Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mótmæli til Lettlands

Ráðherrarnir

Til að mótmæla dýrkun á nasistum og gyðingahöturum sem færst hefur mjög í vöxt í Eystrasaltsríkjum, hef ég ritað utanríkisráðherra Lettlands bréf, sem ég hef sent sendiráði Lettlands á Íslandi (sem hefur aðsetur í Osló) og beðið um að erindi mínu verði komið til Riga.

Hér efst sjáið þið Utanríkisráðherra Lettlands með utanríkisráðherra Íslands er sá síðastnefndi leiddi þing Eystrasaltsráðsins á júní 2017 í Hörpunni:  Þar sem Ísland er með í Eystrasalsráðinu, ásamt löndum sem leyfa árlegar göngur nasista, tel ég mig til neyddan til að mótmæla og vona að lesendur mínir geri það einnig. Hægt er að senda mótmæli sín til lettneska sendiráðsins í Osló: embassy.norway@mfa.gov.lv. Þið megið nota mín mótmæli óbreytt, en setið ykkar nafn undir. Til að lesa ykkur til um hvernig Eystrasaltsríki leyfa göngur nasista og fólks sem afneitar helförinni getið þið lesið ykkur til á þessari síðu.

 

Dear Ambassador of Latvia to Iceland, H. E. Judite Dobele

Is it “the new normal” for Latvia´s foreign minister Edgars Rinkevics - a foreign minister in a EU and NATO member  state - to publicly recommend for high honours a book that spews anti-Semitism and expresses “understanding” for various aspects of the genocide that all but wiped out Latvia´s Jewish  community?

Mr. Edgars Rinkevics has recommend a new book on a pre war Latvian diplomat, Ludwig Seya.  Please read here information for the reason for my question : http://defendinghistory.com/did-latvias-foreign-minister-just-honor-a-nazi-cheerleader-and-proven-antisemite/93928.

I certainly do not hope the recommendation of your countries foreign minister of a book that honours the ugliest form of anti-Semitism is the normal in Latvia. Annual Nazi marches in Latvia´s major cities in later years, where Latvian Nazi collaborators are praised as heroes is enough an insult to citizens of countries that supported Latvian independence in 1991. 

As an Icelandic citizen, a citizen of a nations who supported Latvia´s freedom in 1991, I see Latvia´s foreign ministers praise of a book on a an Latvian anti-Semite as an strange attack on democracy and minorities.  It is an act, which I hope the EU will soon realise is much too common in you good country. An anomaly which I think the Latvians could very well live without. When I supported your independence in 1992. I didn´t expect  free Latvia´s politicians to praise anti-Semites who since 1998 gather in huge annual marches in major cities, and where former Latvian Waffen-SS members,  neo-Nazis and other extremist, who praise murders of Jews and racism, gather on the main streets of Riga. I didn´t support such a state in 1991!

Dear  Ms. Ambassador, please forward these views and my question to your foreign minister in Riga. I hope he will respond to my question. My views will also be published on different websites, where I will publish the response of Mr. Edgars Rinkevics if I receive one.

Yours Sincerely,

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
An Icelandic citizen living in the EU

JBH til Janis Jurkans


100 % kvennaþing takk eða Alþingislás

Alþingislás

Hörmulegar eru þessar lýsingar. Halda mætti að besefinn á stórum hluta íslenskra karla sé alltaf úti að kíkja eða fastur í rennilásnum. Þeir eru gramsandi á hvaða konu sem er, en helst ekki sinni fallegu eiginkonu.

Ég hafði aldrei ímyndað mér að stjórnmál gætu gert karla svona óskaplega graða og vitstola og að greðjan væri aladrifkrafturinn í pólitík. Getur hugsast að einhverjar konur hafi hagað sér á sama hátt? T.d. ráðherrar sem héldu framhjá á fundum erlendis? Varla.

Þetta vandamál er auðvitað ekki aðeins til á Íslandi, sem vitaskuld afsakar ekki nokkurn skapaðan hlut. Karlar hafa alltað notað kyn sitt og fallþunga til að halda konum niðri.

Ekki eru þetta eintómir órar í konunum? - fjandakornið nei!

Dagpeningarnir á vinnufundum hins opinbera virðast fara í drykkju, kynsvall og alls kynsofbeldi. Maður hugsar með hryllingi til þeirra kvenna sem létu undan hinu opinberu kynæði.

Orð eins og drekka, fullur, brjóst og klof virðist vera það sem konurnar sem skrifa minningar sínar úr stjórnsýslu muna best frá fundum og starfi sínu.

Er nema von að allt hafi farið á hausinn á Íslandi? Stjórnlaus typpi eru ekki vænleg til árangurs.

Lausnin er Alþingislásinn, sjá ofar. Hann fæst aðeins í small og extra-small, sem smellpassar á íslenska stjórnmálamenn, forstjóra, yfirmenn og aðrar karlrembur. Setjið Lilla undir lás og slá.


mbl.is Sagðist bara þurfa að fá að ríða henni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir úr skordýrabúi

Skarni leikur listir sinar

Eftir að fráfarandi skordýrafræðingur Pírata, sem er hin versta eiturpadda, greindi skordýraflóru íslenskra stjórnmála, vakti það furðu mína að skordýralæknir einn, sem er mikil og feit fiskifluga samkvæmt eiturpöddunni,  hafi boðið býflugum (S), mýflugum (P) og maurum (V) út í sveit. Kakkalakkar (D), Hrossaflugur (M), Drekaflugur (?) og Dægurflugur (Svört fortíð) voru ekki velkomnar að skordýrabúinu Stóru-Langloku á Hrunamannaafrétti - einhvers staðar fyrir austan fjall.

Eins og lengi hefur verið vitað í fornvistfræði, eru fiskiflugur, sem buðu í partíið, gleiðopnar í báða enda og bjóða stundum býflugum, mýflugum og maurum að leggja egg í afturendann á sér. Vel fór á með smádýrunum og voru allir þreifiarmar á fullu. Stóra geitungabúið í Evrópu (VESPA) var rætt lítillega og suðuðu býflugurnar vægt um að komast þangað inn.

Svo vildi til að ein býflugan, hunangslaus að öllu leyti, bar með sér tíkarþef að Norðan að skordýrabúinu. Þetta uppgötvaði hundurinn á bænum, Skarni Vænstan, og lagðist strax á fót býflugunnar og reið honum kátt. Þetta hátterni hundarins fór fyrir brjóstin á maurunum og mýflugunum sem reyndu að stilla Skarna með því að kalla hastarlega að honum: Ussu svei, Weinstein

Haft er eftir öðrum sérfræðingum að MacSkýto byssufluga hafi verið heppinn, þar sem Skarni, sem er fyrrverandi eiturlyfjahundur, hafi ekki fundið á honum róandi töflur.

Haft er eftir Kötu brosmaur, að ekki sé svo mikill munur á fiskiflugum og maurum; Öll sé óværan ættuð úr sveitinni úr mykjuhaug eða gömlu, votu heyi.

Greinilega var þetta skordýraþing vel lukkað fyrir utan aðfarir Skarna, sem hefur greyið fengið svo gott pólitískt uppeldi að hann sýnir strax vilja eigenda sinna í einu og öllu, slefandi og glaður. Sérfræðingar telja sig hins vegar sjá mjög glögglega, að Skarni fór fyrst að sýna atlot að býflugunni þegar hún fór að minnast á evrópska geitungabúið. 

Það verður aftur suðað í Hrunahrepp á morgun, þegar afstaða Íslands í utanríkismálum (þ.e. til Ísraelsríkis og Palestínumanna verður rædd). Búist er við mikilli samstöðu. Ef eitthvað sameinar fyrrnefnd skordýr er það hatur þeirra á gyðingum. Leitt að hrossaflugurnar gætu ekki verið með.

Vinnumaurar og fiskiflugur munu örugglega hrifla saman heyi, hestaskít og kúadellu og kalla það ríkisstjórn.


Rauð ýsa er kosningarspá í boði náttúrunnar

Rýsa

Rauða ýsan sem landað var á Skagaströnd er sending og fyrirboði guðanna til Íslendinga um það sem koma skal í pólitík. Nú er það rautt maður - og sala landsins til ESB gæti verið yfirvofandi.

Trúðafiskarnir í Bjartri Framtíð, furðufiskarnir í Pírötum og hvalirnir í Viðreisn eiga sér ekki von. Bláhvalurinn er orðinn að náhveli og rekinn rotinn í land. Nú draga menn rauðar ýsur sem vilja á markað í Brussellu.

Ýsan er rauð okkur til aðvörunar. Því ef að Íslendingar selja sig í ESB, hverfur allur fiskur af Íslandsmiðum ofan í ofurgráðugar þjóðir ESB, sem sjálfar eru búnar að eyða og útrýma fiskistofnum sínum.

Hlustið á náttúruna. Ferðamenn og flóttamenn koma aldrei í stað freðfisks og rauð ýsa er aðeins afar sjaldgæft rannsóknarfyrirbæri.


mbl.is Óvenjulegri ýsu landað á Skagaströnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Syndaregistur Sólrúnar

Einræðisfruin

Ingibjörg Sólrún er algjörlega óhæf manneskja í stöðuna hjá OSCE (ÖSE). Hvaða brestur er það eiginlega í íslensku þjóðinni sem fær hana (réttara sagt yfirvöld hennar) til að verðlauna óhæft fólk og skussa?

Ingibjörg Sólrún er konan sem leitaði til Assads eftir stuðningi þegar hún vildi koma Íslandi í Öryggisráðið. Ætlunin var að gera Ísland að verkfæri Palestínuöfgamanna. Þegar stuðningur einræðisherra og fanta var ekki viss bakaði hún pönnsur í New York. Hún var með lélega uppskrift eða fúlegg. Sjá hér og hér.

assadasaassadcanbe

Ræðum Osama bin Laden var frestað á Al Jazeera þegar Sólrún heimsótti Egyptaland árið 2008.

post-5051-1113458248

Haldið var upp það með hjólbörum af kampavíni er Ingibjörg Sólrún varð 50 ára. En hver keypti kampavínið? Það voru víst aðeins hjólbörurnar sem greiddar voru af íslenskum skattgreiðenda. Eitt sinn var danskur ráðherra rekinn, því honum (ritara hans) varð það á að láta ráðuneyti greiða fyrir einn vindlakassa.

Ingibjörg Sólrún er konan sem sagði að efnahagurinn á Íslandi væri í fínu lagi – rétt fyrir hrun.

happy_old_days

Ingibjörg Sólrún er konan sem studdi stríðsglæpamanninn Eðvald Hinriksson og ásakaði Ísraelsríki fyrir að standa á bak við tilraunir Simon Wiesenthal Stofnunarinnar í Jerúsalem til að fá íslensk yfirvöld til að rannsaka mál Eðvalds Hinrikssonar (Miksons), sem Eistlendingar hafa nú lýst yfir að hafi verið stríðglæpamaður. Alltaf jafn vís hún Sólrún. Meira hér.

Ingibjörg Sólrún er líka ein af þeim þóttafullu íslensku stjórnmálamönnum sem ekki vildi hitta Shimon Peres þegar hann kom til Íslands. Sjón er sögu ríkari. Sólrún er nasistasleikja og verndari stríðsglæpamanna. Síðar var hún hrjáð að alvarlegu minnistapi - eða er hún bara tækifærissinni?

Imba

Ingibjörg Sólrún hefur sent milljónir króna til Hamas. Geri aðrir betur.

Abba et Imba

Ingibjörg Sólrún ritaði hálfsturlað bréf til Tzipi Livni og ásakaði Ísraelsríki fyrir það sem Palestínumenn aðhafast. Annað pólitískt viðrini hefur leikið sama leikinn (sjá hér). Líklegast er of snemmt að koma honum í embætti erlendis. Menn muna hann enn.

Munið þið þegar Sólrún vildi verða mannsalsfulltrúi ÖSE? Hér er smáupplýsing handa þjóð með Alzheimer.

Munið að Sólrún er ein þeirra kvenna á Íslandi sem hefur liðist það að stunda einræðisherratakta. Er það eitthvað sem við viljum?

Í hlutverki friðardúfunnar sem opinskátt styður PLO og Hamas er Sólrún eins og reitt illfygli. Greinilegt er að ÖSE hefur ekki unnið heimavinnuna sína, enda gólfið þar fullt af sams konar lukkuriddurum, sem kenna í brjósti um hryðjuverkamenn og líkja þolendum nasisma við nasista.

fri_ardufan2_1008182

Friðardans Sólrúnar er krampakenndur og mun það verða ljóst er hún hefur störf hjá OECD.


Aldrei aftur Sigmund Davíð!

anna-sigurlaug-pa_769_lsdo_769_ttir-740x400.jpg

Þessi moðsuða Moggamannsins Stefáns E. Stefánssonar er fyrir neðan allar hellur.

Thorvaldsensfélagið hvað...? Hún amma mín var einnig í Torvaldsensfélaginu og "stóð vaktina" þar árum saman. En hvað kemur það gamla góðgerðarfélag málinu við, þegar maður þessarar konu, sem var forsætisráðherra, sagði öllum að velja íslenskt því krónan væri góð, meðan þau hjónin földu evrurnar sínar og annan gjaldeyri á pálmaeyju?

Svo kenndi maðurinn hennar gyðingnum Soros um allt heila klabbið hér um daginn. Af hverju dregur hún Thorvaldsensfélagið, stofnað í nafni frænda míns Thorvaldsens, hið gamla góða félag hennar ömmu minnar og Thorvaldsensbazarinn inn í þennan skítabisness sinn ?

Eru Framsóknarburstar á Morgunblaðinu að reyna að hreinsa Sigmund Davíð með vítissóta fyrir kosningar? ER ÞAÐ YFIRLEITT HÆGT? Viljum við mann sem kennir gyðingum um fjármálaóreiðu sína í embætti forsætisráðherra Íslands????  Vitaskuld ekki. Það er örugglega nóg til af góðu fólki í Framsókn sem ekki þarf að skera í tilfallandi gyðinga til að ná athygli flokksmanna sinna.

Guð hjálpi okkur ef allur flokkurinn er á sömu skoðun. Þá hefur ekki mikið breyst síðan á 4. áratug síðustu aldar. Flokkurinn verður að losa sig við meinið.


mbl.is Staðreyndirnar virtust litlu skipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

... þótt fyrr hefði verið

143630_xtremecoleections_2015-06-10t130712z_2027441714_gf10000122808_rtrmadp_3_greece-distomo.jpg

Þjóðverjar skulda ekki bara Grikkjum. Vestur-Þjóðverjar gerðu afar lítið til að leita að og lögsækja stríðglæpamenn eftir síðari heimsstyrjöld. Dómar böðla voru styttir og menn sem myrt höfðu tugi þúsunda gyðinga og annarra lifðu til æviloka í lystisemdum. Það er fyrst nú, á síðustu mánuðum lífs sumra böðlanna, að farið er að skoða mál morðingjanna. Hingað til hafa þeir verið hylltir á sama hátt og Hitler af Þjóðverjum, annað hvort með þögninni, en oftast ljóst og opinberlega.

Í bókinni Das Amt, sem út kom fyrir nokkrum árum má lesa hvernig skítseyði úr nasistakerfinu byggðu upp Utanríkisþjónustu Vestur-Þýskalands sem gerði allt til að komast hjá því að finna og lögsækja menn eins og t.d. Adolf Eichmann.

Það sem menn vita kannski ekki er að fasistar og kommúnistahatarar í BNA gerðu þetta kleyft. Stjórnvöld í BNA ákváðu að Þjóðverjar með rófuna á milla fótanna yrðu besti og tryggasti samstarfsaðilinn í Evrópu. Þýskaland varð kjölturakki BNA. Þar skýrir saga NATÓ í hnotskurn. Furstar ESB upplifðu efnahagsundur og framgang vegna þess að þeir tóku aldrei afleiðingum gerða sinna! Vinna og elja Þjóðverja er mýta. Íbúar morðveldisins voru bornir á gullstólum til ríkidóms sem þeir stálu af öðrum.

Íslendingum ber siðferðileg skylda til að styðja kröfur Grikkja um bætur frá Þýskalandi. Þýskalandsslepja margra Íslendinga er óholl og nærri því sjúkleg. Grikkland er ein af vöggum menningar okkar, það er Þýskaland ekki. Þýskaland var hins vegar svínstrog öfga sem nær eyðilögðu menninguna - og nærri því heilu þjóðirnar með.

nazi.jpg

Lágmenning Evrópu fyrir 70 árum síðan á rústum menningar sem færði okkur ljós. Í dag er fólk, t.d. á Íslandi, farið að eltast við dauðamenningu Íslams á sama hátt og feður þeirra gældu við nasismann. Það kennir meira að segja sama fólkinu um "ófarir" sínar og heimsins. Sjálfeyðingarhvöt sumra Evruþjóða er skiljanleg í ljósi þess hlutverks sem þær léku á 20. öld við að eyðileggja Evrópu og í morðum á 6. milljónum gyðinga - sem og við nauðgunina á löndum eins og Grikklandi.


mbl.is Vilja stríðsskaðabætur frá Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá ræpa um kúka í sandkassanum og niðurgang SDG á Útvarpi Sögu

sigmundur_davi_1234802.jpg

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hélt því fram í viðtali á útvarpi Sögu í gær að George Soros stæði á bak við birtingu Panama-skjalanna (SDG lætur orð sín um Soros falla ca. 43 mínútur inn í þennan þátt).

Ósköp á nú drengurinn bágt, hugsaði ég, er ég heyrði hann halda því fram að Soros stæði á bak við fall sitt. Sigmundur Davíð telur þessa samsæriskenningu sína jafnvel efni í heilan þátt á útvarpi Sögu. Er hann með sömu veikina og Trump?, hugsaði ég með sjálfum mér.

Megi Drottinn og önnur máttarvöld varna oss frá því að slíku gjálfri verði útvarpað yfir þann hluta þjóðarinnar sem nennir að hlusta á Útvarp Sögu. En orð SDG sýna, að enn meiri ástæða er að koma í veg fyrir frekari pólitískan frama hans í næstu kosningum. Það er skylda Framsóknarflokksins að losa sig við Sigmund - ef flokkurinn ætlar sér yfirleitt að lifa af.

soros_a_heilanum.jpg

Nú er nýjasta gúrkan sem menn naga í, eftir að flestum er orðið ljóst að hjartaspítalinn í Mosfellsbæ er spilaborg og hollenski "fjármálameistarinn" er uppskafningur, að ræða um rasistana og "kúkana" sem trymbillin Waage finnur í sandkassanum sínum.

Gunnar Waage kúkaveiðimaður hefur ugglaust gleymt einum rasista á topp-20 veiðilista sínum og gæti sá flotið frekar ofarlega á listum að mínu mati. Það er SDG, því Sigmundur endurlífgar nú gamlar hefðir í Framsóknarflokknum, sem maður hélt að hefðu endað sitt skeið. Gyðingahatur hefur því miður löngum loðað við forsvarsmenn Framsóknarflokksins. Það er engin tilviljun að það var Hermann Jónasson sem lét vísa gyðingum úr landi á Íslandi og sonur hans sem féll fyrir áróðurstrikki Arafats (sjá hér).

Ég hef áður skrifað um (sjá t.d. hér hér og hér) áráttu sumra Íslendinga að kenna útlendingum um sínar eigin svikamyllur og ófarir, sér í lagi gyðingum. Nokkrir höfuðpauranna í íslenska hruninu (margir telja hrunið vera afleiðingar einhvers óáþreifanlegs samsærismökkurs í útlöndum) höfðu þörf á því að svína á gyðinga, þegar upp komst um glæpi íslenskra banka- og athafnamanna. Fjöldi Íslendinga tók einnig þátt í þeim ásökunum með banka- og stjórnmálamönnum. Líkt og kaþólska kirkjan forðum, einnig altarisdrengurinn Hitler og múslímar, kennir og ákveðin gerð afar vitgrannra vinstri manna nútildags gyðingum um allt milli himins og jarðar. Það er alltaf billeg lausn að kenna gyðingum um allt.

Sjálfstæðisflokkurinn var reyndar nærri því sama marki brenndur og flokkurinn varð síðar athvarf fyrir fjölda íslenskra nasista eftir stríð (sjá hér). Kannski er það þess vegna að einstaka sagnfræðingur meðal sjálfstæðismanna er svo mikið kappsmál að klína gyðinghatri á Framsókn, en gleyma ósómanum  í sínum eigin flokki.

Fjöldi múslímahatara á Íslandi er einnig sama marki brenndur þegar kemur að gyðingum. "Stuðningur" þeirra við Ísraelsríki einkennist oft af tvískinnungi og kemur oft einungis til svo hægt sé að réttlæta heiftarlegt og siðlaust hatur á minnihlutahóp í samfélaginu með svínshausum og blóði. Ísraelsríki er í flestum tilfellum enginn akkur af stuðningi íslenskra múslímahatara við ríkið. Múslímahatur kemur ekki veg fyrir starfsemi Hamas og annarra hópa sem hafa morð á gyðingum á stefnuskrá sinni.

En þetta hatur er sannkallaður vítahringur. Sá minnihlutahópur sem múslímahatarar hatast út í er heldur ekki barnanna bestur, því trú hans hefur einfaldlega sjálfskiptingu og innbyggt gyðingahatur. Prelátar múslíma hvetja til morða á gyðingum og öðrum  í tíma og ótíma. Við höfum svo sannarlega vör við það á síðustu vikum - ekki bara á götum Jerúsalem og Tel Aviv - heldur um heim allan.

Fólk eins og Gunnar Waage sér líklega vart rasismann hjá Sigmundi fyrir stólpanum í augunum, því rasistaexpertinn í sandkassanum er vissulega líka rasisti þegar allt kemur til alls. Hann hatar gyðingana í Ísraelríki alveg eins og vinkona hans hún Erla Sema og fjarskyldur frændi hennar á Tyrklandi, hann Erdogan.

Sjálfsímynd sú sem Íslendinga hafa þróað með sér á 20. og 21. öld er mjög naív og hefur á stundum jaðrað við rasisma. Allt er hreinast, fallegast og best - og vitaskuld hreinna, fallegra og betra en annars staðar. Íslendingar hafa sterkustu karlana, vergjörnustu konurnar, bestu bankana, hreinasta vatnið og gáfaðasta fiskinn  - svo ekki sé talað um tunguna uppi í fólki og málið. Orðbragðið upp á síðkastið bendir þó til þess að hreina mjólkin sé eitthvað farið að súrna í kokinu og iðrunum á hinum sanna, skyldleikaræktaða Íslendingi.

Íslendingar, og sér í lagi menn í valdastöðum, verða að læra að bera ábyrgð á eigin gerðum. Alveg sama hvað góðir og hreinir Íslendingar þeir eru, verða þeir að gera sér grein fyrir því að í landi þar sem þjóðkirkjan jafnt sem örgustu trúleysingjar leggja blessun sína yfir andgyðinglegan kveðskap 17. aldar, þá er til langtum fleiri rasistar en þessir 20 kúkar sem Gunnars Waage hefur safnað í sandkassanum sínum. Sumir kúkarnir finnast heldur ekki vel í svörtum sandi, því þeir eru óttaleg ræpa og jafnvel bölvað prump. Þökk sé Útvari Sögu, sem leyfði þjóðinni að heyra prump SDG í beinni. Menn kjósa kannski eftir því - þegar og ef leyft verður að kjósa.


Gamla hvað?

558696.jpgJónas Kristjánsson, fjöldaframleiðandi stuttra áróðurstexta ætluðum heimskum hjörðum, er nú farinn að jarma hátt úti haga fyrir náttúruundrabarnið Andra háfjallasól. Kallar hann nýlega haiku-vísu sína "Guðni er gamla Ísland" og hefur Jónas allt á hornum sér.
 
Þó ég telji mig vita að Jónas hinn einumoflesni hafi ávallt verið hallur undir útópíur og missterka menn, og sjái eitthvað veruleikafirrt "Neues Eisland" í hillingum handan við fjöllin, verður Háfjallasóloninn, hann Andri, að skýra út fyrir okkur, hvernig honum leið þegar hann tók við gulli sem rifið hafði verið út úr munnunum á gyðingum forðum.
 
Er það siðlegt af fjölmiðlum og Fimm Setninga Jónasi að gleyma því helvíti, þegar þeir fara á kaf í eignir foreldra Dorrit ? Sjá hér: Andri er ósiðlegheitin uppmáluð og tvískinnungurinn manngerður og á ekkert erindi á Bessastaði nema í veislur. Svo er hann hégómagjarn pilturinn svo um munar. Hann bannaði mér eitt sinn að birta af sér mynd, sem allir notuðu á vefmiðlum. Hann lét ljósmyndarann hóta mér lögsókn. Ég einn mátti ekki nota myndina, þar sem ég skrifaði um hvernig hann gleypti við styrk sem rifinn var út úr gómi dauðra gyðinga í helförinni.

Nú er lokaspretturinn baráttan um embætti forseta Íslands, á milli tveggja manna sem eru niðri á sama plani og sauðirnir í rofabarðinu. Það er reyndar barátta á milli  reynslu og reynsluleysis og erfitt verður að velja. - Ja, nema að einhver finni eitthvað verulega gruggugt á bankareikningi tengdaforeldra Guðna, eða að kassahjólin sem Guðni ekur börnunum sínum í skólann á séu ekki öryggismerkt. Ég gæti kosið þá báða, en það er ekki hægt.
 
En þegar íslenskir útópíu-nasistar og gamlar geitur eru að reyna að rífa gullið úr tönnunum foreldra núverandi forsetafrúar til stuðnings Guðna eða Andra, eru víst fleiri en Jónas Gamli sem sjá hið margrómaða og glæsta Neues Eisland eins og óbitna graslaut í fjallasal. Íslendingar breytast ekkert, þeir verða alltaf sömu heilalausu hjarð- og delludýrin sem norpa í rætur í rofabarði, þegar þau týnast ekki á heiðinni eða verða útrásardýr. Besti forystusauðurinn fyrir slíka hjörð er víst Ólafur. Guðni tekur þetta næst ef hann vinnur ekki kosninguna. Þá verður hann búinn að gefa út glæsta bók sína um forvera sína í embættinu og getur selt hana í fornleifakjallaranum á Bessó -

Ja, ef Trump verður ekki búinn að eyða jörðinni og mannkyninu áður með vinum sínum í ISIS og svíninu í N-Kóreu.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband