Leita í fréttum mbl.is

Spýtukarlinn í forsćtisráđuneytinu

pinocchio_di_islanda.jpg

Sigmundur Davíđ Gunnlaugsson, fornleifaráđherra međ meiru, hefur haft nćgan tíma til ađ sanna ađ greiddir hafa veriđ skattar af ţví sem hann og frúin stungu undan í Panama. Gráthlćgilegt vottorđ frá vafasömu endurskođunarfyrirtćki er engin sönnun fyrir einu eđa neinu. Hann getur ekki veriđ undrandi á ţeirri vafasömu heimsfrćgđ sem hann hlýtur nú og skákar ţar međ Björk, sem auđvitađ greiđir skattana sína eins og ţađ sé hluti af eđlilegu Human Behaviour. Vafasöm er sú frćgđ Munda og dregur SDG íslensku ţjóđina hugsanlega međ sér í svađiđ. Líklega er best fyrir sveininn ađ segja af sér, og ganga frá sínum málum í réttarsal en ekki úr pontu á Alţingi Íslendinga.

Fólk, sem ekki greiđir skattana sína, hefur nefnilega ekki eđlilegan áhuga á lýđrćđi. Lýđrćđi felst fyrst og fremst í sameiginlegri ábyrgđ. Án hennar verđa ekki byggđir spítalar og engir peningar koma til t.d. löggćslu. Ábyrgđarleysi SDG sýnir ekki lýđrćđisvilja. Furđulegt er ţví ađ sjá ađ mađur, sem lýsir frati á samábyrgđ lýđrćđisríkja, geti skipađ lögreglunni í landi sínu ađ urra á norska blađamenn sem vilja spyrja ráđherrann eđlilegra spurninga. SDG hefur í raun engan rétt til ađ leita til lögreglunnar, ţví hann greiđir ekki til hennar eins og ađrir ţegnar ţjóđfélagsins -- nema ađ hann geti sýnt okkur eitthvađ annađ en gúmmívottorđiđ frá endurskođunarfyrirtćki međ langan glćpaferil í fjölda landa.

Oft hef ég skrifađ um undarlegt athćfi SDG fornleifaráđherra á blogginu Fornleifi (sjá t.d. hér). Mađurinn hefur í raun rústađ minjamálum á Íslandi međ brennuvargi sem stjórnar Ţjóđminjasafninu. Ţví kemur mér ţađ ekki á óvart ađ hann sé til vandrćđa annars stađar en í ţví sem ég ţekki best. Ég tel mig vera örlítiđ til hćgri viđ miđju í stjórnmálaskođunum,en ég get ekki svariđ af mér kratablóđ í báđum ćttum. Ég er einnig fullviss um ađ Sigmundur sé hvergi í stjórnmálum. Hann er ţar bara fyrir sjálfan sig.


mbl.is Rćđa hćfi Sigmundar Davíđs
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 4. apríl 2016

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband