Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Öfgar á Íslandi

Allt er gott í hófi

eitur

 

Nú berast fréttir af því að Omega 3 sé (mögulega) krabbameinsvaldandi. Slíka pillu eiga sannir Íslendingar, sem þamba lýsi og éta Omega 3 í öll mál, erfitt með að kyngja. En ef Omega 3 fitusýra er tekin inn sem fæðubót og til heilsubóta eiga menn nú á hættu að lenda á krabbameinsdeildinni.

Fyrir skömmu kom ég inn á aðrar hættur sem vísindamenn í Danmörku hafa tengt Omega 3. Sjá hér. Lítið, ef nokkuð, var greint frá þeim niðurstöðum í íslenskum fjölmiðlum. 

Það er kannski orðið hollara að reykja en að fylla sig af lýsi (ljósaolíu)? Allt er gott í hófi eins og kerlingin sagði.

Poisson Poison

Enn lýgur RÚV

6079348-lars-hedegaard-frifundet-for-racisme
 

Í fréttaflutningi af morðtilræðinu í gær gegn Lars Hedegard, greindi RÚV rangt frá. Þá var sagt að hann væri "þekktur fyrir að gagnrýna múslíma" og hafi verið "dæmdur fyrir hatursáróður vegna ummæla sem hann lét falla um trú þeirra" svo notuð séu orðin í fréttum sjónvarps í gærkvöldi.

Í landi dómstóls götunnar, þar sem rumpulýður stundar sjálftektir og bætir við dóma dómstóla með því að berja dæmt fólk í götuna til viðbótar við dómsorðið í réttarsölum, er ekki við örðu að búast en að ríkisfjölmiðill ljúgi og greini ekki rétt frá dómsmáli í siðmenntuðum löndum.

Sama hvað manni finnst um Lars Hedegaard, þá var hann sýknaður af ásökunum um refsiverð ummæli um múslíma í Hæstarétti Danmerkur árið 2011. Fyrra dómsorð var ógilt, en það sagði að Hedegaard bæri að greiða 5000 króna sekt (rúml. 115.000 ISK).

Maður spyr sig, hvort svo lélegur fréttaflutningur á RÚV orsakist af lélegri menntum starfsmanna fréttastofnunnar og úreltum starfs- og siðareglum hjá RÚV, eða  hvort starfsmenn þar séu sumir hverjir fylgjandi þeirri heimsmynd öfga sem Hedegaard og aðrir leyfa sér að gangrýna.  Ég hef í mörgum færslum bent á slagsíðu í fréttaflutningi RÚV sem gæti bent til þess síðastnefnda.


Furðudýrafræðingurinn og Eggjahausinn

crop_260x
 

Í morgun var Útvarp Hamas (RÚV) með útsendingu þar sem sjálfsmenntaður furðudýrafræðingur fréttastofunnar, Þorvaldur Friðriksson, og Árni Eggjarauða úr VG helltu úr könnum haturs síns í garð Ísraels og gyðinga. Það var eins og að þeir væru að lesa upp úr Passíusálmunum. "Gyðinga hörð var heiftin beisk, hjartans blindleiki og villan treisk".

Eftir að Þorvaldi Friðrikssyni, sem lært hefur smá fornleifafræði í Svíþjóð, varð ljóst, að "Keltabyggð" frá því fyrir landnám, sem hann þóttist hafa fundið, væri frá 13. öld, gerðist hann fréttamaður á RÚV (með drykklöngum pásum) og sérhæfði sig þar í stuðningi við hryðjuverkasamtök og fiskeldi.

Waldo
Þorvaldur Friðriksson. Efst er Che Che Árni

 

Árni Þór Sigurðsson, er hins vega mest þekktur sem fórnalamb íslensk múgs í fyrra þegar hann fékk egg "í gagnaugað" við setningu Alþingis, og var vart hugað pólitískt líf í langan tíma á eftir. Í kjölfarið vildi hann afnema fundarfrelsi og lýðræðið. Í dag vill Árni helst senda lið til Gaza til að berjast við hina vonda Ísraelsmenn, enda eru þeir með lýðræði. Þetta fár í Árna er ekkert nýtt og heldur ekkert sem Árni tók upp á þegar hann lærði smá slavnesku í Sovétinu sáluga. Nei, þegar Árni var í Róttæka Félaginu í MH árið 1979, lagði hann líka til að að félagið hvetti íslensk stjórnvöld til að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Hann vildi að Ísraelsríki yrði máð út af landakortinu eins og hann orðaði það.

Þessir heiðursmenn voru teknir í viðtal á morgunútvarpi Rásar 2 í Ríkisútvarpinu í morgun, þar sem allir frasarnir um þjóðarmorð, fangelsi, stríðsglæpi osfr. flutu út á öldum ljósvakans. Kryddið á gyðingahaturspítuna var frú Tamimi, sem er leyft að upplýsa þetta um sig á vef Alþingis:  "F. 7. janúar 1960.  Framkvæmdastjóri."  Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, B.A. í Félagsfræði frá Háskóla Íslands.

Ekkert af þessu fólki hefur þó blætt út í opinni umræðu á fjölmiðlum út af fjöldamorðunum á Sýrlandi, en furðudýrfræðingurinn talaði um linnulausar eldflaugaárásir Hamas á Ísrael sem einhverja saklausa flugeldasýningu. Kannski verður Hjálpasveit skáta með 8 metra langar og 90 kg. þungar rakettur frá Íran um áramótin sem Þorvaldur getur krækt sér í. Vonandi er einnig, að Árni eggjahræra fari með Össur-sveit undir vopnum til Gaza. Tamimi, sem ekki þarf að upplýsa um uppruna sinn og ættir á heimasíðu Alþingis eins og aðrir Alþingismenn, getur orðið klappstýra, þó hún kunni greininga ekki að gæta jafnréttis og jafnvægis í skoðunum sínum, sem er auðvitað frábær eiginleiki í stöðu þeirri sem hún hefur fengið af Össuri, fyrir flokksstuðninginn.

hamas-rockets-2012-1 

Fjölbreytt úrval af flugeldum verður fáanlegt hjá VG um næstu áramót. Hjálparsveit Árna skaffar dótið.

Hamasgangur VG og Samfylkingarinnar varðandi Gaza skilar líka alltaf nokkrum plúsprósentum í kosningatölur þessara flokka. Félögunum verði nefnilega ekki eins heitt í hamsi um nokkur önnur mál en ástandið við Botn Miðjarðarhafs. Botninn í íslenskum fjölmiðlum er ekki lengur uppi í Borgarfirði.  

Sjaldan hefur RÚV sýnt sig sem eins ógeðslega áróðursmaskínu eins og morgun

Hlustið ef þið þorið. 


Er Ekvador draumaland nauðgarans?

Las Muchachas con El Assange
 

Aumingja karlrassinn hann Julianus, sem um skeið dvaldi í Mosfellsbæ og duflaði við marga í hópi íslenskra blaðamanna. Drengurinn sá þarf nú að flýja allt suður til Miðbaugs, til Ekvadors, þar sem hið fornkveðna er enn við lýði: Sus enemigos son mis enemigos. Miss Enemiga býr auðvitað í Svíþjóð, sem er, eins og kunnugt er, mjög svo aftarlega á merinni, réttarfarslega og í mannréttindamálum. Svíar eru heimsþekktir fyrir spillingu og sem skósveinar vondu mannanna í BNA. Allt öðruvísi en Ekvador, sem er sósíalístísk velferðarparadís eins og Ísland.

Réttast hefði verið fyrir fósturmóður eins af blaðasnápunum sem héngu í skottinu á Assanganum um tíma, að bjóða honum í sælureitinn, eins og öðrum heimsmeistara í móðursýki, rugli og vitleysu. Fósturmóðirin, Jóhanna Sigurðardóttir, er hvort eð er alltaf tilbúin í að brjóta lög og ganga á bak orða sinna. Assange getur svo bara fengið vegabréfið hans Bobby Fischers. Hann þarf hvort eð er ekki að nota það frekar en heimsmeistarinn. Báðir eru ofsóttir af vondum mönnum, og Obama líka, og komast hvergi.

Íslenskir femínistar yrðu vafalaust stórfegnir ef Assange yrði boðið til Ísalands. Þá fengju þeir nú líkast til nóg að gera. Bara senda Assangann á Þjóðhátíð í Eyjum, og þá eru komin tíu ný mál.


Krummafréttir

Zawad
 

Það er logið miklu að fólki í fréttum RÚV, m.a. vegna þess að fréttastofan er aðalmálgagn óvinsællar ríkisstjórnar og fréttamennirnir flestir í sama svínsbleika samfestingnum og ríkisstjórnin. Einn fréttamannanna er meira að segja stjúpsonur forsætisráðherrans. Fréttum varðandi Miðausturlönd er alls ekki hægt að treysta á RÚV, þegar þær varða Ísrael. Fréttamenn á RÚV eru að farast úr pólitískri rétthugsun, tilbúnir að hliðra til sannleikanum eins og við sáum t.d. í saltmálinu, sem var stormur í vatnsglasi, en hefur skilið eftir sjúkt fólk sem ekki eru enn búið að ná sér eftir salteitrun fjölmiðlanna.

Í gær laug fréttamaðurinn Gunnar Hrafn Jónsson enn einu sinni, og það gerði hann með glæsibrag er hann krunkaði á léttu nótunum í Síðdegisútvarpinu. Ég hef margoft skrifað um glannalegan fréttaflutning þessa unga fréttammanns og annarra kollega hans. Vegna rangfærslu hans og vanþekkingar þeirra sem hann bar opinberlega á torg ritaði ég umsjónarmönnum Síðdegisútvarpsins, Halla Thorsteins, Lindu og Guffa:


Vegna ummæla Gunnars Hrafns Jónssonar fréttamanns í Síðdegisútvarpinu fyrir rúmum 15 mínútum um Black Cobras glæpagengið í Danmörku, sem eru glæpasamtök innflytjenda með múslímskan bakgrunn, þá  er mjög einfalt að benda á réttar upplýsingar um þessi samtök: http://da.wikipedia.org/wiki/Black_Cobra.

Gunnar gerði lítið úr því hve hættuleg þessi samtök eru. En þau eiga mannslíf á samviskunni.

Gunnar sagði "gamansögu" af einhverri fyllibittu sem kom til Malmö og vildi klippingu, og eins frá þjófnaði á bakkelsi úr sendiferðabíl. Glæpir Black Cobras eru hins vegar miklu alvarlegri en þessi dæmi Gunnars gætu gefið til kynna og hefur hann ekki unnið heimavinnuna sína - enn einu sinni.

Maður verður undrandi vegna lélegrar rannsóknarvinnu þessa unga fréttamanns sem mér virðist alveg vera að farast úr pólitískri rétthugsun
.

Gunnar Hrafn sagði í Síðdegisútvarpinu, að hann hefði átt erfitt með að finna eitthvað um Black Cobras gengið. Er fært að fréttamaður á fullum launum hjá RÚV geti ekki googlað og fundið lágmarksupplýsingar? Ég hef enga trú á því að hann geti ekki fundið neitt um glæpi „skrýtna glæðagengisins Black Cobra" eins og hann kallaði það. Ef til vill er tölva stjúpsonar Jóhönnu Sig. með einhverja stillingu sem síar allt ljótt um múslíma í burtu, eins og vírus og hvað annað barnaklám.

Hvað á maður að halda? Hvernig getur fréttamaður sem sér um erlendar fréttir talað á léttum nótum um glæpagengi í Danmörku sem á mannslíf á samviskunni. Black Cobras er glæpagegni sem keppir við Hells Angels og Bandidos rokkara í eiturlyfjasölu og öðrum glæpum. Það eru til önnur gengi svipuð Black Cobras, t.d. "Ghetto Outlaws" sem er stjórnað af »Múhameð málara« – Mohammed Figuigui, sem einnig var meðlimur í Hizb ut Tharir, öfgasamtökum múslíma í Danmörku, þar sem talsmenn hafa verið dæmdir fyrir að hvetja til að drepa gyðinga hvar sem þá er að finna. Figuigui er nú vel geymdur í steininum, en árið 2010 reyndu fylgismenn hann að "frelsa" hann þegar ekið var með hann á milli fangelsa..

Farið nú að segja fréttir á RÚV, en ekki ykkar afbökuðu persónulegu skoðanir sem allt of oft eru allar ataður út í fáránlegri pólitískri rétthugsun æsingamannsins. Allir vita, að margir í stétt blaða- og fréttamanna er fólk sem hefur óhemju stórt álit á að það sé að bjarga heiminum og málunum í gegnum fréttaflutning sinn. Er lygi og vanþekking rétta leiðin til þess að segja fréttir? Til hvers þarf fréttamaður á RÚV að vera með grínfrétt um eitt hættulegasta glæpagengi Norðurlanda?

Myndin efst er af Zahed Mawad palestínskum meðlimi Black Cobras (sem nú er hættur) Myndin neðst er af bróðurómyndinni hans sem slasaðist er hann fauk af mótorhjóli á 190 km á klukkustund  í íbúðarhverfi. Þegar lögreglan skóf hann upp sagði litli karlinn þetta.

 »Fucking löggusvín«

»Mamma þín er mella«

»Komdu bara og slástu við mig«

Rami Mawad var heppin og var útskrifaður af spítala 14 dögum eftir slysið, þá lét hann þessa skoðun í ljós við lærisveina sína: 

»Það er einn þarna uppi sem heldur yfir mér hlífðarhendi.«

Greinilega eru fleiri "þarna uppi", því á Fréttastofu RÚV á Íslandi er mönnum fyrirmunað að segja sannleikann um hardcore múslímsk glæpagengi í Danmörku. Á ríkisrekinni fréttastofu á Íslandi er gert lítið úr vandanum og sagðar skemmtisögur af vínabrauðsstuldi Black Cobras.

Réttast væri að senda RÚV reikning fyrir leiðréttingar þessar, en heillasamlegast væri fyrir RÚV að losa sig við ónýta fréttamenn.

Rami
Rami Mawad, Palestínudani og kókaínsali, nú til heimilis í fangelsi fyrir alvarlega glæpi. Efst má sjá bróður hans á jólasýningu danska hersins. Górillan efst, sem er ólæs, teiknaði félagsmerki Black Cobra.

Hvað gera stórmennin í Háskóla Íslands nú?

 

Nú er engin undirskrifasöfnun í gangi í Háskóla Íslands eins og árið 2003 þegar 81 háskólaborgari skrifaði undir það, að Ísraelsríki væri líklegt til að fremja þjóðernishreinsanir meðan að órói væri yfirstandandi í hinum múslímska heimi. Meðal þeirra sem skrifuðu undir árið 2003 voru sagfræðiprófessorar eins og Gísli Gunnarsson, Helgi Þorláksson og Gunnar Karlsson, og sömuleiðis mannfræðiprófessorinn Unnur Dís Skaptadóttir og einhver starfsmaður stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Sjá hérhér og hér getið þið séð nöfn sumra hatursmanna Ísraels sem vinna eða hafa unnið, og hatað, hjá Háskóla Íslands.

Nú er hins vegar mjög rík ástæða til að safna undirskriftum gegn fyrirhugaðri þjóðernishreinsun og þjóðarmorði, því æðsti trúarlegi leiðtogi Mullastjórnarinnar í Íran ajatollinn Khamenei hefur enn einu sinni lýst því yfir  í ræðu, að Ísraelsríki sé krabbamein sem þurfi að fjarlægja (sjá hér). Þar að auki hefur á írönsku vefsíðunni Alef, sem stýrt er af rannsóknarstofnun ajatollans, verið birt nákvæm lýsing á því sem gera skal samkvæmt Khamenei. Ísrael skal eytt og gyðingar, hvar sem þá er að finna, skulu drepnir. Þessi ræða og þetta hatur er auðvitað ekkert nýtt. Hún hefur heyrst áður í hinum múslímska heimi, áður meðal nasista og sumir vinstri menn virðast hallir undir svona morðhjal og tilbúnir í "krabbameinslækningar" Írans.

Nú hefur Íran opinberlega birt Wannsee áætlun sína varðandi útrýmingu gyðinganna. Kjarnorku- og Íslamveldið Íran ætlar sér að gera það sem Hitler mistókst.

En ætla heilagir gyðingahatarar í HÍ að styðja Íran eða mótmæla fyrirhuguðu þjóðarmorði Írans? Geta sagnfræðiprófessorarnir Gísli, Gunnar og Helgi og allir hinir hatursmennirnir í fílabeinsturninum ekki komið sér saman um almennilega undirskrifasöfnun, eða ætla þeir að taka þátt í þjóðernishreinsunum með Khamenei frænda?

Kannski er það sem mig grunar rétt, að í Háskóla Íslands hati menn Ísrael, og kannski Hannes Hólmstein, mest, og hafi því ekki tíma eða andlega getu til að mótmæla fyrirhugaðri útrýmingu eina lýðræðisríkisins í Miðausturlöndum og öllum gyðingum?

Ef til vill er bara best að setjast á sófann með þjóðarmorðingjum og ræða Palestínuvandamálið (sjá hér). Enginn verður dreginn fyrir landsdóm fyrir slíkar öfgar, öfugt við þá sem sáust með Hitler á sínum tíma.

Er ekki við hæfi að senda eina vinsælustu írönsku kvikmyndina á síðustu árum í Sjónvarpinu. Ég hef sett kynningu efst. Myndin styður greininga stefnu utanríkisráðherrans og ríkisstjórnarinnar á Íslandi sem er í góðu stjórnmálasambandi við Íran, en hefur hins vegar margoft rætt um/hótað að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael.

Imba og Assad

Fólk sem hagar sér eins og svín - 3. hluti

 

Í hópi þeirra sem skrifuðu undir þessa einkennilegu yfirlýsingu 81 háskólaborgara á Íslandi árið 2003, sem ég fjallaði um í síðustu færslu, er íslenskur prófessor í mannfræði. Það gerði líka annar íslenskur prófessor sem var dóttir nasista. 

Íslenskir háskólamenn óttuðust árið 2003 þjóðarhreinsanir Ísraela. Gyðingar voru í hugum þessa fólks líklegastir til þjóðernishreinsanna.

Þó svo að ég hafi í síðustu færslum mínum um fólk sem hagar sér eins og svín vegna hugsjóna sinna, fárast yfir frumstæðni fárra Íslendinga sem halda að svínaúrgangur séu mótefni gegn Íslam og moskum, er ég ekki fæddur í gær. Ástæðan fyrir því að ég er fylgjandi bygginu moska á Íslandi er sú von mín, að í þeim verði ekki predikað það hatur og sú mannfyrirlitning sem því miður er predikuð  svo mörgum moskum heims. Það hatur fer ekki leynt. 

Ég er heldur ekki blindur og heilaþveginn eins og mannfræðiprófessorinn sem talaði í síðdegisútvarpinu á RÚV sl. fimmtudag. Efnið var kynþáttafordómar og snerist umræðan fljótt upp í að múslímar væru helstu fórnarlömb slíkra fordóma í nútímanum.

Unnur Dís
Unnur Dís Skaptadóttir

 

Mér er næst að halda, að mannfræðiprófessorinn Unnur Dís Skaptadóttir hafi talað gegn betri vitund, nema að hún sé haldin alvarlegum þekkingarskorti. Hún hélt því nefnilega fram að ofsóknir gegn múslímum á okkar tímum væru eins og gyðingaofsóknir nasista. Hún hélt því einnig fram að birtingarmynd hatursins gegn múslímum í Evrópu á okkar tímum væri alveg eins og myndmál nasista gegn gyðingum á síðustu öld. Engin furða þegar maður sé hvaða hatursplagg hún undirritaði árið 2003.

Hatur hluta hins íslamska heims gegn t.d. gyðingum, kristnum (t.d. Armenum og Koptum), vestrænni menningu, BNA, svo og kynþáttahatur í garð þeldökkra múslíma í Afríku, er rógróið í menningu sem og í trúarbrögðunum Íslam. Ef mannfræðiprófessor við íslenskan háskóla veit það ekki, ætti háskólinn sem ráðið hefur prófessorinn að athuga sitt ráð. Það er miklu meira áhyggjuefni fyrir hinn íslenska akademíska "heim"en heimildanotkun Hannes Hólmsteinss Gissurarsonar sem fárast var svo mikið yfir hér um árið að maður gat haldið að fólk væri með Hannes á heilanum.

Það er einfaldlega ekki rétt hjá Unni Dís Skaptadóttur, að eðli og birtingamynd haturs í garð múslíma í Evrópu í dag sé það sama og birtingarmynd haturs nasista í garð gyðinga á síðustu öld og fyrr. Það er alvarleg sögufölsun.

Myndmál öfgamúslíma gegnum síðustu 60 árin í þeirra heimalöndum sem og í Evrópu, þangað sem þeir hafa flutt eða flúið, myndmál haturs sem m.a. beinist gegn þeim hópi fólks sem þeir hata mest, er alveg eins og myndmál haturs nasista á gyðingum. Múslímar birtu og birta enn skopmyndir í anda der Stürmer og annarra nasistablaða. Öfgamúslímar hata nefnilega sama hópinn og nasistar og margir þeirra vilja í ofanálag útríma þjóðríki gyðinga og gyðinga hvar sem þá er að finna. Múslímar í Danmörku voru fyrir nokkrum árum dæmdir til fangelsisvistar fyrir að lýsa yfir slíkum kenndum.

Ef dr. Unnur Dís Skaptadóttir kennir nemendum sínum það sem hún sagði á fimmtudaginn var í síðdegisútvarpinu, þá er hún ekki að miðla fræðilegri umræðu, heldur aðeins yfirborðskenndum tilfinningum sínum sem lýsa alvarlegum þekkingarskorti á minnihlutahópum og þjáningum þeirra undan ofstæki fasískra meirihlutahópa, sem stunda þjóðarmorð í nafni öfgafullrar hugsjónar eða öfgafullrar útleggingar á trúarbrögðum.

Vitanlega er myndmál og eðli haturs ákveðinna hópa í garð múslíma jafn ógeðfellt og hatur öfgamúslíma í garð gyðinga og Ísraels, en það er ekki eins og myndmál og eðli haturs í garð gyðinga eins og það sýndi sig hjá nasistum á fyrri hluta 20. aldar.  Það hatur hafa öfgafullir múslímar einfaldlega fengið að láni og hafa notað grimmt. Maður hefur ekki getað opnað dagblað í hinum múslímska heimi eftir 1940 án þess að sjá það hatur í máli og myndum.

Reyndar notuðu Rússar og önnur ráðsstjórnarríki einnig sama myndmálið. Myndir sem birts höfðu í Nasistablöðum voru endurnotaðar í Pravda og síðan í Al Ahram og öðrum blöðum í miðausturlöndum. Nasistar nútímans afneita þjóðarmorðum nasista og múslímar gera það sama, t.d. þjóðarmorðinu á Armenum árið 1915. Utanríkisráðherra Tyrklands hló nýlega framan í hinn siðmenntað heim um daginn í Sviss og afneitaði þjóðarmorði Tyrkja. Tyrkneski ráðherran sýnir okkur líklega hlægjandi hvar næsta þjóðarmorð mun eiga sér stað í heiminum. Fasismi sá sem við sjáum um gjörvallan heim Íslams getur vart endað í öðru.

Við höfum þegar séð slátrunina í Darfúr. Dyggur stuðningur við fjöldamorð og þjóðarmorð múslíma, t.d. nú á Sýrlandi, kemur frá Pútín keisara í Rússlandi og frá Kína. Það skýrir á vissan hátt þann stuðning sem vinstri menn sýna Öfgaíslam, þar sem þeir afneita hlutum sem gerast fyrir framan augunum á okkur og kenna Ísrael og gyðingum um allt saman. Öfgamúslímar og vinstri menn sem telja sig eiga einkarétt á sannleika og réttlæti eru einfaldlega hættulegustu vopnabræður nútímans.

Ef Unnur Dís Skaptadóttir hefur ekki grundvallarþekkingu á eðli og birtingarmyndir versta kynþáttahatursins í Evrópu á 20. og 21. öld er illt í efni. Mjög mikið hefur verið skrifað um efnið, en það virðist greinilega hafa farið fram hjá prófessornum á Íslandi, nema að hún hafi pólitíska eða hugsjónalega ástæðu til að látast ekki þekkja eða vita þegar hún talar í síðdegisútvarp RÚV. Í ljósi þess að hún hefur tekið þátt í hatursáróðri ráðlegg henni að sækja sér ólaunaðs leyfis og leita sér betri menntunar. 

Pólitísk rétthugsun og lýðskrum mannfræðiprófessorssin í Ríkisútvarpi finnst mér alveg eins alvarlegur hlutur og þegar einhverjir öfgaasnar grafa svínaúrgang í grunna þeirra lóða sem valdar hafa verið fyrir mosku.

Ég vona að þessar tvær myndir frá YouTube gefi mannfræðingnum betri yfirsýn yfir það hatur sem vinstri menn á Íslandi hafa enn ekki gefið upp á bátinn.


Fólk sem hagar sér eins og svín - 2. hluti

British_Muslim
 

Starfsmaður stofnunar Vigdísar Finnbogadóttir í erlendum tungumálum álítur að engar sannanir séu fyrir því að múslímar hafi verið viðriðnir árásirnar á tvíburaturnana í New York og á Pentagon þann 11. september 2001. Hann hefur skrifað nafn sitt undir undirskriftasöfnun fólks með sömu öfgaskoðanir og sama brenglaða hugsunarháttinn. Þessi samsærisheili heitir Pétur Knútsson og hefur í áraraðir kennt fornensku við HÍ. Á meðal þeirra sem skrifa undir með Pétri Knútssyni er fólk sem er sannfært um að gyðingar standi á bak við árásina á tvíburaturnana.  

Árið 2003 safnaði Pétur Knútsson (fæddur Ridgwell) undirskrifum hjá háskólaborgurum á Íslandi sem voru þess fullvissir að Ísraelsmenn myndu framkvæma þjóðernishreinsanir á Palestínumönnum. Þetta fólk skrifaði undir eftirfarandi texta:

"Við undirritaðir íslenskir háskólastarfsmenn höfum séð áskorun frá 187 ísraelskum háskólakennurum, þar sem þeir biðja þjóðir heims að vera á verði gegn hugsanlegum þjóðarhreinsunum á Palestínumönnum í skjóli stríðs gegn Írak - það sé vilji núverandi ísraelskra stjórnvalda að færa sér i nyt stríðsástand í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs til að hrekja á brott alla araba frá bæði Ísrael og Palestínu.

Með óhug höfum við veitt því athygli hvernig stjórn Ísraels hefur eyðilagt alla æðri menntun í Palestínu, raunar alla menntun í landinu. Með óhug höfum við séð hvernig núverandi ráðamenn í Ísrael hafa reynt að eyðileggja alla innviði hins palestínska samfélags, bæði byggingar og stofnanir, og óttumst að þetta sé upphaf stórfelldra þjóðarhreinsana.

Með óhug höfum við veitt því athygli hvernig stjórn Ísraels hefur eyðilagt alla æðri menntun í Palestínu, raunar alla menntun í landinu. Með óhug höfum við séð hvernig núverandi ráðamenn í Ísrael hafa reynt að eyðileggja alla innviði hins palestínska samfélags, bæði byggingar og stofnanir, og óttumst að þetta sé upphaf stórfelldra þjóðarhreinsana."

Ég minnist þess ekki að þessi fríði hópur Ísraelshatara í Háskóla Íslands hafi mótmælt þjóðernishreinsunum og þjóðarmorðum múslíma í Darfúr. "Þjóðernishreinsanirnar Ísraelsmanna" hafa hins vegar látið bíða eftir sér og Gaza er meira að segja orðið yfirráðasvæði Hamas, sem eru sammála Pétri Knútssyni og Co. um tvíburaturnanna. Eins og margir muna þá fögnuðu margir Palestínuarabar fjálglega þegar árásin var gerð árið 2001.

Ef einhverjir tala um þjóðernishreinsanir, þá eru það þau öfgaöfl sem vilja sjá Ísrael þurrkað af landakortinu, og hjálpakokkar þeirra á Vesturlöndum. Þeir vilja ríki gyðinga feigt og leyna því alls ekki. Við getum t.d. nefnt Helga Þorláksson, Gísla Gunnarsson og Gunnar Karlsson þrjá sagnfræðiprófessora við HÍ, en þeir skrifuðu einnig undir hatursyfirlýsinguna árið 2003. Það gerði t.d. líka Hjalti Hugason guðfræðingur, sem 8. apríl árið 2006 tók þátt í ráðstefnu um gyðingahatur sem haldin var á Akureyri, og þar sem ég flutti líka erindi þar sem deildi þessu út til fámenns þátttakendahóps.

Petur Knutsson
Pétur Knútsson dósent
 

Yngri kynslóð öfganna 

Undir sama þaki og enskudósentinn Pétur Knútsson á Seltjarnarnesi býr samkvæmt símaskrá ungur maður sem ber nafnið Tómas Gabríel Benjamin (upphaflega Benjamínsson). Hann er ritari í stjórn ungliðahreyfingu Vinstri Græns framboðs.

Gabríel Benjamin, sem er með gráðu í heimspeki við Háskóla Íslands, þar sem umsjónarkennari hans var enginn annar en Vilhjálmur Árnason, sem einnig var fullviss um það árið 2003 að gyðingar myndu stunda þjóðernishreinsanir, hefur greinilega mikla þekkingu á öfgamönnum og hefur skrifað um þær á síðu Ungra Vinstri Grænna. Þar skrifar kammerat Benjamin þessi makalausu orð um öfgamenn:

Okkur er talið [sic] trú um að fyrir tæplega níu árum hafi hópur af öfgamúslimum valdið geysilega miklum skaða í Bandaríkjunum. Afleiðingar þessa mannskæðu árása voru ný alda af tortryggni gagnvart öfgamönnum og voru margir sem aðhylltust sömu trúarbrögð taldir með í þeim hópi. Öfgamenn eru sagðir lokaðir í eigin heimi og úr öllu sambandi við raunveruleikann. Siðferði hefur allt annað gildi fyrir þá og tilgangurinn helgar algjörlega meðalið. Skiljanlega er hægt að vekja upp rödd tortryggninar [sic] til þeirra sem virðast ekki beita heilbrigðri skynsemi eða gagnrýnni hugsun í gjörðum sínum.

"Okkur er talið trú um að öfgamúslímar hafi valdið miklum skaða í Bandaríkjunum" segir heimspekingurinn Benjamin. Er þetta samsærishjal íbúanna í húsi á Seltjarnarnesi kannski almenn stefna hjá ungliðum Vinstri Grænna?

VG Benjamin
Tómas Gabríel Benjamin ritari
 

Mér sýnist nokkuð öruggt, að á úti á litlu og lágu nesi á Íslandi sé enn til fólk sem hugsar mjög smátt. Ef maður vissi ekki betur, þá héldi maður að grein Tómasar G. Benjamins ritara fjallaði um hryðjuverkin í Bandaríkjunum árið 2001, en þessi Benjamin er víst í vafa um að öfgamúslímar hafi lært lárétt flug áður en þeir réðust á saklaust fólk í New York. Vinstrigrænn pistill hans er ósmekkleg samlíking hryðjuverkanna árið 2001 við bankadrengina á Íslandi og þá sem eru fylgjandi frjálshyggju. Að menn geti séð einhver tengsl þar á milli er mér hulin ráðgáta.

Ég veit eiginlega ekki, hvort er meira svínarí, að grafa svínaúrgang niður í grunn guðshúsa á Íslandi eða að gera þá sem lesa Viðskiptablaðið að verri hryðjuverkamönnum en þá sem "okkur er talið trú um" að hafi  tekið líf um þriðja þúsund manns í Bandaríkjunum árið 2001.

En það er vissulega áhugavert að vitað að stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum skjóti skjólshúsi yfir menn sem vanvirða minningu þeirra sem myrtir voru í New York  þann 11.9. 2001. Þessir tveir menn í húsi á Seltjarnarnesi eru bara brot af stóru vandamáli á Íslandi: Öfgum vinstrimanna, sem styðja hryðjuverk og kynþáttafordóma, því samhljóða stefna þeirra og öfgamúslíma gegn Ísrael er ekkert annað en kynþáttafordómar.

nasser-kicks-500
Þetta hefur enn ekki tekist... en Össur sparkar nú

« Fyrri síða

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband