Leita í fréttum mbl.is

Maður kafnar á falaffelsamloku í Dubai

lítil mynd af litlum karli
 

Dubai er griðastaður glæpahyskis. Ég skil ekki af hverju forseta íslenska lýðveldisins og fyrrverandi klyfjahesti hans og særingameistarans, Össuri utan Ríkis, þyki spennandi að heimsækja Dubai. Forsetafrúin sá á ákveðnu tímabili fyrir sér Dubai  Norðursins á Íslandi, þegar hún var ekki að skammast út í öryggisgæsluna í Ísrael, sem tók bara ekkert tillit til þess að hún segðist vera First Lady of Iceland.

Ég er hins vegar á því, að Dubai sé ekkert annað en bölvað ræningjabæli, þar sem vopnasalar hafa aðsetur og eiga viðskipti við eftirlýsta hryðjuverkamenn. Einn þeirra var Hamas-leiðtoginn sem haldið er fram að hafi verið kæfður í Dubai um daginn. Dubai er einnig staðurinn, þar sem stórar fjárhæðir Íslenskra prangara hafa verið á ferðinni á síðustu árum. Hver er að rannsaka þau viðskipti?

Heimurinn, sem hatar Ísrael, og auðvitað gamli fréttamaðurinn og skrímslafræðingurinn Þorvaldur á fréttastofu RÚV, er að farast vegna þess að meintir Mossad-liðar fóru til Dubai á fölskum vegabréfum og drápu Hamas-leiðtoga frá Al Quassam sveitunum, Mahmoud al-Mabhouh, sem var að kaupa vopn. Hann var að sögn kæfður með púða á lúxusherbergi sínu í Dubai, sem verður að teljast frekar friðsamleg endalok fyrir mann sem í öðru hvoru orði boðaði dauða og hefnd. Í fyrra tók Al Jazeera viðtal við þennan sakleysingja í Damaskus,  þar sem hann sagði m.a.: I am very cautious, thank God. Eventually, only God determines when our lives end. We know the price to going on this path. Vonandi var það vilji Allah sem framfylgt var á hótelinu í Dúbai, þegar Mahmoud kafnaði í falaffelsamloku sinni, var kæfður eða dó úr reiðarslagi með rússneskri vændiskonu inni á herbergi sínu. Einu sinni voru Ísraelar að sækja fjöldamorðingja til Argentínu og út um allar jarðir. Er ekki betra að stoppa þá áður en þeir fremja fjöldamorðin?

Af hverju fagna menn því ekki, að enn einn kaupmaður dauðans er fallinn í valinn? Þetta var maður sem yfirlýst og opinbert vildi útrýma eina lýðræðisríkinu í Miðausturlöndum. Hann var eftirlýstur fyrir hryðjuverk. Hvað er eiginlega að því að leyniþjónusta Ísrael og annarra ríkja ryðji honum úr vegi, ef Dubai tekur hann ekki fastann? Hann hefur vonandi verið eftirlýstur af Interpol eins og meintir banamenn hans eru nú. Hann var meira að segja hættulegur sinni eigin þjóð, sem samkvæmt síðustu fréttum vann með Mossad í því að granda þessum Dúbaifara. En sannanir fyrir því að hann hafi verið myrtur vantar algjörlega. Lögreglan í Dubai er víst líka dálítið dúbíus. Rökin í þessu máli eru eins og í máli týnda drómedarans frá 2006. Engar sannanir og allt rennur út í sandinn. Hverjum er ekki sama um hryðjuverkakaupmanninn Mahmoud al-Mabhouh?

 

Ferðamenn
Ferðamenn í Dubai ?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er svívirðilegt ef leyniþjónustur nota vegabréf saklaus fólks og valda þeim þar með miklum vandræðum. Það er sambland af bleyðiskap og miskunnarleysi. Mossad er glæpasamtök eins og allar aðrar leyniþjónustur. Að drepa fólk með leynd og vita að þeir þurfi aldrei að svara til saka. Ekki er hægt að leggjast lægra. Og hana nú!

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.2.2010 kl. 10:55

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Leyniþjónustur eru því miður nauðsynlegar í þessum heimi, þar sem snarvitlausir menn leggja á ráðin gegn saklausu fólki í nafni einhvers guðs sem þeir taka í gíslingu.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.2.2010 kl. 11:01

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En eru ekki leyniþjónustur af baka saklausu fólki vandræðum, láta það jafnvel verða eftirlýst og skotspón hryðjuverkamanna. Tillitssleysið er algert og það að tilgangurinn helgi meðalið. Svo slakar þetta fólk bara á eftir vel unnið dagsverk meðan aðrir þurfa að líða fyrir gerðir þeirra. Endurtek það sem ég hef áður sagt og hnykki á: Leyniþjónustur eru mestu bleyðusamtök sem fyrirfinnast. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.2.2010 kl. 11:09

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Viltu þá frekar hryðjuverk en verk leyniþjónusta sem miða að því að koma í veg fyrir fjöldamorð?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.2.2010 kl. 11:11

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Vilhjálmur, ég er alveg viss um að nafni minn styður ekki Hamas og vill ekki hryðjuverk, hvað þá fjöldamorð. Ég held að engum manni detti  í hug að þessi aftaka knésetji Hamas hvað þá að hún komi í veg fyrir hryðjuverk. Kannski er hún olía á eld?  Með þessum orðum er ég ekki að þykjast kunna neina lausn. Ég vona bara að gáfaðari menn en ég leggist yfir málið.

Sigurður Þórðarson, 19.2.2010 kl. 11:49

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Það eru þegar margar olíutunnur undir eldinum í þessum heimshluta, Sigurður 2.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.2.2010 kl. 11:59

7 identicon

Já Vilhjálmur, stundum er gott að hafa einfalda söguskoðun, en óttalega þykir mér hún fátækleg. 

Steinþór Kristjánsson (IP-tala skráð) 19.2.2010 kl. 12:25

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Steinþór, þú ert heppin að búa á Íslandi, þar sem menn hafa fallega og góða söguskoðun. Sums staðar, fyrir botni Miðjarðarhafs, eru menn drepnir fyrir að hafa skoðun og trú. Við skulum vona, að við þurfum ekki leyniþjónustu sem drepur.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.2.2010 kl. 13:45

9 identicon

Þessi sendiför MOSSAD var tactical success en því miður stratical failure. Já þau drápu þennan Kakkalakka (vopnasala). En það eru fleiri hundruð svipaðir kakkalakkar tilbúnir að taka við hans störfum. Skaðinn sem MOSSAD gerði fyrir Ísrael er miklu meiri en það gagn sem þeir unnu. Þetta operation var sjálfsmark. Það er lágmark að leyniþjónustumenn séu einmitt í "leyni". En ekki forsíðuefni allra dagblaða heims. En auðvitað er gott að þessi morðingi hafi verið myrtur. En það er samt orðið aukaatriði.

Jón Gunnarsson (IP-tala skráð) 19.2.2010 kl. 23:19

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Málið er einfaldlega það að þegar leyniþjónustur eða ríkisstjórnir eru með einhverjar aðgerðir gegn vafasömum aðilum á það ekki að bitna á saklausum. Það er sjónarmið mitt númer eitt.

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.2.2010 kl. 00:22

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður, að sjálfsögðu þætti mér ekki gaman að lenda í því að vegabréf mitt væri notað á þann hátt. Ég myndi fara í mál og vinna það, en við hvern?

Ég er sammála þér Jón Gunnarsson, þessi sendiför Mossads eða hvers sem það nú var, var afar illa undirbúin. Yoram og Avi ættu að skammast sín fyrir léleg gervi, eða voru það þeir, og Raffi er ljótur án hárs? Ef ég segði þér það sem ég veit, þyrfti ég að skjóta þig, eins og þeir segja sem starfa í þessum bransa.

Meira segi ég ekki í máli þessu, nema að ég gleymdi að segja, að Mahmoud átti auðvitað fjölskyldu, sem missti son, bróður, föður og mann, og sem mun sakna hans sárt. Það gera fjölskyldur fórnalamba hans líka.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 20.2.2010 kl. 06:58

12 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það er svo hverju orði sannara að það eru margar púðurtunnurnar þarna fyrir Miðausturlöndum.  Þessar deilur eru svo harðar að fólk er dregið í dilka og jafnvel fordæmt fyrir að vera af tilteknu þjóðerni, trú eða stjórnmálaskoðun.

Sigurður Þórðarson, 20.2.2010 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband