Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Gyðingahatur

Fräulein Hauptmann á Iceland Review

frl_hauptmann.jpg

Ung þýsk kona, Katharina Hauptmann að nafni, hefur skrifað fyrir Iceland Review og t.d. Wall Street International, og er víst sérfræðingur í gyðingahatri, þegar hún er ekki barþjónn í Reykjavík. Hún kemur líka frá því menningarsvæði þar sem fyrirbærið gyðingahatur hefur náð hæstum hæðum á síðari tímum. Er því nokkur furða, að hún sé sérfræðingur í þessu ljóta fyrirbæri? En fyrir gyðingahatri hefur stúlkan víst aldrei orðið, svo hvernig hún veit hvernig það er, er mér ekki fyllilega ljóst.

Í hvert sinn sem gyðingar gangrýna Ísland fyrir gyðingahatur sem fram kemur á alþjóðlegum vettvangi er þessi kona, sem býr á Íslandi, farin á kreik til að segja öllum að gyðingahatur sé alls ekki til á Íslandi og að ekkert vandamál sé þar til staðar.

Þetta gerði hún árið 2011(sjá hér) og aftur á FB sinni í sl. mánuði, þegar birtist frekar léleg grein eins af deildarstjórum SWC (Simon Wiesenthal Center), sem hafði uppgötvað sjúkt myndband eftir íslenskan listamann. (Sjá skjámynd af FB Hauptmanns  neðst).

Kona þessi telur greinilega ekki að gyðingahatur getir verið til staðar í landi ef í því búi engir eða mjög fáir gyðingar. Þó samlandar hennar fyrr á árum hafi nær verið búnir að myrða alla gyðinga Evrópu með dyggri aðstoð ýmissa annarra þjóða, og að gyðinga sé næri aðeins að finna á söfnum í sumum löndum þar sem Helförin fór fram, þýðir það þó ekki að gyðingahatrið hafi horfið. Það er enn til í Þýskalandi og fjölda landa í mið og austur-Evrópu. Maður verður svo sannarlega var við það. Önnur rök hennar eru eins og eitthvað glamur í drukkinni menntaskólapíu. "Aðeins 2 % Íslendinga eru kaþólikkar" skrifar Hauptmann. "Þrátt fyrir það hata aðrir Íslendingar ekki íslenska kaþólikka". Þetta á, að mati Fräulein Hauptmann, að sýna það fjarstæðukennda í að nokkur á Íslandi sé gyðingahatari.

Nú vill svo vel til, að kona þessi sankar að sér vinum á Facebook sem deila með henni skoðunum sem verður hreint út sagt að gera Wall Street International viðvart um og það við fyrsta tækifæri. Þýsk Fräulein með slíka vini getur vitanlega ekki skrifað fyrir Wall Street International.

Meðal þeirra er bandaríski ríkisborgarinn Ted Theewen að nafni. Í mars sl. skrifaði þessi maður, sem er greinilega er satanisti og gyðingahatari í ofanálag þetta á FB Katharinu Hauptmanns, og hún lét það óáreitt:

Jews are all for making fun of other religions until it´s their turn. There is an old Polish proverb: The harder a Jew hits you, the louder he cries out in pain. I´ve noticed that Iceland is under a systematic attack by Zionist interests. I´m sure the attacks will stop once you give them something. A Holocaust museum usually shuts them up for a while.

Svo mörg voru orð FB-vinar Katharinu Hauptmann. Skrif hennar og dómur hennar um gyðingahatur á Íslandi voru hér vegin og léttvæg fundin. Fräulein Hauptmann, greinarhöfundur á Iceland Review og Wall Street International er alls ekki dómbær á gyðingahatur frekar en þeir gyðingahatarar sem hún vingast við á FB.

Iceland Review er lítill sómi í að ráð slíka manneskju til að rýna í íslenskt þjóðfélag Benedikt Jóhannesson, ESB sinni í öðru veldi, ræður þar ríkjum og ætti að vita það. Nýlega greindi hann sannarlega ástandið rétt er hann sagði að Þýskaland réði öllu í ESB (sjá hér). Það má líka til sanns vegar færa, að langt er of gengið þegar þýskar fraukur eru farnir að tjá sig um tilfinningar gyðinga í íslenskum þjóðernisglansblöðum á ensku, líkt og þær væru sérfræðingar í þeim efnum. Ætli Hauptmann hafi boðið Wall Street Journal greinar sínar um gyðinghatrið á Íslandi, þar sem hún segir m.a. að sérfræðingur Simon Wiesenthalstofnunarinnar sé bjáni? Nei, ætli það? En best er að spyrja...

fraulein_hauptmann3_1257536.jpg


Zensurstelle Gamlar Glansmyndir

zensur.jpg

Nýlega bauð einn ágætur blogg- og facebókarvina minna mér inn í lokaðan hóp á FB sem ber nafnið Gamlar Ljósmyndir.

Ég skoðaði oft myndir á þessari síðu og gat í fáeinum tilvikum gefið upplýsingar sem menn leituðu að. Það er gaman af skoða gamlar ljósmyndir. Þær staðfesta hve ung við erum.

volvo_1800.jpg

Fyrir um það bil viku síðan gerði ég athugasemd um bílamynd og setti þessa mynd af konu sem vann "dýrlingsbílinn" í vöruhappadrætti SÍBS árið 1969 og ég spurði menn um númerið á gráa silfurlitaða Volvo 1800 bílnum sem ók um götur Reykjavíkurborgar áður en konan á Hringbrautinni vann hvítan bíl sömu gerðar. Meir að segja Egill Helgason bauð (rangt) í númerið á gráa Volvóinum en man vel eftir honum eins og ég. Allir strákar vildu eiga svona bíl.

Svo gerist það að ég er fjarlægður af FB-hópnum Gamlar Ljósmyndir. Það þykir mér auðvitað skrýtið og hef samband við Guðjón Friðriksson sagnfræðing sem er einn af umsjónarmönnum Gamalla Ljósmynda. Hann kunni engar skýringar á þessu. Fólk sem hafði lækað færslur mínar og gert umsagnir við myndir þær sem ég setti inn tóku að hafa samband við mig og spyrja mig hvort ég væri hættur í hópnum.

Ég hætti ekki og fjarlægði mig heldur ekki úr þessum fríða flokki sem nú telur yfir 4500 manns. Ég varð hins vegar fyrir ritskoðun, því á Íslandi eru ákveðnar fígúrur úr sögu Íslands, sem voru ljósmyndaðar, álíka heilagar og spámaðurinn mikli er fyrir þorra núslíma. Ég móðgaði minningu Gunnars Gunnarssonar með því að birta myndir af honum í Þýskalandi, t.d. mynd af Gunnari þar sem hann kemur stoltur af fundi hjá Hitler.

gunnar_hittir_hitler_1a_lille_1254162.jpg

Gunnar er hetja á Íslandi

konungskoman_1921.jpg

Það voru fjandakornið ekki myndir af konungskomunni árið 1921 sem ég birti með spurningu um hvar maður gæti skoðað kvikmynd Bíó-Petersens um komuna, eða mynd af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur með útrásarvíkingum í Kaupmannahöfn sem ollu útilokuninni. Ég birti líka mynd af Hermanni Jónassyni í Danska sendiráðinu árið 1937, þar sem hann sagði skoðanir sínar á gyðingum.

Nei, mig grunar að Gunnar Gunnarsson sé svo helgur sumum framsóknarkommunum á Íslandi, að ekkert megi segja um hann og engar myndir megi birtast af honum. Gunnarsstofa á Skriðuklaustri birtir t.d. engar myndir af Gunnari þar sem hann er á sjarmaferð meðal nasista í Þýskalandi. Ég hélt því fram á Gamlar Ljósmyndir að hann hefði verið nasisti, gagnstætt mönnum eins og Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni sem hafa hreinsað hann með þeim barnalegu rökum að Gunnar hefði ekki getað vitað neitt um ósköpin sem síðar hentu gyðinga og aðra. Það er auðvita tóm tjara. Gunnar vissi vel hvað var að gerast í Þýskalandi fram til 1939.

sendira_i.jpg

Hermann í Danska sendiráðinu í Reykjavík sama kvöldið og hann lýsti því yfir að Ísland væri hreint, norrænt land og að allir gyðingar sem inn í landið hefðu komist myndu verða sendir út aftur.

 

Þormars þáttur Skriðu

Svo vill til að maður með ættanafnið Þormar æsti sig mjög við gamla ljósmynd af Gunnari Gunnarssyni sem ég setti inn. Hann upplýsti að hann væri afkomandi bónda sem selt hefði Gunnari Skriðuklaustur.

Einn eiganda kaffihússins Babalú á Skólavörðustígnum skildi einnig eftir sig athugasemd þar sem hann taldi óviðeigandi að birta mynd af Gunnari hjá Hitler. Ég vissi ekki betur en að maðurinn sem Gunnar heimsótti í Berlín hafi myrti suma ættingja annars eiganda Babalús,sem reyndar er giftur þeim sem taldi myndina óviðeigandi á "Gömlum ljómyndum".

gunnar_koenigsberg_1_a_lille.jpg

Svo skemmtilega vill til að annar maður með ættarnafnið Þormar er einnig umsjónamaður á FB-Gamlar Ljósmyndir. Ég hef spurt hann líkt og Guðjón Friðriksson sagnfræðing. Andstætt Friðrik er Sigurður Þormar þögull sem gröfin.

Menn ættu ekki að kalla sig "Charlie Hedbo", ef þeir þola ekki að sjá Gunnar Gunnarsson í nasistaham. Fólk sem fárast yfir spámannamyndum, þolir greinilega ekki ljósmyndir af Gunnari Gunnarssyni þegar hann kemur með sælusvip af fundi með Hitler.

Ritskoðun sú og útilokun sem ég varð fyrir á Gömlum Ljósmyndum sýnir mér ýmislegt. Frelsið er svo sem svo á Íslandi. Ég er þó þakklátur fyrir að ég hafi aðeins verið verið útilokaður en ekki hálshöggvinn. S(Í)S liðar Gamalla Ljósmynda eru enn í DDR-aðferðunum. Kannski koma blóðugri dagar?

Það er gaman að skoða gamlar ljósmyndir, þær staðfesta hve ung við erum og á stundum hve forstokkuð, fasísk og afdalaleg við erum. Afdalamenn ættu ekki að pæla í gömlum ljósmyndum.  Það er þeim ekki hollt. Ég mæli með glansmyndafeisbók fyrir slíkt fólk.

happy_old_days_1254160.jpg

Ég birti reyndar einnig þessa mynd á "Gömlum Glansmyndum" degi áður en mér var úthýst þar, en mér var vitanlega ljóst að hún væri of eitruð fyrir gömlu ráðsstjórnina á FB-Gamlar Ljósmyndir. Hún er samt svo gömul, að flestir Samfylkingarmenn sem ég þekki, eru búnir að gleyma því þegar Imba hélt því fram í Kaupmannahöfn árið 2008 (mars) að íslenskt efnahagslíf væri "sterkt og sveigjanlegt".

Svo ég upplýsi alla "glæpi" mína á Gömlum Glansmyndum, þá birti ég líka þessa filmu um daginn:


Íslendingar eru fávitar...

holocaust_ignorance_1254128.jpg

að minnsta kosti, þegar að fræðslu á helförinni kemur. Ísland er samkvæmt nýrri skýrslu UNESCO það ríki Evrópu sem kennir minnst allra ríkja í álfunni um helförina Holocaust/Shoah), hina skipulögðu útrýmingu á gyðingum í kjölfarið á níu ára ofsóknum nasista gegn þeim.

Kannski eru það mistök að Íslendingar kenni ekkert um helförina, taki maður tilliti til stefnu ríkisstjórnar Íslands árið 1937-39, þegar Hermann Jónasson og sú ríkisstjórn sem hann sat í var af "prinsippi" mótfallin því að veita gyðingum dvalarleyfi á Íslandi (sjá hér). Margir Íslendingar eiga líka afar erfitt með að sætta sig við að Gunnar Gunnarsson og Guðmundur Kamban voru skósveinar nasista. Prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur t.d. sýknað Gunnar af nasisma m.a. með þessum vafasömu rökum: "því að grimmdarverk þýsku nasistanna urðu ekki öllum ljós fyrr en eftir stríð".

Ekkert er að finna um Holocaust/Shoah/Helför stærsta þjóðarmorð 20. aldar í námsskrám á Íslandi, þó svo að Íslendingar hafi árið 2000 skuldundið sig til að kenna sérstaklega um helförina.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNESCOs. Sérfræðingar í Þýskalandi hafa komist að þessari niðurstöðu varðandi Ísland. Ísland er enn aftast á merinni.

Nýlega (desember 2014)hringdi ég í Menntamálaráðuneytið og spurði út í kennsluna um helförina vegna greinar sem ég er að vinna að. Þar kom ég líka að tómum kofanum. Séra Baldur Kristjánsson, sem ég hringdi einnig í, þar sem hann er vel inni í öllum minnihlutamálum, var einnig á þeirri skoðun að fræðsla um helförina væri í mýflugumynd og væri kennurum í sjálfsvald sett, hvort þeir kæmu yfirleitt inn á efnið. Kemur það heim og saman við niðurstöður samantektar UNESCO.

Næstu lönd við Íslands sem gefa jafn mikið frat í upplýsingu og fræðslu um helförina og þjóðarmorð og Ísland, eru Egyptaland, Líbanon og Írak. Er nema von, að fæstir á Íslandi, kunni ekki skilgreininguna á þjóðarmorði.

Hér er Ísland aftur komið með afar vafasamt hlutverk á meðal þjóðanna, og nú fær maður hlutaskýringu á því af hverju gyðingahatrið er oft svo svæsið á Íslandi. Jafnvel vinstri menn á Íslandi eru gyðingahatarar, þó þeir haldi vart vatni fyrir minnihlutum eins og samkynhneigðum og múslímum, sem mönnum ber vitanlega skylda til að þykja vænt um líka.

Nýlega hélt maður einn, frekar óheflaður, því fram á fasbók Gísla Gunnarssonar fyrrv. prófessors í sagnfræði að ISIL væri tilbúningur Ísraelsmanna. Gísli ávítaði manninn með þessum orðum:"Þú ert að styðja ofstækismenn í Ísrael með þessum fullyrðingum, Óskar." Gísli og aðrir yfirlýstir vinstrimenn eru mjög ósparir á að stimpla aðra sem ofstækismenn. Þeir sjá því miður ekki ofstækið í sjálfum sér.

hja_gisla_gunnarssyni.jpg

Óskar þessi,sem vegna gyðingahaturs hefur um árabil uppnefnt mig "Villa öfgamann í Köben", FB-vinur Gísla Gunnarssonar líkt og ég, fékk greinilega heldur ekki næga kennslu í skóla. Vandamálið er gamalt. Nasistar og gamlir kommar halda í dag, að þeir eigi einhvern einkarétt á mannréttindum - Sem er skrýtið, þegar haft er í huga að nasistar og kommar hafa ávallt fótum troðið mannréttindi í skammlífum útópíum sínum, sem voru reyndar helvíti á jörð.


Össur píningur

Össur Skarphéðinsson (S) vill "pína Ísraelsmenn" til að sætta sig við útrýmingarherferð á Ísrael og gyðingum. Þessar píningarhugleiðingar sínar, það er viðskiptabann á Ísrael, afhjúpaði hann á hinu háa Alþingi um daginn. 
papa_gazaroni_1246553.jpg

Sjáið bara hér (8:50 mínútur inn í fréttatímann). Núverandi utanríkisráðherra útilokaði ekki að "Pína"  gyðinga ef heimurinn allur tæki þátt í slíkri "píningu".  Píning og útilokun á gyðinga var líka yfirlýst stefna forráðamanna Framsóknar á 4. áratug síðustu aldar. Allur heimurinn er sem betur fer ekki farinn aftur á sama menningarstig og Össur Skarphéðinsson, þar sem píningar og hryðjuverk eru verkfæri í mannlegum samskiptum.

Íslendingum má vera ljóst, að hagsmunir Íslendinga eru í húfi ef Ísland fer í sóló píningarherferðir gegn Ísraelsríki. Land sem leyfir einhverju braskfyrirtæki að veiða hval í óþökk siðmenntaðra þjóða, sama hve mikið slíkar þjóðir menga og drepa af fólki og hnísum, þá er stuðningur við "píningar" gegn þjóðum sem þegar eru fórnarlömb hryðjuverka, útrýmingarherferðar og haturs heilla heimstrúarbragða ekki sniðug aðferð til að gæta hagsmuna Íslendinga. Munið hverjir kaupa íslenskan fisk? Það gera hvorki Framsóknarmenn né píningarmeistari Samfylkingarinnar, flokks sem leitaði fulltingis hjá Assad Sýrlandsmorðingja, þegar Samfylkingin ætlaði inn í Öryggisráð SÞ, þar sem ætlunin var að ganga frá Ísrael.

Píningarmeistarar og sadistavinir Össurar í Samfylkingunni eru sjálfum sér verstir, þótt þeir fái "læk" á smettiskruddur sínar frá fólki sem kallar gyðinga "djöfla" og íslenska stuðningsmenn Ísraels "helvítis gyðinga".


"Helvítis gyðingur"

hrop_imamsins.jpg

Ég var fyrstur manna til að stinga upp a mosku á Íslandi og styð byggingu hennar heils hugar. Ég tel enga trú  vera verri en einhverja aðra. Það er aðeins fólkið sem er mismunandi. Þess vegna sjáum við öfgaíslam blómstra í blóðbaði, og menn hafa einnig í gegnum aldirnar sýnt það ljótasta í sér gegnum kristnina.

Það syrgði mig hins vegar að sjá og heyra, að imam safnaðarins sem fékk gefna lóð undir mosku hafi hrópað að íslendingum sem voru með við sömu "iðju" og hann sjálfur í Laugardalnum í gær. Þar mótmæltu fáeinir íslenskir stuðningsmenn Palestínu því að kvennalandslið frá Ísrael leyfði sér að leika á Íslandi. Nokkrir vinir Ísraelsríkis, voru einnig komnir á staðinn með andmótmæli. Þeir sem mótmæltu fyrir Palestínumenn töldu sig hafa ákveðið svæði, sem þeir töldu stuðningsmenn Ísraels hafa ráðist inn á. Þetta leiddi meðal annars til ljótra hrópa og kalla meðal stuðningsmanna Palestínumanna. Ekki kom til steinskasts.  Imaminn, Salman Tamimi, kallaði alíslenskan og þrautkristinn aðdáanda Ísraelsríkis "helvítis gyðing"

Nú held ég að flestir stuðningsmenn Ísraels á Íslandi séu frekar upp með sér heldur en hitt, þegar einhverjir kalla þá gyðinga. En þegar "helvíti" er sett í samhengið, er allt annað mál. Þessi hegðun Tamimis þykir mér ekki sæma trúarleiðtoga múslíma á Íslandi. Slík köll og hróp sýna að andlegur leiðtogi múslíma á Íslandi óski gyðingum helvíti og að hann sé hugsanlega ekki í andlegu jafnvægi. Þó hann sé Palestínumaður, þá er það ekki hlutverk hans að brjóta íslensk hegningarlög í hlutverki andlegs leiðtoga múslíma. Íslensk hegningarlögin gilda í Laugardalnum en ekki sharía lög.  Íþróttamannleg var þessi gusa Tamimis ekki og hefði mönnum verið vísað af velli og settir í leikbann fyrir minni sakir. Salmann verður að vara sig.

Þrátt fyrir ágætan stuðning varðliða Ísraels á Íslandi unnu íslensku stelpurnar þær ísraelsku með glæsibrag. Ætli kuldinn hafi ekki verið að drepa dætur Ísraels. Ég sé að á myndinni eru ýmsir smettisskrudduvinir þessa heiðingja. "Helvíti" voruð þið góð. Elskið Friðinn, Shalom!

_fram_srael.jpg
Varðliðar Ísraels á Íslandi. Ljósmynd. Eva Björk.

Another black day in the history of the Danish Jews

25 July 2014 was another black day in the history of the Danish Jews. About 250 participants in a rally for peace had to seek refuge in the courtyard of the Danish Parliament. The demonstrators, who were mostly Jews, many Danish supporters of Israel as well as a few democratic exile-Iranians, had gathered in a joint rally supporting peace in the Middle-East on the Christiansborgs Slotsplads, the square in front of the Houses of parliament.

The rally was organized by the Danish Zionist Organization and the Frit Iran (Free Iran) organization in Denmark. The speaker for Frit Iran was the organization's very talented  spokesperson, Jaleh Tavakoli. After one hour and four interesting talks, interrupted at times by shouts from nearby enemies of peace, the demonstration was dissolved by the Copenhagen Police. The Police couldn't guarantee any longer for the security of the participants in the rally, due to increasing threats from young Muslim troublemakers who were clustering in ever louder and violent groups nearby and even driving past in their cars shouting anti-Semitic slogans,  waving Hamas flags and showing off their advanced fuck-finger talents.

hamas_at_peace_rally.jpg
Security personnel trying to get two men to hide their Hamas flag. They told him to "fuck off". Copenhagen 7/25 2014
hizbulla_in_copenhagen.jpg
 
hizbullah_marocco_copenhagen.jpg
A Moroccan Lady carrying a Hizbollah banner was kindly asked to hide it by a Danish Police and rally security.
 
Hizb ut-Tharir members trying to gain control over the Pro-Palestinian Rally. Soon after many of the men seen here marched to the Danish Parliament with the intention to attack the rally for Peace in the Middle East.
 
Soon after the peaceful demonstration in support of Israel and peace in the Middle East started at 6 PM, the heavily guarded area around the Danish Parliament was infiltrated by small groups of young Muslim thugs, some of whom had  left a predominately peaceful Pro-Palestinian demonstration on the City Hall Square (Rådhuspladsen) in Copenhagen, which had started one hour earlier than the joint demonstration for peace held on the Christiansborgs Slotsplads.

 

When I approached the Parliament square to take part in the peaceful rally, a small group of young Muslim men hastened along Gammel Strand, in my old neighbourhood in the heart of Copenhagen. Here they were halted by riot-police units and security agents from the Danish Security Police, PET. With my small, old but faithful pocked camera a filmed the advent of this group of troublemakers. On the way to Christiansborg Palace, the seat of the Danish Parliament, they had chanted "Death to the Jews" and "Fucking Jews".  More numerous groups tried other entries to the Parliament square, which was well guarded by riot-police units. Many of the troublemakers had left a demonstration in support of the Palestinian People, where I witnessed how the organizer of that rally tried to pacify them like disfunctional children by saying "boys, can we make a deal, let the speakers speak and in the intermissions you can shout your slogans; Do we have a deal?".  Some of the troublemakers at the pro-Palestinian demonstration in the City Hall Square came from a demonstration march held by the organization Hizb ut-Tharir, which the Danish police stopped on Sct. Hans square in the Nørrebro precinct of Copenhagen, half an hour before the demonstration in front of the City hall began. Many members of Hizb ut- Tharir, an organisation banned in most European Countries, headed towards the pro-Palestine rally and became gradually louder, shouting different remarks about Jews.  Although members of the Hizb ut-Tharir in Denmark have received prison sentences for encouraging to kill "Jews  wherever they are", this terrorist organisation is still tolerated by the Danish authorities.

 
fuckfinger_to_peace.jpg

The thugs, who the Danish Police kept away from the Peace-demonstration in front of the Danish Parliament, carried the flag of Hamas. A group of about 150 of them was held back by the Police. Some managed though, to get less than 10 meters away from the Peace-rally, where some of them were effectively apprehended by the Copenhagen police. While taking photographs of them  arrested troublemakers one of the yelled at me. "Dit zionistsvin; Din "Jyde" [a flawed pronunciation] of jøde= Jew]; Jeg vil hugge hovedet af dig" /Transl. You  Zionist pig; You Jew; I am going to behead you". These extremely hateful young men are clearly no fans of peace.

anholdelse.jpg
Thugs apprehended by Danish Police 20 metres from a Peace rally in front of the House of Parliament in Copenhagen
peace_to_israel_and_palestine.jpg
Peace for Israel and Palestine was the motto for the rally in front of the Danish Parliament on 25 July 2014
 

Not the first wave of anti-Semitism in the area

The joint Iranian/Israeli demonstration for Peace in the Middle-East was held in front of the Christiansborg Palace, the seat of the Danish Parliament, less than 150 meters from an area where Jews in Copenhagen were attacked in German inspired pogroms back in 1819, and only few metres away from the Offices of the Justice Department, where Danish politician and officials by their anti-Jewish refugee laws made it possible for the Danish Police to expel Jewish refugees to Germany from 1940 to 1943, without demands to do so from the Nazi occupants in Denmark. Most of the Jews expelled in this manner met their death in different prisoner- and extermination camps. Now, fortunately, the Danish authorities were protecting the Jews from potential danger from young violent types, who chanted "Death to the Jews", combined with their proclamations that "Allah is great" and other slogans, which cannot leave anyone in the slightest doubt that they are potential killers of Jews.  

bent_m.jpg
Rabbi, Zionist activist and Peace-activist Bent Melchior, 25 July 2014

 

One of the key-speakers at the peace-rally was retied Danish chief Rabbi Bent Melchior. Melchior has  for many years  been the key figure in a peaceful dialogue between Jews and the Muslims minority in Denmark. Shortly after his address to the rally, he witnessed that his favourite short story about how easily he can walk the streets of Copenhagen and meet the greetings and happy smiles of the Muslim population in Central Copenhagen, possibly doesn't apply any more. On 25 July 2014 this favourite tale of his didn't hold to scrutiny, as it in fact hasn't done for many years because ever larger numbers of Jews in Denmark have been attacked in Copenhagen and elsewhere in Denmark if seen wearing a Magen David (star of David) or a yarmulke (scull cap). On 25 July 2014, Rabbi Melchior, who himself in 1946 applied for Alyiah (emigration) to Israel due to anti-Jewish sentiments in Denmark on the return of the Jews who fled for Sweden, must by now realize that anti-Semitism unfortunately is a part of the global support for the Palestinian cause.  On 25 July 2014 in his talk Rabbi Melchior stated firmly that he is a Zionist and a great believer in Zionism. At the Pro-Palestinian rally nearby the participants held banners where the killing of Zionists was promoted by this statement "All Zionists are a legitimate targets everywhere in the World!" (Danish: Alle Zionister er et legitimt Mål over hele Verden!). There was probably a good reason for the old Rabbi not to bless that rally with his dignifying presence and great wish for co-existence and Peace between the Jews and the Palestinians.

 

alle_zionister_er_et_legitimt_m_l.jpg

 

"All Zionists are legitimate targets all over the World", Copenhagen 7/25, 2014

 

The participants in the peaceful Jewish/Christian/Iranian rally were asked to leave the location of the rally due to security measures. The police urged the participants to seek shelter in the back court of the Danish house of Parliament. Here the police announced that the participants could walk away on their own responsibility or take a guarded Police bus, which would drive them to a secure location. The participators, mostly elderly Jews, had to flee the scene of their peaceful rally. Some of them hadn't fled anything since 1943, Others, i.e. the numerous participants in the rally who are Polish Jews, had to flee the Polish State Communist persecution of Jews in late 1960s. People I spoke to were all in a state of shock. One old man said to me: "Now, at least, I am  protected by the Danish Police". That was not the case in 1943, when he fled to Sweden. Although the Danish Police clearly was not represented with its full force, possibly due to summer vacations, they dealt well and highly professionally with the threats from people who definitely do not wish for peace in the Middle East, or for that matter in Denmark.

ind_p_christiansborg.jpg
Rally for Peace-participants fleeing into the courtyard of the Danish Parliament.

Stundin okkar á Gaza

 

Stundin okkar á Gaza er álíka þróað fyrirbæri og áróður hatursmanna Ísraelríkis á Íslandi.


Íslensk list nær nýjum hæðum

Íslensk "list" hefur nú náð nýjum hæðum sem aldregi hafa áður náðst. Snorri Ásmundsson er ekki aðeins laglaus og smekklaus transvestít, hann er einnig gyðingahatari sem misnotar þroskaskert fólk í hatursáróðri. Snorri hefur áður tekið þátt í "listrænni" uppákomu þar sem gyðingur var m.a. hengdur:
http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/133566/
http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/133718/

 


Er Egill Helgason sorry ?

ilkrsbuc1qjzi.gif

Kennari einn sem heitir Hilmar, sem oft veður upp á bloggsíðum manna með hræðilegum gífuryrðum, æstist mjög um daginn þegar ég skrifaði um moskusvik Sveinbjargar framsóknaroddvita.

Ég er reyndar fyrsti Íslendingurinn, sem ég veit um, sem í riti hefur stungið upp á mosku, en ekki Illugi Jökulsson eða Egill Helgason. Ég reit í Moggann í svari til íslensks kynþáttahatara, n.t. 14. des. 1994, bls. 44: „Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". 

egill_i_brotajarni.jpg

 

Hinn ofsafengni kennari, Hilmar, sem á stundum er stuðningsmaður Hamas og yfirlýstur gyðingahatari kallaði mig öllum illum nöfnum. Hann hefur t.d. kallað mig "gyðingaósóma".  Eftirá, þegar æðið rennur af honum,  neitar hann því að heita Hilmar og þvertekur fyrir að hann sé kennari. Hann er þó enn ekki búinn að neita því að hann sé Lionsmaður.

Ég fer ekki ofan af því að andstaða við mosku, sérstaklega mosku sem gefin hefur verið lóð, sem svo á að taka aftur frá söfnuðinum, sé ekkert annað en einhvers konar fordómar. Andstaða sjálfs míns við moskur birtist aðeins þann dag þegar þar verður boðað það hatur sem margir vinstrimenn eru haldnir, en því miður er sögufölsun orðin hluti af trúariðkunum íslensk múslíma (sjá hér). Ég hef þegar látið í ljós skoðanir mínar á síendurteknum kynþáttafordómum þjóðkirkjunnar sem birtast í Passíusálmunum og ég vona að ég þurfi ekki að gera það með múslíma.

Egill Helgason, sem nú biðst auðmjúklega afsökunar fyrir að kalla saklausa konu "rasistakellingu", skeit mig reyndar einnig út á áföllnu Silfrinu árið 2005 með röð lyga. Hann skrifaði m.a. : "Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson komst í fjölmiðla í Danmörku fyrir nokkrum árum þegar hann reyndi að fletta ofan af framgöngu Dana gegn gyðingum. Eins og kunnugt er voru danskir gyðingar ferjaðir yfir sundið til Svíþjóðar haustið 1943 og björguðust flestir með þessum hætti. Vilhjálmi taldi að þessir atburðir hefðu tekið á sig mynd goðsagnar og vildi fá að komast í skjöl útlendingaeftirlitsins til að sanna að í Danmörku hefði verið rekin andgyðingleg stefna. Úr þessu varð talsverð rekistefna." (sjá hér)

Egill birti líka þessa andgyðinglegu óþverragrein sína á visir.is og í DV þann 2.5. 2005.

Hálfum mánuði eftir að Egill Helgason níddist á mér og reyndi að gera lítið úr starfi mínu og rannsóknum, kom út í Danmörku tæplega 500 síðna bók mín Medaljens Bagside. Bók mín, sem fjallaði um flóttamenn af gyðingaættum og aðra sem Danir vísuðu úr landi, fékk mikið lof, reyndar svo mikið að sumir danskir sagnfræðingar, sem reynt höfðu að setja stein í götu mín til að hindra að ég gæti rannsakað efnið, reyndu síðar að ræna heiðrinum af uppgötvunum mínum.  Þegar dönsku dagblöðin fóru að greina frá bókinni, áður en hún kom út, bað forsætisráðherra Dana um eintak af henni, og hjólaði ég sjálfur með bókina í ráðuneytið. Ráðherrann vitnaði svo í hana í Mindelunden 4. maí 2005 við árlega minningarathöfn um lok þýska hernámsins í Danmörku, þar sem hann bað gyðinga afsökunar á þeim glæpum sem fyrirrennarar hans höfðu framið og sem ég greindi frá í bók minni. Egill hefur aldrei beðið mig afsökunar fyrir að svína mig til.

Egill er, eins og allir vita, einn af aðalsérleyfishöfunum á sannar og réttar skoðanir á Íslandi. Slíkir menn biðjast sjaldan afsökunar, og ef þeir gera það, meina þeir ekkert með því.

Einhverju sinni sagði ég frá því á Silfri Egils, að blússöngvarinn Bill Bourne í Kanada væri frændi minn. Bill er afkomandi Stephans G. Stephanssonar og Stephan G. og langafi minn Þórður Sigurðsson voru systrasynir (sjá hér). Viðkvæði Egils var: Aumingja Bill að eiga svona leiðinlegan frænda". Sjá hér.  Egill fór svo í að fjarlægja ónotin af Silfrinu, en það var um seinan eins og sjá má hér fyrir neðan. Dónaskapurinn hafði verið afritaður. Enga afsökun sendi Egill til mín eða Bills.

egils_rau_aritsko_un_1236157.jpg
 
Látum Bill frænda ljúka þessum pistli 


Morðin í Brussel varða Íslendinga


Gyðingahatur er í sókn í ESB, líka á Íslandi, eins og sjá má í umræðunni við þetta blogg. Stundum eru múslímhatarar líka gyðingahatarar og múslímar er það líka oft á tíðum. Á Íslandi þykir það greinilega allt í lagi að Íslendingar séu kallaði gyðingaósómar.

Næstkomandi þriðjudag átti ég að hitta danskan fræðimann sem búið hefur lengi í Bandaríkjunum. Við höfðum mælt okkur móts á Dansk Jødisk Museum í miðborg Kaupmannahafnar. I gærkvöld gat hann allt einu ekki komið á safnið á þriðjudegi, og spurðu hvort ég hefði tíma á mánudegi. Þar sem Dansk Jødisk Museum er alltaf lokað varð ég að stinga upp á öðrum stað til að hitta manninn. Ég geri mér grein fyrir því að maðurinn var vitanlega dauðhræddur við þau tíðindi sem í gær bárust frá Höfuðborg ESB, Brussel. ESB landið Belgía er ekki öruggt og það er ESB landið Danmörk heldur ekki.

media_l_6768401.jpg

Þar hljóp ódæðismaður inn á safn um sögu gyðinga í Brussel og skaut einu eða fleiri skotum í höfuð og háls fórnarlamba sinna. Hjón frá Ísrael voru meðal hinna myrtu, einnig tveir starfsmenn safnsins. Aðalfréttin í dag í Belgíu er samt ESB kosningarnar, þótt evrópska Helförin haldi áfram.

Gyðingahatur er enn landlægt í Evrópu og ESB gerir t.d. ekkert við þeim ofsóknum sem menn verða fyrir í Litháen, þar þeir sem benda á óeðlið í að stjórnvöld í Litháen dýrka gyðingamorðingja sem þjóðhetjur, eiga það á hættu að vera ofsóttir af lögregluyfirvöldum í landinu.

Á Íslandi starfar kennari sem kallar íslenska ríkisborga gyðingaósóma. Maðurinn sem það gerir er barnaskólakennari og virkur í Lionshreyfingunni. Yfirvöld gera ekkert. Gyðingahatarar fá hæli og landvist á Íslandi meðan fólk í lífshættu er sparkað út í hafsauga.

Ætli eðlileg spurningin sé ekki  hvenær gyðingar verða myrtir á Íslandi? Er utanríkisráðherra búinn að senda samúðarkveðjur til Brussel? Nei, en hann styður öfgamenn í Úkraínu sem hata gyðinga, enda er utanríkisráðherra Íslendinga Framsóknarmaður. Framsóknarmenn vilja einnig hefta réttindi múslíma.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband