleðifífl, andlega aumingja o.s.frv. Ég get ekki lesið neitt annað út úr þessu en einhverja mikla innibyrgða reiði og biturleika, sem brýst út í þessum ofsafengnu hatursskrifum þínum...það er nánast sama hvað er skrifað um....."hatrið" á gyðingum, ESB, Evruna, Íslendinga, Þjóðminjasafnið, stjórnmál. Mér finnst þú eiginlega hálf brjóstumkennanlegur. Viltu ekki bara slaka aðeins á og horfa á eins og einn þátt með "Fóstbræðrum"? Ég ábyrgist að skapið verður miklu léttara á eftir.... nema auðvitað það sé eitthvað miklu alvarlegra að þér.

Þú sem helsta rassasleikja gyðinga hlýtur að vera komin með voðalega vont bragð á tunguna.....að líta yfir þessa blessuðu síðu þína er sorglegt.... mannhatur, kvikindisskapur, mannfyrirlitning, allir fífl nema þú og þínir skoðanabræður og systur, Jón Valur, Ragnhildur Kolka, Gunnar Rögnvaldsson, Gunnar Waage, Loftur "killer" A. .....dapurlegasta samansafn Íslands af geðstirðustu skoðananauðgurum landsins....ekkert jákvætt....nema auðvitað þegar gyðingi tekst að brytja niður Palestínu mann...konu.... eða barn....þá er gaman.....gyðingunum hefur tekist að ná langt á samúðinni vegna Helfararinnar.....vonandi fer því að linna, það er ekki endalaust hægt að afsaka hryðjuverk gyðinga með henni.....gyðingar hafa drepið margfalt fleiri Palestínumenn en Palestínumenn gyðinga....og hafa stolið af þeim mestu af landi þeirra í gegnum árin......morðingjar og þjófar.....ekki gæfulegt. Ekki mæli ég með því að Ísrael verði þurrkað út af kortinu en það verður að láta gyðingana bera ábyrgð á sínum hryðjuverkum og öðrum óhæfuverkum. Sem getur orðið erfitt meðan gyðingar ráða eins miklu og þeir gera í Bandarískum stjórnmálum og skemmtanaiðnaði, þar sem gyðingar eru undantekingarlaust málaðir fögrum litum. Að lokum......Ísland i ESB!!!

Jón Kristjánsson (IP-tala skráð) 31.5.2010 kl. 13:40

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Jón Kristjánsson hefur haldið ræðu sína um gyðinga 

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 31.5.2010 kl. 15:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband